Þjóðviljinn - 26.01.1985, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 26.01.1985, Blaðsíða 3
FRETTIR Borgin Sparað með varmadælum? Meðþvíað nota betur heita vatnið vœri eftil vill hœgt aðgefa virkjunarsvœðum Hitaveitunnar sumarfrí, nýtaþau betur ogfarasér hœgt á Nesjavöllum, - en sú virkjun yrði að stœrð á borð við Kröflu! Varmadœlutillaga samþykkt í stjórn veitustofnana r | byrjun janúar samþykkti stjórn veitustofnana Reykja- víkur tillögu Sigurðar G. Tómas- sonar um að athuga hvort hægt er að nota varmadælur til að nýta þann hita sem nú fellur með frá- rennslisvatni til sjávar. Reynist þetta unnt mætti ef til vill virkja betur orkuna í borholum hita- veitunnar og gæfist þá ráðrúm til að fara hægar í sakirnar á Nesja- völlum í Grafningi sem nú er ver- ið að hugsa um til virkjunar. í sumum borgarhlutum er frá- rennslisvatnið notað til að kæla með of heitt vatn úr borholunum, í öðrum rennur vatnið hinsvegar beint til sjávar eftir notkun. Vatnshitinn er trúlega frá 25 upp- undir 40 gráður, og kynni að vera hægt að nýta þá orku innan kerf- isins með varmadælum. Varma- dæla tekur varmann úr vatninu og notar hann til að hita aftur upp minna magn af vatni. Hitaveitan á Akureyri notar slíkar varma- dælur og tekst á þann hátt meðal annars að hvíla virkjunarsvæði sín yfir sumarið. Fyrir utan almenna viðleitni til sparnaðar sagði Sigurður bak- Porlákshöfn 60 manna fundur Alþýðubandalagsfélag stofnað á fundinum Svavar Gestsson og Margrét Frímannsdóttir héldu fund í Þorlákshöfn í fyrrakvöld fyrir fullu húsi. Nýtt félag Alþýðu- bandalagsmanna var stofnað á fundinum, en í Þorlákshöfn hefur ekki áður verið starfandi Alþýðu- bandalagsfélag. Tuttugu manns gengu í félagið þegar á fyrsta fundi þess og var kosið í stjórn. Nánar verður sagt frá fundinum síðar. grunn tillögu sinnar þann, að því hefði verið haldið fram að hita- veitan gæti ekki bætt við sig á nú- verandi virkjunarsvæðum. Þess vegna stæðu yfir umfangsmiklar rannsóknir á Nesjavöllum og yrði á þessu ári varið á annað hundrað milljónum króna til þeirra. Sumir segðu að orkan á núverandi virkj- unarsvæðum væri á þrotum, meðal annars vegna þess að orku- öflun er þar í sífelldum gangi, svæðin lítið hvíld, og því rynni kalt jarðvatn að hitasvæðunum. Án þess að leggja dóm á þessar kenningar, sagði Sigurður, tel ég rétt að athuga hvort varmadælur geta leitt til að hægt sé að hvíla svæðin á sumrin meira en gert er og lengja þar með lífdaga þeirra. Enn hefur ekki verið samþykkt að virkja á Nesjavöllum, en Sig- urður sagði þá virkjun, ef af yrði,1 verða mikið fyrirtæki, - að afli tíu sinnum rneiri en háhitavirkjunin við Svartsengi og að stærð á borð við Kröflu. „Ég vil ekki að við flýtum okkur svo mikið að ekki verði snúið við.