Þjóðviljinn - 23.03.1985, Page 13

Þjóðviljinn - 23.03.1985, Page 13
MENNING Hlaupvídd sex í Kópavogi (kvöld, laugardag, frumsýnir Leikfélag Menntaskólans í Kópavogi leikrit Sigurðar Pálssonar Hlaup.vídd sex Hjáleigunni, litlum sal í kjall- ara Félagsheimilis Kópavogs. Sigurður samdi leikritið fyrir einum átta árum handa Nemend- aleikhúsinu og leikstýrði Þórhild- ur Þorleifsdóttir þeirri sýningu. Hún heldur einnig um stjórn- völinn í Kópavoginum núna. Leikritið fjallar um það fræga og umdeilda „ástand” á stríðsárun- um og hvernig það lék þjóðina. Koma þar við sögu íslenskar stúlkur og strákar og fulltrúar er- lends hernáms á ýmsum aldri og virðingarþrepum. Einnig birtist svokölluð Ástandsnefnd sem skipuð var af yfirvöldum (að sjálfsögðu karlkyns) til að kanna siðferðisástand íslenskra kvenna og samskipti þeirra við setuliðið. Leikendur í Hlaupvídd sex eru átján talsins en alls koma 28 manns nærri verki. Tónlist er eftir Ara Einarsson sem nýtur að- stoðar Skarphéðins t>. Hjartar- sonar við undirleik. Eins og áður sagði verður frumsýningin í kvöld kl. 20.30 en sýningar verða áfram eins og aðsókn og tími leikenda leyfir. -ÞH Tvær komnar úr síldinni á Sigló á mölina í Reykjavík- og á hraðri leið í braggamenninguna. Jóhanna Pálsdóttir (tv.) í hlutverki Stellu og Ragnhildur Ástvaldsdóttir í hlutverki Elísabetar norður-þingeyings sem talar við fjöll. (Mynd: E.ÓI.) Kennsluafmœli Námskeið í 30 ár Sígurður Demetz Franzson heldurtónleika með nemendum sínum í vor og haust í sumar verða liðin 30 árfrá þvíTýról-búi að nafni Vinc- enzo Maria Demetz kom hingað til lands í því skyni að haldasöngnámskeið. Nú heitir þessi maður Sigurður Demetz Franzson og erorð- inn íslendingur-ennám- skeiðiðstendurenn. í tilefni af 30 ára kennsluaf- mæli Sigurðar verður efnt til söngtónleika á nokkrum stöðum í vor og haust. Á þeim koma fram sex núverandi nemendur Sigurð- ar í Nýja tónlistarskólanum, undirleikararnir Vilhelmína Ól- afsdóttir, Bjarni Þór Jónatansson og Ragnar Björnsson og loks Sigurður í hópi nemenda sinna, frá vinstri: bræðurnir Gunnar og Guðbjörn Guðbjarnarsynir, Sigurður, Oddur Sigurðsson, Sigríður Elliðadóttir og Björn Björnsson. A myndina vantar Höllu Jónsdóttur sem einnig kemur fram á afmælistónleikunum. (Mynd: -eik) mun Sigurður sjálfur syngja tvo dúetta með nemendum sínum. Sigurður Demetz kom hingað til lands fyrir milligöngu Svan- hvítar Egilsdóttur sem þá var nemandi hans í Mílanó en er nú prófessor við Vínarakademíuna. Sigurður fyllti raðir þeirra út- lendinga sem komu hingað um og eftir stríð og lagt hafa íslensku tónlistarlífi ómetanlegt lið. Sig- urður hefur kennt mörgum helstu söngvurum íslendinga og má þar nefna nöfn á boð við Kristján Jó- hannsson, systurnar Sigurveigu og Ingveldi Hjaltested, Jón Sig- urbjörnsson, Ólaf Þ. Jónsson og Snæbjörgu Snæbjarnardóttur. Fyrst eftir komu sína rak hann eigin skóla, Söng- og óperu- skólann í Reykjavík, í tólf ár, síð- an var hann jafnlengi kennari á Akureyri en síðustu sex árin hef- ur hann kennt við nýja Tónlistar- skólann. Tónleikarnir hefjast nú á sunnudag á Akranesi, þeir næstu verða á fimmtudaginn í Keflavík og einnig verða tónleikar í Mos- fellssveit í þessari lotu en dag- setning er óákveðin. í haust verð- ur svo farið til Akureyrar, ísa- fjarðar, Siglufjarðar, Húsavíkur og víðar. Tónleikarnir verða haldnir í tónlistarskólum stað- anna. Selt verður inn á þá og rennur allur ágóði til að styrkja efnilega nemendur á hverjum stað. -ÞH N0RRÆN SAMVINNAIVERKI: 20% IÆKKUN Á ELECIROLUX BW 200 UPPÞVOTTAVÉLUM Kt:26.900t Vörumarkaðurinn og Electrolux hafa með samvinnu sinni lækkað allverulega verð á hvítum uppþvottavélum af gerðinni Electrolux BW 200 - sem kemur per til góða. Fullkomin uppþvottavél á afsláttarverði, ein hljóðlátasta vélin á markaðnum - frábær þvottakerfi (með sparnaðarrofa) - öflugar vatnsdælur sem þvo úr 100 ltr. á mínútu - þrefalt yfirfallsöryggi. - á nurð. - Rúmar urð. - þvc Ryðfrítt 18 8 stál í þvottahólfi. - Barnalæsing a borðbúnað fyrir 12-14 manns. Fullkomin Electrolux BW 200 uppþvc verði sem þú trúir tæpast - og ekxert vit í að hafna. á tilboðs- VÖRUAAARKÁDURINN föj ÁRMÚLA1A SÍMI686117 BJAKM OAGUR/AUGl HWiSIOfA

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.