Þjóðviljinn - 22.03.1985, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 22.03.1985, Qupperneq 13
Sigurður Þórir í 15. skipti Ámorgun, laugardag, kl. 14 opnar Sigurður Þórir Sigurðs- son málverkasýningu sem hann nefnir Úr mannheimum í Listmunahúsinu, Lækjargötu 2. Þar sýnir hann 35 olíumál- verk sem hann hefur málað í árogífyrra. Sigurður Þórir stundaði nám við MHÍ á árunum 1968-70. Síð- an varð hlé á námi en árið 1974 innritaðist hann í Akademíuna í Kaupmannahöfn og var þar við nám hjá prófessor Dan Steerup- Hansen í fjögur ár. Sigurður Þórir hefur haldið 14 einkasýningar áður, í Kaup- mannahöfn, Færeyjum, Reykja- vík og víða um land. Einnig hefur hann átt myndir á fjölda samsýn- inga. Sýning Sigurðar Þóris verður opin virka daga nema mánudaga frá kl. 10-18 og um heigar kl. 14- 18 fram til 8. apríl sem er annar í páskum. - ÞH Sigurður Þórir við eitt verka sinna í Listmunahúsinu. (Mynd: - eik). Norrœna húsið Finnskt skart og dönsk grafík Frá sýningu Textílfélagsins í vestursal Kjarvalsstaða. (Mynd: eik). Afmœlissýning Textílfélagsins (Norræna húsinu verða opn- aðartværlistsýningarum helgina og eru þær eins og vera ber norrænar. í dag, föstudag, kl. 17 verður opnuð finnsk sýning í anddyri hússins og ber hún nafnið Kale- valahefð í klæðum og skarti. Er þar rakin saga finnskra kvenbún- inga og skarts sem fundist hefur í fornum gröfum og áhrif þess á gerð skartgripa í Finnlandi fram til vorra daga. Þessi sýning er lið- ur í hátíðarhaldi í tilefni af því að 150 ár eru liðin frá útkomu Kale- valakvæðanna. Hin sýningin verður opnuð í kjallaranum kl. 17 á morgun, laugardag. Þar er á ferð dönsk grafíksýning sem kemur hingað frá Árósum. Á sýningunni eru verk eftir 49 danska grafíklista- menn og er þetta úrval úr far- andsýningu sem er á ferð um Norðurlönd. Sýningin er haldin á vegum danska Grafíkfélagsins og Árhus Kunstforening af 1847. Finnska sýningin verður opin á opnunartíma hússins fram til 12. apríl en sú danska fram til 8. apr- íl. - ÞH Kjarvalsstaðír Nú stendur yfir á Kjarvals- stöðum sýning sem haldin er í tilefni 10 ára afmælis Textílfé- lagsins. Þettaerfjórðaen jafnframt stærsta samsýning félagsmanna hér í Reykjavík en auk þess hafa verið hald- nar sýningar úti á landi. Félagar í Textflfélaginu eru nú um 40 talsins og vinna þeir að hinum ýmsu greinum textíl- og vefjariðnaðar, svo sem vefnaði, tauþrykki, fatahönnun, mynstur- hönnun, prjóni, bótasaum og textflskúlptúr. Margir þeirra vinna jafnhliða eigin listsköpun að hönnun muna sem síðan eru fjöldaframleiddir og er það eitt af markmiðum félagsins að efla skilning almennings og fyrirtækja á gildi listiðnaðar og textfllistar. Félagið hefur unnið með nor- ræna Textíltríennalnum sem heldur sýningar víðs vegar á Norðurlöndum. Ein slík er nú í undirbúningi en hún verður opn- uð í Noregi áður en hún kemur til íslands í ágúst. Alls bárust 590 verk til þeirrar sýningar frá öllum Norðurlöndunum en 86 þeirra voru tekin til sýningar. Sýningin á Kjarvalsstöðum verður opin alla daga kl. 14-22 fram á annan í páskum. _ j>jj Finnskur listiðnaður í austursal Kjarvalsstaða og á