Þjóðviljinn - 22.03.1985, Qupperneq 8
GLCTAN
fjölbrautaskóla Suðurnesja í
haust.
Dansinn sem ég dansaði í
keppnjnni samdi ég sjálf og æfði
sjálf en hafði aðstöðu í félags-
heimilinu. Dansinn er nafnlaus
en lagið sem ég dansaði eftii
heitir „Tour de France". Þetta ei
diskódans og meira svona dill en
t.d. jassballett.
£g sýndi dansinn í leikhléi á
leik Njarðvíkur og Hauka fyrr i
vikunni og svo hef ég verið beðin
að sýna á árshátíð skólans en ann-
ars er framtíðin óráðin sagði
Bryndís íslandsmeistari sem í
sumar heldur í sólina á Ródos.
Allar með
dansbakteríu
Sigurvegarar í hópdansi voru
að æfa af fullum krafti þegar
Glætan náði tali af þeim í Tónabæ
á dögunum. Stúlkurnar 5 sem
hópinn skipa eru Eydís Eyjóiís-
dóttir, 16 ára nemi í fjölbrauta-
skólanum í Ármúla. Guðrún E
Pórhannesdóttir, 15 ára nemi í
Langholtsskóla. Jóhanna Birnir
15 ára nemi í Áltamýrarskóla.
Ólafía Einarsdóttir, 14 ára í
Hlíðaskóla, Katrín Ólafsdóttir 15
S 8ÍDA - MÓDVHJMN FoaKida^ur 22. mvi 1M5
Nú er 4. fslandsmeistara-
keppnin í frístældönsum um garð
gengin. Segja kunnugir að undir-
búningur, aðsókn og þátttaka
hafi aldrei verið betri og hafi
þetta allt endurspeglast í gæði
dansanna. Alls kepptu tæplega
200 unglingar víðs vegar af
landinu um íslandsmeistaratitil-
inn og ekki skorti áhorfendur.
Úrslit keppninnar urðu þau að:
Sigurvegari í einstaklingsdansi
var Bryndis Einarsdóttir, 2. varð
Sigurður Kjartansson og 3. sætið
hreppti Ágústa Björnsdóttir.
Hópdansinn vann Cameo, en
hópinn skipa Eydís Eyjólfsdóttir,
Guðrún E Þórhannesdóttir, Jó-
hanna Birnir, Ólafía Einarsdóttir
og Katrín Ólafsdóttir. í öðru sæti
varð Flash - Bryndís Jónsdóttir,
Brynja Ástráðsdóttir, Guðrún
Benediktsdóttir, Ólöf Óladóttir,
og í 3. sæti Tour de France - Dýr-
leif Örlygsdóttir, Eva Ström,
Guðrún Kaldal, Unnur María.
Verðlaun Bryndísar var sólar-
landaferð til eyjarinnar Ródos í
gríska Eyjahafinu. En Eydís,
Guðrún, Jóhanna, Ólafía og
Katrín hlutu að launum 15.000 kr
fataúttekt frá tískuversluninni
Goldie.
Langar út
í dansnám
Bryndís Einarsdóttir, íslands-
meistari unglinga 1985 er 15 ára
gömul Njarvíkurmær. Þar eð
Glætanerekkimeðneinn frétta-
ritara íNjarvík varð hún að láta
sér nægja að slá á þráðinn til
Bryndísar.
Hún var létt í lund sem vonlagt
er og sagðist alltaf hafa haft
áhuga á dansi.
-Ég byrjaði í dansi hjá Heiðari
Ástvaldssyni en er núna í jass-
ballett hjá Birnu Magnúsdóttur í
Njarðvík. Já, ég haf haft áhuga á
dansi alveg frá því að ég var lítil.
Og gæti alveg hugsað mér að gera
dansinn að atvinnu. Mig langar
líka að fara út og læra, annað-
hvort til Danmerkur eða Banda-
ríkjanna, ég hef heyrt að þar séu
góðir skólar. En það verður ekki í
bráð, fyrst verð ég að klára
skólann. Ég er í 9. bekk og ætla í
ára nemi í Hlíðaskóla. Þær eru í
óða önn að æfa nýja dansa undir
stjórn Kolbrúnar Aðalsteinsdótt-
ur hjá Dansnýjung. Eydís, Guð-
rún og Katrín voru í hópnum
„Mistake" sem þó virðist ekki
hafa verið mikil mistök því þær
ásamt ungum pilti Hauki að nafni
unnu íslandsmeitarakeppnina í
fyrra.
Við semjum dansana sjálfar en
Kolla samæfir okkur. Við höfum
flestar verið í dansi eða ballett frá
því við munum eftir okkur og
áhuginn aldrei verið meiriDans-
inn sem við dönsuðum núna
heitir Cameo sem er nafn á frum-
skógardansi og hópurinn dregur
nafn sitt af honum.
Frístældans er eiginlega sam-
bland af jassballett, diskódansi,
sóul, fönki og fleira. Diskódans
er hins vegar einfaldari, meir að
dilla sér.
Við erum byrjaðar að æfa nýtt
prógram og það er meiningin að
hafa alltaf 4 til 5 dansa á pró-
gramminu. Hópurinn breytir um
nafn með nýjum dönsum. Það
var tildæmis alveg ómögulegt að
heita Mistök, þá var alltaf
eitthvað að bila.
Það er alveg óráðið hvar við
sýnum en það verður örugglega
farið út í það. Við förum þó ekki
út á land meðan við erum í skól-
anum. Framtíðin? Ja, það fer allt
eftir því hvernig gengur hvort
maður leggur þetta fyrir sig en við
erum með dansbakteríuna sem er
bráðsmitandi, segja þær stöllur
brosandi og Kolbrún bætir við:
- Þær hata tvimælalaust sýnt að
þær hafa hæfileika. Þær eru allar
mjög efnilegar og hafa framtíðina
fyrir sér.
Dansnýjung
Dansskólinn Dansnýjung er
dansskóli Kolbrúnar Aðal-
steinsdóttur. Og er þetta 2. vetur-
inn sem hann starfar. Kolbrún
sagði að aðsókn í skólanum væri
meiri en hún gæti annað.
- Dansáhugi íslendinga er mik-
ill, og sem dæmi má nefna að í
einum hópnum eru nær eingöngu
strákar 18 til 20 ára. Cameo hóp-
urinn er hluti af sýningarhóp
skólans. í sýningarhópinn er val-
ið eftir því hvað dansarinn er til-
búin til að leggja mikið á sig því
dansinn krefst vinnu. Ég kenni
enga samkvæmisdansa heldur
eingöngu frístældans eða réttara
sagt nýja dansa, þaðan er nafnið
Dansnýjung komið. Þetta er eini
dansskólinn sem kennir nútíma-
dansa eingöngu og því mikilvægt
að fylgjast með því sem er að ger-
ast út í hinum stóra heimi. Núna
er ég að þjálfa Katrínu og Eydísi
og þær byrja að kenna hjá mér
næsta haust. Ungar? Nei, þær eru
15 og 16 ára og sjálf byrjaði ég að
kenna dans 15 ára, segir Kolbrún
og snýr sér að því að æfa þessa
efnilegu dansara. -aró
íslandsmeistarar