Þjóðviljinn - 22.03.1985, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 22.03.1985, Blaðsíða 15
ÍÞRÓTTIR „ Vona að Olafur sé að gera mistök í þessu máli“ segir Alfreð Þorsteinsson formaður lyfjaeftirlitsnefndar „Enginn íslenskur íþróttamaður neytir olöglegra lyfja“ segir Ólafur Sigurgeirsson formaður kraftlyftingasambandsins Ólafur og Alfreð teknir á beinið í helgarblaði Þjóðviljans Hafnarfjarðarhasar Var búið? Njarðvík og Haukar leika íþriðja sinn á morgun eftir 76-75 sigur Njarðvíkur eftir framlengingu. Sigurkarfan um- deild. Dómarahneyksli, segir Einar Bollason. Ótrúleg spenna. Njarðvíkingar tryggðu sér aukaleik, þ.e. hreinan úrslitaleik um Islandsmeistaratitilinn í körfuknattleik, með því að leggja Hauka að velli í Hafnarfirði í gærkvöldi. Að loknum venju- legum leiktíma var staðan jöfn 68:68 og íþróttahúsið nötraði undan hvatningarópum stuðn- ingsmanna liðanna sem troðfylltu húsið. Haukar höfðu forystuna mest alla framlenginguna, en Njarðvíkingar sóttu á og um leið og bjallan gall skaut Valur Ingi- Helgar- sportið Handbolti Víkingur-Barcelona í undan- úrslitum Evrópukeppni bikarhafa í Laugardalshöllinni kl. 20.30 á sunnudagskvöldið er að sjálf- sögðu viðburður númer eitt um helgina. Annars hefst úrslita- keppni íslandsmótsins í neðri hluta 1. deildar, 2. deild og 3. deild um helgina í kvöld kl. 20. Neðri hluti 1. deildar í Digranesi, efri hluti 2. deildar á Akureyri, neðri hluti 2. deildar í Seljaskóla og 3. deild á Akranesi. Leikið verður áfram á morgun og á sunnudag. Körfubolti Úrslitaleikir í yngri flokkunum fara víða fram um helgina, í Keflavík, Njarðvík, Kópavogi, Hafnarfirði og Reykjavík. Tvö ef- stu lið 1. deildar karla, ÍBK og Fram, leika í Keflavík kl. 20 í kvöld og á mánudagskvöldið verða þau bæði í eldlínunni í undanúrslitum bikarkeppninnar. Pá leika KR og ÍBK í Hagaskóla kl. 20 og Haukar-Fram í Hafnar- firði kl. 20.30. Frjálsar íþróttir Innanhússmót öldunga verður haldið í Baldurshaga og íþrótta- húsi KR um helgina. Mótið hefst kl. 14 á morgun, laugardag, í Baldurshaga og heldur áfram kl. 14 á sunnudag í KR-húsinu. Sund íslandsmótið í sundi fatlaðra hefst í kvöld í Sundhöll Reykja- víkur og verður það sett kl. 19. Keppni heldur síðan áfram kl. 17 á morgun, laugardag, en lokahóf mótsins fer fram í Fáksheimilinu kl. 21 á laugardagskvöldið. Skíði Þingvallagangan, frá Hvera- dölum að Þingvöllum, fer fram á morgun, laugardag, og verður lagt af stað kl. 12 á hádegi. Bikarmót í alpagreinum full- orðinna fer fram í Bláfjöllum um helgina, bikarmót í alpagreinufii unglinga 15-16 ára á Dalvík og bikarmót í stökki fullorðinna í Ól- afsfirði. mundarson. Boltinn dansaði nokkra stund á körfuhringnum og fór síðan ofaní og Njarðvíking- ar höfðu sigrað með 1 stigs mun, 75:76. En var tíminn búinn? Um það deildu menn hart eftir leikinn. Ekki skal lagður dómur hér á það hvort klukkan hafi verið komin á 0 þegar Valur skaut, en aftur á móti hafði gleymst að setja klukkuna af stað eftir að Valur tók vítaskot og 1 mín. 39 sek. voru eftir. Við það bættust lík- lega nokkrar sekúndur við leikinn. Andrúmsloftið var þrúgað spennu í upphafi leiks. Það voru leikmenn líka og kom það niður á leik þeirra. Haukar hefðu staðið uppi sem íslandsmeistarar ef þeir hefðu unnið og Njarðvíkingar þurftu að vinna til þess að tryggja sér hreinan úrslitaleik. Fyrri hálf- leikurinn var hnífjafn allan tím- ann, en Haukar þó oftar yfir og í hálfleik var staðan 29:27 fyrir þá. ívar Webster hafði tekið 11 fráköst í fyrri hálfleik, en fékk síðan aðra og þriðju villu á síð- ustu 2 mínútunum og hóf seinni hálfleikinn eins. Þ.e. með 2 vill- um á fyrstu 2 mínútunum og þurf- ti að yfirgefa völlinn með 5 villur. Áður höfðu Haukar misst Svein Sigurbergsson útaf vegna meiðsla. Haukar létu þetta ekk- ert á sig fá og leikurinn hélst j afn. Njarðvíkingar náðu þó 5 stiga forustu 44:49 þegar 7 mín. voru liðnar, en Haukar jöfnuðu strax og komust yfir 50:49. Leikurinn var jafn það sem eftir var. Árni Lárusson Njarð- víkingur fór útaf með 5 villur þeg- ar 2 mín. voru eftir og Haukar misstu Kristin Kristinsson. Hálf- dán