Þjóðviljinn - 03.04.1985, Page 9

Þjóðviljinn - 03.04.1985, Page 9
MENNING Vel samið og áhrifaríkt Musica Nova Tónlcikar að Kjarvalsstöðum 27. mars kl. 21.00. Flytjendur: Háskólakórinn, Blásarakvintett Reykjavíkur, Szymon Kuran, fiðla, Robert Gibbons, viola, Carmel Rus- sill, selló, Páll Hannesson, kontra- bassi, Hólmfríður Sigurðardóttir, pí- anó, Martin Berkofsky, píanó. Norrœn samvinna Hátíð ungra einleikara Þorsteinn Gauti Sigurðsson tók þátt í Tónlistarhátíð ungra ein- leikara á Norðurlöndum í Osló í fyrrahaust. Annað hvert ár er haldin tón- listarhátið ungra einleikara á Norðurlöndum (Unge Nordiske Soloistcr) og verður hún haldin í fjórða skipti í Helsinki í Finnlandi haustið 1986. Markmiðið með þessum hátíðum er að gefa ung- um einleikurum, einsöngvurum og samleiksflokkum tækifæri til að koma fram á einleikstónleik- um og með bestu hljómsveitum. Val þátttakenda fer þannig fram að fyrst er haldið forval í hverju landi fyrir sig en síðan vel- ur samnorræn nefnd úr umsókn- um landanna. Þátttakendur mega ekki vera yfir þrítugt nema Ertu hljóm- plötusafnari? Öllu taka menn upp á. Við fengum ádögunum bréffrá Norðamanni einum sem hefur tekið sér fyrir hendur að safna saman á bók upplýsingum um alla hljómplötusafnara á Norðurlöndum. Geir Vasseng heitir hann og segir í bréfi sínu að hann vilji komast í samband við fólk sem hafi áhuga á plötusöfnun. „Stærð safnsins skiptir minna máli. Það má telja 50 eða 5.000 hljóm- plötur, stórar eða litlar. Ég hef áhuga á alls kyns tónlist: djassi, kántrí, þjóðlögum, poppi, rokki, nýbylgjutónlist o.s.frv.". f upp- talningu hans er þó ekki minnst á sígilda tónlist. Og þá er það bara að tvíhenda ritfærin og skrifa um áhugamálið til: Geir Vasseng Lindeveien 7 4000 Stavanger Norge. Efnisskrá: Árni Harðarson: Is There...? Aubert Lemeland: Blásarakvintett nr. 3. Szymon Kuran: Per violino. Jónas Tómasson: Næturljóð 2. Alan Hov- haness: Dawn on the mountain of init- iation. Lárus Halldór Grímsson: I sing the body electric. í kórverki Árna Harðarsonar einsöngvarar sem geta tekið þátt fram að 35 ára aldri. Eins og áður segir hefur hátíð- in verið haldin þrívegis áður og hafa íslendingar alltaf átt þátt- takendur. Árið 1980 voru fulltrú- ar íslands í Kaupmannahöfn þau Einar Jóhannesson klarinettu- leikari og Manuela Wiesler flautuleikari, í Stokkhólmi 1982 var Sigríður Vilhjálmsdóttir óbó- leikari meðal þátttakenda og sl. haust fór Þorsteinn Gauti Sig- urðsson til Oslóar. Þeir sem hyggjast sækja um þátttöku á tónlistarhátíð ungra einleikara á Norðurlöndum geta nálgast umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar í Tónlistar- skólanum í Reykjavík. Umsókn- arfrestur er til 1. júní nk. - ÞH. „Is There...?“ finnst mér of mikið af kunnuglegum „effekt- um“, murr, hvískur, tal, o.s.frv., hlutir sem virka hálf leiðigjarnir til lengdar, ekki síst þegar þeir heyrast í öðruhverju nýju kór- verki sem tilraun til frumlegheita sem oftast nær ekki lengra. Um- gjörð verksins fannst mér samt góð og notkun flautunnar fínleg, bæði sem tóngjafa og í meðleik og hefði gjarnan mátt vera meiri. „Blásarakvintett nr. 3“ eftir Aubert Lemeland finnst mér þunglamalegur og frekar leiðin- legur, hjálpaði lítið þó hann væri frábærlega vel fluttur af Blásara- kvintett Reykjavíkur en í honum eru Bernharður Wilkinson, Daði Kolbeinsson, Einar Jóhannes- son, Joseph Ognibene og Haf- steinn Guðmundsson. Vonandi hefur Blásarakvintettinn ánægju- legri tónverk að flytja í fyrirhug- aðri keppnisför til Frakklands en þetta skylduverk, og eftir frammistöðu þeirra þarna að dæma ættu þeir að ná langt. Ein- leiksverk fiðluleikarans og tón- skáldsins Szymons Kuran „Per violino" er afturámóti bráð- skemmtilegt, með einfaldri stefjabyggingu og útfærslu og sómir vel sínum meistara. Endurfundir við „Næturljóð 2“ eftir Jónas Tómasson voru ánægjulegir og styrkja mig enn í þeirri vissu að Jónas er gott tón- skáld sem þyrfti að minnka kennsluna og skrifa meira. Þættir eins og „Tríóið“ og „Síðari næt- urdans“ eru ekki samdir nema af sönnu skáldi (Næturljóð Jónasar er í 5 þáttum). Flutningurinn fannst mér Ijómandi góður, en hann var í höndum Szymons Kur- an, Roberts Gibbons, Carmel Russiil, Páls Hannessonar og Hólmfríðar Sigurðardóttur. Martin Berkofsky lék snilldar- lega bráðsnoturt píanóverk, „Dögun á Vígslufjalli" eftir Alan Hovhaness (bandarískur Arm- eni). Þar skiptast á hægir og veikir hijómkaflar við hraðari og sterkari einradda, þar sem tilraun er gerð til að líkja eftir fornum sítar af austurlenskum uppruna. „1 sing the body electric" eftir Lárus Halldór Grímsson er vel samið og áhrifaríkt tónverk, byggt á samnefndu ljóði eftir bandaríska 19. aldarskáldið Walt Whitman. Verkið er samið fyrir þrískiptan kór og segulband og syngur kórinn einnig í gegnum hátalarakerfið. Fyrir mér hefði verkið orðið ennþá áhrifaríkara ef hlutverk segulbandsins væri flutt af hljóðfærum og kórinn syngi beint. Að sjálfsögðu þarf þá sal með góðum hljómburði, eða kirkju. Raftónar finnast mér alltaf verða þreytandi, sérstak- lega þegar komnir eru yfir ákveð- inn styrk og „gerviakústík“ er hvimleið. En án eigin óska: Virkilega gott tónverk. Eirlkur pltumeistari hefur nú opnað nýjan og glæsilegan pltustað og býður upp á girnilegar og Ijúffengar pltur svo og hamborgara og ýmislegt meðlæti. OPIÐ ALLA DAGA KL. 10.00 - 23.30 NÆG BILASTÆÐI Pítu-húsið IÐNBÚO 8, GARÐABÆ. SÍMI: 64 12 90 \YR H l l S'IADI K Pfta með buffi 135.- kr. Plta með kótilettum 165,- kr. Plta með kjúklingi (1/4) 200.- kr. (V2) 290.- kr. Plta með djúpsteiktum fiski 125.- kr. Grænmetisplta 95.- kr. Barnaplta 80.- kr.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.