Þjóðviljinn - 02.03.1985, Síða 4
LEIÐARI
Arás Jóns Baldvins á Anker
í Alþýöublaöinu í gær sýnir Jón Baldvin
Hannibalsson, formaöur Alþýðuflokksins, nýja
og óvænta hliö á þeirri jafnaöarmennsku sem
hann hefur keppst viö aö boöa um landið meö
skallann sveittan. Þar leggst hann nefnilega í
víking út fyrir landsteinana og bregður brandi
sínum á óvanalega harkalegan hátt aö
„skoöanabróöur" sínum, Anker Jörgensen, for-
manni danska jafnaðarmannaflokksins. Tilefn-
ið er, aö Anker Jörgensen hefur gerst sekur um
þá ósvinnu að vilja aöstoöa íslendinga viö aö
stofna samtök um kjarnorkuvopnalaust ísland!
Tildrög málsins eru aö á sunnudaginn veröa1
slík samtök stofnuð og félagi Anker mun halda
stutt erindi á stofnfundinum. En einsog aörir
réttsýnir kratar er hann einkar hliðhollur því aö
öll Noröurlöndin veröi gerð að kjarnorkulausu
svæöi.
Þessi drengilega viöleitni Ankers Jörgensens
til að bægja vá kjarnorkunnar frá dyrum nor-
rænna þjóöa hefur greinilega verkaö á formann
Alþýðufiokksins einsog rauð dula á baldinn
bola. í Alþýöublaöinu kemur nefnilega fram að
Jón Baldvin hefur þegar haft samband viö dan-
ska jafnaðarmenn og „gagnrýnt áætluð afskipti
Ankers Jörgensens af málinu“.
Fyrr má nú vera umburðarlyndið! Hefur Ank-
er Jörgensen ekki leyfi til aö hafa þær skoðanir
sem hann vill? Má hann ekki mæta á fundi á
Hótel Borg án þess að formaður Alþýðu -
flokksinsfái fyrir hjartaö og leggistíkvörtunar-
símtöl til útlanda?
Máliö er auðvitað það, að hér er um stórpólit-
ísk tíöindi að ræða. Hvarvetna á Noröurlöndum
hafa jafnaðarmenn veriö framarlega í barátt-
unni fyrir því að Norðurlöndin verði lýst
kjarnorkuvopnalaust svæöi. Meira aö segja
hafa samtök hægri manna á Norðurlöndum
samþykkt aö koma til ráöstefnu sem verður
haldin að hausti um málið.
Jón Baldvin Hannibalsson, formaöur Alþýöu-
flokksins uppi á íslandi, er hins vegar á allt ööru
máli. Þar meö er hann greinilega líka á allt ööru
máli en mjög stór hluti íslendinga, sem vill kjarn-
orkuvopnalaus Norðurlönd.
Af klögunum formannsins til Danmerkur má
líka ráða aö hann er álíka viökvæmur í þessu
máli og Geir Hallgrímsson utanríkisráöherra,
sem sagði á fundi um ratsjárstöðvar á Þórshöfn,
aö yrði tillaga Steingríms Sigfússonar gegn rat-
sjárstöðvunum samþykkt, þá myndi hann segja
af sér.
Þetta sýnir auðvitað sorglega vel, á hvaöa
braut Jón Baldvin er að draga Alþýðuflokkinn.
Aðgerðaiieysi Ragnhildar
í fyrradag samþykktu framhaldsskólakennar-
ar á mjög fjölmennum fundi aö hætta störfum
sökum hraklegra launa. Samstaöa meöal
þeirra er alger, 229 greiddu atkvæöi meö út-
göngunni, en þeir 49 sem ekki veittu henni fylgi
vildu einungis fresta vinnustöðvuninni fram yfir
helgi, ekki hætta viö hana.
Abyrgöarleysið sem menntamálaráðherra
hefur sýnt í málinu frá upphafi er ótrúlegt. Eina
frumkvæði ráðherrans í málinu er að hann mun
hafa boðið samninganefnd kennara upp á fisk-
máltíð í Ráðherrabústaðnum og síöan reynt aö
telja þá á að falla frá vinnustöðvuninni! Það var
allt og sumt. Ráðherra hefur ekkert annað frum-
ó-Áur
kvæði haft að því að leysa deiluna farsællega.
Þetta kemur raunar vel fram í stuttu samtali
hennar við Þjóðviljann í gær. „Ég er ekki í samn-
inganefndinni - þetta heyrir ekki undir mig“.
Hvers konar afstaða er þetta eiginlega? Er ekki
réttmæt krafa að æðsti yfirmaður menntamála í
landinu beiti sér til að leysa þessa erfiðu deilu,
sem ekki snertir einungis kennara og ríkið, held-
ur líka þúsundir unglinga og fjölskyldur þeirra?
Aðgerðarleysi Ragnhildar er sama og
ábyrgðarleysi. Hún virðist einfaldlega ekki fær
um að axla þá ábyrgð sem fylgir æðstu stjórn
menntamála á íslandi.
-ÖS
Velkominn til landsins
litli dúllí gúllí hringanóri!
Ertu kominn til þess
að heilsa upp á
fiskinn minn?
DMVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðsfireyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphóðinsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson.
Fréttastjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Guðjón
Friðriksson, Helgi Guðmundsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla-
son, Mörður Árnason, Ólafur Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson,
Víðir Sigurðsson (íþróttir).
Ljóamyndlr: Einar Ólason, Einar Karlsson.
Útlit og hönnun: Filip Franksson, Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófaricalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Útbreiðslustjóri: Sigríður Pótursdóttir.
Auglýsinga8tjóri: Ragnheiður Óladóttir.
Auglýsingar: Anna Guðjónsdóttir, Ásdís Kristinsdóttir,
Hreiðar Sigtryggsson.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir.
Sfmavarsla: Margrót Guðmundsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
HÚ8mæður: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf Húnfjörð.
innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsia, auglýsingar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Roykjavík, sími 81333.
Umbrot og setnlng: Prentsmlðja ÞJóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 30 kr.
Sunnudagsverð: 35 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 330 kr.
Afgreiðsla blaðsins er opin á laugardögum
frá kl. 9 til 12, beinn sími: 81663.
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 2. mars 1985