Markússon kom Haukum yfir 68:66 þegar 1 mín. var eftir. Valur brenndi af víti en jafnaði síðan og 24 sek. eftir. Hálfdán braust í gegn og fékk vítaskot þegar 3 sek. voru eftir. Hann fékk eitt skot, en hitti ekki. Jafnt 68:68 og því framlengt. Teitur Orlygsson kom sunnan- mönnum yfir en Pálmar Sigurðs- son jafnar. Reynir Kristjánsson kom síðan Haukum yfir með 2 vítaskotum og góðri körfu. Stað- an 74:70 og rúmar 3 mín. eftir. Njarðvík missti ísak Tómasson útaf, Jónas Jóhannesson minnkaði muninn með einu víta- skoti. Henning Henningsson jók muninn aftur með því að hitta úr einu vítaskoti. Þá klikkaði Valur, en Teitur hinn ungi stóð og hittu úr tveim vítaskotum, og staðan 75:73. Haukar misstu boltann og náðu honum aftur en þá læddi Jónas sér inn í sendingu og brun- aði upp. Pálmar braut á honum og fékk sína 5. villu. Jónas hitti ekki úr vítaskotunum. Það kom ekki að sök því að Hálfdán braut af sér á leið í sóknina og fór útaf. Teitur örlygsson í harðri baráttu við varnarmenn Hauka í gærkvöldi. Á innfelldu myndinni segir Einar Bollason þjálfari Hauka Sigurði Val dómara og starfsmönnum öðrum til syndanna. Á milli þeirra sést Rob lliffe, enski dómarinn. Myndir: EÓI. 46 sek. eftir, staðan 75:73 og Haukar búnir að missa 5 menn útaf. Valur skorar úr vítaskoti og Haukar héldu boltanum þar til 30 sek. sóknartíminn var liðinn og reyndu skot en hittu ekki. Njarð- víicingar náðu frákastinu þegar 3 sek. voru eftir, gáfu langa send- ingu fram á Teit sem blakaði bolt- anum á Val sem skaut með áð- urnefndum árangri þannig að Njarðvíkingar stóðu uppi sem sigurvegarar og fögnuðu mikið, því þeir fá aukaleik í Njarðvík kl. 16:00 á laugardag. Leikurinn var ekki góður, en allan leiktímann við blossamark- ið í spennu. Ólafur Rafnsson var besti maður Hauka í þessum leik, en allir börðust þeir vel og stóðu sig vel í heild. Njarðvíkingar voru ekki síður .undir mikilli pressu og voru þar Gunnar Þorvarðar og Jónas, sem tók 8 fráköst í s.h. bestir ásamt Val eftir að hann fann leiðina í körfuna. ísak ogTeitur áttu einn- ig góðan leik ásamt öðrum, því allir héldu þeir áfram að berjast þó að á brattann hafi verið að sækja. Dómarar voru þeir Sigurður Valur og Rob Iliffe og virtust þeir þola spennuna öllu verr en leik- mennirnir. Stigin: Haukar Ólafur 24, Pálmar 16 Reynir og Ivar 8, Henning 7, Hálfdán 9 oo Kristinn 3. UMFN: Valur 26, Jónas og Gunnar 15, Teitur 9 Isak 4, Helgi Rafns 3, Árni og Hreiðar 2. „Þetta eru bestu liðin hér á landi í dag og sigurinn gat lent hvoru megin sem var,“ sagði Jón- as Jóhannesson eftir leikinn og bætti við: „en nú er engin spurn- ing, þeir fara fýluferð suðureftir á laugardag“. Gunnar Þorvarð- arson sagði þetta ánægjulegan en erfiðan sigur, „þetta hafðist á baráttunni og verður jafn erfitt á laugardag þegar bæði mæta eins og grenjandi ljón“. Olafur Rafnsson sagði að sér hefði fundist Haukar betri þó leikurinn hefði endað eins og hann gerði, „við börðumst vel og sönnuðum það að breiddin er góð i liðinu“. Einar Bollason þjálfari Hauka hafi sitt álit á deiknum: „Algjört dómarahneyksli. Það er algjör óþarfi að flytja inn menn til að sjá um svona lagað. Ég vona bara að körfuboltinn beri gæfu til þess að við fáum aðra menn til að dæma á laugardaginn“. - gsm Föstudagur 22. mars 1985 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 15 Víkingur - Barcelona Forsala í dag í dag kl. 17 hefst forsala fyrir leik Vfkings og Barcelona í und- anúrslitum Evrópukeppni bikar- hafa í handknattleik sem fram fer í Laugardalshöllinni á sunnu- dagskvöldið. Byrjað verður að selja miða í Laugardalshöllinni kl. 17 og þeir seldir til kl. 20. Ef eitthvað verð- ur eftir, hefst forsalan á ný á morgun, laugardag, í Höllinni og stendur frá kl. 13 - 16. Á sunnu- dag verður síðan byrjað að selja miða þar kl. 17 en sjálfur leikur- inn hefst kl. 20.30. Ráðlegt er að verða sér úti um miða tímanlega því áhugi fyrir leiknum er gífurlegur og allt útlit fyrir troðfulla höll. Það er ekki á hverjum degi sem íslenskt lið á möguleika á að komast í úrslit í Evrópukeppni.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.