Þjóðviljinn - 08.02.1985, Síða 1
GLÆTAN
LANDIÐ
<
■ - ■■■ :■ ■ ::
• <■■
Aldraðir
Þessi aðstaða fyrir sjúkra* og iðju
helst í dag,“ segir Gunnar Sígurðs
læknir á B-álmu Borgarspítalans sem
fyrir sér hálfkarað húsnæðið ásamt þ
Möller deildarstjóra t.v. Sesselju Gun
ur deildarstjóra og Jónu Eggertsd
agsráðgjafa á hjúkrunardeild aldra
álmunni. Mynd - E.ÓI.
/
Auðir salir á 5 hæðum
B-álma Borgarspítalans: Ríkisstjórnin skar niður framlögin. Meirihluti borgarstjórnar
bregst einnig. Vantar 140 miljónir. Ríkið og borgin leggjast á eitt
um að hindra framgang málsins. Sjúklingar bíða hundruðum saman.
Fjárframlög til B-álmu Borgar-
spítalans eru í ár skorin niður
um % frá því sem áður var áætlað
eða úr rúmum 60 miljónum niður
í tæpar 20. Talið cr að um 140
miljónir þurfi til að Ijúka að fullu
framkvæmdum við bygginguna.
Aðeins tvær af sjö hæðum eru
komnar i notkun.
Framlög ríkisins sem eiga að
standa undir 85% byggingar-
kostnaðar hafa farið sflækkandi
að raungildi í valdatíð þessarar
ríkisstjórnar. Þau voru 22 miljón-
ir 1983 en eru samkvæmt fjár-
lögum í ár aðeins 18 miljónir. Þar
til viðbótar kemur framlag
Reykjavíkurborgar sem er skorið
niður í sama mæli og ríkisins og
telur aðeins 1.4 miljón kr. í ár.
Þessi mikli niðurskurður mun
m.a. valda því að ekki verður
kleift að standa við fyrri áætlanir
um að taka iðju- og þjálfunar-
deildina á 1. hæð í notkun í ár, en
sú aðstaða er mjög aðkallandi.
Við afgreiðslu fjárhagsáætlun-
ar borgarinnar í nótt flutti Adda
Bára Sigfúsdóttir borgarfulltrúi
tillögu um 5 miljón kr. aukafjár-
veitingu borgarinnar til B-
álmunnar til að tryggja að hægt
yrði að ljúka við iðju- og þjálfun-
ardeildina í ár. Umræðum var
ekki lokið þegar blaðið fór í
prentun.
-Ig-
Sjá bls. 3.
Pappírsflóð
30 þúsund tonn
Andvirði miljarðs. 125 kíló á mann
Allir kannast við það pappírs-
flóð, sem yfir hvern mann
flæðir daglega í formi blaða,
tímarita, sendibréfa, rukkana og
kvittana og fleira og fleira. A síð-
asta ári voru flutt til landsins 30
þúsund tonn af pappír, pappa,
vörum úr pappír, blöðum,
bókum og tímaritum. Og þetta
mikla pappírsflóð kostaði alveg
um einn miljarð króna.
Þetta pappírsmagn nemur
hvorki meira né minna en 125 kg.
á hvert mannsbarn á íslandi og ef
við miðum við meðal fjölskyldu
er þetta um 36 kíló á mánuði eða
um eitt kíló á dag.
Pappír, pappi og vörur úr slíku
var flutt inn í fyrra fyrir 862 milj-
ónir króna, samtals 29.110 tonn.
Af bókum á íslensku voru flutt
inn 195 tonn fyrir 25.6 miljónir
króna, bækur á erlendum tung-
umálum 108 tonn fyrir 34 miljón-
ir króna, blöð og tímarit 284.7
tonn fyrir 39.8 miljónir króna og
bækur fyrir börn námu 22 tonn-
um. - S.dór
Sjómannadeilan
UU að klofna
Margir útgerðarmenn hafa leitað eftir samningum við SSI. Vaxandi
óánægja meðframkomu stjórnar LÍÚ ísamningaviðrœðunum
Nú þegar Ijóst er að stefnir í
verkfall hjá sjómönnum, er
kominn mikill taugatitringur í
marga útgerðarmenn, sem eru
óánægðir með framkomu LÍU í
samningamálunum fram til
þessa. Hafa nokkrir útgerðar-
menn leitað hófanna bak við
tjöldin um að þeir sem eru í and-
stöðu við stjórn LÍÚ taki upp
beinar viðræður við Sjómanna-
sambandið. Ljóst er því að LÍÚ er
að klofna í málinu.
Að þessu sinni fer Vinnuveit-
endasambandið með samning-
amálin fyrir hönd LÍÚ, en það
hefur aldrei gerst áður. LÍÚ hef-
ur alltaf sjálft komið fram sem
samningsaðili gagnvart sjó-
mönnum. Þetta líkar mörgum út-
gerðarmönnum illa.
Það hefur einnig komið fram í
fréttum Þjóðviljans, staðfest af
nokkrum útgerðarmönnum, að
þeir hafa nær allt síðastliðið ár
yfirborgað sjómenn á bátunum til
þess eins að halda góðum mann-
skap. Þessir aðilar eru tilbúnir til
samninga við sjómenn til að af-
stýra verkfalli nú þegar vetrar-
vertíðin er að hefjast fyrir alvöru
og aflabrögð víðast með ágætum.
- S.dór