Þjóðviljinn - 03.04.1985, Page 13

Þjóðviljinn - 03.04.1985, Page 13
H-glugginn Nýjung í húsbyggingum semfarið hefur sigurför um norðanverða Evrópu FRETTIR Landvernd - Frjálsíþróttasambandið Blómaáburður fyrir land- og æskuvemd Glugga verksmiðj an Rammi hf. í Njarðvík hefur fengið fram- leiðsluleyfl á nýrri tegund glugga sem farið hefur sigurför um norðanverða Evrópu undanfar- inn aldarfjórðung. Þessi tegund er norsk og nefnist H-glugginn. H-glugginn er norsk uppfinn- ing. Framleiðsla hans hófst árið 1959 eftir að norskur hugvits- maður, Harald Kvasnes, fékk einkaleyfi á nýrri gerð glugga. Fyrsta árið framleiddi hann 200 glugga. Nú er ársframleiðslan uþb. 500.000 gluggar og fer hún fram í 32 verksmiðjum í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku, Færeyjum, Englandi og Banda- ríkjunum. Rammi hf. í Njarðvík verður 33. verksmiðjan sem fær framleiðsluleyfi á H-glugganum. Vinsældir H-gluggans byggjast á því hve öruggur og þægilegur hann er í meðförum, enda er stöðugt unnið að því að endur- bæta hann og laga að nýjum kröf- um. Hann krefst sáralítils við- Kennslubók Keila Út er komin kennslubók um keiluíþróttina, eftir Dick Ritger og Judy Soutar í þýðingu Boga Arnars Finnbogasonar og Jóns Hjaltasonar. í bókinni er að finna ýmsan fróðleik um keiluna, svo sem sögu íþróttarinnar, reglur og leiðbeiningar fyrir byrjendur og þá sem lengra eru komnir í keilu- íþróttinni. Útgefandi er Öskju- hlíð og bókin er prentuð í Skák- prenti. halds og hefur staðist ströngustu gæðaprófanir, ma. hjá Rannsóknastofnun norska bygg- ingariðnaðarins. Það er því engin tilviljun að norska Vitamála- stofnunin notar eingöngu H- glugga í alla vita sem hún lætur reisa. Veðurskilyrði meðfram norsku strandlengjunni eru óblíð en H-glugginn hefur staðist prófr- aunina. Önnur staðreynd bendir í sömu átt en hún er að 80% af öllum gluggum sem seldir eru í Færeyjum eru H-gluggar. H-glugginn er staðlaður og hlaupa stærðirnar á 10 sm í báðar áttir (breiddir: 50-200 sm; hæðir: 50-160 sm). Einnig er hægt að fá hann sérsmíðaðan. Hann er framleiddur úr þrennskonar efn- um: tré, PVC-plastefni og úr tré að innan og áli að utan. Karmar og fög eru úr fúavörðu límtré sem er sérstaklega valið og samsett þannig að engin hætta er á að glugginn springi eða vindist. Hægt er að fá gluggana með ísettu gleri, tvöföldu og þreföldu og einnig með einangrunarhúð sem eykur einangrunarhæfni gluggans gegn hávaða og orku- tapi. H-glugginn er að sjálfsögðu búinn barnalæsingu, hann er hægt að stilla á þjófhelda loft- ræstingu og einnig er hægt að setja á hann loftrauf. H-glugginn er hverfígluggi og því hægt að snúa honum við til að þrífa hann að utan. Þegar glugganum er snú- ið fer hann ekki inn fyrir karminn þannig að ekki er þörf á að flytja til gardínur og blómapotta með- an það er gert. H-glugginn fæst einnig með föstum körmum og sem svalahurðir. (Fréttatilky nning). Nýlega hófst samstarf Land- verndar og Frjálsíþróttasam- bands Islands um dreiflngu og sölu á blómaáburði. Aburðurinn er framleiddur í Svíþjóð og seldur hér á landi undir heitinu HVATI. Það eru íþróttafélög og klúbbar víðsvegar um land sem annast söl- una í sínum heimabyggðum. HVATA-áburðarpinnar fást í tveimur gerðum, annars vegar fyrir blaðplöntur og hins vegar fyrir blómplöntur. Þeir innihalda jarðvegsbætandi efni, lífræn og ólífræn, auk smáverugróðurs. HVATA-pinnar eru þægilegir í notkun. Þeim er stungið í mold- ina milli plöntunnar og jaðarsins á blómapottinum og fer það eftir stærð pottsins hve margir pinnar eru notaðir í einu. Hver skammtur gefur frá sér næringar- efni í 60 daga. Hver pakki, ca. 29- pinnar, kostar 100 krónur. Næstu daga mun íþróttafólk um allt land ganga í hús og bjóða HVATA- pinna. Með því að kaupa HVATA-blómaáburð stuðlar fólk bæði að Landvernd og Æskuvernd. Skálholt Bók um fermingar Kirkjan sendir frá sér nýja bók fyrir páska sem tengd er ferming- unni og heitir Fermingin, Hátíðis- dagur í lífi mínu. Hér er um sér- lega vandaða bók að ræða sem prentuð er í 4 litum hjá Prent- smiðjunni Hólum. Bókin er í senn minninga-, mynda-, gesta-, sálma og lista- verkabók. í bókinni er ávarp til fermingarbarnsins, textar úr Bib- líunni og sérstakar opnur fyrir ættartölu og aðrar upplýsingar um fjölskylduna. Þá er ætlast til að barnið setji inn mynd af ferm- ingarkirkju og fleiru sem tengist þessari hátíð. Hér er á ferðinni bók sem geymir hluta af trúar- og menningarverðmætum íslensku þjóðarinnar í máli og myndum. Dr. Gunnar Kristjánsson, prest- ur á Reynivöllum í Kjós, þýddi og staðfærði bókina. Þá valdi hann og myndir, en Gunnar er vel kunnugur kirkjulist okkar þjóð- ar. (Fréttatilkynning) L3CDI ■OQO LúC^l. JUQQQaTi Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 Sími 10600 Allt í páskamatinn Glœsilegt úrval páskaeggja á markaðsverðiM JIS- hornið í JIB-portinu Gosdrgkkir á kassaverði. Opið miðvikudag, 3. apríl kl. 9—22 Opið laugardag, 6. apríl kl. 9—16.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.