Þjóðviljinn - 19.02.1985, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 19.02.1985, Qupperneq 6
FLÓAMARKAÐURINN íbúð Óska eftir 3ja herb. íbúð til leigu. Uppl. í síma 54141, eftir kl. 14. Júdóbúningur Er júdóbúningurinn þinn orðinn of lít- ill? Vantar júdóbúning, stærð 150- 160 CL. Sími 81388. „Mátunargína“ Vill ekki einhver selja mér notaða „kvenmátunargínu" (saumagínu), helst i stærðinni 38 og 40? Það gleddi mig mikið ef þú vildir hringja í mig í síma 20615. Saumastelpa. Fiskabúr til sölu 45 I fiskabúr með öllum fylgi- hlutum. Einnig fást á sama stað gömul gólfteppi fyrir lítið. Uppl. í síma 13092. Saumanámskeið í kven- og barnafatnaði, hefst 20. fe- brúar. Kvöldnámskeið. Upl. í síma 37677. Sjónvarp svart-hvítt sjónvarp til sölu. Selst ódýrt. Sími 46897 í kvöld og næstu kvöld. Lada Sport árg. '78 til sölu, ekinn 97 þús. km. 5 gíra Fíat- gírkassi, electrónísk kveikja. Góðir demparar stillanlegir, dráttarkrókur. Ný vetrar- og sumardekk, allt á felg- um. Útvarp. Uppl. í síma 99-4651. Lítil ferðasaumavél í góðu lagi óskast keypt. Jóna, sími 10672 á kvöldin. íbúð óskast Ung reglusöm kona með eitt barn óskar eftir 2-3ja herbergja íbúð á við- ráðanlegu verði. Helst í Hlíðunum eða Álftamýrinni (barnið er á dag- heimilinu Stakkaborg). Þarf á íbúð- inni að halda í vor eða haust. Vinsam- legast hafið samband við Auði í síma 686183. Viltu læra tauþrykk? Komdu þá á námskeið á fimmtudagskvöldum. Námskeiðið byrjar 21. feb. kl. 20-23.30 og stendur í 6 vikur. Uppl. í síma 81699 á daginn og 77393 á kvöldin og um helgar. Til sölu Myndarammar og málverkaprentanir á góðu verði. Myndabúðin, Njálsgötu 44. Opið frá 16-18. Til sölu tvískipt eldavél. Uppl. í síma 31197. Til sölu vel með farinn Fiat 128 árg. 1978. Ekinn 57. þús. km. Verð 55.000,- Uþpl. í síma 45942 eftir kl. 19. Barnalopapeysur Hef til sölu fallegar þarnalopapeysur á 2-5 ára. Sanngjarnt verð. Uppl. í síma 28283. Tuskumottur Tek að mér að vefa tuskumottur. Breidd allt að 75 cm. Lengd eftir pöntun. Uppl. gefur Berglind í síma 39536. Til sölu Hljómborð-skemmtari Technics SX- K100. 13.000,- kr. Uppl. í síma 99- 1090. Lopapeysur Mig vantar nokkrar lopapeysur á „heimaverði". Vinsamlega hringið í síma 21428 e. kl. 18. Safnarar Ég á sunnudagsblað Þjóðviljans frá árinu 1979 (allt árið) og fram í júnílok 1980. Viljir þú hirða bunkann, hringdu þá í síma 651294 e. kl. 17. Til sölu Lítið notuð Atari-leikjatölva. Uþpl. í síma 75990. Bráövantar að komast í ræstingar eftir kl. 18. Er vön - hef bíl. Vinsamlegast hringið í síma 35263. Til sölu skrifborð, skíðaskór ca. 38, klæða- skápur og Singer saumavél, fótstigin. Uppl. á Auglýsingardeild Þjóðviljans. Ibúasamtök Þingholtanna Fundur verður haldinn í Sóknarsaln- um Freyjugötu 27, miðvikud. 20. feb. kl. 20.30, stundvíslega. Leiðbeining- ar við ræktun garða. Kaffiveitingar. Stjórnin. Saumanámskeið hefst laugard. 23. feb. ef næg þátt- taka fæst. Nánari uppl. og innritun í síma 46050 og 83069 e. kl. 17. Óska eftir tölvu með góðu ritvinnslukerfi til leigu fram á vor. Kaup koma einnig til greina. Uppl. í síma 78722 í kvöld og næstu kvöld. III ÍV ÚTBOÐ Tilboð óskast í dreifispenna fyrir Rafmagnsveitur Reykjavíkur. Útboðsgöng eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 26. mars n.k. kl. 11.00 f. h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800 **■ •*< ++* * — UTBOÐ Tilboð óskast í að smíða og setja upp girðingar og leiktæki við leikskóla og skóladagheimili við Hálsasel fyrir byggingardeild. