Þjóðviljinn - 04.05.1985, Page 4
LEIÐARI
Stríð og
friður í Evrópu
Þess er minnst nú, aö fjörutíu ár eru síöan
þýskir herir gáfust upp fyrir herjum Banda-
manna - þar meö var mestu styrjöld sem yfir
Evrópu hefur gengiö lokiö. Bandamenn voru
hver öörum ólíkir. En sterk nauðsyn batt þá
saman í baráttu við þýska nasismann, sem leit á
allar aðrar þjóöir sem hráefni í sitt risaveldi.
Enginn gat átt sér þolanlega framtíö í skugga
eða undir hrammi slíks veldis, sem ætlaði sér
að brjóta Bretland og Frakkland á bak aftur,
gera slavnesk lönd að nýlendum og þrælabúr-
um, útrýma gyöingum og sígaunum og svo
hverjum sem dirfðist aö andmæla hinni nýju
skipan.
Margir áttu um sárt að binda í stríðslok. Fjöru-
tíu eöa fimmtfu miljónir manna höföu týnt lífi,
stórborgir voru í rústum, ótal þorp höföu brunnið
til ösku. Engu aö síður var þá vor í lofti í Evrópu.
Ekki einungis vegna þess, aö þær þjóöir sem
sviptar höfðu veriö sjálfstæðu sínu áttu von á aö
fá það aftur. Enn stærri vonir höföu vaknað.
Menn vonuöu aö frelsi undan nasismanum
fylgdi frelsi nýrra þjóðfélagshátta. Menn vildu
endurreisa lýðræöi eða koma því á í löndum þar
sem pólitískt frelsi haföi lengst af verið af
skornum skammti. Og um leiö vildu menn svipta
eignum og völdum auöhringa, iðjuhölda og
landeigendur, sem höföu meö ýmsum hætti
drifið áfram hernaöarvél fasismans. Það lágu
sterkir straumar til vinstri um alla álfuna, sterkir
andkapítalískir straumar - eins og fram kom í
mörgum löndum í fyrstu kosningum sem fram
fóru eftir stríöiö.
En tvískipting álfunnar og magnaöur fjand-
skapur milli hinna nýju risaveida meöal sigur-
vegaranna, Bandaríkjanna og Sovétríkjanna,
setti framvindu þjóöfélaganna mjög þröngar
skorður. Sigurvegararnir umsköpuöu hvor sinn
hluta Evrópu í sinni mynd eða aö sínum óskum
meö misjafnlega sterkri blöndu af hervaldi og
efnahagslegu valdi. Þjóöfélagsframvindan fór
mest eftir því hvar herir sigurvegaranna námu
staöar, miklu síöur eftir pólitískum aöstæöum í
hverju landi. Þjóöir Austur-Evrópu áttu þess
ekki kost aö móta sósíalisma eftir eigin höfði -
stalínsk útfærsla á alræði kommúnistaflokks
réö mestu um þá framvindu. í Vestur-Evrópu
var bandarísku dollaraveldi beitt til að bola
vinstrisinnum úr ríkisstjórnum og endurreisa í
stórum dráttum þá sömu efnahagsskipan sem
áöur haföi verið við lýöi. Þjóðfélög Evrópu hafa
að sönnu breyst verulega síöan, þau hafa ekki
orðið eftirmyndir stóru bræöra í þeim mæli sem
menn gátu óttast um tíma. En það hefur samt
ekki tekist að slíta þá fjötra, harða eöa mjúka,
sem á Evrópu voru lagðir upp úr stríðslokum.
Um þessar mundir er margt skrafað um það,
hverjir hafi lagt fram drýgstan skerf til sigursins.
Það er ekki ástæöa til aö fjölyröa um slíkt karp:
Þaö er augljóst, aö Sovétmenn báru þyngstar
byrðar í bardögum og færðu mestar fórnir í
mannlífum. En miklu skiptir aö allir fái að njóta
sannmælis sem lögöu sitt fram til aö kveöa
niður nasismann. Fyrst og síðast er ástæða til
aö minnast meö þakklæti allra þeirra
nafnkenndra manna og óþekktra sem létu lífið í
nafni frelsis og betri heims. Þeir sem eftir liföu
og síðar fæddust eiga þeim skuld aö gjalda. Sú
skuld veröur best goldin meö trúnaöi viö vonir
þeirra sem féllu í bardögum eða týndu lífi í
fangabúðum í hildarleiknum mikla, trúnaöi í
starfi í þágu þess frelsis og þess lýðræðis sem
ekki kafnar undir nafni.
ÁB
Ó-ÁUT
^ 0
3
o o
(
-\i
a> <í —— 1 0 L
k ) Lí
-—-— J
\
m
^5
\
„Ég ætla bara rétt að vona að NT fari ekki á hausinn.
Þá höfum við ekkert til að hneykslast á...”
DIODVIUm
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandl: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphóðinsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Öskar Guðmundsson.
Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Guðjón
Friðriksson, Helgi Guðmundsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla-
son, Mörður Árnason, ólafur Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson,
Víðir Sigurðsson (íþróttir).
Ljósmyndir: Einar Ólason, Einar Karlsson.
Útlit og hönnun: Filip Franksson, Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifatofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Utbreiðslustjóri: Sigríður Pótursdóttir.
Auglýsingastjóri: Ragnheiður Óladóttir.
Auglýsingar: Anna Guðjónsdóttir, Ásdís Kristinsdóttir,
Hreiðar Sigtryggsson.
Afgreiöslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgrelð8la: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir.
Símavarsla: Margrót Guðmundsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmæöur: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf Húnfjörð.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Bílstjórl: Ólöf Sigurðardóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Roykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prontsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 30 kr.
Sunnudagsverð: 35 kr.
Áakriftarverö á mónuði: 330 kr.
Afgreiðsla blaðsins er opin á laugardögum
frá kl. 9 til 12, beinn sími: 81663.
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN[ Laugardagur 4. maí 1985