Þjóðviljinn - 23.03.1985, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 23.03.1985, Blaðsíða 16
IMENNING Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýnirí kvöld heimatilbúinn söngleik Söngkennarinn (Hallgrímur Hróðmarsson) ásamt kórfélögum hlustar eftirundarlegu þruskií salnum. Mynd:eik. Kristín Gestsdóttir t.v. og Anna María Einarsdóttir komnar á fulla ferð í rokkinu. Mynd: eik. Stelpurnargerasig klárar fyrir svíðiö. Mynd:eik. Unnið í leiksmiðju Eins og áður sagði er þetta verk unnið í svokallaðri leiksmiðju þar sem allir taka þátt í að skapa bæði eigin hlutverk og verkið í heild. „Þetta er búið að vera mjög erfitt en einnig mjög gaman,“ segir Hallgrímur Hróðmarsson kennari sem er í sama hlutverki í söngleiknum. „Menn hafa verið mjög ráðandi um eigin persónur. Þetta var allt mjög nýstárlegt fyrir okkur í upphafi en eftir á þá erum við mjög ánægð með árang- í kvöld frumsýnir Leikfélag Hafnarfjarðar í Bœjarbíói í Gaflarabœ nýjan frum- saminn söngleik „Rokkhjart- að slœr“. Höfundar eru yfir 20 félagar í leikfélaginu sem undanfarna tvo mönuði hafa undirstyrkri stjórn Þór- unnar Sigurðardóttur leik- stjóra spunnið upp hressi- lega sögu um tóninga ó sjötta óratugnum pegar rokkið hélt innreið sína í dœgurheiminn. „Þetta er ansi skemmtilegt tímabil sem við tökum fyrir í þessu verki. Hér liggja skilin á milli rómantíkur eftirstríðsár- anna og svo harða rokksins þegar unglingafyrirbærið kemur fyrst almennilega í ljós með nýjum kröfum, töffheitum og ófull- nægju,“ segir Þórunn leikstjóri þegar blaðamaður nær loks að króa hana af á einni af síðustu æfingunum nú í vikunni. „Þetta er eiginlega upphafið að einhverju meiru. Við reynum að nálgast þessa stemmningu en meðal þeirra sem taka þátt í sýn- ingunni eru nokkrir sem upplifðu sín unglingsár einmitt á þessum tíma. Söguþráðurinn er einfaldur,“ segir Þórunn. „Leikurinn gerist í skóla þar sem verið er að undir- búa árshátíð. Strákarnir eiga að sjá um kórsönginn en stúlkurnar að sýna dans. Þetta er hátíðleg stund en þegar líður á dagskrá hátíðarinnar fer ýmislegt að verða með öðru móti en áður var ætlað. Tónlist skipar mikinn sess í verkinu og 5 mamma rokkhljóm- sveit undir stjórn Jóhanns Mora- vek heldur uppi fjörinu með bæði nýútsettum og frumsömdum lögum. urinn og tvímælalaust tilbúin að prófa þetta aftur. Það hefur ekki skipt minnstu máli hversu vel Þórunn hefur haldið utan um þetta allt sarnan." „Það hefur tvímælalaust marga kosti að hópurinn getur byggt svona mikið á sjálfum sér, en það kostar líka að menn verða að leggja mjög hart að sér,“ segir leikstjórinn og bætir við: „Þetta eru mjög metnaðarfullir og harð- ir krakkar og þessi sýning er tæknilega mjög stór fyrir atvinnu- leikhús, hvað þá fyrir áhuga- mannaleikhús. Þetta er mikil áhætta en ég finn að dæmið er að ganga upp og ég vona það besta.“ Til Mónakó í sumar En Gaflarar láta sér ekki nægja að frumsýna nýtt frumsamið verk í heimabyggðinni heldur ætlar hópurinn að leggja land undir fót í sumar og halda alla leið til Món- akó þar sem „Rokkhjartað slær“ verður flutt á alþjóðlegri leiklist- arhátíð áhugaleikhúsa. „Það verða um 20 leikfélög frá aðallega Evrópulöndum sem sýna á þessari hátíð og við verð- um fyrstu fulltrúar íslands á þess- ari hátíð,“ segir Ragnhildur Jóns- dóttir formaður Leikfélags Hafn- arfjarðar. Um 20 manna hópur fer utan og er þegar kominn nokkur ferðahugur í fólk. Skyldi engan undra. Frumsýning á „Rokkhjartað slær“ er í Bæjarbíói í kvöld, laug- ardag kl. 20.00 en næstu sýningar eru á þriðjudag, fimmtudag og sunnudag kl. 20.30. - Ig.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.