Þjóðviljinn - 08.02.1985, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 08.02.1985, Blaðsíða 2
___________FRETTIR Félagshyggja Málfundafélag stofnað r Aannað hundrað manns voru á stofnfundi Málfundafélags félagshyggjufólks sem haldinn var á Hótel Borg í fyrrakvöld. Svanur Kristjánsson kynnti til- lögur undirbúningsnefndar um lög og fyrstu stjórn Málfundafé- lags félagshyggjufólks. Ingibjörg Fjölmenni á stofnfundinum á Hótel Borg Sólrún Gísladóttir var fundar- stjóri. Birgir Björn Sigurjónsson, Jón Sæmundur Sigurjónsson og Birg- ir Árnason hagfræöingar fluttu framsögu á fundinum um efnið Ríkt land - lág laun - hvert fara peningarnir? Nokkrar umræður spunnust á fundinum, sem hald- inn var í troðfullum fundarsal á Hótel Borg. Tillagan frá undirbúnings- nefndinni um stjórn félagsins var samþykkt samhljóða. Stjórnina skipa: Ásta R. Jóhannesdóttir, Bolli Héðinsson, Garðar Sverris- son, Guðmundur Árni Stefáns- son, Jón Sæmundur Sigurjóns- son, Margrét Björnsdóttir, Kristín Ástgeirsdóttir, Snjólaug Stefánsdóttir og Birgir Árnason. í varastjórn sitja Svanur Krist- jánsson, Birgir Bjöm Sigurjóns- son og Stefán Ólafsson. _óg Fullt út úr dyrum á stofnfundi Málfundafélags félagshyggjufólks í fyrrakvöld (eik). Mývatn Gloppur í röksemdunum Ármann Pétursson í Reynihlíð: Grynnkun vatnsins mikið til vegna náttúruhamfara. Kemur hvergifram hjá Náttúruverndarráði. Hnekkir fyrir atvinnulífið ef Kísiliðjan hœttir. Eg tel að það séu ýmsar gloppur í röksemdir náttúruverndar- manna gegn Kísiliðjunni, sagði Ármann Pétursson í Reynihlíð við Mývatn. - Hér hefur t.d. orð- ið mikið landris vegna náttúru- hamfaranna, ég gæti trúað að meðal grynnkun vatnsins af þeim Mótorskip ástæðum væri allt að 25 sm. Það mundi þýða að vatnsmagnið hefði minnkað um 8-9 milj. ten- ingsmetra. Þetta kemur hvergi fram hjá Náttúruverndarráði. Það er þessi grynnkun sem ég álít að mest hafi raskað lífríkinu. Mér kæmi ekki á óvart þótt rannsóknir leiddu m.a. þetta í ljós og best að spara stór orð á meðan niðurstöður liggja ekki fyrir. í sambandi við lífríkið má líka benda á, að þar sem vatnið var áður silungslaust er nú kominn í það silungur. Annars held ég að vatnið sé allt að verða of grunnt fyrir silunginn. Nú, fuglalífið hefur breyst. Minna er orðið um sumar fugla- tegundir, sem hér hafa verið, en aðrar eru komnar í staðinn eins og t.d. álftin. Ekki þarf á það að benda hver hnekkir það yrði atvinnulífinu hér ef Kísiliðjan hætti störfum. Ég veit nú ekki nákvæmlega hve mörgum hún veitir vinnu en þeir skipta allmörgum tugum, sagði Ármann Pétursson. -mhg Laus úr varðhaldi Akureyri Varmadælur gefast vel Játning liggur fyrir Framkvæmdastjóri Mótor- skips h.f. sem dæmur var í 7 daga gæsluvarðhald um síðustu mán- aðamót vegna gruns um meint fjármálami' í'trli hefur nú verið látinn laus, enda liggur játning hans í málinu fyrir. Erla Jónsdóttir hjá rannsókn- arlögreglunni sem fer með málið sagði í gær að rannsókn þess væri langt komin, en hún vildi ekki gefa upp að svo komnu máli um hve miklar upphæðir hér væri að