Þjóðviljinn - 23.03.1985, Side 3

Þjóðviljinn - 23.03.1985, Side 3
FRÉTTIR Ferðafélagið Fimm lengri ferðir Húsverðir taka á móti ferðafólki í Landmanna- laugum á páskum Ferðafélag íslands efnir til fimm lengri ferða um bænadaga og páska en auk þess verður boð- ið upp á dagsferðir. Meðal ann- ars verður farið í Landmanna- laugar og bryddað upp á þeirri nýbreytni að húsverðir munu gæta sæluhússins í Laugum og taka á móti ferðafólkinu. Þeir ferðamenn sem ætla að gista skálann þurfa að hafa samband við félagið og panta gistingu. Auk Landmannalaugaferðar sem tekur fimm daga verður gengið á Snæfellsjökul, gengnar nýjar slóðir í Króksfirði og ná- grenni og þá verða farnar tvær Þórsmerkurferðir. Nánari upplýsingar um ferð- irnar er að fá á skrifstofu Ferðafé- lagsins og þar eru einnig seldir farmiðar. - v. Kennarar Ganga út á mánudag Yfirlýsing menntamálaráðherra um lausn frá störfum hefur þjappað kennurum saman í órofa fylkingu. Aðeins einn skólameistari fór að boðum menntamálaráð herra að hringja í alla kennara skólans. Amánudaginn kemur mun öll kennsla falla niður í fram- haldsskólum landsins. Þeir fáu kennarar sem enn starfa munu þá halda fundi og er talið víst að þeir muni síðan allir ganga út og hætta kennslu. Eins eru nemendur að bræða með sér að mæta ekki meira í skólana fyrr en deilan hef- ur verið leyst. Yfirlýsing Ragnhildar Helga- dóttur menntamálaráðherra í fyrradag um að hún ætli að leysa alla kennara frá störfum sem ekki mæta á mánudag hefur hleypt þvílíkri hörku í kennara að sam- staðan hefur aldrei frá því deilan hófst verið jafn mikil. Nokkrir kennarar höfðu tekið ákvörðun um að mæta á mánudaginn en eftir yfirlýsinguna hafa þeir allir sem einn lýst því yfir að ekki komi til greina að mæta á mánu- daginn. bréfi sem stjórn HÍK sendi menntamálaráðherra í gær segir m.a. að hún ætti að hefjast handa um að finna lausn á því að ljúka vorönn frá þeim degi að deilan leysist og séu kennarar samstarfs- fúsir í því máli. ítrekað er í bréf- inu að kennarar sem sögðu upp frá 1. mars sl. hefðu allir sem einn ákveðið að annað hvort færu þeir allir inní skólana aftur eða eng- inn. Menntamálaráðherra gaf skólameisturum fyrirskipun um að þeir hringdu hver fyrir sig í alla sína kennara og reyndu allt sem hægt væri til að fá þá aftur til kennslu. Aðeins einn skóla- meistari fór að boðum Ragnhild- ar, skólameistarinn í Garðabæ. Allir hinir hunsuðu þessa dag- skipun. _ S.dór Verkafólk Askonin á alþingi Starfsfólk ífiskiðnaði á Akranesi og Eskifirði sendir Alþingi áskorun. Frumvarp um kauptryggingu verði samþykkt. Guðmundur J. Guð- mundsson: Geysilega þung gremja í fólki. Fiskverkunarfólk á Akranesi og á Eskifirði hefur sent Alþingi áskorun um að þingið samþykki Dagmœður Eftirlit er okkar hagur Gjaldkeri Samtaka dagmæðra: Barnaverndarnefnd ákveður leyfisveitingu Frétt Þjóðviljans í gær um brot á reglum um leyfi dagmæðra til barngæslu vakti mikil við- brögð. Meðal þeirra sem höfðu samband við Þjóðviljann var Kristín Ingólfsdóttir gjaldkeri Samtaka dagmæðra í Reykjavík. Vildi hún vekja athygli á því að leyfi sem dagmæður fengju til að hafa 4 börn í gæslu ætti við um 4 heilsdagsbörn og þær gætu því verið með 8 börn í gæslu, þeas. 4 fyrir hádegi og 4 eftir hádegi. Sagði Rristín að það vildi brenna við að ráðist væri á dag- mæður og þær gerðar að söku- Skákmótið Jant hjá Lein og Askatli Úrslitin í 7. umferð alþjóðlega skákmótsins á Húsavík, urðu þessi: Jón L. og Helgi gerðu jafn- tefli í baráttuskák, Helmers og Tisdall gerðu jafntefli, Karl vann Pálma, Lombardy vann Sævar, Zuckerman og Guðmundur skildu jafnir, og Áskell Örn Kárason náði nöfnu með svörtu mennina gegn Lein. Áskell er Húsvíkingur og tekur nú í fyrsta sinn þátt í alþjóðlegu skákmót- i. Staða efstu manna: 1. Lein með 5Vi vinning, 2.