Þjóðviljinn - 17.04.1985, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 17.04.1985, Blaðsíða 2
FRÉTTIR Hafnarfjörður Stóralvarlegt mál Hallgrímur Pétursson formaður Hlífar: Veit ekki hvað ráðamenn bœjarins eru að fara Kannski loka þeir ráðhúsinu nœst. Hafa grafið undan BÚH. Ættu að koma sér í buri Þetta er alvarlegt mál og það stóralvarlegt. Ég veit ekki hvað ráðamenn bæjarins eru að fara. Það er eins og ioka eigi öllu hérna í bænum. Þeir byrjuðu á Lýsi og Mjöl, síðan Bæjarútgerð- inni, þá er búið að loka Skiphól og kannski loka þeir ráðhúsinu næst. Sennilega væri mesta vitið í því að þeir kæmu sér þaðan út,“ sagði Hallgrímur Pétursson for- maður Verkamannafélagsins Hlífar í Hafnarfirði um atvinnu- ástandið í bænum. „Ef við fáum engin svör innan tíðar frá bæjaryfirvöldum þá hljótum við að krefjast fundar með bæjarráði eða bæjarstjórn. Við verðum að fá hrein svör við spurningum okkar og það er ekki annað hægt en þessir menn standi fyrir máli sínu. Sannast sagna á ég ekki von á öðru en einhverjum skætingssvörum eftir því sem á undan er gengið." Áttir þú von á því að Bæjarút- gerðin tæki til starfa á næstunni? „Ég get ekki sagt til um það. Bæjaryfirvöld stjórna ferðinni. Þessi vinnubrögð þeirra ættu ekki að koma neinum bæjarbúa á óvart. Það hefur verið stefna þessara manna að grafa undan fyrirtækinu á liðnum árum og það er liður í þeirri ætlan þeirra að losa sig undan allri ábyrgð á rekstri þess.“ í lok ályktunar verkalýðsfélag- anna til bæjarstjórnar er tals um að bæjarbúar fái að segja si álit í kosningum. Eruð þið i óska eftir því að bæjaryfirvö segi af sér? „Það er meiningin með þesi orðalagi að yfirvöld hér í bænu fari frá. Ef þeir eru ekki menn að tryggja atvinnuástand í bæ um þá eiga þeir að koma sér burt. Það er okkar álit,“ sag Hallgrímur Pétursson. Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Hafnarfirði sendir bœjarstjórn harðorða ályktun. Hrikalegt atvinnuleysi á ábyrgð bœjaryfirvalda. Ostjórn í atvinnumálum. Ný atvinnustefna, annars boðað til kosninga Hrikalegt atvinnuleysi tröll- ríður nú hafnfirsku atvinnu- lífi. Nú þessa dagana eru um 200 manns á atvinnuleysisbótum og að auki hefur fjöldi launþega þurft að leita í ný störf sem að verulegu leyti eru utan Hafnar - 'jarðar,segir í harðorðri ályktun sem fulltrúaráð verkalýðsfélag- aniía í Hafnarfirði hefur sent bæjarstjórninni. Atvinnuleysi í Hafnarfirði í fyrra og það sem af er þessu ári er um 50% meira að meðaltali í landinu og er nú svo komið að fjölmörg heimili eru algerlega á vonarvöl og geta ekki staðið undir þeim greiðslum sem nauðsynlegar eru til framfæris, segir í ályktuninni. Eru ástæður þessa ástands fyrst og fremst raktar til furðulegs ábyrgðarleysis ráðamanna bæjar- ins og ber þar hæst ótímabæra og óskynsamlega rekstrarstöðvun Bæjarútgerðarinnar, en öllu starfsfólki um 200 manns var sagt upp störfum 1. febrúar sl. Mjólkurkýrin geld Benda verkalýðsfélögin á að með þessari ráðstöfun hafi allir tekjumöguleikar fyrirtækisins verið felldir niður og bæjaryfir- völd séu að gelda mjólkurkú sína algerlega áður en hún verði boðin til sölu. Á sama tíma séu afla- brögð togara með besta móti en togarar Hafnfirðinga liggja bundnir við bryggju. Talin eru upp dæmi um hvernig bæjaryfirvöld og stjórnvöld bera að stórum hluta ábyrgð á alvar- legu atvinnuástandi í bænum. „Ljóst má vera að ástandið nú er slíkt að ekki verður þolað degi lengur. Fulltrúaráð verkalýðsfé- laganna mótmælir algerlega slíkri óstjórn og krefst þess að bæjar- stjórn grípi nú þegar til raun- hæfra úrbóta. Slíkt verður ein- ungis gert með því að senda tog- ara BUH nú þegar til veiða svo vinnsla í landi fari sem fyrst af stað.