Þjóðviljinn - 19.02.1985, Qupperneq 2
_______________________________FRETTIR________________
Kjaradómur
Óljóst, óvíst, ósköp lítið
Liðsoddar fámálir um aðalkjarasamning BHM Kristján Thorlacius:
Hefur ekki áhrif á uppsagnir kennara
Iúrskurði Kjaradóms um aðal-
kjarasamning Bandalags há-
skólamanna og ríkisins voru
launaflokkar stokkaðir upp og
laun skömmtuð frá 18.500 til
59.329 króna á mánuði. Laun
hækka mest í efstu flokkum,
minnst í þeim neðstu. Hver er
hvar og hvað er hvers í nýju
launaflokkunum bíður hinsvegar
sérkjarasamninga félaganna í
BHM, - og oddvitar fylkinga voru
fámálir um Kjaradómsúrskurð-
inn þegar Þjóðviljinn ræddi við
þá í gær. Forseti ASÍ telur dóm-
inn hinsvegar auka ójöfnuð í
samfélaginu.
Ég hef varla neina skoðun á
þessum úrskurði Kjaradóms aðra
en þá að nú er hægt að fara að tala
skýrt um hlutina, sagði Kristján
Thorlacius, formaður Hins ísl.
kennarafélags við Þjóðviljann í
gær.
Við vitum núna hvernig þessi
svokallaði aðalkjarasamningur
lítur út, sagði Kristj án, - en vitum
hinsvegar ekkert hvar hver lendir
í þessum nýju flokkum, - og við í
launamálaráðinu erum þar öll í
sömu aðstöðu. Nú er ekkert ann-
að en að semja.
Hefur úrskurðurinn einhver
áhrif á uppsagnarmál kennara?
- Nei, ég sé ekki að hann hafi
þar nein áhrif. Við erum í sjálfu
sér litlu nær um það hver útkom-
an verður úr samningunum. Ég
trúi þó ekki öðru en að sá velvilji
sem stjórnvöld hafa sýnt okkur
kennurum, að minnsta kosti í
orði kveðnu, komi í ljós í þessum
samningaviðræðum.
- m
Ja, það sem ég hef að segja um
þennan Kjaradómsúrskurð er að
það er ekkert um hann að segja,
voru orð Stefáns Ólafssonar, lekt-
ors, formanns Launamálaráðs
BHM þegar Þjóðviljinn leitaði
álits í gær.
- Það er að hluta komið til
móts við kröfur okkar um kerfis-
breytingar, kröfur sem við
byggðum á rannsóknum á
launum á einkamarkaði. Kjara-
dómur hefur viðurkennt að sá
launamunur er fyrir hendi, - milli
ríkisstarfsmanna og launþega á
almennum vinnumarkaði, - en
að öðru leyti er algerlega óvíst
hvað verður.
Menn sjá það hinsvegar í hendi
sér, sagði Stefán, að kennararnir
sem nú hafa sagt upp þurfa að fá
verulega hækkun eigi þeir að
halda áfram störfum.
Menn hafa talað um nýja stefnu
í launamálum, - að bilið sé enn að
breikka?
- Um það geta menn nákvæm-
lega ekkert sagt fyrren háskóla-
mönnum hefur verið raðað í
launaflokkana.
- m
Ósköp lítið, svaraði Indriði H.
Þorláksson formaður samninga-
nefndar ríkisins þegar Þjóðvilj-
inn spurði hann hvað hann hefði
að segja um úrskurð Kjaradóms.
Hann sagði að í úrskurðinum fæl-
ust litlar forsendur til að byggja
á. Þó væri hér að finna grundvöll
að nýrri röðun í launaflokka. í
dómnum væri hinsvegar engin af-
staða tekin um breytingar á
launum.
Hefur kjaradómur þá fœrst
undan því að svara þeim spurn-
ingum sem fyrir hann voru
lagðar?
- Nei, það er ekki hægt að
segja það, hlutverk hans er að
móta aðalkjarasamning um al-
menn atriði; það er svo í sérkjar-
asamningum sem raðað er í
launaflokka. Nei, hann hefur
ekkert færst undan, enda kæmi
það honum sjálfum um koll. Ef
ekki næst samkomulag í sérkjar-
asamningum fara þeir í Kjara-
dóm.
Samninganefnd ríkisins hefur
átt í viðræðum við Læknafélagið
og kennara, en viðræður við
önnur af 35 BHM-félögum eru
ekki hafnar. Indriði sagðist halda
að viðræður færu af stað nú í vik-
unni eða eftir helgi, „þegar fé-
lögin eru tilbúin að hefja við-
ræður. Við erum reiðubúnir hve-
nær sem er.“
- m
Vigdís Finnbogadóttir, forseti Islands, og Ásgeir Bjarnason, formaður stjórnar Búnaðarfélagsins, heilsast við þingsetninguna í gær. A myndinni eru einnig
Jónas Jónsson, búnaðarmálastjóri og Sigurveig Erlingsdóttir, kona hans. Mynd: - eik.
