Þjóðviljinn - 02.03.1985, Qupperneq 2
Fiskvinnslufólk
12000 á atvinnuleysisskrá
Vestfirðingar starfa áfram. Fiskiðjan í Eyjum sagði ekki upp
kauptryggingu hjá sínu starfsfólki.
Jóhanna Friðriksdóttir: Þessiframkoma til fyrirmyndar
Náist ekki samningar í sjó-
mannadeilunni um helgina verða
um 12.000 verkamenn í fískiðn-
aði komnir á atvinnuleysisskrá á
mánudag.
Fiskverkunarfólki hefur verið
sagt upp kauptryggingu í nánast
öllum fiskvinnslufyrirtækjum í
landinu, nema á Vestfjörðum þar
sem fiskvinnsla mun verða með
eðlilegum hætti eftir helgina en
Vestfjarðarflotinn hélt úr höfn í
gærkvöldi eftir að félagsfundur í
skipstjóra- og stýrimannafé-
laginu Bylgjunni hafði samþykkt
nýgerða samninga yfirmanna.
Það hefur vakið mikla athygli í
Vestmannaeyjum að Fiskiðjan,
eitt stærsta fiskvinnslufyrirtækiö
þar, sagði ekki upp kauptrygg-
ingu hjá sínu starfsfólki. Var
haldinn fundur með starfsfólki
Fiskiðjunnar þar sem fram-
kvæmdastjórinn Guðmundur
Karlsson sagði að sér fyndist nóg
um uppsagnir á kauptryggingu á
liðnum mánuðum. Jóhanna Frið-
riksdóttir formaður Verkakvenna
félagsins Snótar sagði í samtali í
gær að sér fyndist þessi fram-
koma eigenda Fiskiðjunnar til
fyrirmyndar. -|g.
Málin reifuð í síðustu pásu. Verður unnið eftir helgina eða ekki?. Myndin var tekin í Bæjarútgerö Reykjavíkur í gærdag.
Birgðatankurinn
Aukafaimgjald á hverja losun
Vilhjálmur Jónsson forstjóri Esso: Hagkvœmara aðflytja gasolíu til
Austurlands frá Reykjavík en dreifa frá Seyðisfirði
Vilhjálmur Jónsson forstjóri fá birta eftirfarandi athugascmd í
Olíufélagsins hefur óskað eftir að tilefni af frétt Þjóðviljans um
Kennaradeilan
Kennarasambandið
heitir HÍK stuðningi
Meirihluti framhaldsskóla-
kennara í Hinu íslenska kennara
ifélagi hefur sagt lausum stöð-
um sínum og horfið frá kennslu.
Kennarasamband íslands lýsir
samstöðu með félagsmönnum
HÍK og heitir þeim fullum stuðn-
ingi.
Nú þegar hafa yfir 1700 félagar
KÍ lýst því yfir að þeir muni ekki
ganga í störf framhaldsskóla-
kennara er þátttaka í fjöldaupp-
sögnum frá 1. mars, og fulltrúa-
ráð KÍ ætlast til þess að allir fé-
lagar KÍ standi við slíka skuld-
bindingu. Stjórnvöld eru ábyrg
fyrir þeirri upplausn sem skapast
hefur í fjölmörgum skólum og
bitnað getur harkalega á námi
.þúsunda nemenda. Skólahald
verður því aðeins tryggt að laun
kennara verði bætt verulega án
frekari tafa.
(Frá Kennarasambandi íslands)
birgðatank Olís á Seyðisfirði sem
hefur staðið tómur í tvö ár.
„Ef tankskip losar farm á
tveimur höfnum kemur auka-
farmgjald sem miðað er við burð-
argetu skipsins og nemur það nú
1.65$ á hvert tonn af DWT stærð
skipsins. Ef flutt væri inn gasolía
á Seyðisfjarðargeyminn 10 sinn-
um á ári um leið og flutt er inn á
birgðarstöðvar í Reykjavík,
kæmi skattur á allan þann inn-
flutning og þetta aukaflutnings-
gjald myndi þá nema u.þ.b. 346
þús. $ eða 14,7 miljónum kr. mið-
að við gengi í dag.