ræða. -S.dór Jarðvarmadœlurnar spara miljónir fyrir norðan. Fyrirmynd fyrir Hitaveitu Reykjavíkur? Hér er um það að ræða að í stað þess að henda bakvatninu leiðum við það inn á varmadælur og fáum út vatnsmagn er svarar því, sem ein meðal borhola mundi gefa, sagði Böðvar Bjarnason, tæknifræðingur hjá Hitaveitu Akureyrar, er við spurðum hann eftir reynslunni af varmadælun- um, sem Hitaveitan setti í gang í aprfl í vor. Dælurnar hafa gefist mjög vel. Þær eru settar saman úr tveimur dælum, sem gefa að jafnaði af sér 2,62 megavött, sem er sambæri- legt við 80 stiga heitt vatn, er kæmi beint úr borholu og væri kælt niður í 40 stig. Dælurnar hafa gengið að meðaltali með nýtingarstuðli 4 sem þýðir, að fyrir hverja eina kílóvattstund sem við setjum inn á þær, fáum við fjórar út. Kostnaður við uppsetningu á dælunum var um 12 milj. kr., sem er sambærilegur kostnaður við að bora eina meðal holu, en til þessa hefur raunar aðeins ein af hverj- um fjórum holum heppnast. Við dælum heitu vatni frá fjórum svæðum og það kemur í Ijós, að rekstrar- og rafmagnskostnaður við dælurnar er áþekkur þeim rekstrarkostnaði, sem er á jarð- hitasvæðunum nú, sagði Böðvar Bjarnason, tæknifræðingur.-mhg TORGIÐ Þrjátíu þúsund tonn af pappír á árí! Þá er ekki nema von að öll þessi möppudýr skuli vera til. Swing Jazzhátíð í aðsigi Fremstu jazzarar í Evrópu Til stendur að haldin verði hér jazzhátíð dagana 22. og 23. febrú- ar n.k., hin fyrsta á landi hér að sögn. Hefur verið unnið að undir- búningi hennar í meira en hálft ár, enda slíkt ekki hrist fram úr erminni. Það er hljómplötuútgáfan Gramm og Ulli Blobel Konzert- buro í Wuppertal sem í samein- ingu hafa skipulagt þessa hátíð en Goethe Institut í Þýskalandi, Plo Helvetia í Sviss og aðarar menn- ingarstofnanir viðkomandi landa hafa veitt styrk til hátíðarinnar. Á hátíðinni koma fram margir fremstu tónlistarmenn í evrópsk- um nútímajazzi, sem eiga það sameiginlegt að vera brautryðj- endur í þeirri stefnu evrópskrar jazztónlistar, sem ýmist hefur verið kennd við frjálsan jazz eða spuna og á upptök sín um miðbik 7. áratugarins. Blaðið mun segja nánar frá þessari væntanlegu jazzhátíð. -mhg Skák Agdestein sigraði Margeir teygði sig of langt og lenti í miklu tímahraki Simen Agdestein bar sigur úr bý- tum t einvígi sínu við Margeir Pét- ursson um réttinn til að taka þátt í millisvæðamóti. Hann stýrði hvítu mönnunum af mikilli fími í gærkvöldi og lagði Margeir í 41. leik. Einvíginu er því lokið og hlaut Agdestein 2Vi vinning og Marg- eir Vi Margeir lenti í miklu tímahraki undir lok skákarinnar í gær. Hann varð að vinna skákina til að eiga möguleika á einvíginu. Eru menn á því að Margeir hafi teygt sig einum of langt í gærkvöldi oe því fór sem fór. ~>g- Leiðrétting í flokksauglýsingu Alþýðu- bandalagsins í Þjóðviljanum í gær var mishermt að Steinar Harðarson væri varaformaður Neytendasamtakanna. Hann er varaformaður Neytendafélags Reykjavíkur og nágrennis og eru hlutaðeigandi beðnir afsökunar á vitleysunni. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.