Þjóðviljinn - 19.02.1985, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 19.02.1985, Qupperneq 13
Bandaríkin: Bændum verður fækkað Markaðslögmálin fá aukið vœgi. Gróin bœndasamfélög að hruni komin Reagan Bandaríkjaforseti var hinn bjartsýnasti á dögun- um þegar hann „lýsti ásig- komulagi þjóöarinnar" - allt var á uppleið og tími til þess kominn að byrja nýja ameríska byltingu. Bandarískir bændur eru í þeim stóra hópi sem metur ástandið á allt annan hátt- þeir segja að nú sé meira að þeim þjarmað en allar götur frá því í kreppunni miklu um 1930. Má búast við að þeir verði gjaldþrota þúsundum saman á næstunni. Sá vandi sem steðjar að bænd- um er snúinn saman úr fjórum þáttum: háum vöxtum, lágu verði á landbúnaðarafurðum, minnk- andi möguleikum á útflutningi og lækkandi verði á ræktarlandi. Þetta gerist allt um leið og stjórn Reagans hefur ákveðið að draga úr opinberum stuðningi og fyrir- greiðslum við bændur og vísar þá til mikils halla á fjárlögum. Markaðslögmálin eiga að hressa við landbúnaðinn - og eins víst að sú lækning verði að minnsta kosti tíunda hverju býli að bana. Kreppu- ríkin Einna verst er ástandið í nokkrum miðvesturríkjum, Iowa, Nebraska, Kansas, Okla- homa og Colorado. í Iowa eru tæplega 30% bænda svo skuldug- ir nú þegar, að mjög vafasamt er að þeir lifi af. Bankar ríkisins eru einnig mjög hætt komnir vegna vanskila bænda. Tom Harkin öldungardeildarþingmaður fyrir Iowa segir að ríki þetta sé að deyja. \ kreppunni miklu mis- stum við 7,8 % af landbúnað- inum, nú höfum við lagt niður um 10 % af honum á aðeins einu ári, segir hann. Kornbændur verða verst úti og lánastofnanir sem þeir skipta við. Gjaldþrotum fjölgar hratt og heil samfélög brotna niður. Sjónvarp- ið sýnir nauðungaruppboð þar sem landbúnaðarvélar eru seldar á spottprísum vegna þess að eng- inn vill kaupa. Sjálfsmorðum, hjónaskilnuðum og dæmum um illa meðferð á börnum hefur mjög fjölgað í þeim héruðum sem verst verða úti. Við þessar aðstæður hafa bændur og bankar leitað til stjórnvalda um aðstoð. Fyrir kosningar lofaði Reagan „krepp- upakka“ bændum - í honum voru fyrirheit um ríkistryggingar á lán- um upp á 650 miljónir dollara. Og aðalbankar ætluðu að sjá í gegnum fingur við útibú og bænd- ur þótt afborganir drægjust lengur en til stóð. UMSJÓN: ÁRNI BERGMANN Þrí En slík aðstoð ku duga alltof skammt segja bændur og vera og þröngum skilmálum háð. Auk þess eiga bændur von á að á næstu fimm árum verði niðurgreiðslur á landbúnaðarafurðum skornar verulega niður. Því sem fyrr segir: stjórnin vill að markaðs- Iögmál ráði. Fjármálastjóri Re- agans, David Stockman, hefur reynt að fá þingmenn frá krepp- uríkjunum til að gera einskonar samkomulag við stjórnvöld þess efnis, að þeir hjálpi til við að leggja niður niðurgreiðslur í áföngum. Gegn því að stjórnin veiti bændum kreppufyrir- greiðslu núna strax. Þingmenn neituðu, enda þurfa ýmsir þeirra í kosningar áður en langt um líður. Bændum sjálfum kennt um Stockman hefur kennt bænd- um sjálfum um það hvernig kom- ið er. Hann hefur í ræðu nýverið sagt á þá leið, að það sé út í hött að skattgreiðendur standi undir fjárfestingum, sem fullorðnir menn réðust í þegar þeir keyptu land á uppgangsárum í þeirri von að verða ríkir. Eða þegar þeir keyptu vélar og búnað á grund- velli arðsemisreikninga sem þeir trúðu á. Margir sem reka fyrirtæki í borgum eru sammaála Stock- man. Þeir segja að bændur hafi grætt vel á uppgangstímum á síð- asta