Notkun á gasolíu á Austur-
landi mun samsvara tæpum ein-
um farmi 20 þús. tonnum á ári, en
birgðatankurinn á Seyðisfirði
tekur um 12 þús. tonn. Ef flutt
væri inn á geyminn tvisvar á ári
myndi aukagreiðsla nema 69 þús.
$ eða tæpum 3 miljónum, en
vaxtakostnaður af 6 mánaða
birgðum myndi nema langtum
hærri upphæð. Pá er rétt að
benda á að eftir sem áður þyrfti
að flytja bensín til Austurlands
frá Reykjavík og myndi verða að
senda skipin með slatta frá
Reykjavík til Austfjarða á þeim
tíma er verksmiðjur væru ekki í
gangi en á loðnuveiðitímanum
væri hægt að fylla strandflutn-
ingaskipin af fluelolíu.
Af þessum ástæðum hef ég tal-
ið hagkvæmara að flytja gasolíu
til Austurlands frá Reykjavík þó
verðjöfnunarsjóður greiði ekki
flutningsgjald nema miðað við
flutning frá Seyðisfirði. Ég ítreka
að verðjöfnunarsjóður greiðir
ekki flutningsgjald frá Reykjavík
til Austfjarða heldur miðað við
þann taxta sem gildir á dreifingu
frá Seyðisfirði."
Vilhjálmur Jónsson
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 2. mars 1985
Þá hafa alþingismenn loksins
fengið tækifæri til að losna við
Geir.
Norðurlandaráð
Æskan
þingar á
Loftleiðum
Laugard. 2 mars n.k. kl. 9.00
verður sett í Kristalsal Hótels
Loftleiða norðurlandaráðsþing
æskunnar 1985 að viðstöddum
forseta íslands Vigdísi Finnboga-
dóttur auk margra annarra gesta.
Umræðuefni þingsins verður
þátttaka, þróun, friður. Um 130
fulltrúar sitja þingið frá öllum
Norðurlöndunum, þetta eru full-
trúar ungliðasamtaka þeirra
stjórnmálaflokka sem eiga sæti í
Norðurlandaráði auk fulltrúa frá
Æskulýðssamtökum þjóðanna.
Venjulega sitja þessi þing um
50-60 fulltrúar, en í tilefni af AI-
þjóðaári Æskunnar 1985 er full-
trúum fjölgað.
Þingfulltrúar á norðurlandar-
áðsþingi æskunnar sitja sem á-
heyrnarfulltrúar þing Norður-
landaráðs dagana 4-8 mars nk.
Leigjandasamtökin
Búseti og
húsnæðis-
vandinn
Leigjandasamtökin halda að-
alfund sinn á Hamragörðum,
laugardaginn 2. mars kl. 14.30. A
fundinum flytur formaður Búseta
Jón Rúnar Sveinsson framsögu-
erindi sem nefnist „Fyrir hverja
byggir Búseti“
Að sögn Jóns Kjartanssonar
frá Pálmholti, formanns Leigj-
andasamtakanna, verða um-
ræður á eftir erindinu. Sagði Jón
einnig að í umræðum á Alþingi
um þennan margfræga húsnæðis-
vanda væri alltaf talað um vanda
þeirra sem væru að byggja sjálfir,
hver fyrir sig og stöðugt reynt að
tefja fyrir þeim sem færu aðrar
leiðir eins og félagsmenn Búseta.
Fundurinn er öllum opinn.
Athugasemd
Stjórn HÍK vill koma eftirfar-
andi athugasemd á framfæri við
forsíðufrétt í blaði yðar föstudag-
inn 1. mars:
Það er mat stjórnarinnar, að
menntamálaráðherra hafi lagt
verulega af mörkum til að leysa
þessa deilu en eins og hún bendir
réttilega á í viðtalinu er það fjár-
málaráðherra sem annast samn-
ingsgerð fyrir hönd ríkissjóðs.
fyrir hönd stjórnar HÍK
Kristján Thorlacíus formaður