Þjóðviljinn - 04.05.1985, Blaðsíða 2
auglýsingastofan hl.
95
STOR-
VINNINGAR
9.MAÍ
4S tS 4S
SHARP R 6200 FIATUN045S SHARP VC 481
ÖRBYLGJUOFNAR Á KR. 17.600 Á KR. 280.000 MYNDBAfflCTÆH Á KR 44.900
Hjálparstarf á íslandi nútímans kostar mikið fé.
Eins þótt það sé allt unnið í sjálfboðavinnu.
Hjálparsveitir skáta e&ia því til stórhappdrættis með hvorki
meira né minna en 95 stórvinningum.
Þeir verða þvi margir sem detta í lukkupottinn 9. mai.
En hjálparsveitimar bjóða enn betur, vinning sem við skulum þó
vona að fæni þurfi á að halda þó að reynslan bendi til annars:
VELBÚNAR
HJÁLPARSVEITIR í VIÐBRAGÐSSTÖÐU
LANDSSAMBAND
HJÁLPARSVEITA SKÁTA
Blaðbera
vantar víðsvegar um borgina
frá 1. mai.
TSES!!I!E!1lL
FRETTIR
Hafnarfjörður
Askorun
ítrekuð
Verkalýðsfélögin í bœnum vísa rógburði og
dylgjum bæjarráðs á bug.
Bæjarráð Hafnarfjarðar hefur
í engu svarað áskorun verka-
lýðsfélaganna í bænum um raun-
hæft samstarf og samráð um at-
vinnumál og mótun stefnu í þeim
efnum til skemmri og lengri tíma
litið. Verkalýðsfélögin hafa í ný-
samþykktri ályktun ítrekað
áskorun sína um viðræður um
mótun atvinnustefnu til að „slys á
borð við það sem nú er orðið
varðandi Bæjarútgerð Hafnar-
fjarðar endurtaki sig ekki,” eins
og segir í ályktuninni.
Verkalýðsfélögin í Hafnarfirði
hafa átt í miklum deilum við
bæjaryfirvöld vegna atvinnu-
ástandsins í bænum og lokunar
BÚH. í ályktun félaganna er
svarað ýmsum fullyrðingum úr
ályktun meirihluta bæjarráðs frá
því fyrir skömmu þar sem harð-
lega var vegið að verkalýðsfélög-
Skák
Karl orðinn
meistari
Karl Þorsteins vann sér titilinn
alþjóðlegur meistari í næstsíð-
ustu umferð alþjóðaskákmótsins
í Borgarnesi sem tefld var í gær.
Gerði hann jafntefli við Sævar
Bjarnason og náði þar með 6
vinningum sem hann þurfti.
Hann bætist því í hóp þriggja
stórmeistara og þriggja alþjóð-
legra meistara sem Islendingar
eiga fyrir.
Önnur úrslit í mótinu í gær
urðu þau að Janza og Mokry
gerðu jafntefli og sömuleiðis
Lein og Lombardy og Guðmund-
ur og Curt Hansen. Magnús vann
Hauk og Margeir van Dan Hans-
son. Fyrir síðustu umferð og að
óloknum nokkrum biðskákum er
staðan þannig að Janza er efstur
með 7 vinninga, næstur er Curt
Hansen með 6VÍ vinning og bið-
skák. í þriðja sæti er Mokry með
6V2 vinning en í 4.-5. sæti eru
Guðmundur og Karl með 6 vinn-
inga.
KfŒSingar
hverjum
degí
eru á boröum í Goöheimum,
veitingasal okkar.
Viö bjóöum:
Staögóöan morgunverö. léttan
hódegisverö og glœsilegan
kvöldverö.
Einnig miödegis- og kvöldkatfi
meö bœjarins bestu tertum
og kökum.
Goöheimar er tilvalinn óninga-
staöur, þegar veriö er í verslun-
arleiöangri eöa
þreytandi útréttingum.
