Þjóðviljinn - 22.03.1985, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 22.03.1985, Blaðsíða 14
UM HELGINA ' Grikklancls- vinir funda Á mánudagskvöldið verður fundur í nýstofnuðu félagi Grikk- landsvina uppi á lofti Gauks á Stöng og hefst kl. 20.30. Þar mun formaðurinn, Sigurður A. Magnússon, skýra aðdraganda gríska frelsisstríðsins árið 1821 og síðan flytja fyrirlestur um make- dónískan elddans. Að tölu for- manns lokinni munu þeir Harald- ur Arngrímsson, Hilmar Hauks- son og Matthías Kristiansen leika grísk lög á bouzouki. Loks verða leiknar hljómplötur með helstu meisturum þessa hljóðfæris. Fundurinn er öllum velunnurum Grikklands opinn. Baritonsöngur \ Borgarnesi Sigurður Pétur Bragason held- ur tónleika í Borgarneskirkju á sunnudaginn kl. 15. Undirleik annast Þóra Fríða Sæmundsdótt- ir. Á efnisskránni eru ítölsk lög og óperuaríur ásamt íslenskum lögum. Sigurður hefur verið við nám á Ítalíu undanfarin tvö ár. Norður- kóreönsk list Á morgun, laugardag, verður opnuð sýning á bókum, myndum og listiðnaði frá Norður-Kóreu í Bókasafni Kópavogs og er henni ætlað að bregða upp mynd af menningu og lifnaðarháttum þessararfjarlægu þjóðar. Sýning- in verður opin virka daga frá kl. 11-21 ogkl. 14-17 um helgarfram til 2. apríl. Þjóðdans á Broadway Á sunnudaginn kl. 14 verður nemendasýning hjá Þjóðdansafé- lagi Reykjavíkur á Broadway. Munu þar börn og fullorðnir sýna dansa frá ýmsum löndum, svo sem Rússlandi, Nýja-Sjáfandi, Austurríki, íslandi og Finnlandi. Afmœli Útivistar Á morgun, laugardag, eru liðin 10 ár frá stofnun ferðafélagsins Útivistar. Af því tilefni verður efnt til árshátíðar þá um kvöldið í Hlégarði og á sunnudaginn verð- ur farið í afmælisgönguferð um borgarlandið. Verður lagt upp í þá ferð frá Umferðarmiðstöðinni kl. 14, gengið um Öskjuhlíð, nið- ur í Nauthólsvík, inn Fossvogsdal og inn í Elliðaárdal. Þaðan munu rútur flytja fólk aftur í bæinn. Gönguferðin tekur um þrjá tíma og kostar ekkert að vera með. Tvennir tónleikar nemenda TR Á sunnudaginn kl. 15 verða burtfararprófstónleikar Guðrún- ar Önnu Tómasdóttur haldnir í sal Tónlistarskólans að Skipholti 33. Leikur Guðrún á píanó verk eftir J.S. Bach, Chopin, Schubert og Aaron Copland. Daginn eftir, mánudag, kl. 21 verða svo al- mennir nemendatónleikar að Kjarvalsstöðum og flytja þeir fjölbreytta efnisskrá eftir ýmsa höfunda. Aðgangur er ókeypis. Friðrik syngur í Hólminum Friðrik S. Kristinsson heldur einsöngstónleika í Félagsheimil- inu í Stykkishólmi á morgun, laugardag, kl. 17. Undirleikari verður Lára S. Rafnsdóttir en á efnisskránni eru ma. sönglög eftir Karl O. Runólfsson, Jón Þórar- insson, Pál ísólfsson, Schubert, Scarlatti og Tosti. Petta eru fyrstu sjálfstæðu einkatónleikar Friðriks sem er við nám í Söng- skólanum í Reykjavík. Landsmót barnakóra 600 börn úr 18 kórum víðsveg- ar að á landinu verða mætt til Kínversk tónlist Hin þjóðlega hljómsveit kvikmyndaversins í Peking heldur hljómleika í Bústaðakirkju föstudagskvöldið 22. mars kl. 20.30 og í Menntaskólanum við Hamrahlíð laugardaginn 23. mars kl. 2. Miðasala við innganginn. Kfnversk-fslenska menningarfélagið. Blikkiðjan Iðnbúð 3, Garðabæ Önnumst þakrennusmiöi og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmiði. Gerum föst verðtilboð SÍMI 46711 Framúrakstur á vegum úti krefst kunnáttu og skynsemi. Sá sem ætlar framúr þarf aó gefa ótvírætt merki um vilja sinn, og hinn sem á undan ekur þarf að hægja ferð. Stefnuljósin er sjálfsagt aö nota. Minnumst þess að mikil inngjöf leiðir til þess að steinar takast á loft, og ef hratt er farið ökum við á þá í loftinu. 