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 4000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 12. mars n.k. kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 — Simi 25800 Leggjum ekki af stað í feröalag í lélegum bíl eöa ílla útbúnum. Nýsmurður bíll meöhreinniolíuog yfirfarinn t.d. á smurstöö er lík- legur til þess aö komast heill á leiöarenda. yUMFERÐAR RÁÐ VJÐHORF ASMUNDUR gagn. Ég vil hins vegar gera þá kröfu til málgagns míns flokks að það geri ekki óhróðurinn að sinni skoðun og ég ráðlegg þeim sem hugsa fyrir höfundinn að íhuga hvort hér sé unnið af skynsemi. Innra starf verkalýðs- hreyfingarinnar Við sem störfum innan verka- lýðshreyfingarinnar gerum okkur fulla grein fyrir því, að margt þarf að bæta í innra starfi hreyfingar- innar. Alltof fáir félagsmenn eru virkir í því starfi, stefnumótun samtakanna er fjarri því að vera nógu markviss og stefnu hennar er alltof illa komið til skila. Ég held jafnvel að við gerum okkur betri grein fyrir því hve alvarlegt mál þetta er fyrir hreyfinguna en þeir sem gagnrýna hana með mestum hávaða. En jafnframt er okkur ljóst að vandinn er hvorki einfaldur né auðleystur. Tarsan og James Bond eða raunveruleiki hins daglega lífs Hvort sem við lítum til Tarsan- eða James Bond-myndanna er hetjan maður hinna snöggu átaka. Þar vinnast mál ekki með góðuni undirbúningi og þolin- mæðisvinnu, heldur höggum, slögum og skotum. Þeir virðast margir sem gera sér ekki grein fyrir því að raunveruleiki hins daglega lífs er æði frábrugðinn heimi kvikmyndanna. Sumir virðast trúa því að allur vandinn leysist ef James Bond verði falið málið. Hann muni án tafar ryðja höfuðpaurnum, hinum vonda verkalýðsforingja, úr vegi og hin- ir almennu félagsmenn munu á augabragði fylkja sér til starfa og virk og öflug félög tryggja kjör og auka þjóðfélagsleg ítök verka- lýðshreyfingarinnar. f Tarsan- myndinni er lausnin hliðstæð, þar sem Tarsan lætur sig falla niður úr trénu á makka ljónsins og stingur rýtingi sínum í hjarta þess - ljónið grimma dautt og fólkinu borgið. Hresst og duglegt fólk er nauðsynlegt í torustusveit ekki síður í verkalýðsfélögunum en annars staðar. I mörgum félögum má án efa finna betri formenn en þá sem þar sitja, en það er að mínu viti ekki meginvandinn. í Tarsanmyndinni er ljónið ekki drepið af hópi í samstarfi, heldur hetjunni. Starfið í verkalýðs- hreyfingunni er hins vegar þrot- laust hópstarf, þar sem ná þarf til allra og virkja þarf alla. Daglegt starf innan verkalýðshreyfingar- innar verður seint eins spennandi og hetjuhlutverk Tarsan- og Jam- es Bond-myndanna. Hin daglegu úrlausnarefni reyna á þolinmæð- ina, samvinnuna og vinnuþrekið, en vekja hvorki aðdáun né sigur- gleði og hetjutilfinningu. Sá sem vill vera virkur innan verkalýðs- hreyfingarinnar verður að setja sig inn í flókin mál og gefa sér samfelldan tíma til þess að fylgja þeim eftir. Þeir sem taka að sér forustuhlutverk í félögum eða á vinnustað axla ábyrgð og verða oft að finna lausn á viðkvæmum deilumálum. Starfið hlýtur að kalla á gagnrýni og álagið sem starfinu fylgir leggst ekki bara á þann sem tekur beinan þátt í starfinu, heldur á fjölskyidu hanns alla. Það er ekki alltaf auðvelt að tæla fólk til slíkra