Þjóðviljinn - 22.03.1985, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 22.03.1985, Blaðsíða 3
FRETTIR Kjaradómur Hjólinu snúið til baka Kristján Thorlacius formaður HÍK: Málflutningur Indriða H. Þorlákssonar fyrir Kjaradómi fœrir málið aftur á byrjunarstig. Bréf fjármálaráðherra frá í gœr gert að marklausu plaggi Kristján Thorlacius formaður HÍK sagði í samtali við Þjóð- viljann að loknum munnlegum málflutningi fyrir Kjaradómi í gær, að málflutningur Indriða H. Þorlákssonar fulltrúa fjármála- ráðuneytisins hefði verið með þeim hætti að málið væri aftur komið á það stig sem það hófst á. Hann talaði fyrir Kjaradómi ná- kvæmlega eins og hann gerði í upphafi þessarar deilu. Því er greinilegt að bréf Alberts Guð- mundssonar fjármálaráðherra frá í gær er marklaust plagg, sagði Kristján. Margir kennarar telja þó að Albert telji sig hafa slæma ráð- gjafa í deilunni og að hann vilji í raun leggja sig fram um að leysa deiluna og skáka þar með Ragn- hildi menntamálaráðherra. Kristján bætti því við, að með því að lýsa því yfir að kennarar yrðu leystir frá störfum á mánu- daginn kemur, væri menntamála- ráðherra að staðfesta að upp- sagnir kennara hefðu verið lög- Að loknum málflutningi í Kjaradómi í gær. Kristján Thorlacius formaður Hins íslenska kennarafélags og Ind- riði H. Þorláksson formaður samn- inganefndar ríkisins ræða málin. Ljósm. eik. legar, en hún hefur haldið því gagnstæða fram. Einnig sagði Kristján það furð- ulegt að á meðan aðrir ráðherrar væru að leita leiða til að leysa málið, þá kæmi Ragnhildur Helg- adóttir með einleik í málinu og hleypti öllu í bál og brand. „Mér er kunnugt um að málið var til umræðu á ríkisstjórnar- fundi í morgun og það eina sem gæti bjargað einhverju eftir ósköp dagsins væri að nkisstjórn- in í heild legði fram einhverjar skýrar línur til lausnar málinu," sagði Kristján Thorlacius. Utanríkisráðherra Hæpið að láta íbúana raða Miklar umrœður um hernaðarratsjárstöðvarnar á Alþingi í gœr Nýju ratsjárstöðvarnar eru mál alþjóðar og það er hæpið að láta það eftir íbúum afmarkaðra svæða að ráða því hvar þær verða reistar. Ef um valkosti er að ræða er þó sjálfsagt að velja stað þar sem íbúar eru ekki mótfallnir, sagði Geir Hallgrímsson utan- ríkisráðherra m.a. í umræðum á alþingi í gær um þingsályktunar- tillögu þeirra Steingríms J. Sigfússonar og Kolbrúnar Jóns- dóttur um að fallið verði frá öllum hugmyndum um að reisa nýjar hernaðarratsjárstöðvar hérlendis. Steingrímur fylgdi tillögunni úr hlaði og sagði m.a. að það sam- rýmdist ekki almennum friðar- vilja að heimila aukin hernaðar- umsvif hérlendis. Ratsjárstöðv- Póstur og sími Meðherinn inni á gafli Bandaríski herinn hefur um nokkurt skeið fengið að hafa ýmis konar fjarskiptabúnað tengdan tækjum í stöðvum Landsímans á nokkrum stöðum á landinu. Steingrímur J. Sigfússon vék að þessu atriði í umræðum á al- þingi í gær, en hann hefur lagt fram fyrirspurn til samgönguráð- herra um hvort ráðuneyti hans hafi gefið út heimild til Pósts og síma til að setja búnað frá banda- ríska herliðinu í stöðvar Land- símans. Hvers eðlis þessi búnað- ur sé og hvaða tilgangi hann þjóni. -|g. arnar væru þýðingarmikill áfangi í vígvæðingu Bandaríkjamanna í norðurhöfum. Hann sagði aðdraganda þess- ara framkvæmda hafa einkennst af rangfærslum um notagildi stöðvanna, yfirbreiðslum og blekkingum og reyndin væri sú um allar hernaðarframkvæmdir hérlendis. Þá lýsti hann hlutverki fýrirhugaðra ratsjárstöðva og hvernig þær tengjast hernaðar- neti Bandaríkjanna og NATO í Evrópu og N-Ameríku. Kolbrún Jónsdóttir sagðist vera andsnúin allri uppbyggingu hernaðar hér og ratsjárstöðvarn- ar væru hernaðartæki. Við ættum að taka sjálfstæðar ákvarðanir í þessum málum en ekki láta segja okkur fyrir verkum. Páll Pétursson lýsti andstöðu sinni við ratsjárstöðvarnar og sagði að hér væri tvímælalaust um hernaðarframkvæmdir að ræða og slíku ætti ekki að nauðga uppá fólk. Þá lýsti Sigríður Dúna Krist- mundsdóttir yfir andstöðu kvennalistans við ratsjárstöðv- arnar en þeir Eiður Guðnason, Húsavíkurmótið Lein enn efstur í gæi var tefld 6. umferð á al- þjóða skákmótinu á Húsavík. Staðan eftir hana er þannig að Lein er áfram efstur með 5 vinn- inga, en Jón L. Árnason hefur skotist upp í 2. sætið með 4 vinn- inga. 13.-5. sæti koma svo Helgi Ól- afsson, en hann átti ólokið bið- skák við Guðmund Sigurjónsson þegar síðast fréttist, Lombardy og Zuckermann með 3.5 vinn- inga hver. Björn Dagbjartsson, Magnús Reynir Guðmundsson og Karl Steinar Guðnason lofuðu fyrir- hugaðar framkvæmdir og sagði sá síðastnefndi m.a. að hér væri um smámál að ræða. -Ig- Hemadarframkvœmdir Orrustu- vélum fjölgað Hefur koma nýrra orrustuílug- véla til Keflavíkurflugvallar og jafnframt fjölgun þeirra úr 12 véium í 18 verið samþykkt í ríkis- stjórninni? er ein fyrirspurna sem Steingrímur J. Sigfússon hefur beint til utanríkisráðherra og lögð var fram á alþingi í gær. Steingrímur spyr Geir Hall- grímsson einnig hvort ríkisstjórn- in hafi gefið heimild til að reisa fleiri sprengjuheld flugskýli á Keflavíkurflugvelli til viðbótar ' þeim 9 sem þar eru í byggingu og hvenær gefin var heimild til að byggja. Hvort stjórnvöld hafi gefið heimild til að byggðir verði 2. og/eða 3. áfangi olíubirgða- stöðvar í Helguvík. -Ig. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Aðalfundur Samvinnubankans Aðalfundur Samvinnubanka íslands hf. verður haldinn að Hótel Sögu, Átthagasal, Reykjavík, á morgun laugardaginn 23. mars 1985 og hefst kl. 13.30. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður lögð fram tillaga um heimild til bankaráðs um útgáfu jöfnunarhlutabréfa. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins verða afhentir í aðalbankanum, Bankastræti 7, í dag svo og á fundarstað. Bankaráð Samvinnubanka íslands hf

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.