“ -m 1 Perla Seltjarnarnessins, Grótta, þarsem haft er fyrir satt aö ekki sé rótt aö eiga nótt. Þar aka nú vörubílar og hefur sá misskiln- ingur komið upp hjá sumum náttúruunnendum aö þarna sé verið aö leggja bílveg, - en hér er ekkert slíkt á ferð heldur er verið aö styrkja garðana sem verja á Gróttu fyrir ágangi sjávar sem löngum hefur gert sér dælt viö eyna. Mynd: EÓI. TOSHIBA stærstir í örbylgjuofnum Framsóknarflokkurinn Ráðstefna að Hótel Hofi í dag Öryggismál og kjarnorkuvopnalaus NorðurlÖnd Idag hcldur Framsóknarflokk- urinn ráðstcfnu um utanríkis- mál undir heitinu Öryggi Islands og kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum. Fundurinn hefst með ávarpi Guðmundar G. Þórarinssonar klukkan tíu. Síðan munu flytja erindi þeir Steingrímur Her- mannsson, Þórarinn Þórarins- son, Þórður Yngvi Guðmunds- son, Gunnar Gunnarsson fram- kvæmdastjóri öryggismálanefnd- ar auk Geirs Hallgrímssonar. Að þeim loknum verða fyrirspurnir og umræður og því næst verður umræða um kjarnorkuvopnalaus svæði á Norðurlöndunum. Páll Pétursson og erlendir fulltrúar munu taka.þátt í umræðunum. Ráðstefnan er öllum opin. Reynslan 1984 - Baráttan 1985 Aðalfundur verkalýðs- málaráðs Alþýðubandalagsins Föstudag 1. febrúar Kl. 20.30-20.45 Þröstur Ólafsson formaður setur aðalfundinn með ávarpi. Kl. 20.50-11.20 Panelumræður: „Reynslan 1984- Baráttan 1985“. Fulltrúar frá BSRB og ASÍ verða í panelnum. 1.-2. febrúar 1985 Fundarstaður: Hverfisgata 105, Reykjavík Aðalfundur Verkalýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins verður hald- inn að Hverfisgötu 105 í Reykjavík föstudagskvöldið 1. febrúar og laugardaginn 2. febrúar n.k. Dagskrá Laugardagur 2. febrúar Kl. 10.00-12.00 Umræður um skipulag á starfi verkalýðsmálaráðs. Framsögumaður verður Hansína Stefánsdóttir. Kl. 12.00-13.00 Léttur hádegisverður að Hverfisgötu 105. Kl. 13.00-13.30 Skýrsla um kjarabaráttu sjómanna: Hafþór Rós- mundsson framkvæmdastjóri Sjómannasam- bandsins. Kl. 13.30-16.00 Almennar umræöur. Kl. 16.00-17.00 Afgreiðslur. Stjórnarkjör. Aðalfundur verkalýðsmálaráðs er opinn öllum Alþýðubandalags- mönnum og öðrum áhugamönnum um verkalýðsmál. BESTU KAUPIN ÖRBYLGJU0FN frá TOSHIBA Japan 10.877 stg. Góöir greiösluskilmálar Bakaðar kartöflur á 5 mín Steikir roastbeaf á 20 mín. Bakar sandköku á 6 mín. Steikir sunnud. lærið á 40 mín. Sýður fisk á 5-6 mín. Poppar á 3 mín. Fáður þér Toshiba örbylgjuofn, - of n frá stærsta f ramleiðanda heims á örbylgjuofnabúnaöi. FráToshiba koma nýjungarnar. Þaö nýjasta, ofnar með DELTAWAVE dreifingu, meö eða án snúningsdisks. Ofnar búnir fullkomnustu öryggjum sem völ er á. Fáöu þérofn meö þjónustu: 190 blaösíðna matreiðslubókog kvöldnám- skeiö fylgir. Fullkomin námskeiðsgögn á íslensku. Opinn símatími og upp- lýsingarfrá sérfræöing okkar ímatreiðslu íörbylgjuofnum, Dröfn H. Faret- sveit hússtjórnarkennara, menntaöri fráTilraunaeldhúsi Toshiba í Eng- landi. Fullkomin þjónusta og þú færö fullkomið gagn af Toshiba örbylgjuofnunum. 5 geröir fyrir heimili, 2 geröir fyrir hótel og mötuneyti. EINAR FARESTVEIT & CO. HF. BERGSTADASTRA.TI I0A • SlMI 16995

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.