verka, og það er ekki auðvelt að virkja í daglegu starfi það félags- fólk sem mætir þungum skyldum heimilis og fjölskyldu eftir langan vinnudag. Þetta er hins vegar það verkefni, sem verkalýðshreyfing- in verður að leysa, ef hún á að vera sterk og ná árangri í framtíð- inni. Upplýsinga- og fræðslustarf verkalýðshreyfingarinnar hefur verið eflt til muna á síðustu árum og forystumenn reyna í vaxandi mæli að ná til félagsmanna sinna úti á vinnustöðunum. En verk- efnið er erfitt og torleyst og það er að mfnu viti nauðsynlegt að ná sem víðtækastri samstöðu um virkt starf í stað þess að skemmta skrattanum með niðurrifsrógi. Upphlaup eru auðveldur leikur Upphlaup eru auðveldur leikur og ég efast ekki um að á íslenskum atkvæðamarkaði verð- ur alltaf eitthvert rúm fyrir flokk sem veður fram með upphrópun- um í þjónustu dægurmála. Ég treysti því hins vegar að dóm- greind íslenskra kjósenda tak- marki fylgi slíkra flokka við fáein prósent. Ég er því sannfærður um það að flokkur sem ætlar sér að ná fylgi til frambúðar gerir það best með markvissri stefnumótun og samræmdri framkvæmd og án þess mun hann, hvað sem fylginu líður, naumast setja mark á þjóð- félagsþróunina. Að velja sér samfylgd Það er hugsanlegt að ýmsum innan Alþýðubandalagsins þyki óþægilegt að hafa á vegferð sinni ' samfylgd af okkur sem störfum fyrir íslenska verkalýðshreyf- ingu. Það er hugsanlegt að þeir telji að þeir sem starfa fyrir verkalýðshreyfinguna geri það af þeirri hvöt einni að þeir sækist eftir ljúfu lifibrauði. Það er hugs- anlegt að þeir hinir sömu líti verkalýðsmálin almennt þeim augum að verði forusta verka- lýðsfélaganna viðskila við sitt fólk sé það ekki alvarlegt mál, heldur aðeins stormur í vatnsg- lasi, örlítið rót í einni skúffu í stórum flokki. Þeir, sem svo hugsa, eru aftur á móti ekki lík- legir til þess að leggja raunhæft mat á það sem gerist í hreyfing- unni og skilningsskortur þeirra teymir þá út í alvarlegra sund- rungarstarf en þeir sjálfir skilja. Að sundra hópnum eða styrkja samstarf Eftir það sem á undan er gengið og þær yfirlýsingar sem gefnar hafa verið um nauðsyn samstarfs og samstöðu kemur Innsýnargreinin mér í opna skjöldu. Á þeim tímum sem frjálshyggjan veður yfir íslenskt þjóðfélag er það hættuleg þröng- sýni að sjá hvergi óvin nema í eigin röðum. Það er brýnt að snú- ast gegn þeim vágesti sem nú stefnir að því að rífa niður þá fé- lagslegu uppbyggingu sem verka- lýðshreyfingin og önnur félagsleg öfl hafa knúið fram í íslensku þjóðfélagi. Ég hvet allt Alþýðu- bandalagsfólk til þess að íhuga hvort sé félagslegum viðhorfum frekar til framdráttar að sundra hópnum og ráðast eilíft að sínum félögum eða styrkja samstarfið og efla sameiginlega baráttu gegn afturhaldinu í þessu landi. ARNI sér að sprengja í loft upp hinar ólöglegu útvarpsstöðvar í haust. Þetta segi ég af því að stöðvar þessar fluttu stöðugt fregnir sem miðuðu að því að ófrægja launþegasamtök í landinu. Hitt er að mínu mati ógerningur að sýkna þann sem setur upp út- varpsstöð til að græða á henni og róa gegn alþýðuhreyfingum með því að skírskota til neyðarréttar. Ég er líka hræddur um að þeir menn misskilji hlutverk sitt, sem er treyst fyrir opinberum störfum og nota valdið til að vinna gegn ríkinu og ræna kaupi og rétti al- mennings með „efnahagsaðferð- um“. Þegarfólkið ílandinu horfir framan í svo siðlausa