Þjóðviljinn - 22.03.1985, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 22.03.1985, Blaðsíða 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663. MðDVIUINN Föstudagur 22. mars 1985 68. tölublað 50. örgangur Dagvist Reglur þverbrotnar Einstœtt foreldri: Dagmœður hafa leyfi fyrir 4 börnum en eru með 8 Það er greinilegt að borgin leysir dagheimilisvandann með því að hrúga börnunum inn á dagmæður. Umsjónarfóstrur veita dagmæðrum leyfí í umboði barnaverndarnefndar og hver dagmóðir má aðeins hafa 4 börn, en þær eru með upp undir 8 til 10 börn, sagði einstætt foreldri í samtali við Þjóðviljann í gær. - Það er ekki haft neitt eftirlit með fjölda bama í gæslu, og þó skattstjóri fái lista yfir dagmæður sem hafa leyfi, er fjöldi barna sem er í gæslu ekki gefinn upp. DeildarstjóriDagvistunar barna gefur þá skýringu að það væri að bregðast trúnaðartrausti dag- mæðra. Einstæðir foreldra eiga í vandræðum með að koma börn- um sínum í gæslu og margar dag- mæður vilja ekki taka við börn- um okkar vegna niðurgreiðsla á dagvistunarkostnaði sem þarf að gefa upp tilskatts. Hjá umsjón- arfóstru míns hverfis fékk ég þær upplýsingar að aðeins væri um 2 konur að ræða sem tækju böm einstæðra foreldra, önnur var með 7 böm fyrir, hin með 9, ann- að stóð barni mínu ekki til boða, sagði foreldrið. Hjá framkvæmdastjóra Dag- vistarheimila bama fengust þær upplýsingar að erfitt væri og við- kvæmt mál og hafa eftirlit með fjölda barna í gæslu hjá hverri dagmóður og ekki þeirra mál að fara ofaní saumana á samningi sem foreldrar gera við dagmæð- ur. Sagði hann ennfremur að fjöldi barna einstæðra foreldra sem væm hjá dagmæðrum hetði aldrei verið meiri. Það sýndu nið- urgreiðslur sem væm um 230. Auðvitað væri. fyrst og fremst um að kenna skorti á dagheimilis- plássi. Aðspurður um tilfelli eins og greint er frá hér að ofan sagð- ist hann telja þetta undantekn- ingu og mjög óvenjulegt. - aró Ratsjárstöðvar Páll P. ámóti „Mér fínnst það persónulega óþægilegt að einstakir þingmenn Framsóknarflokksins séu sífellt á móti einu og öðrum málum sem okkar ráðherrar leggja hér fram. Það ætti kannski að flýta fyrir að ieysa þá undan þeirri áþján að sitja með okkur í stjórn,“ sagði Björn Dagbjartsson þingmaður Sjálfstæðismanna við umræður um ratsjárstöðvamálið á alþingi í gær eftir að Páll Pétursson hafði lýst andstöðu sinni við þessi hern- aðarmannvirki. „Björn getur haft sínar skoð- anir á því en hann ákveður ekkert fyrir mig,“ sagði Páll Pétursson aðspurður hvort farið væri að hrikta iliilega í stjórnarsamstarf- inu. - lg. Sjá bls. 3 Þjóðleikhúsið 20% hækkun Á miðvikudagskvöld tókust samningar milli lausráðins lista- fólks og Þjóðleikhússins. Meðal- hækkun sýningarlauna er um 20%. - Auk launahækkunar voru ýmsar lagfæringar gerðar. En leikmyndateiknarar hafa ekki samið ennþá. Þeir voru teknir út úr myndinni þar eð svo mikið bar í milli að við vildum gefa okkur betri tíma en samningsumleitanir halda áfram, sagði Sigurður Karlsson formaður Félags ís- lenskra leikara í gær. - aró Loftpressuvinna Reykjavíkurborg er sökudólgurinn Fyrirtœki Reykjavíkurborgar neita að greiða nema einum manni einfait kaup við loftpressuvinnu Fjölmargir aðilar, bæði loft- pressueigendur ogmenn sem vinna á loftpressum höfðu sam- band við Þjóðviljann í gær vegna fréttar í blaðinu um brot á vinnu- verndarlöggjöfinni varðandi loftpressuvinnu. ÖUum sem höfðu við okkur samband bar saman um að það væru fyrirtæki Reykjavíkurborgar sem væri sökudóigurinn í þessu máli. Reykjavíkurborg á fáar eða engar loftpressur en fær loft- pressueigendur, sem