“ - lg- Guðríður Elíasdóttir formaður Framtíðarinnar: Hélt að það vœri að fá ráðningu hjá nýja fyrirtækinu. Var þakkað fyrir að hafa sótt um vinnu. Ólíklegt að nokkuð gerist í sumar Eg sé ekkert sem bendir til þess að Bæjarútgerðin fari í gang í surnar. Ég get ekki séð það. Það má þá mikið breytast, sagði Guð- ríður Elíasdóttir formaður Verkakvennafélagsins Framtíð- arinnar í Hafnarfirði og varafor- maður ASÍ í samtali við Þjóðvilj- ann. Um 100 verkakonur í bæn- um eru nú á atvinnuleysisbótum sem nema tæpum 3000 kr. á viku. „Ég frétti af því í gær að verka- fólkið hefði verið að fá sent bréf frá bæjaryfirvöldum þar sem því er þakkað fyrir að hafa sótt um vinnu hjá Útgerðarfélaginu og síðan fylgdu með reikningar yfir rekstrarstöðuna. Það er ekki hægt annað en að hlæja að þessu. Fólk hélt fyrir að það færi að fá ráðningu en þá var það einungis þakkarbréf en ekki minnst á hvort eða hvenær þetta fyrirtæki tekur til starfa. Það er verið að stinga upp í fólkið dúsu svo það þegi.“ Hvernig hefur konum gengið að fá aðra vinnu? „Erfiðlega, því það er ekki í margt að sækja hér í bænum. Það var óskað eftir konum í vinnu hjá ísbirninum í Reykjavík en stór hluti af þessum konum á ekki heimangengt. Þær verða að kom- ast heim í hádeginu, og eins treysta fullorðnu konurnar sér ekki í nema hálfa vinnu, svo það eru ekki margar sem geta nýtt sér þennan kost. Fólkið vill fá á hreint hvenær fyrirtækið fer aftur af stað en eins og mál standa nú þá sé ég ekkert sem bendir til að það fari í gang í sumar,“ sagði Guðríður Elíasdóttir. _ i„ Stinga dúsu Bæjarútgerðin í Hafnarfirði var aðeins rekin í 7 mánuði sl. ár og í tæpan mánuð það sem af er þessu ári. Ráðamenn bæjarins eru ábyrgir fyrir því ástandi sem ríkir í atvinnumálum í bænum, segja þau Guðríður Elíasdóttir og Hallgrímur Pétursson formenn verkalýðsfélaganna í bænum. upp í fólk Furðulegt ábyrgðarleysi Einu sinni voru nokkrir Hafn- firðingar kosnir í bæjarstjórn • • • Alþingi Bjórinn bíður og útvarpið líka! Búist haföi verið við að tvö mikil deilumál, bjórfrumvarpið og útvarpslagamálið yrðu lögð fram í neðri deild alþingis í þess- ari viku. Á því verður þó enn nokkur bið og fjölgar nú óðum þeim málum sem þinginu er ætlað að Ijúka afgreiðslu á á allra síð- ustu starfsvikunum. Boðaður hafði verið fundur í menntamálanefnd neðri deildar til lokaumfjöllunar um útvarps- lagafrumvarpið í gærmorgun, en honum var skyndilega aflýst að sögn eins nefndarmanna. Er því útséð um að útvarpslögin komi til þriðju og síðustu umræðu í neðri deild í þessari viku. Þó allsherjarnefnd neðri deildar hafi s.l. föstudag lokið sinni umfjöllun um bjórmálið hefur meirihlutinn, sem skipaður er 5 nefndarmönnum ekki enn komið frá sér nefndaráliti, og verður málið því vart á dagskrá í dag. - AI Rauð fjöður Góðar heimtur Þetta gekk alveg geysilega vel sögðu Lionsmenn þegar blaðið spurðist fyrir um það hjá þeim í gær hvernig söfnunin sem kennd er við rauða fjöður hefði gengið. Enn er ekki vitað hver heildar- upphæðin hefur orðið því skil eru ekki allsstaðar komin utan af landi. Auk þess hafa margir hringt, sem af einhverjum ástæðum náð- ist ekki til söfnunardagana, og óskað eftir að kaupa fjöður, þannig að söfnuninni er ekki lok- ið. Á sunnudginn var „opið hús“ hjá Lionsmönnum í Sigtúni. Þar koum á annað þúsund manns, gæddi sér á kaffi og kökum og keypti rauðar fjaðrir í stórum stíl. Álafoss hf. 20.000 peysur Þann 12. apríl sl. var undirrit- aður viðbótarsamningur milli Álafoss hf. og Sovétríkjanna um kaup á 20 þús. peysum. Er heildarsamningur Álafoss hf. við Sovétríkin orðinn um 4 milj. doll- ara á yfirstandandi ári. Þessi samningur er svipaður þeim, sem Álafoss hf. gerði við Sovétríkin á sl. ári og hinn næst stærsti, sem þessir aðilar hafa gert með sér. Hér er ekki um að ræða vöru- skipti, heldur er varan greidd í dollurum. - mhg 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 17. apríl 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.