ganginum fyrir framan hann verður á morgun, laugardag, opnuð sýning á verkum finnsku textíllistakonunnar Doru Jung sem lést árið 1980, 74 ára að aldri. Hún er einn helsti frumkvöðull finnsks list- iðnaðar og átti drjúgan þátt í Systkini sýna Firðinum að lyfta honum á það stig sem hanner. Dora Jung fæddist í Helsinki árið 1906 og nam við Lista- og handíðaskólann þar í borg. Hún starfrækti alla sína tíð vefstofu auk þess sem hún vann sem hönnuður fyrir helstu fyrirtæki Finna í textfliðnaði áratugum saman. Hún var einn þeirra lista- manna á Norðurlöndum sem opnuðu augu manna fyrir því að listiðnaður gæti verið háþróuð list. Dora Jung tók þátt í fjölda sýn- inga á ferli sínum og var sæmd ýmsum helstu heiðurstáknum sem listamanni geta fallið í skaut. Verk hennar prýða kirkjur og op- inberar stofnanir í Finnlandi og víða annars staðar. Sendiherra Finna á íslandi, Martin Isaksson, opnar sýning- una kl. 14 á morgun að viðstödd- um forseta íslands og fleiri stór- mennum. Sýningin verður opin daglega frá kl. 14-22 fram yfir páska. - ÞH I Frumsýningu frestað! Af óviðráðanlegum ástæðum verður að fresta frumsýningu á sýningu íslenska dansflokksins í Sögunni um Dafnis og Klói sem vera átti í kvöld. Ástæðan er sú að einn dansaranna, Ásdís Magn- úsdóttir, fékk heiftarlega flensu. Vonir standa til að hún verði orð- in frísk á þriðjudaginn kemur. - ÞH Það er ekki á hverjum degi sem systkini efna til samsýn- ingar en á morgun opna þau JónaGuðvarðardóttirog Ein- ar Már Guðvarðarson sýn- ingu á verkum sínum í Hafnar- borg, menningar- og lista- stofnun Hafnarfjarðarað Strandgötu 34. Sýningin ber heitið Máninn í vatninu. Jóna sýnir leirlist en hún nam þá list í Myndlista- og handíða- skólanum á árunum 1971-76. Hún hefur tekið þátt í samsýning- um hér á landi og í Finnlandi og Danmörku. Einar Már er kennari að mennt en nam kvikmyndagerð ásamt fleiri í New York og Asíu á árun- um 1982-84. Hann sýnir ljós- myndir en áður hefur hann haldið sýningar í Hunza í Norður- Pakistan og listamiðstöðinni Daruma sem hann rekur í Kaup- mannahöfn. Sýning þeirra Jónu og Einars Más verður opin daglega kl. 14- 19 fram til 7. apríl. - ÞH Ráðstefna um umhverfismótun Landssamtökin Líf og land efna til ráðstefnu í húsakynn- um Arkitektafélags íslands í Ásmundarsal við Freyjugötu ámorgun, laugardag. Þar verðurfjallað um efnið Mótun umhverfis á íslandi frá ýmsum sjónarhornum. í frétt frá Lífi og landi segir ma. að íslendingar búi nú að mjög miklu leyti við umhverfi sem þeir hafi sjálfir skipulagt og mótað. „Með þessari ráðstefnu vill Líf og land leggja sérstaka áherslu á mikilvægi þessarar umhverfis- mótunar fyrir almenna vellíðan, þroska og lífsfyllingu allra.“ Gestur Ólafsson formaður samtakanna setur ráðstefnuna kl. 10 en ráðstefnan stendur til kl. 17 með þriggja kortéra matarhléi. Á ráðstefnunni verða flutt alls 17 stutt erindi og eru flytjendur úr ýmsum áttum: prestar, arkitekt- ar, embættismenn, listamenn, sálfræðingar, kennarar osfrv. Ráðstefhan er öllum opin og aðgangur ókeypis. - ÞH Föstudagur 22. mars 1985 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.