Þjóðviljinn - 08.02.1985, Page 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
Föstudagur 8. febrúar 1985 32. tölublað 50. örgangur
dioðviuinn
Sjómannasamningarnir
Verkfallsboðun í dag?
Samninganefndir SSÍ og FFSÍ koma saman til fundar um málið í dag
Samninganefndir Sjómanna-
sambandsins og Farmanna-
sambandsins koma saman til
fundar í dag, þar sem tekin verð-
ur ákvörðun um hvað gera skuli í
stöðunni eftir algcrlega árangurs-
lausa samningafundi frá ára-
mótum. Samkvæmt heimildum
Þjóðviljans eru allar líkur á því
að verkfall verði boðað í dag.
Sem kunnugt er af fréttum Þjóð-
viljans hefur samninganefnd SSI
heimild til að boða verkfall sjó-
manna fram til 18. febrúar nk.
Þolinmæði sjómanna útum allt
land er á þrotum og forsvars-
menn sjómannasamtakanna
segja að eins og málin standa nú,
þá sé ekki um annað að ræða en
boða til verkfalls. Það eina sem
Vinnuveitendasambandið hefur
boðið, en það fer um samningana
fyrir LÍÚ, er bein kauplækkun.
Ekkert annað hefur frá VSÍ kom-
ið. -S.dór
Kísiliðjan:
Förum í Syðriflóa
Stjórnarformaður Kísiliðju:
Kísilgúr í Ytriflóa endist ekki til ársins 2000
Auðvitað verður farið í Syðri-
flóa, segir Sigurður R. Ragn-
arsson stjórnarformaður Kísil-
iðjunnar í viðtali við Víkurblaðið
á Húsavík í fyrradag, en 60 Mý-
vetningar hafa lýst því yfir að þeir
muni beita öllum tiltækum ráðum
til að hindra slíkt. Kísilgúrnám
hefur til þessa verið einangrað við
Ytriflóa í norðanverðu Mývatni.
Stjórnarformaðurinn bendir á
að kísilgúr í Ytriflóa endist ekki
til ársins 2001, og því verði annað
hvort að loka verksmiðjunni eða
fara í Syðriflóa. Þar sé kísilgúr
sem endist í hundruð ára þannig
að aðeins verði tekið lítið svæði á
næstu áratugum. Dýpkunin sem
af því leiði muni aðeins nema 6-7
metrum.
Sjá einnig bls. 2, og í Sunnu-
dagsblaði Þjóðviljans verður
nánar fjallað um lífríki Mývatns
og kísilgúrnám þar.
-ÁI
Olíumálin
Utgerðarmenn
hafna
Óskar Vigfússon formaður SSÍ: Ekki hægtað
taka mark á kvörtunum útgerðarmannafyrst
þeir hafna þessu tækifæri
Fyrst útgerðarmenn hafna til-
boði sjómannasamtakanna
um stofnun olíuinnflutningsfyrir-
tækis, þá fæ ég ekki séð að hægt
verði að taka mark á kvörtunum
þeirra framvegis um mikinn olí-
ukostnað. I þessu sainbandi er ég
ekki að tala um þetta tilboð frá
Olís sem er fráleitt, sagði Óskar
Vigfússon formaður SSI í samtali
við Þjóðviljann í gær.
Útgerðarmenn hafa hafnað til-
boði sjómannasamtakanna um
að stofna olíuinnflutningsfyrir-
tæki, sem flytti inn olíu á kostn-
aðarverði og vitna þeir í því sam-
bandi til umræðna um málið á
þingi LÍÚ. í þessu sambandi má
benda á að margir stærstu útgerð-
armenn landsins eru jafnframt
stórir hluthafar í olíufélögunum.
Óskar sagði að það væri enginn
vafi á því að hægt væri að lækka
olíuverðið stórlega með því að út-
gerðarmenn og sjómenn stofn-
uðu innflutningsfyrirtæki og
hann væri því samþykkur að þess-
ir aðilar slægju til í málinu.
-S.dór
Askriftarsöfnun:
Þjóðviljinn gerir lukku
Tæplega 800 nýir áskrifendur á einum mánuði.
„Hvet fasta áskrifendur til að
bjóða vinum og kunningjum á-
skrift með 30% kynningaraf-
slætti", segir útbreiðslustjóri
Þjóðviljans.
Pað er greinilegt af viðtökun-
um að fólk vill gjarnan lesa
eitthvað annað en bara Moggann,
því á einum mánuði gerðust tæp-
lega 800 manns nýir áskrifendur
að Þjóðviljanum, sagði Sigríður
Pétursdóttir, útbreiðslustjóri
blaðsins í gær.
Eftir helgina sagði Sigríður að
ný söfnun áskrifenda hæfist.
Fólki gefst kostur á að gerast
áskrifendur í 2 mánuði og er
veittur 30% kynningarafsláttur á
áskriftargjaldinu. „Það kom vel í
ljós í síðasta rnánuði", sagði Sig-
ríður, „að mjög margir lesa Þjóð-
viljann á vinnustað. Mörgum
finnst þess vegna óþarfi að gerast
áskrifandi en hinn hópurinn er
líka mjög stór sem hefur kynnst
blaðinu með þessum hætti, líkar
það vel og þiggur áskrift með
þökkum."
Sigríður sagði að útbreiðslu-
deildin vildi gjarnan fá fasta
áskrifendur Þjóðviljans í lið með
sér. „Ég vil hvetja áskrifendur til
þess að bjóða vinum sínum og
félögum blaðið með þessum
kjörum, því það er augljóst að ef
hver áskrifandi finnur einn til við-
bótar, þá tvöfaldast upplag blaðs-
ins. Þetta hlýtur að vera takmark
okkar, því fleiri sem lesa og
kaupa blaðið, því stærra og sterk-
ara blað.“
Ólafsvík
Góð
byrjun
Veiðar vertíðarbáta frá Ólafs-
vík hafa gengið vel það sem af er
árinu. í janúar bárust alls að
landi í Ólafsvík 1059 tonn af fiski
þar af 905 tonn af bátaflotanum.
Um 80% af þessum afla er þorsk-
ur.
Þrátt fyrir þessa veiði er með-
alaflinn minni á hvern bát í róðri í
ár miðað vð sama tíma í fyrra,
eða 3.4 tonn nú á móti 4.8 í fyrra.
-lg-