valdhafa, getur það neyðst til að grípa til neyðarréttar til að taka af þeim uniboðið. Skila þeir fengnum? Ruglingurinn með neyðarrétt- arhugtakið kom til sögunnar þeg- ar eigendur DV fóru að kunna því illa að græða ekki lengur á blaði sínu í prentaraverkfallinu. DV-menn urðu þess áskynja að Ríkisútvarpið var hætt að hafa tekjur af útvarpsauglýsingum. En Ríkisútvarpið er sem kunnugt er eini aðilinn í landinu sem lög leyfa að hafi slíkar tekjur. DV setti þá eigin útvarpsstöð á lagg- irnar sem var í alla staði vond, en mokaði engu að síður inn auglýs- ingatekjuni. Og mér skilst að tónlistin sem stöðin sendi út hafi verið tekin ófrjálsri hendi. Ég lít svo á að úr því að lögin leyfa ekki öðrum en Ríkisútvarp- inu að hafa tekjur af útvarps- auglýsingum, þá séu auglýsinga- tekjur ræningjastöðvanna lögum samkvæmt eign þess. Mér skilst að þessum illa fengnu milljónum hafi ekki verið skilað til Ríkisút- varpsins ennþá, en vonandi verð- ur stutt að bíða þess. Hin nýja yfirstjórn útvarpsins hlýtur að vilja sanna atorkusemi sína með því að innheimta þetta fé. í leiðinni verður rétthöfum tónlist- ar vonandi bættur miskinn. Spurningin er þessi: Er hægt að vefengja þá fullyrðingu að þeir DV-menn hafi slegið eign sinni á tekjustofna Ríkisútvarpsins? Ég efast um það. Þá hlýtur næsta spurning að vera: Er öðrum heimilt að fara að dæmi þeirra? Má hver sem er leggja einkaskatt sinn á tekjustofna hins opinbera með þessum hætti? Eða njóta DV-menn þeirra réttinda einir? Hlutur DV-manna í út- varpsmálinu var mjög hneykslan- legur. Þegar rætt er um að þeir hafi seilst í almannasjóði og brot- ið útvarpslög ræða þeir fjálglega um að lögin séu úrelt og þeim þurfi að breyta. En nú er þjóðin svo heppin að hafa sérstaka lög- gjafarsamkomu sem annast lög- gjöf í landinu, svo ritstjórar og eigendur DV þurfa ekkert að hjálpa upp á það með „frjálsu framtaki“ sínu fremur en annað fólk úti í bæ. Ef þessi væri neyðarréttur DV- manna, hversu miklu meiri væri þá ekki neyðarréttur kennar- anna? Það voru brotin lög á þeim. Engin lög voru brotin á DV-mönnum. Ræðuhöld ritstjórans Útvarpsmálið tók á sig býsna fjarstæðukennda mynd þegar Éllert B. Schram, ritstjóri og stundum alþingismaður, gerði eins konar herútboð til að koma í veg fyrir að útvarpsstöðinni í Síðumúla yrði lokað. Ég skildi tal hans svo að hann væri að biðja Heimdellinga að koma á staðinn til að lemja lögreglumenn við skyldustörf. Þó kastaði fyrir tólf- unum þegar Ellert fór að skjalla sjálfan sig fyrir þetta hæpna fjöl- miðlaævintýri. Ellert hélt greini- lega að hann væri einhvers konar frelishetja, og veit enginn hvaðan hann fékk þá flugu í kollinn. Inntakið í „neyðarrétlarkenn- ingu“ frjálshyggjumanna er ein- falt. í henni felst aðeins það að auðmenn skuli ráðskast með al- menning að vild sinni. Þeir róa á móti hinu opinbera hvenær sem það gefur eitthvað í aðra hönd. Svo skíra þeir yfirganginn „frelsi“ og „neyðarrétt". En ef einhver hefur siðferðis- legan rétt til að beita neyðarrétti, þá eru það alþýðusamtök lands- ins þegar þau neyðast til að verja kjör sín og sjálfsögð réttindi af fyllstu einurð. Það er þar sem neyðarréttur getur gilt. Og ef ekki þar, þá hvergi. Dr. Arni Sigurjónsson er bók- menntafræðingur. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 19. febrúar 1985

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.