Þjóðviljinn - 19.02.1985, Qupperneq 14
HJÚKRUNAR-
FRÆÐINGAR
Fjóröungssjúkrahúsiö á Akureyri óskar aö ráöa í eftir-
taldar stööur hjúkrunarfræðinga:
1. Hjúkrunarframkvæmdastjóra. Staöan er laus 1. maí
1985. Umsóknarfrestur er til 15. mars 1985.
2. Hjúkrunarfræðinga á flestar deildir sjúkrahússins
strax og til sumarafleysinga.
3. Hjúkrunarfræöinga á fastar næturvaktir.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri,
Ragnheiður Arnadóttir, sími 96-22100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Ífi ÚTBOÐ
Tilboð óskast í endanlegan frágang á malbiks- og
malarsvæöum, hellulögn, gras- og gróðursvæðum,
gerö 45 cm hárrar girðingar, hárrar netgiröingar, gröft
vegna uppsetningar leiktækja og girðinga og lagningu
kantsteins við leikskóla og skóladagheimiliö Hálsakot
fyrir byggingardeild.
Utboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi
3 Reykjavík gegn 4000 kr. skilatryggingu. Tilboöin
veröa opnuð á sama staö þriðjudaginn 12. mars n.k.
kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
Orlofshús
HÍK
Orlofssjóður Bandalags háskólamanna minnirfélags-
menn sína á, aö frestur til aö sækja um orlofsdvöl í
orlofshúsunum á Brekku eöa í íbúðinni á Akureyri um
páskana rennur út 1. mars. Frestur til að sækja um
orlofsdvöl í sumar rennur út 1. maí.
Frestur til aö sækja um orlofsdvöl í húsum Hins ís-
lenska kennarafélags er sá sami.
Orlofshúsin og íbúðin á Akureyri eru einnig leigð út nú í
vetur um helgar eða til lengri tíma.
Skrifstofur BHM og HÍK eru í Lágmúla 7. Símar hjá
BHM eru 82090 og 82112 og hjá HÍK 31117.
Bandalag háskólamanna
Hið íslenska kennarafélag
ÚTBOÐ
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboöum í eftirfar-
andi:
RARIK-85002: 19 kV Aflrofaskápar.
Opnunardagur: Miövikudagur 10. apríl 1985, kl.
14:00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitu ríkis-
ins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir opnunartíma
og verða þau opnuð á sama stað aö viðstöddum þeim
bjóöendum er þess óska.
Útboðsgögn veröa seld á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með
þriðjudegi 19. febrúar 1985 og kosta kr. 300.- hvert
eintak.
Reykjavík 15. febrúar 1985
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í eftirfarandi fyrir malbikunarstöð
Reykjavíkurborgar:
a) 11800-15300 tonn af asfalti og flutningi á því.
b) 130-200 tonn af bindiefni fyrir asfalt (asfalt-
emulsion).
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi
3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað mið-
vikudaginn 20. mars n.k. kl. 1.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
HEIMURINN
Afvopnunarmál
Refurinn á að
gæta hænsnanna
Helsti samningamaður Bandaríkjanna um afvopnun
í Genf verður maður sem telur að Reagan
sé ekki
Nýlega útnefndi Reagan
bandaríkjaforseti Max N. Kam-
pelman sem aðalsamninga-
mann Bandaríkjanna í væntan-
legum viðræðum við Sovét-
menn um afvopnun. Viðræð-
urnar munu hefjast í Genf í
Sviss 12. mars n.k. Kampel-
man er ekki bara þekktur fyrir
stuðning sinn við geimvopna-
áætlun Reagans heldur einnig
fyrir harða gagnrýni á forset-
ann. Kampelman finnst að Re-
agan og stjórn hans fari sér of
hægt í vígbúnaðarkapphlaup-
inu.
í bandarískri umræðu að und-
anförnu hefur verið lögð áhersla
á að Kapmelman sé demókrati og
að Carter fyrrverandi forseti hafi
útnefnt hann sem formann
bandarísku sendinefndarinnar
sem tók þátt í ráðstefnu um ör-
yggismál Evrópu sem haldin var í
Madrid. Þegar Reagan tók við lét
hann Kampelman halda áfram
formennsku.