4 leiks í Langholtskirkju kl. 13 í dag, föstudag, en þá hefst þar Landsmót íslenskra barnakóra sem Tónmenntakennarafélag ís- lands efnir til annað hvert ár. Hafa þau verið haldin til skiptis í Reykjavík og úti á landi. Frá kl. 13-19 verða æfingar fyrir tónleika sem haldnir verða kl. 14 á morg- un. Þar munu 12 kórar syngja hver fyrir sig en í lokin syngja allir kórarnir 18 saman með undirleik hljómsveitar frá Tónskóla Sigur- sveins D. Kristinssonar lög eftir Hándel og Bach. Einnig verður íslenski þjóðsöngurinn sunginn. Að tónleikum loknum verður slegið upp pulsuveislu og skemmtun fyrir þátttakendur en mótsslit verða kl. 19. Kínversk tónlist Undanfarna daga hefur tíu manna hópur úr Hinni alþjóð- legu hljómsveit Kvikmyndavers- ins í Beijing dvalist hér á landi og haldið tónleika við góðar undir- tektir á nokkrum stöðum. Nú er röðin komin að höfuðborgarbú- um að njóta kínverskrar tónlist- ar, því tvennir tónleikar verða haldnir í dag, föstudag, og á morgun. í kvöld kl. 20.30 verða kínversku listamennirnir í Bú- staðakirkju og kl. 14 á morgun í Menntaskólanum við Hamra- hlíð. Gömludansarnir 6 Hótel Sögu Á sunnudaginn verður haldin íslandsmeistarakeppni áhuga- manna í gömludönsunum á Hótel Sögu í Reykjavík á vegum Nýja dansskólans og Þjóðdansafélags Reykjavíkur. Verður hún í þrennu lagi: kl. 13-15 keppa 8 ára og yngri og 9-10 ára börn, kl. 15.30 hefst keppni 11-15 ára og kl. 21 um kvöldið hefst keppni fullorðinna. Keppninni lýkur um miðnættið og verða þá úrslit kynnt en síðan stiginn dans til kl. 1. Jafn- dægur Sænski listamaðurinn Bengt Adlers opnar í kvöld, föstudag, kl. 20 sýningu á verkum sínum í Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3b. Þar sýnir hann verk að ýmsu tagi, bækur, tónlist, vatnslitamyndir, þurrnálaþrykk ofl. Sýningin nefnist Jafndægur á vor en í frétt frá safninu segir að það sé „mjög töfrandi þegar dagurinn verður lengri en nóttin, þegar bjartsýni sigrar svartsýni, þegar ljósið sigr- ar...“ Bengt Ádler er fæddur í Málmey og starfar þar og í Frakk- landi. Hann hefur sýnt víða í Evr- ópu og gefið ut nokkrar bækur. Sýningin verður opin daglega kl. 16-20 fram tii 31. mars. - ÞH Ný bók Saga Bachs í tilefni af 300 ára afmæli Jo- hanns Sebastians Bach verður gefin út á íslensku fyrsta ævin- sagan sem rituð var um meistar- ann. Ævisagan var rituð af J.N. Forkel, sem var samtímamaður sona Bachs. Bókin er um 140 bls. að stærð og prýdd 10 myndum. Árni Kristjánsson þýddi verkið á íslensku en Prentiðn hefur annast prentun. Bókin kemur út í dag, 21. mars, á 300 ára afmæli tón- skáldsins. Tónskóli Þjóðkirkj- unnar gefur bókina út. 14 SIÐA - ÞJÓÐVIUINN UM HELGINA 7 MYNDUST Galleri Borg Ása Ólafsdóttir sýnir myndvefnaö og „collage". Opiðvirkadaga kl. 12-18 ogkl. 14-18 umhelgartiM. aprfl. Kjarvalsstaðir I austursal veröur opnuö á morgun sýning á verkum finnsku listakonunnar Doru Jung en í vestursal sýna félagar í T extílfélaginu í til- efniaf 10áraafmælifé- lagsins. Einnig sýnd verk af myndbandi. Opiö alla daga kl. 14-22 fram yfir páska. Listasaf n ASI Um þessa helgi eru síðustu forvöð aö sjá sýninguna Náttúrubörn frá Nicaragua. Opiðkl. 