Búnaðarþing
Búnaðarþing, hið 67. í röðinni
var sett í Bændahöllinni kl. 10
í gærmorgun. Að venju var fjöldi
gesta við þingsetninguna og
þeirra á meðal forseti íslands,
Vigdís Finnbogadóttir.
Formaður stjórnar Búnaðarfé-
lags íslands, Asgeir Bjarnason,
Tugir mála
bóndi í Ásgarði, setti þingið með
ræðu. í upphafi máls síns minntist
hann þriggja manna, sem Iátist
hafa frá því um síðasta Búnaðar-
þing var haldið og allir voru ná-
tengdir Búnaðarfélagi íslands og
Búnaðarþingi, þeirra dr. Hall-
dórs Pálssonar, fyrrverandi ráðu-
nautar og búnaðarmálastjóra,
í gær
til meðferðar
Helga Haraldssonar, bónda á
Hrafnkelsstöðum og Sveins Ein-
arssonar, veiðistjóra. Ásgeir
Bjarnason kom víða við í ræðu
sinni og verður nánar vikið að
henni hér í blaðinu síðar.
Þá ávarpaði Jón Helgason
landbúnaðarráðherra þingið. í
ræðu hans kom m.a. fram, að at-
hugandi væri, að bændur semdu
beint við ríkisvaldið um fullt verð
fyrir ákveðið framleiðslumagn,
sem miðaðist við innanlands-
neyslu. - Þjóðin mun enn sem
fyrr hafa þörf fyrir þann horn-
stein, sem íslenskur landbúnaður
er, sagði ráðherrann.
- mhg
Hafi Kjaradómur sagt eitthvað
hef ég ekkert um það að segja
enda mjög óljóst hvað Kjara-
dómur sagði og ég heid að það
hafi verið ósköp lítið ef
eitthvað var. Hinsvegar hefur
það örugglega verið í öfuga
átt.
Banaslys
UncT
stúlka
lést
Annað banaslysið á
Grindavíkurvegi á 2
mánuðum
Banaslys varð á Grindavíkur-
vegi aðfaranótt síðastliðins
laugardags. Bíll valt út af vegin-
um í hálku með þeim afleiðingum
að 16 ára gömul stúlka, Hafdís
Halldórsdóttir, beið bana. Þetta
er annað banaslysið sem verður
af völdum hálku á Grindavíkur-
vegi á 2 máuðum.
I bflnum voru 2 farþegar auk
ökumanns, og er talið að stúlkan
sem lést hafi kastast út úr bílnum.
Að sögn lögreglunnar var farið
með hin á sjúkrahús, en jseim síð-
an leyft að fara heim og virtist svo
sem að þau hefðu ekki slasast
mikið.
Aðspurð sagði lögreglan í
Grindavík að banaslysið sem
varð á Grindavíkurvegi í desemb-
er síðastliðinn hafi borið að með
svipuðum hætti, þar sem 16 ára
drengur ók útaf í hálku. Sagði
lögreglan að Grindavíkurvegur-
inn væri að því leyti varasamur að
hann hreinsaðist ekki eins vel og
Keflavíkurvegurinn þar sem þar
væri minni umferð, en auk þess
mætti ekki saltbera Grindvíkur-
veginn þar sem hann er með olíu-
borið slitlag. Hins vegar er salti
ausið miskunnarlaust á Keflavík-
urveginn. Lögreglan sagði að
Grindavíkurvegurinn væri af og
til sandborinn en það hefði þó
ekki verið í þessu tilfelli þar sem
um nýfallinn snjó var að ræða.
ólg.
Myndbönd
Rassía
í gær
67 ofbeldismyndir á
svörtum lista
Um fjögurleytið í gær flykktust
lögreglumenn inná myndbanda-
leigur víða um land og gerðu
upptæk bönd samkvæmt bann-
lista frá Kvikmyndaeftirlitinu. A
honum voru 67 ofbeldismyndir
sem samkvæmt nýlegum lögum
eru bannvara.
Kvikmyndaeftirlitsmenn
höfðu ekki látið forstöðumenn á
leigunum vita af úrskurði sínum
um myndirnar 67, en framvegis.
mun ætlunin að senda þeim lista
yfir bannaðar ofbeldismyndir.
- m
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 19. febrúar 1985