Þjóðviljinn - 30.04.1985, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
Ríkisstjórnin
Óskalistinn í dag
Situr þing fram í júní?
r
Idag verður á ríkisstjórnar-
fundi gengið frá svonefndum
óskalista, þ.e. lista yfir þau mál
sem ráðherrar hyggjast afgreiða
fyrir þinglok. Eitthvað mun list-
inn hafa styst, frá því forsætis-
ráðherra veifaði honum leyndar-
dómsfullur í sjónvarpssal í vetur,
en nógu langur mun hann samt að
margra mati. Er jafnvel búist við
að venjulegur þingtími muni ekki
nægja til afgreiðslu mála, heldur
muni þingið sitja a.m.k. viku af
júní.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans eru á listanum: lánsfjár-
lög, nýtt tollafrumvarp (sem enn
hefur ekki verið lagt fram), út-
varpslagafrumvarpið, frumvarp
um viðskiptabanka og annað um
Seðlabanka (sem heldur hefur
ekki séð dagsins ljós), vegaáætl-
un og loks þríliðan sem forsætis-
ráðherra mælti fyrir í gær: um
Þróunarfélagið, Byggðastofnun
og Framkvæmdasjóð Islands.
Stjórnarandstaðan hefur ítrek-
að kvartað undan seinagangi í
störfum alþingis, sem rekja má til
ósættis stjórnarflokkanna og lýsir
sér í því að mál koma seint og um
síðir inn á borð alþingis. Þess
munu t.a.m. ekki dæmi að láns-
fjáráætlun hafi ekki hlotið af-
greiðslu fyrr en í maímánuði eins
og nú er útlit fyrir. _ÁI
Garðrœkt
Stinga upp,
snyrta og
snurfusa
Ráð til garðeigenda: Bíðið með sumarblómin
fram að mánaðamótum
að er ýmislegt sem huga þarf
að I görðum en kannski rétt
að benda fólki á að láta ekki vor-
hugann hlaupa með sig í gönur -
við megum ekki gleyma að við
lifum á íslandi, sagði Guðbjörg
Kristjánsdóttir einn af eigendum
Grænu handarinnar.
En það er margt sem þarf að
gera. Viðgetum byrjað ágrasinu.
Sé ekki gras fyrir hendi er um
tvennt að velja. Kaupa túnþökur
en þá þarf að gæta þess að þær séu
ekki fullar af fíflum og sóleyjum
sem eru hreint illgresi. Sé hins
vegar sáð þarf að slétta vel undir
og ef jörðin er súr setja kalk og
áburð á áður en sáð er. Grasfræin
eru viðkvæm og taka sinn tíma en
komi grasið upp of gisið má sá
ofaní. Ef mosi er mikill í grasi er
hægt að bera á hann sérstakan
mosaeyði eða notast við svartan
sand, það reynist oft vel.
Runna þarf að klippa jafnvel
þó ekkert sé kalið eftir veturinn.
Þeir verða bæði þéttari og fallegri
séu þeir klipptir og ekki látnir
vaxa frítt. Þegar settar eru niður
tréplöntur er gott að blanda skít í
moldina en annars er það til
vandræða að bera ofaná því oft er
mikið af arfafræjum í skítnum.
Gljávíðir er góður í hekk og ekki
lúsasækinn. Hann er líka sterkur
og lifir langt fram á haustið. Al-
askavíðir er hins vegar fljótur til
en hann og brekkuvíðir eru mjög
lúsasæknir. Um grenitré og furu
þarf lítið að hugsa nema helst
þegar plönturnar eru litlar.
Það er enn of snemmt að setja
niður sumarblómin nema þá í ker
og bakka sem má kippa innfyrir
ef kólnar í veðri. Við mælum með
Guðbjörg Kristjánsdóttir: Sumarblómin verða að fá að venjast íslenskri veðr-
áttu smátt og smátt - annars fá þau sjokk. Ljósm. Valdís.
því að bíða þangað til 20. maí eða
fram að mánaðamótum. Þeir sem
sá þurfa að gæta þess að sá dreift
og að venja blómin smátt og
smátt við útiveruna, hafi þau
fyrst verið í stofuhita.
Matjurtagarða má byrja að
stinga upp og ekkert á móti því að
setja strax niður gulrætur og þess
háttar sem fer ofaní jörðina. Það
er þó rétt að láta kál og þvíumlíkt
bíða fram að mánaðamótum.
Kryddplöntur má rækta úti, allar
nema basiliku sem þolir ekki
kuldann. Sumar kryddplönt-
urnar eru fjölærar og geta orðið
að fallegum runnum. Um tómata
og gúrkur þýðir ekki að hugsa, til
i þess er íslenska sumarið of stutt.
-aró.
■£'«!&<'a9'0SQ
Auglýsing
Umbúðir utanum hugvit
Auk þess upplag af elstu kennslubókum óskast
i essi auglýsing er birt til að
vekja athygli á því ófremdar-
Alþingi:
Þróunarfélagið
til Akureyrar?