14-22framá sunnudagskvöld. Myndlistaskólinn, Tryggvagötu 15 Kynning á starfi skólans á hverjum laugardegi; á morgun; verk nemenda i framhaldsdeildum. Opiö kl. 14-18. Hafnarborg, Strandgötu 34 Systkinin Jónaog Einar Már Guövaröarbörn opna sýningu á morgun laugar- dag.kl. 14. Húnsýnirleir- list, hann Ijósmyndir. Opiö daglega kl. 14-19 fram til 7. april. Bókasafn Kópavogs Sýning á bókum, myndum og listiðnaði frá Noröur- Kóraeu opnuö á morgun. Opiövirkadagakl. 11-21, umhelgarkl. 14-17 til 2. apríl. Nýlistasafnið, Vatnsstig 3b Sænski listamaðurinn Bengt Adlers opnar sýn- ingu á bókum, vatnslita- myndum ofl. kl. 20 í kvöld. Opið alla daga frá kl. 16-20 framtil31.mars. Listmunahúsið Siguröur Þórir opnar sýn- inguámorgunkl. 14.35 olíumálverk, ný hlið á lista- manninum. Opið virka dagakl. 10-18,umhelgar kl. 14-18fram til 8. april. Lokaöámánudögum. Listamiðstöðin, Lækjartorgi Haukur Halldórsson sýnir 27 málverk og nokkrar postulínsmyndir. Opiö kl. 14-18 alla daga. Siöasta sýningarhelgi. Norræna húsið Tvær sýningar opnaöar um helgina. Finnsktskart og kvenbúningar í anddyri á föstudag og dönsk graf ík i kjallara á laugardag. Opiö á opnunartíma hússins alla daga. Gallerífslensklist Gunnar örn Gunnarsson sýnirteikningar, mónótýp- ur og höggmyndir aö Vest- urgötu 17. Sýningin verður opin virka daga kl. 9-17og kl. 14-18 um helgar fram til 24. mars. Bogasafur Sýning á Ijósmyndum Pét- urs Brynjólfssonar sem starfrækti myndastofu í Reykjavíkáárunum 1902- 15.0pinsunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 13.30-16. Mokka Helgi Þorgils Friðjónsson og Kristinn Guðbrandur Harðarson sýna bók- og dúkristursem þeir hafa unniðísameiningu. Þjóðleikhúsið Kardimommubærinn laug- ardag og sunnudag kl. 14. Gæjar og piur laugardag kl. 20, Rashomonsunnu- dag kl. 20, næstsíðasta sýning. Gertrude Stein... sunnudag kl. 20 á Litla sviöinu. NB! Frumsýning á Dafnis og Klói sem vera átti á föstudag frestaö til þriöju- dags. Iðnó Dagbók önnu Frank, Agn- es-barn Guös laugardag, Gísl sunnudag, Draumur á Jónsmessunótt fimmtudag. Leikfélag Akurevrar Engar sýningar föstudag og laugardag vegna Fær- eyjaferðar. Edith Piafsýnd sunnudag kl. 20.30. Hitt-leikhúsið Litla hryllinsgbúðin sýnd í Gamla bíói föstudag, laug- ardag og sunnudag kl. 20.30. Hjáleigan, Kópavogi Leikfélag MKfrumsýnir Hlaupvídd sex laugardag kl. 20.30. Versló Rauðhetta sýnd í Verslun- arskólanum viö Grundar- stíg föstudag, laugardag og sunnudag kl. 20.30. Miðasala í skólanum frá 18.30. Þórshöfn Saklausi svallarinn sýndur í Þórsveri föstudag, laugar- dagog sunnudag. TÓNLIST Kinversktónlist Hiö þjóðlega hljómsveit kvikmyndaversins i Peking heldurhljómleikaíBú- staöakirkju föstudag kl.20.30og í MH laugardag kl. 14. Afmælistónleikar Siguröur Demetz Franz- son og nemendur hans haldauppá30ára kennsluafmæll Siguröar meö tónleikum á Akranesi á sunnudaginn, i tónlistar- skólanum. Landsmót barnakóra Tónleikar í Langholtskirkju laugardagkl. 14.18kórar og 600 börn syngja í einu. Pylsuveislaáeftir. Háskólabíó Yngri og eldri strengja-og lúörasveitir T ónmennta- skóla Reykjavikur halda tónleikasunnudag kl. 14. Stykkishólmur Friðrik S. Kristinsson held- urfyrstu sjálfstæöu tón- leika sina viö undirleik Láru S. Rafnsdóttur í Félags- heimilinu laugardag kl. 17. Nemendatónleikar TR Burtfararprófstónleikar Guðrúnar Önnu Tómas- dóttur í húsnæöi skólans í Skipholti 33 sunnudag kl. 15. Nemendatónleikaraö Kjarvalsstöðum mánudag kl. 21. Borgarnes Sigurður Pétur Bragason baritónsöngvari heldur tónleika í Borgarneskirkju sunnudaginnkl. 