Þjóðviljinn - 23.03.1985, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 23.03.1985, Blaðsíða 4
LEIÐARI Dagsverk í þágu réttlausra Á undanförnum misserum hafa oddvitar ríkis- stjómar hvítra manna í Suður-Afríku einatt talað eins og þeir væru með allan hugann við um- bótastarf, sem ætti smám saman að draga úr afleiðingum apartheid, aðskilnaðarstefnunnar, eins og pólitík kynþáttakúgunar heitir þar í landi. Atburðir síðustu vikna og mánaða hafa afhjúp- að þennan fagurgala mjög rækilega. Dagsfréttir skýra frá því, að lögreglan hafi drepið varnar- laust fólk í kröfugöngum - ekki alls fyrir löngu fólk sem var að mótmæla nauðungarflutningum svartra manna frá heimilum þeirra. En nauðungarflutningar þessir eru einhver svart- asti bletturinn á apartheid. Þeir eru liður í því landráni hvítrar yfirstéttar sem lengi hefur fram farið og dæmir mikinn meirihluta landsmanna til örbirgðar - nú síðast á að smala sem flestum saman í gerviríkjum, svokölluðum bantústan. Janframt þessum morðum gera yfirvöld harða hríð gegn breiðum samtökum, Sameinuðu lýðr- æðisfylkingunni, sem unnið hefur með friðsam- legum hætti gegn apartheid, og fangelsa ýmsa forystumenn samtakanna. Umbótahjalið reynist semsagt blekking, sem ætlað er að fela fyrir almenningsáliti um víðan heim þá staðreynd, að kynþáttakúgarar halda fast við höfuðmarkmið stefnu sinnar: að halda yfirgnæfandi meirihluta Suður-Afríkubúa í fá- tækt, svipta þá flestum þeim réttindum sem hvítir menn njóta. Þeim mun brýnna er, eins og Tutu biskup, handhafi friðarverðlauna Nobels, hefur lagt áherslu á, að apartheidstjórnin verði fyrir öflugum þrýstingi utan frá, þrýstingi sem hún getur ekki hundsað. Eitt er að fordæma þá stjórn almennum orðum - annað er að koma höggi á hana með viðskiptabanni, eða með því sem nú <=£ talið enn áhrifameira: með banni við fjárfestingum. Síðastnefnda aðferðin hefur breiðst út að frumkvæði ýmissa samtaka og lífeyrissjóða í vestrænum löndum, sem hafa ákveðið að taka fé sitt úr fyrirtækjum sem eru með rekstur í Suður-Afríku. íslendingar hafa varla staðið að ráði í fjárfest- ingum í Suður-Afríku. En það er full ástæða til þess, að við gerum ekki minna en að taka undir frumkvæði sem meirihluti fékkst fyrir á danska þinginu á dögunum: það er fólgið í tilmælum um að ríkisstjörnir Norðurlanda taki höndum saman um viðskiptalegar refsiaðgerðir gegn Suður- Afríku - fylgdi og með samþykkt um bann við nýjum fjárfestingum þar syðra af Dana hálfu. Það ætti og að vera brýning stjórnmálahreyf- inga sem einstaklingum, að ungt fólk hér á landi stendur nú að verkefni til stuðnings baráttu suðurafrískrar æsku gegn kúgun og óréttlæti. Nemendasamtök hér á landi og á öðrum Norð- urlöndum vinna í samvinnu við hjálparstofnanir kirkna að verkefni sem kallast „Norrænt dags- verk“. Hápunktur verkefnisins verður 28. mars: þá verður vinnuveitendum og einstaklingum boðinn vinnukraftur námsfólks gegn greiðslu lágmarkslauna og mun því fé, sem safnast hér og í Færeyjum, verða veitt til uppbyggingar í menntamálum. En gífurlegt misrétti bundið kyn- þáttum kemur í Suður-Afríku ekki síst fram í því, að menntakerfið er látið vinna að því að tryggja forréttindi hvítra: til dæmis að taka er ellefu sinnum meira fé varið til að mennta hvern hvítan einstakling en til skólagöngu hvers svarts barns. Þetta framtak íslenskrar skólaæsku er mjög til fyrirmyndar og mætir vonandi nauðsynlegum jákvæðum skilningi meðal fyrirtækja og al- mennings. Því miður er það svo, að pólitísk andúð og samúð ruglar menn einatt í ríminu þegar þeir eru spurðir um afstöðu til þeirra margvíslegu brota gegn mannréttindum sem framin eru í heiminum. Hið suðurafríska dæmi er hinsvegar svo skýrt og ótvírætt að það ætti ekki að vefjast fyrir neinum - það ætti því að geta haft sameinandi áhrif í þá veru, að menn skildu betur og gerðu sér nákomnara hlutskipti allra þeirra sem búa undir misrétti og harð- stjórn. Ó-ÁUT „Veist’ ekki að ég er lögreglumaður!? DJOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Ritatjórar: Árni Bergmann, össur Skarphóðinsson. Ritatjórnarfuiltrúi: Oskar Guðmundsson. Fréttastjóri: Valþór Hlöðversson. Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Guðjón Friðriksson, Helgi Guömundsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla- son, Mörður Árnason, Ólafur Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir). Ljó8myndir: Einar ólason, Einar Karlsson. Utllt og hönnun: Filip Franksson, Þröstur Haraldsson. Handrita- og prófarkaieatur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Skrlf8tofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson. Útbreiðsluatjóri: Sigríður Pótursdóttir. Auglýsingastjóri: Ragnheiður Óladóttir. Auglýsingar: Anna Guðjónsdóttir, Ásdís Kristinsdóttir, Hreiðar Sigtryggsson. Afgrelð8lu8tjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir. Símavarsla: Margrét Guðmundsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir. Húsmæður: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf Húnfjörð. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir. Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 30 kr. Sunnudagsverð: 35 kr. Askriftarverð á mánuði: 330 kr. Afgreiðsla blaðsins er opin á laugardögum frá kl. 9 til 12, beinn sími: 81663. 4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 23. mars 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.