eru margir, til að vinna fyrir sig. Borgarfyrir- tækin neita síðan að greiða nema einum manni laun á hverja loft- pressu, þótt lögin segi að þeir eigi að vera tveir. Viðmælendum okkar bar saman um að aðrir s,em keyptu loftpressuvinnu færu ekki svona að. Þá bentu menn á að borgarfyr- irtækin væru langstærsti vinnu- veitandi loftpressueigenda og þau notfærðu sér það á þann hátt, að ef eigendurnir ekki gæfu svo og svo mikinn afslátt frá vinnu- vélataxta, þá yrði ekki við þá skipt. Loftpressueigendur gætu ekki annað en gefið afsiátt, allt uppí 50%, dæmi eru til um meira, til þess að fá vinnu. Samkeppnin væri svo hörð að um annað væri ekki að ræða. - S.dór Söluskattur Holræsi í Snorrabrautinni bilaði fyrr í vikunni og unnu starfsmenn Reykjavíkurborgar alla nóttina á eftir við að komast fyrir meinsemdina. Stífla hafði myndast og þegar reynt var að ná henni úr leiðslum sprungu þær á kafla enda gamlar og slitnar. Verður unnið við það næstu daga að höggva upp malbikið og koma fyrir nýjum leiðslum. Ljósm. eik. Hafnarfjörður Er LUXUS menningarrit? Meðal þeirra 12 timarita sem sótt hafa um og fengið und- anþágu frá söluskatti síðustu 3 mánuði, gefur að líta tímaritið Luxus. Heimild til undanþágu frá Hrikalegt atvinnuástand Á þriðja hundrað Hafnfirðingar atvinnulausir. Guðríður Elíasdóttir formaður Framtíðarinnar: Sé ekki að neina vinnu sé að fá fyrir fólkið Petta er alveg hrikalegt ástand og ég get ekki séð að neina vinnu sé að fá fyrir þessar konur á næstunni eins og sakir standa, segir Guðríður Elíasdóttir for- maður Framtíðarinnar og vara- forseti ASI, um atvinnuástandið í Hafnarfírði. Hátt á þriðja hundrað manns eru á atvinnuleysisskrá í bænum þar af yfir 100 konur sem störf- uðu áður í Bæjarútgerðinni. Öllu starfsfólki BÚH hefur verið sagt upp störfum og fyrri loforð um að ráða fólkið til starfa hjá nýstofn- uðu Útgerðarfélagi Hafnfirðinga hafa verið dregin til baka. Jafn- framt hefur forseti bæjarstjórnar lýst því yfir að Útgerðarfélagið taki ekki til starfa næstu mánuð- ina. „Okkur var sent bréf um síð- ustu mánaðamót þar sem sagði að 10. mars yrði starfsfólkið ráðið til Útgerðarfélagsins og sennilega yrði farið af stað með starfsemina fyrir miðjan mánuðinn. Síðan er tilkynnt að vandinn sé mun meiri en áður var áætlað og allt dregið til baka. Þetta er ekki annað en ósvífni að ræða ekki við starfs- fólkið fyrst búið var að senda því orðsendingu uppá fyrirhugaða ráðningu. Það er ekki fyrr en verkalýðsfélögin þrýsta á um svör að ákveðið er að halda fund með starfsfólkinu,“ sagði Guðríður Elíasdóttir. -lg- söluskatti er í lögum frá 1960. Upphaflega var hún veitt þeim blöðum og tímaritum sem ekki voru gefín út í ágóðaskyni en að- sögn Snorra Ólafsonar hjá fjár- málaráðuneytinu eru núorðið þau tímarit undanþegin sölu- skatti sem tengjast menningar- eða atvinnumálum og koma út að minnsta kosti einu sinni á ári. Aðspurður sagði Snorri að það væri stórmál að áætla hvað það væru miklir peningar sem ríkis- sjóður missir á þennan hátt og ekki hægt að skjóta á neina tölu af viti en að öllum líkindum þýddi niðurfelling á söluskatti það að stór hluti þessara blaða og tíma- rita héldi áfram að koma út. - Hin tímaritin 11 sem fengið hafa undanþágu eru: Vegurinn, Fréttabréf meinatækna, Skóla- blað Stjórnunarfélagsins, Vél- sleðinn, Framsýnar fréttir, Tannlæknablaðið, Tirna, Rit Kvenfélags Lágafellssóknar, Framtak, Árbók vélsleðamanna og Vélabrögð. Þess má geta að lokum að sótt var um undanþágu fyrir tímaritið Samúel en hún ekki veitt. - aró

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.