Framlag Kampelmans á ráð-
stefnunni einkenndust mjög af
harðri gagnrýni á leiðtoga So-
vétríkjanna, hann sagði um þá að
þeir yrðu að skilja að ekki þýddi
að bæta sambúð austurs og vest-
urs „svo lengi sem þið brjótið all-
ar siðferðisreglur og hagið ykkur
ekki eins og okkur finnst eðli-
legt.“ Kampelman sagði eitt sinn
þegar hann var að ræða um
áhyggjur V-Evrópubúa vegna
versnandi sambúðar austurs og
vesturs. „Ég veit að ekki er hægt
að losna við Sovétríkin af landak-
ortinu, þess vegna verðum við að
mæta þeim við samningaborðið
með þolinmæði, sjálfsöryggi og
af festu.“
Starf: Afvopnunarmál
Ahugi: Vígbúnaður
Kampelman sem nú tekur við
sem aðalsamningamaður Reag-
ans í afvopnunarmálum, hefur
harður í horn
lengi haft áhuga á utanríkis- og
varnarmálum. Kampelman var
einn af stofnendum Committee
on the Present Danger (Nefnd
um núverandi hættur). Samtök
þessi hafa verið ásökuð með réttu
um að hafa komið í veg fyrir að
slökunarstefna Carters næði fram
að ganga. Samtökin sáu dagsins
ljós sama dag og Carter var settur
í embætti forseta. Ekki leið á
löngu þar til þau voru orðin
stefnumarkandi í gagnrýninni á
stefnu forsetans í utanríkis- og
varnarmálum.
Með baktjaldamakki ógnvekj-
andi skilgreiningum og fullyrð-
ingum, tókst samtökunum að
koma í veg fyrir að SALT II
samkomulagið milli stórveldanna
um afvopnunarmál fengi stuðn-
ing fulltrúadeildar bandaríkja-
þings, áður en það væri undirrit-
að. Samtökin hafa alið á hræðslu
hjá almenningi um væntanlega
árása að austan, og má furðu sæta
hvað miklum árangri samtökin
hafa náð í að telja voldugustu
þjóð veraldar trú um að hún sé í
raun og veru hjálparlaus og veik
fyrir árás.
Næst bestir
Eftir árangurslausa fundasetu í
Madrid sneri Kampelman aftur
heim 1983 og gerðist á nýjan leik
virkur í störfum samtakanna. í
sínu nýja hlutverki stóð hann
fyrir miklum árásum á stefnu Re-
agans í varnarmálum, ásökuðu
samtökin Reagan og stjórn hans
fyrir að fara sér of hægt í þeim
efnum. f nýlegri skýrslu sem sam-
tökin sendu frá sér er því haldið
fram að smíði kafbáta sem geti
borið kjarnorkuvopn gangi of
seint. Framleiða verði miklu
fleiri stýriflaugar og sprengju-
flugvélar sem geti borið kjarn-
orkuvopn. í skýrslu þessari sem
ber nafnið „Geta Bandaríkja-
menn náð upp forskotinu“ er því
haldið fram að þeir séu næst best-
að taka
ir á eftir Sovétmönnum í vígbún-
aði.
Niðurstaða skýrslu samtak-
anna er að ef Bandríkjamenn ætli
sér að eyða forskoti Sovétmanna
verði þeir að eyða enn meira til
vígbúnaðar en Reagan og stjórn
hans ætla sér. Samtökin leggja
ríka áherslu á uppbyggingu árás-
argetu með kjarnorkuvopnum,
og einnig verði að auka árásarg-
etu hefðbundinna herja. Samtök-
in halda því fram að staðsetning
nýrra stýriflauga og Pershing II í
Vestur-Evrópu sé alltof „hóg-
vært“ svar við yfirburðum Sovét-
manna.
Nokkrum dögum eftir útnefn-
ingu Kampelmans starf aðal-
samningamanns í viðræðunum
við Sovétmenn, birtist grein í
New York Times sem kom hon-
um í nokkurn vanda. Grein þessa
skrifaði hann ásamt Brzezinsky
fyrrum öryggisráðgjafa Carters
og eðlisfræðingnum Robert Jast-
rown. í grein þessari lýsa höfund-
arnir yfir stuðningi við geimvopn-
> aáætlun Reagans og benda á
hana sem eina raunhæfa kostinn í
varnarmálum Bandaríkjanna.
Eins og mönnum er í fersku
minni settu Sovétmenn það sem
skilyrði að geimvopn yrðu rædd á
fundunum í Genf- með það fyrir
augum að koma í veg fyrir kapph-
laup á því sviði. Kampelman
reyndi hvað hann gat til að koma í
veg fyrir að hann væri nefndur
sem einn af höfundum greinar-
innar en það tókst ekki.
Paul Nitze mun einnig fylgjast
með viðræðunum í Genf sem ráð-
gjafi Schulz utanríkisráðherra.
En hann hefur reyndar verið kall-
aður guðfaðir þeirra samtaka
sem fyrr voru nefnd og Kam-
pelman hefur verið í forsvari
fyrir. Pegar slíkir menn eru settir
til að semja um afvopnun er það
rétt eins og að biðja refinn að
gæta hænsnanna.
SG ( byggt á Ny Tid)
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 19. febrúar 1985