-4. Helgi, Jón L. Lombardy 4Vi. Fjórar umferðir eru eftir af mót- inu og verður teflt á hverjum degi, sú áttunda í dag, laugardag. dólgum. Sagði hún ennfremur að það væri sjálfsagt að hafa eftirlit með fjölda barna í gæsiu hjá dag- mæðrum og andmælti því sem haft er eftir framkvæmdastjóra Dagvistunarheimila Reykjavík- urborgar að slíkt eftirlit væri erf- itt í framkvæmd enda hefðu þær ekkert að fela og það væri þeirra hagur að eftirliti væri framfylgt. Samtök dagmæðra gefa út spjald- skrá sem farið er eftir og sagðist Kristín sem gjaldkeri samtak- anna ekki kannast við að dag- mæður neituðu að taka við börn- um einstæðra foreldra enda dag- mæðrum sem og öðrum skylt að gefa tekjur sínar upp til skatts. Varðandi leyfisveitingu dag- mæðra vildi hún taka fram að all- ar umsóknir um leyfi væru lagðar fyrir Barnaverndarnefnd sem tæki ákvörðun um leyfisveitingu. - aró þingsályktunartillögu Guðmund- ar J. Guðmundssonar og fleiri þingmanna að breytingar á lögum um heimild til uppsagnar kauptryggingar. Tillagan gerir ráð fyrir að ekki megi segja upp kauptryggingu verkafólks í fiski- ðnaði nema í mesta lagi 160 klst. á ári og aldrei meira en 80 klst. í einu. Starfsfólkið í fiskvinnslufyrir- tækjum á Akranesi og Eskifirði safnaði sjálft undirskriftum undir áskorunina til alþingis og skrif- uðu allir undir sem til náðist. Þjóðviljinn hefur fregnað að byrjað sé að safna samskonar undirskriftum meðal fiskvinnslu- fólks víðar um land. „Það er geysilega þung gremja í fólki. Flestum sem starfa í fisk- iðnaði hefur verið sagt tvisvar upp frá áramótum og sumu starfsfólkinu einkum konum er búið að segja upp þrisvar og jafnvel fjórum sinnum frá því í haust. Fjöldinn allur hefur verið atvinnulaus svo vikum skiptir og það er hreinlega að sjóða uppúr hjá þessu fólki og skyldi engan undra,“ sagði Guðmundur J. Guðmundsson aðspurður um þessar undirtektir verkafólks við þingályktunartillögunni. - lg. ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 3 Fiskiskip 12 á uppboði Fiskveiðisjóður óskar uppboðs 3ja togara og 9 vél- skipa. Ekki ólíklegt að fleiri uppboðsbeiðnir verði lagðar fram Fiskveiðisjóður hefur óskað eftir uppboði á 12 fiskiskipum þar af þremur skuttogurum, Sölva Bjarnasyni BA-65, Kol- beinsey ÞH-10 og Sigurfara II SH-105. Þessar upplýsingar koma fram í svari sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Skúla Alexanders- sonar um uppboðsbeiðnir á veg- um Fiskveiðasjóðs. Vélskipin sem sjóðurinn hefur óskað uppboðs á eru: Helgi S KE og Freyja GK, bæði yfir 100 lést- ir. Hin eru: Jón Ásgeir ÍS, Víðir KE, Aron RE, Þorsteinn HF, Már NS, Eva Lind ÍS og Sæunn ÓF. -lg. Bækur á Bessastaði Fjöldi gesta kom á hinn glæsi- lega bókamarkað Félags ís- lenskra bókaútgefenda, sem opn- aði í gær. Þeirra á meðal var for- seti íslands Vigdís Finnbogadóttir og að sögn Onnu Einarsdóttur forstöðumanns markaðarins keypti forsetinn margar bækur, bæði fyrir sjálfa sig og forseta- setrið. Anna sagði í spjaili við Þjóð- viljann í gær að á markaðnum væru þúsundir titla og margir þeirra kostuðu innan við 100 krónur. Lífleg sala var í gær, en í dag er bókamarkaðurinn í kjall- ara Vörumarkaðarins á Eiðis- granda Seltjarnarnesi opinn frá kl. 10.00-16.00. Á morgun sunn- udag er markaðurinn opinn frá kl. 13.00-18.00. Bókamarkaðn- um lýkur mánudaginn 8. aprfl. - v. Vigdís Finnbogadóttir forseti ís- lands skoðar úrvalið á bókamark- aði Félags íslenskra bókaútgef- enda með aðstoð Önnu Einars- dóttur forstöðumanns markaðar- ins. Ljósm. E.ÓI.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.