15. Undir- leikari Þóra Friöa Sæ- mundsdóttir. Kristskirkja Orgeltónleikar meö verk- um J.S. Bach mánudag kl. 20.30. Einleikarar: Jónas Þórir Jónasson, Daníel Jónasson, Helgi Braga- son, Smári Ólason, Friörik Stefánsson og Máni Sigur- jónsson. LEIKLIST Alþýðuleikhúsið Klassapiur sýndar í Nýlist- asafninu sunnudagkl. 20.30. Miðapantanirísíma 14350. YMISLEGT Lögberg, Haskólanum Danski rithöfundurinn Per Höjholt segir frá starfi sínu og aðferðum við skriftirog ritstörf laugardagkl. 13.15. Regnboginn Japönsk kvikmyndahátiö heldur áfram á mánudag. Sjábíósíöu. Lífog land Ráöstefna um Mótun um- hverfis á Islandi i Ásmund- arsal við Freyjugötu. Hald- in laugardag frá kl. 10-17. Fjöldi fyrirlestra og um- ræður. Hótel Loftleiðir Bandalag háskólamanna heldur ráðstefnu um efniö: Erþörfá stjórnkerfisbreytingu? Stendur laugardag frá kl. 10- 17. Broadway Þjóðdansafélag Reykjavík- ur heldur nemendasýningu sunnudagkl. 14, bæöi börn og fullorönir. Norræna húsið Dönsk bókmenntakynning laugardag kl. 15. Keld Gall Jörgensen segir frá nýjum bókum og skáldið Sören Ulrik Thomsen les úr Ijóöa- bókum. Fyrirlestur sunnu- dag kl. 15. Sören Ödum segirfrátilraunum með innflutning á trjáplöntum. Kvennalistinn Afmælisfundur Kvennalist- ans veröur haldinn aö Lækjarhvammi Hótel Sögu sunnudagkl. 14. Kvennahúsið Fríöa B. Pálsdóttir segir frá niðurstööum rannsókna sinna á verkaskiptingu kynjanna á vinnumarkaðn- um í kvennakaffi laugardag kl. 13. Stýrimannaskólinn Kynningardagur Stýri- mannaskólans laugardag. Skólinnopinnkl. 13.15-17, kennararog nemendur kynna starfið og tækjakost skólans. Kaffiveitingar. Grikklands- vinafélagið Nýstofnaö félag, Grikk- landsvinafélag, heldur fund á lofti Gauks á Stöng mánudag kl. 20.30. For- maöurinn, Sigurður A. Magnússon, flytur erindi og leikin verður tónlist eftir Bouzouki. Gömludansarnir Islandsmeistarakeppni i gömludönsunum á Hótel Sögu sunnudag: yngstu flokkar kl. 13-15, unglingar 11- 15 ára kl. 15.30 og full- orönir kl. 21. Dans á eftir. Fílharmoníubasar Söngsveitin Fílharmonía heldur kökubasar sunnu- dagkl. 14aöFreyjugötu 14. Föstuvaka veröur í Hafnarfjaröarkirkju sunnudag kl. 20.30. Ólöf Kolbrún Harðardóttir syng- ur, Daði Kolbeinsson leikur á óbó, kirkjukórinn syngur og Ástráður Sigurstein- dórsson fyrrum skólastjóri flyturræðu. Fiskhátíð Vörumarkaöurinn heldur fiskhátið að Eiöistorgi 11, Seltjarnarnesi sunnudag kl. 13-18. Allar helstu fisk- afurðir Islendinga kynntar sem og veittar leiðbeining- ar um mat- og framleiðslu. ÚtivistlOára ÁRSHÁTÍÐ i tilefni af því aö 10 ár eru liðin frá stofn- aöalfundi Útivistar verður 23. mars i Hlégaröi. Fjöl- breytt hátiöardagskrá. Pantið strax. Afmælis- ganga verðurkl.14 sunnudaginn 24. mars. Gengið fráBSl umöskju- hlíö-Nauthólsvik-Fossvog og Elliðaárca. 3tímar. Fri ferö. Ferðafélag íslands Dagsferðir sunnudag 24. mars 1. kl. 10.30Gengiöá Hengil- skiðaganga í Inn- stadal. 2. Kolviöarhóll- Húsmúli. Létt ganga viö allra hæf i. Verö 350 kr. Brottförfrá Umferðarmíðstöðinni, austanmegin. Farmiðarvið bíl. Fríttfyrirbörn ífylgdfull- orðinna. Fákur Unglingadeild Hesta- mannafólagsins Fáks mun standa fyrir hópreiö meö börn og unglinga á laugar- daginn23. marskl. 14.30. Lagt veröu r af staö f rá nýja félagsheimili Fáks aö Viði- völlum. Foreldrar hvetjið börn ykkar aö koma meö og kynnast jafnöldrum sín- umáhestbaki.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.