Þjóðviljinn - 26.01.1985, Side 6
Hilmar Sigurgíslason tekinn föstum
tökum af vörn Crvenka - dæmigert
fyrir leikinn í gærkvöldi. Víkingar
höfðu betur í slagnum þegar upp var
staðið. Það voru þeir júgóslavnesku
ekki sáttir við - eins og sjá má á hin-
um skapmikla þjálfara Slobodan
Miskovic á litlu myndinni. (Myndir:
E.ÓI.)
Stórkostleg markvarsla, stór-
kostlegur varnarleikur - hraður,
harður og stórskemmtilegur
handknattleikur - og, umfram
allt, frábær sigur Víkinga á bik-
armeisturum Júgóslavíu, 20:15, í
fyrri leik liðanna í Evrópukeppni
bikarhafa í handknattleik. En -
þetta er bara fyrri hálfleikur,
seinni leikurinn á sunnudags-
kvöldið verður erfíður fyrir Vík-
inga og eins og Þorbergur Aðal-
steinsson og Guðmundur Guð-
mundsson lögðu áherslu á eftir
leikinn, þá var þetta aðeins fyrri
hálfleikur. Stórkostlegur, eftir
sem áður, og eitt það albesta sem
sést hefur á fjölum Laugardals-
hallarinnar í áraraðir.
Þegar leikmönnum Crvenka
tókst ekki að skora mark fyrstu
mínúturnar gerðu áhorfendur sér
ljóst að þeir yrðu vitni að sérstök-
um leik. Kristján Sigmundsson
sýndi undursamleg tilþrif á þess-
um kafla og fyrstu fimmtán mín-
útur leiksins varði hann átta skot.
„Eftir 5 mínútur fundum við að
Njarðvíkingar mörðu sigur á KR,
83:80, í hörkuspennandi leik í úrvals-
deildinni í Njarðvík í gærkvöldi.
Teitur Örlygsson innsiglaði sigur
UMFN á síðustu sekúndunni eftir að
KR hafði verið fjórum stigum yfír
þegar skammt var til leiksloka.
KR komst 12 stigum yfir í fyrri hálf-
leik, 11:23, og staðan var 21:31, þegar
skammt var til leikhlés. Heimamenn
náðu þó að breyta stöðunni í 41:39 sér
í hag áður en flautan gall. Njarðvík
var yfir fyrri hluta seinni hálfleiks en
KR náði síðan forystu - UMFN náði
að jafna, 78:78, þremur mínútum
það var raunhæft að ætla sér sigur
í leiknum," sagði Þorbergur.
Guðmundur og Þorbergur komu
Víkingi í 2:0 og síðan Karl í 3:1 en
þá tóku Júgóslavar við sér og eftir
það skiptust liðin á um forystuna.
Víkingar náðu henni á síðustu
mínútu hálfleiksins og leiddu í
hleé, 9:8.
Sama martröðin upphófst hjá
Crvenka í byrjun seinni hálfleiks.
Liðið komst ekki á blað fyrr en á
11. mínútu en þá höfðu Víkingar
gert fjögur og staðan 13:9. Þá
misstu Víkingar mann útaf og á
svipstundu breyttist staðan
13:12. Allt að hrynja óttuðust
margir, ekki síst eftir að Þorberg-
ur skaut framhjá út vítakasti. En
Kristján og Víkingsvörnin stóðu
fyrir sínu, og síðustu sex mínút-
urnar voru frábærar. Þá komst
Víkingur í 17:14, svarað úr víta-
kasti, 17:15, en þá varröðinkom-
in að Viggó Sigurðssyni. Tvö
glæsileg mörk þar sem hann sneri
illilega á hina harðskeyttu vörn
Crvenka komu Víkingi í 19:15.
fyrir leikslok og náði síðan að knýja
fram sigur á æsispennandi lokamínút-
um.
Stig UMFN: Hreiðar 20, Gunnar 16,
Teitur 16, (sak Tómasson 10, Jónas Jó-
hannesson 9, Valur Ingimundarson 6 (! —
fékk snemma 4 villur), Helgi Rafnsson 4 og
Hafþór Óskarsson 2.
Stig KR: Guðni 19, Birgir M. 17, Olafur
14, Jón Sigurðsson 8, Ástþór Ingason 8,
Þorsteinn Gunnarsson 7, Birgir Jóhanns-
son 4 og Matthías Einarsson 3.
Kristinn Albertsson og Rob Iliffe
dæmdu ágætlega. _
- SOM/Suðurnesjum
Crvenka fékk víti - Víkingar
skiptu í fyrsta skipti níunda
manni inná og Ellert Vigfússon
fór í markið. Hann varði, og lok-
amínútuna léku Víkingar af
mikilli skynsemi. Héldu boltan-
um og freistuðu þess að skora á
lokasekúndunni. Það virtist ætla
að mistakast, Pusnik markvörður
varði örvæntingarfullt langskot,
en Guðmundur sveif eins og orr-
ustuþota inní vítateiginn, greip
boltann á lofti og skoraði 20.
markið af gífurlegum krafti.
Leikurinn úti - og leikmenn og
aðstandendur Crvenka áttu erfitt
með að leyna vonbrigðum sínum.
Trylltust gersamlega sumir hverj-
ir. En Víkingar fögnuðu og
áhorfendur með þeim. Stórkost-
legt.
