Þjóðviljinn - 22.03.1985, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 22.03.1985, Blaðsíða 7
& Oates tónlistin sem við lékum á þessum tíma gerði okkur kleift að fara yfir landamæri milli hvítra og svartra og við teljum okkur hafa átt þátt í því að svartir tónlistar- menn hlutu viðurkenningu í hvítum útvarpstöðvum“. „Við vorum brautryðjendur á þessum Myrku Tímum þegar það var bannað að fara yfir landamæri hvítra og svartra. En við fórum samt yfir. Og ruddum meðal ann- ars Michael Jackson leið til frama. Við stuðluðum líka að því að svartir tónlistarmenn hlutu viðurkenningu hvítra tónlistar- manna og öfugt, segir Hall. Hvað sem því líður þá eru áhorfendur á tónleikum Hall og Oates bæði svartir og hvítir, ungir og aldnir. Þeir félagar eru ánægðir með áhorfendaskarann en... „Ég hata þá aðdáendur sem vilja eiga mann eins og litla dúkku, segir Oates. „Þannig eru margar 12-ára stelpur. Þú lítur út á vissan hátt á plötuumslagi og á því næsta ertu kannski búinn að skipta um jakka og þá segja þær: „Þú sveikst mig, af hverju breyttistu,,,, Þeir aðdáendur sem langar til að taka Hall og Oates með sér heim sem leikfang eða lífsförunaut geta gleymt og grafið „Frægðin,“segir Daryl Hall „kemur að góðum notum í um- ferðinni. Ef löggan stoppar þig og þú réttir henni ökuskírteinið, þá er viðkvæðið: Ó, jæja strákar, allt í lagi, sjáumst síðar. Þá er gaman að vera rokkstjarna“. Söngdúettinn Hall og Oates hefur selt fleiri plötur en nokkur annar dúett, þar með taldir Símon og Garfunkel og Everly Brothers. Hall og Oates eiga að baki sér 4 platínuplötur, 8 gull- plötur, og 5 af litlu plötunum þeirra hafa náð efsta sæti vin- sældalista. Þó að þeir sjálfir gefi h'tið út á frægð sína þá er líf þess- ara 35-ára gömlu söngvara óra- leið frá hversdagslegu brauðstriti, rafmagnsreikningum og rykkornum og lágstéttarupp- runi þeirra hvergi sýnilegur lengur. Móðir Halls, sem var tónlist- arkennari leiðbeindi honum fyrstu sporin á tónlistarbrautinni. Hún þröngvaði honum til að læra á píanó og syngja. „En ég lærði meira af Smokey Robinson" segir Hall og brosir. Hann er samt þakklátur foreldrum sínum stuðning þeirra við tónlistar- metnað hans. „Ég var aldrei spurður hvenær ég ætlaði að fá mér almennilega vinnu, bætir hann við. John Oates hefur sömu sögu að segja, foreldrar hans studdu hann líka. „Það var ann- aðhvort þetta eða vinna í gúm- mífabrikku Firestone" segir Oat- es. Tónlistarferil sinn byrjuðu þeir með því að leika í ýmsum hljómsveitum svo sem eins og „The Avalons", „The Tempton- es“ og „The Masters“. Þeir voru í glansandi silki-jökkum og spil- uðu í litlum næturklúbbum í þær hugleiðingar. Oates er giftur Nancy Hunter sem er sýningar- stúlka og Hall hefur síðustu 10 ár búið með Söru Allen, lagasmið. Þegar viðtalið við Hall og Oat- es var tekið voru þeir að taka upp myndband við lagið „Method of modern love“ í gömlu og niður- m'ddu fyrrverandi leikhúsi. Hall var þreytulegur og sagði að svona upptökur væru ekki sérlega skemmtilegar en ef árangurinn væri góður væru þeir ánægðir. „Flestir tónlistarmenn eru ekki leikarar og vilja ekki vera það. En því miður neyðumst við til að gera svona annars flokks hluti bætir hann við. Hvorugur þeirra hefur nokkurn áhuga á