áratug. Af þeim sökum tóku þeir hávaxtalán til nýrra fjárfest- inga í þeirri von að verð á land- búnaðarafurðum héldi áfram að hækka - en því var m.a. haldið uppi með styrkjum. Vítahringur Þetta ástand stóð fram til 1981. Þá snerist þróunin við. Dollarinn fór hækkandi og þar með rýrnuðu möguleikar á útflutningi land- búnaðarafurða. Heimamarkað- urinn yfirfylltist og verðlag lækk- aði og bændur báru mikla minna úr býtum en þeir höfðu gert ráð fyrir. Tekjumissirinn varð svo til þess að bændur tóku fleiri lán - og sú eftirspurn eftir peningum átti sinn þátt í að halda uppi vöxt- um. Vítahringurinn hélt áfram. Samanlagðar skuldir bænda eru nú um 220 miljarðir dollara. Greiðslubyrðin hefur farið vax- andi meðan verð á landbúnaðar- afurðum hefur fallið um þriðj- ung. Og þeir bændur standa nú best að vígi sem ekki lögðu í mikl- ar fjárfestingar á síðastliðnum áratug. ÁB tók saman. udagur 19. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17 Reagan og skuldahali ríkissjóðs: Bændur eru meðal þeirra sem hann segist ekki hata efni á að hjálpa. Bandaríkjamenn éta meiri fisk Matarvenjur í landinu eru að breytast góðum árangrj og þær afurðir. seljast vel m.a. út á auglýsingar um að þar fari fæða, sem hvergi hafi orðið fyrir mengun. Tískan Auk þess kernur blessað snobbið til: Bandaríkjamenn sem hafa lagt lönd undir fót koma með fregnir af furðulegum og gómsætum réttum úr fiski, sem verða til að breyta nokkuð tí- skunni í veitingahúsum. Þessi tíska smitar síðan út frá sér - þeir sem voru til með að panta sér fisk í veitingahúsum en vildu ekki matreiða hann heima hjá sér vegna þess hve erfitt það væri eða óyndislegt, hafa nú lagt þá for- dóma af. Svo rammt kveður að þessari breytingu að jafnvel gróin steikarhús selja 5-15 % meira af fiskréttum en áður. Hins er svo að gæta, að það eru ekki frosin fiskflök sem auka eftirspurnina heldur nýr fiskur annarsvegar og svo hálftilbúnir fiskréttir. Verð á mat þeim sem upp úr sjó kemur hefur farið hækkandi og það þykir engin frágangssök lengur að fiskur og kjöt séu á svipuðu verði. Verðhækkunin er mjög misjöfn eftir tegundum - og þar með fjölgar dæmum um að lævísir veitingamenn skíri eitthvað ómerkilegt hráefni göfu- gu nafni. Reyndar hafa nafngiftir ótrúlega mikið að segja á banda- rískum markaði. Og því er fiskur sem í gær var kenndur við hund í dag kallaður „gráfiskur" eða „laxhákarl“ rétt eins og við köllum ufsa sjólax þegar svo ber undir. Flestir þeirra sem versla með fisk í Bandaríkjunum hafa þá sögu að segja, að lands- menn hafi stóráukið fisk- neyslu sína á síðustu árum. Og það er ekki lengur spurt eftir algengum fisktegundum - margir „undarlegir“ fiskar og sækvikindi sem fáir vildu líta við áður, njóta nú mikillar eftir- spurnar. Heilsurækt Áður fyrr var sú afstaða algeng meðal Ameríkana að fiskur væri heldur óvirðuleg fæða, fátæk- lingafóður. Það var partur af sæmilegri stöðu í þjóðfélaginu að éta kjöt og helst sem mest. Nú hefur þetta breyst af ýmsum ástæðum. Kannski skiptir það mestu, að Bandaríkjamenn eru mjög uppteknir af því að éta sér ekki til óbóta, og fiskur telst vera sæmilega greiðfær leið frá feitu kjöti. I annan stað hefur það gerst með batnandi samgöngum og kælibúnaði að fjölbreyttara og betra úrval af fiski er fáanlegt um allt land og ekki aðeins í strandhéruðum eins og áður vildi brenna við. Ýmsar tegundir fisks og skelfisks eru nú ræktaðar með

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.