Víkingsliðið sýndi heilsteyptan
og góðan leik með markvörslu
Kristjáns og varnarleikinn sem
hornsteina. Steinar Birgisson á
sérstaklega skilið hrós fyrir
frammistöðu sína í vörninni. Þor-
bergur og Viggó léku vel en voru
helst til lengi að átta sig á hve lítið
þýddi að lyfta sér upp fyrir fram-
an hina öflugu vörn Crvenka.
Aldrei feimnir við að reyna þrátt
fyrir mótlæti og mörk Viggós í
lokin voru frábær og gætu reynst
dýrmæt. Hilmar Sigurgíslason
var virkur á línunni, og þeir Guð-
mundur og Karl Þráinsson ógn-
andi í hornunum. í heild vel út-
færður og agaður sóknarleikur
Víkinga. Ekki má gleyma Einari
Jóhannessyni, hann var mikil-
vægur hlekkur í vörninni.
Lið Crvenka leikur svipað og
önnur júgóslavnesk lið sem hing-
að hafa komið, leikur frjálslegan
sóknarleik sem gekk illa upp í
þetta skiptið, beitti skæðum
hraðaupphlaupum og sýndi mjög
góðan varnarleik. Markvarslan
hjá Pusnik varfrábær, hann varði
á þriðja tug skota. Það býr vafa-
lítið meira í liðinu en það náði að
sýna, baráttugleði Víkinga og
hvatning áhorfenda komu Júg-
óslövunum hvað eftir annað úr
jafnvægi.
„Lélegri en
ég bjóst við“
„Mér fannst lið þeirra lélegra
en ég bjóst við, maður var búinn
að vera með hjartað í brókunum
alla vikuna, við vissum ekkert um
þeirra styrkleika. Ég tel að inn-
stillingin og það að við ætluðum
okkur ekkert annað en sigur hafi
ráðið úrslitum. Við erum með
reynslumesta liðið hér á landi og í
svona leik náum við að sýna okk-
ar besta. En, þetta er bara fyrri
hálfleikurinn, en sá seinni á
sunnudagskvöldið leggst mjög
vel í mig. Það er að duga eða
drepast,“ sagði Þorbergur Aðal-
steinsson í samtali við Þjóðvilj-
ann eftir leikinn.
„Markvarsla í
heimsklassa“
„Kristján lokaði markinu og
sýndi markvörslu í heimsklassa,
alveg einstaka, og vörnin hjá
okkur var mjög góð. Áhorfendur
voru vel með á nótunum og hjálp-
uðu okkur yfir erfiða kafla. Það
hefur verið góð stígandi í leikjum
okkar undanfarið og nú fórum
við vel í gang. En við verðum að
koma okkur niður á jörðina strax
í kvöld. Við höfum ekkert unnið
enn“, sagði Guðmundur Guð-
mundsson fyrirliði.
Mörk Víkings: Viggó 6, Þor-
bergur 6 (3v), Guðmundur 5 og
Karl 3.
Mörk Crvenka: Holpert 5 (2v),
Beker3, Calic3, Vasic2, Trboje-
vic 1 og Grahovec 1.
Sænsku dómararnir Broman
og Baldemo höfðu góð tök á erf-
iðum leik.
Víkingar - þá er að klára dæm-
ið á sunnudagskvöldið. Vonandi
fá þeir góðan stuðning fleiri á-
horfenda en mættu í gærkvöldi.
Þeir eiga það skilið.
Handbolti
Þróttur
áfram
Þróttur vann nauman sigur á KA,
21-20, í bikarkeppninni í handknatt-
leik á Akureyri í gærkvöldi. KA var
yfir, 19-17, skömmu fyrir leikslok en
Þróttarar voru sterkari í lokin og
Sverrir Sverrisson skoraði sigurmark
þeirra þegar 20 sekúndur voru til
leiksloka. Mikil spenna ríkti í lokin og
á síðustu sekúndunum skaut Er-
lendur Hermannsson í stöng Þrótt-
armarksins.
Sverrir skoraði 9 mörk fyrir Þrótt,
Páll Ólafsson, Birgir Sigurðsson og
Bergur Bergsson 3 hver. Jón Krist-
jánsson skoraði 5 mörk fyrir KA, Pét-
ur Bjarnason 4 og Friðjón Jónsson 3.
-KH/Akureyri
Haukasigur
á Nesinu
HK burstaði Pór
Haukar tóku bæði stigin með sér
heim eftir mikinn baráttuleik við
Gróttu í fþróttahúsinu á Seltjarnar-
nesi í gærkvöld. Lokatölur urðu 23-21
fyrir Hauka en í hálfleik höfðu þeir
þrjú mörk yfir 12-9.
Leikurinn var fjörugur og
skemmtilegur á að horfa. Liðin skipt-
ust á um forystuna framan af leiknum
en Haukamenn náðu að tryggja sér
sanngjarnan sigur í síðari hálfleik.
í Kópavogi unnu heimamenn HK
stórsigur á Þór frá Akureyri 20-11. í
hálfleik var staðan 8-6 fyrir HK en í
síðari hálfleik hreinlega stungu þeir
Norðanmenn af. Magnús stóð sig
mjög vel í marki HK og þeir Ársæll og
Pétur voru drjúgir við markaskorun-
ina. Hjá Þór stóð Nói Björnsson einn
uppúr fremur slöku liði.
-VS
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 26. janúar 1985
Körfubolti
Naumt hjá
Njarðvík!