að verða kvikmyndastjarna né heldur hafa þeir áhuga á að verða rokkstjörn- ur. „Að vera stórstjarna, að selja fullt af plötum það er bara titt- lingaskítur,“ segir Oates með fyrirlitningu. Þeir eru heimakærir menn á fertugsaldri og sinna áhugamálum sínum eins og kapp- akstri, tennis, sundi og skíðum, áhugamálum sem losa þá við streitu og lyfta af þeim hvunn- dagsáhyggjum tónlistarbransans. Þeir eru áhugamenn um heilsu- rækt og líka miklir lestrarhestar. Hall er að lesa sögu Hinna Myrku Miðalda og Oates er að lesa ævi- sögu Litla Richards. Þeir segja einum rómi að það sé markmið þeirra að forðast glys og glaum frægðarinnar. „Við erum lítið hrifnir af viðtölum og við forð- umst staði sem frægt fólk sækir. Það er fullt starf að halda sér í sviðsljósinu. Sumir eyða í það tíma sínum, en við, við erum að vinna“ segja Hall og Oates og halda áfram vinnu sinni. Þýtt og endursagt aró Hall skuggahverfum. Á þessum árum fengu svartar hljómsveitir bara að spila á vissum stöðum en Hall og Oates létu kynþáttafordóma ekki aftra sér frá því að blanda geði við félaga svartra hljóm- sveita. Þannig kynntust þeir og eignuðust vini í hljómsveitum eins og til dæmis „The Temptati- ons“. Þess á milli sóttu þeir tíma í Temple-háskóla (en guð má vita hvað þeir lærðu). „Fólk hélt að við værum svert- ingjar, segir Oates. „Fyrstu litlu plötumar sem við tókum upp voru líka bara spilaðar í „svört- um“ útvarpsstöðvum. Soul- Færð þú vinnu að loknu námi? Talið er að á næstu 15 árum, eða fram til aldamóta, þurfi að skapa atvinnutækifæri fyrir um 30.000 manns. Hvar eru þessi at- vinnutækifæri? Er ungt fólk á réttri braut í undirbúningi fyrir framtíðina? JC Reykjavík gengst fyrir fundi þar sem fjallað verður um atvinnumöguleika ungs fólks í náinni framtíð og leitað svara við ofangreindum spurningum. Fundurinn verður haldinn í Menningarmiðstöðinni Gerðu- bergi laugardag, 23. mars og hefst kl. 13. Hann er einkum ætl- aður ungu fólki á framhalds- skólastigi, svo og öllum þeim sem áhuga hafa á málefninu. Að- gangur er ókeypis. Fyrirkomulag fundarins verð- ur þannig að fyrst verða flutt stutt framsöguerindi. Þeir sem tala eru: Ingjaldur Hannibalsson talar um nýja möguleika í atvinnulífi á næstu árum. Þráinn Þorvaldsson um iðnað og útflutning; Sigurður Guðmundsson um stofnun smáfyrirtækja; Gerður Pálmadóttir um Reynslu af fyrirtækjarekstri; Páll Jensson um hugbúnaðar- iðnað; Guðmundur Einarsson um líf- tækniiðnað; Birgir Ómarsson 18 ára atvinnu- laus um möguleikar ungs fólks. Að loknum framsöguerindun- um verða almennar umræður. Ritgerðarkeppni um skaðsemi vímuefna I tilefni af alþjóðlegu ári æskunnar 1985 hefur Stórstúka íslands og Átak gegn áfengi ákveðið að efna til ritgerða- keppni meðal 14-16 ára unglinga um skaðsemi vímuefna. Skilafrestur er til 31. desember 1985. Ætlunin er að gefa bestu ritgerðirnar út í bókarformi, auk þess verða veitt bókaverðlaun. Þá gengst Stórstúkan fyrir sam- keppni um bestu unglingaskáld- söguna. Skilafrestur handrits er til 31. desember 1985. Handrit skal merkt dulnefni. Þriggja manna nefnd mun dæma um handritin. Verðlaun verða 100 þúsund kr. að viðbættum venju- legum ritlaunum. - MJÓLK ER GÓÐ

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.