Þjóðviljinn - 22.03.1985, Qupperneq 5
Það skiptir mestu máli nú að
þjóðin geri sér grein fyrir því
að tvær meginandstæður tak-
ast á í íslenskum stjórnmálum.
Það er annars vegar launa-
menn, yfirgnæfandi meirihluti
þjóðarinnar, og hins vegar -
lítill minni hluti - klíka fjár-
magnseigenda sem nú ræður
landinu. Þessi andstæðu öfl
eiga sér skipulag í verkalýðs-
samtökunum á einn bóginn og
Verslunarráðinu og Vinnu-
veitendasambandinu á annan.
í stjórnmálum birtast þessar
andstæður í Alþýðubandalag-
inu annars vegar og Sjálfstæð-
isflokknum hins vegar. Þetta
eru stéttaandstæðurnar í ís-
lenska þjóðfélaginu.
Yfirgnæfandi meirihluti þjóð-
arinnar, launamenn, eiga ekkert
að selja nema vinnuafl sitt. Þessi
meirihluti á því samleið. Alþýðu-
bandalagið á erindi við þennan
meirihluta. Þetta erindi höfum
við nú flutt á um 30 fundum frá
áramótum auk vinnustaðafunda í
flestum kjördæmum landsins og
Miðjumoð myndar ekki
mótvægi við hægri stefnuna
Nú erað rekaflóttann, sem Steingrímur Hermannsson
tilkynnti í vikunni
Eftir Svavar Gestsson, formann Alþýðubandalagsins
fengið sterkar undirtektir.
Minnihlutinn, fjármagnsklíkan,
ræður ríkisstjórn landsins um
þessar mundir. Þessi minnihiuti
hefur nú reynt að stjórna landinu
í tvö ár gegn meirihlutanum. Nið-
urstaðan er sú að hvarvetna blasa
við sjúkdómseinkenni í íslensku
þjóðlífi. Niðurstaðan er sú að í
lýðræðisríki er ekki hægt að
stjórna meirihlutanum gegn
hagsmunum hans.
Ríkisstjómin reynir að kenna
fyrri ríkisstjómum um vandann.
Það er augljós fjarstæða: Ríkis-
stjórnin hefur gert allt sem hún
hefur viljað og hefur haft öll tæki-
færi til þess að koma stefnu sinni í
framkvæmd lið fyrir lið. Niður-
staðan er stórfelld stéttaátök.
Upplausn
Mótmæli Dagsbrúnar fyrir
réttu ári vom fyrstu öflugu við-
brögðin gegn stefnu ríkisstjórn-
arinnar af hálfu verkalýðshreyf-
ingarinnar.
Verkfall Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja sýndi að
launafólk er tilbúið til að berjast
og leggja á sig fómfreka baráttu
fyrir stefnumálum sínum.
Sjómannaverkfallið á háver-
tíðinni var tímamótaviðburður.
Kennaradeilan er angi á sama
meiði.
Fyrir nokkru birti Morgun-
blaðið skoðanakönnun Hag-
vangs um stærsta efnahagsvanda-
málið á íslandi. Þar svöruðu flest-
ir til um verðbólgu og erlendar
skuldir. Hvorttveggja er stórfellt
vandamál. En alvarlegasta efna-
hagsvandamálið á íslandi er ríkis-
stjórnin sjálf og stefna hennar.
Þetta vandamál kemur fyrst og
fremst fram í vaxtaokrinu sem
sligar húsbyggjendur, leggur
landbúnaðinn í rúst og sendir tog-
arana á nauðungaruppboð.Vaxta-
okrið er til orðið vegna þess að
lögmál fjármagnsins ráða og þau
Framhald ábls. 6
Föstudagur 22. mars 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5