■f-lóiet-ljcrk
RauÖaiárstía Í8
RauÓarárstíg 18
Sími 28866
unum. Vísa verkalýðsfélögin á
bug sem dylgjum og rógburði
fullyrðingúm um að þau séu að
leggja stein í götu bæjaryfirvalda
við að koma málum í betra horf.
Félögin gagnrýni aðgerðarleysi
bæjaryfirvalda og að þau hafi
ekki gripið fyrr í taumana vegna
rekstrarvanda BÚH. Forsætis-
ráðherra hafi upplýst að bærinn
hafi ekki leitað til ríkisstjórnar-
innar á sl. ári um aðstoð. Bent er
á að mýmörg matsatriði eru varð-
andi niðurstöður reikninga fyrir-
Mér þykir Tíminn halda upp á
aldarafmæli Hriflu-Jónasar
með frumlegum hætti.
tækisins, og ma. sé söluverð tog-
ara fyrirtækisins áætlað 150 milj-
ónum krónum hærra en bókfært
verð.
Varðandi atvinnuástand í bæn-
um benda verkalýðsfélögin á að
það geti ekki verið viðunandi
meðan hjólin snúast ekki hjá
Bæjarútgerðinni jafnvel þó fólk
bjargi sér frá gjaldþroti með því
að leita annað í vinnu. -|g.
Blœbrigðamunur?
Vilja afnema
þingræðið
Bandalag jafnaðarmanna: Við œtlum að hafa
endaskipti á kerfi sem getur afsér pólitíkusa
einsogJB
yið viljum afnema þingræðið
og kjósa oddvita ríkisstjórn-
ar í sérstökum kosningum, segir í
opnu bréfi Bandalags jafnaðar-
manna til Jóns Baldvins Hanni-
balssonar. „Það er hlutverk Al-
þingis að setja landinu lög og
fylgjast með framkvæmd
þeirra.”
í bréfinu segir m.a.: „Þú segir
að enginn munur sé á stefnu
Bandalags jafnaðarmanna og Al-
þýðuflokksins og ert reiðubúinn
til þess að breyta nafni flokksins
þíns til að auðvelda samruna.
Þessi afstaða þín byggist á mann-
fyrirlitningu, vanþekkingu og er
Iýðskrum.”
Síðar segir: „Við ætlum ekki að
standa í almennu siðbótarhjali.
Við ætlum að hafa endaskipti á
því kerfi sem getur af sér pólitík-
usa eins og þig.”
Segir þar að skoðanir BJ séu
ekki til sölu og Jóni Baldvini boð-
ið að svara þjóðinni og sjálfum
sér hvort enginn munur sé á Al-
þýðuflokknum og Bandalagi
jafnaðarmanna.
-óg-
Mánudagur
Svavar í Breiðholti
Öllum Breiðholtsbúum er boð-
ið á fund Breiðholtsdeildar
Alþýðubandalagsins á mánu-
dagskvöldið klukkan hálfníu.
Fundurinn verður í Gerðubergi.
Fyrst verður venjulegum aðalf-
undarstörfum hespað af en því
næst mun formaður Alþýðu-
bandalagsins, Svavar Gestsson
ræða um stjórnmál líðandi stund-
ar. Ekki er að efa að fjölmarga
mun fýsa að heyra álit formanns-
ins og rekja úr honum garnirnar
að lokinni tölu hans. Að sjálf-
sögðu geta aðrir en Alþýðu-
bandalagsmenn litið inná fund-
inn langi þá til að heyra viðhorf
Svavars.
A
Garðleigjendur i
Kópavogi
Leiga á garölöndum í Kópavogi er hafin. Úthlutun
garöa ferfram íGróörarstööinni Birkihlíö, Birkigrund 1,
þriðjudaga til fimmtudaga kl. 9.30-11.30 fram til 17.
maí n.k.
Greiðsla fyrir garða er sem hér segir:
300 m2 kr. 794,00
200 m2 kr. 693,00
150 m2 kr. 556,00
100 m2 kr. 442,00
Garðyrkjuráðunautur Kópavogs
sími 46612.