Aðeins ein breytingartillaga
hefur enn borist við frumvarp
forsætisráðherra um Þróunarfé-
lagið svokallaða og er hún frá
fimm þingmönnum Alþýðu-
bandalagsins í neðri deild.
Leggja þeir til að á eftir 1. grein
frumvarpsins komi ný grein sem
orðist svo: „Heimili og varnar-
þing hlutafélagsins er á Akur-
eyri.”
Flutningsmenn eru Steingrím-
ur J. Sigfússon, Geir Gunnars-
son, Hjörleifur Guttormsson,
Guðrún Helgadóttir og Svavar
Gestsson. -ÁI.
ástandi sem ríkir í launamáium
kennara. Á sama tíma og verið er
að tala um að virkja hugvitið og
taka upp nýtískulega kennslu-
hætti, þá eru launamál kennara
með þeim hætti að hæfustu kenn-
ararnir hrekjast úr starfi. Því er
sýnt að við munurn fara til baka
niður á gamalt stig og þess vegna
er nauðsynlegt að auglýsa eftir
kennslubókum sem hæfa því stigi.
Þetta sagði einn kennari við
Menntaskólann í Hamrahlfð, en
auglýsing frá Kennarafélagi
skólans sem birtist í dagblöðun-
um um helgina hefur vakið mikla
athygli. í auglýsingunni er aug-
lýst eftir upplagi af eldgömlum
kennslubókum sem og umbúðum
sem telja megi hentugar fyrir út-
flutning á íslensku hugviti og sér-
þekkingu.
Við birtum svo auglýsinguna
hér með fólki til frekari glöggv-
unar.
-S.dór.
0"" “n a'
5. W'9''a^o'0rr'í>ma('950or' Q ® B0"
4
S'fö' r'
w" —
2 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Þrlðjudagur 30. apríl 1985
Það eru ekki nema ráðherrar
sem hafa efni á að búa sér til
óskalista nú til dags.
Viðeyjarstofa
endurreist
næsta sumar?
Allsherjarnefnd Sameinaðs
þings hefur lagt til að þingsálykt-
unartillaga frá í haust um endur-
bætur á Viðeyjarstofu og lending-
arbætur á eynni verði samþykkt.
Er miðað við að gerð verði áætl-
un um verkið í samvinnu við
borgarstjórn Reykjavíkur og að
því verði lokið fyrir 18. ágúst
1986, en þá eru liðin 200 ár frá því
Reykjavík fékk kaupstaðarrétt-
indi.
S.l. haust fluttu 10 þingmenn
úr öllum flokkum þingsálykt-
unartillögu um endurbætur á
Viðeyjarstofu. Var miðað við að
fjárveitingar gætu fengist strax í
ár og að verkinu væri lokið fyrir
18. ágúst 1986. Upphaflega gerði
tillagan einnig ráð fyrir að í Við-
eyjarstofu mætti stunda veitinga-
rekstur og ráðstefnuhald, en það
atriði heftir allsherjarnefnd fellt
úr tillögu sinni. Fyrsti flutnings-
maður tillögunnar var Jón Bald-
vin Hannibalsson.
-ÁI.
1. maí í Reykjavík
Hátíðarhöld
með
hefðbundnu
sniði
ísland úr
NA TOog herinn
burt, segir íávarpi 1.
maí nefndarinnar.
Hátíðarhöldin 1. maí í Reykja-
vík verða með hefðbundnu sniði.
Safnast verður saman á
Hlemmtorgi kl. 13.30 og síðan
gengið niður Laugaveg undir
kröfum dagsins og safnast saman
á Lækjartorgi. Þar verður síðan
haldinn fundur, þar sem ræðu-
menn verða Guðmundur Þ. Jóns-
son formaður Landssambands
iðnverkafólks og Einar Ólafsson
formaður Starfsmannafélags
ríkisstofnanna. Þá flytur Kristinn
Einarsson formaður INSÍ ávarp.
Fundarstjóri verður Björk Jóns-
dóttir úr Verkakvennafélaginu
Framsókn. Á fundinum mun
sönghópurinn „Hálft í hvoru”
flytja nokkur lög.
„Það var full samstaða um
ávarp 1. maínefndar eins og það
birtist hér,” sagði Halldór Jónas-
son formaður Fulltrúaráðs verka-
lýðshreyfingarinnar. í ávarpinu
segir m.a. „Við mótmælum
áformum um uppsetningu
ratsjárstöðva og önnur aukin
hernaðarumsvif á landi okkar.
Við lýsum yfir þeim vilja okkar
að Island verði herstöðvalaust
land, utan allra hernaðarbanda-
laga.” Að öðru leyti vísast til þess
að ávarpið, sem er mjög langt,
verður birt í heild í Þjóðviljanum
á morgun 1. maí. -S.dór.