Þjóðviljinn - 04.05.1985, Síða 6
ÍÞRÓTTIR
Drengjalandslið íslands 1985: Aftari röð frá vinstri: Örn Gunnarsson, ÍA,
Sveinbjörn Allansson, (A, Freysteinn Gíslason, Þrótti, Einar Páll Tómasson,
Val. Heimir Guðjónsson, KR, Alexander Högnason, ÍA, Steinar Ingimundar-
son, KR, Baldur Bjarnason, Fylki, og Lárus Loftsson, þjálfari. Fremri röð:
Hlvnur Eiríksson, FH, Bjarki Jóhannesson, (A, Eiríkur Þorvarðarson, Breiðab-
Þorsteinn
„Setjum markið hátt“
Stefnum á Evrópumeistaratitilinn.
liki, Páll Guðmundsson, Selfossi, Rúnar Kristinsson, KR, Egill Einarsson, Þrótti
R, Arnljótur Davíðsson, Fram, Jón Þór Andrésson, Val og Þorsteinn Guðjóns-
son KR, fyrirliði. Á myndina vantar Egil Þorsteinsson, Val, og Heimi Erlingsson,
Stjörnunni. Mynd: E.ÓI.
„Já, við erum farnir að ná mjög
vel saman og maður er farinn að
þekkja betur samherja sína í
drengjalandsliðinu en samherj-
anna hjá félagsliðinu, KR,“ sagði
Þorsteinn Guðjónsson. _ys
„Við setjum markið hátt og
stefnum á Evrópumeistaratitil-
inn. Þetta er kannski sterkt til
orða tekið en það borgar sig að
vera bjartsýnn - annars er hætta
á að við berum of mikla virðingu
fyrir andstæðingum okkar þegar
til Ungverjalands kemur,“ sagði
Þorsteinn Guðjónsson fyrirliði
drengjalandsliðsins í samtali við
Þjóðviljann.
„Það er staðreynd að á þessum
aldri á ísland mesta möguleika í
alþjóðakeppni. Eftir því sem
leikmenn eldast, þeim mun nær
nálgast þeir atvinnumennskuna í
flestum öðrum löndum og þá fer
að draga í sundur með íslenskum
og erlendum knattspyrnu-
mönnurn."
- Undirbúningur liðsins hefur
verið umfangsmikill, ekki satt?
„Jú, hann hefur verið mikill og
góður. Byrjað var að æfa fyrir
úrslitakeppnina þann 9. desemb-
er. Til að byrja með kom hópur-
Lárus
m »
„Oll vinnan
inn saman einu sinni í viku og
síðan var gert mánaðarhlé eftir
áramótin. Síðan var byrjað aftur
og æft vikulega fyrst en nú undan-
farið hefur verið æft stíft, nánast
daglega. Þetta hafa fyrst og
fremst verið æfingaleikir, það er
hlutverk Lárusar Loftssonar að
byggja upp lið. Önnur þjálfun er í
höndum félagsliðanna. Þann 14.
maí verður farið til Danmerkur
og þar leikinn einn leikur við úr-
valslið en þaðan förum við í sjálf
átökin í Ungverjalandi og leikum
þar okkar fyrsta leik í úrslitum
Evrópukeppninnar þann 17. maí
- við Skota.
- Ertu ánægður með undirbún-
inginn?
Þorsteinn Guðjónsson
Pétur
1
ísland í
úrslitum
í Evrópu-
keppni
Þann 17. maí hefjast í Ung-
verjalandi úrslit Evrópukeppni
drengjalandsliða í knattspyrnu.
ísland er meðal þeirra 16 þjóða
sem eiga lið í úrslitunum, eftir að
hafa sigrast á Dönum í undan-
keppninni sl. haust. Þetta er í
fyrsta sinn sem ísland kemst í úr-
slit í þessari keppni en áður hefur
unglingalandslið, 16-18 ára,
nokkrum sinnum náð sambæri-
legum árangri. Drengjalandsliðið
er skipað leikmönnum 14-16 ára.
Undirbúningur liðsins hefur
verið óvenju mikill og er nú að
komast á lokastig. Eins og Þor-
steinn Guðjónsson fyrirliði segir í
viðtali hér á siðunni þekkjast
leikmenn liðsins orðið mjög vel,
betur en þeir þekkja samherja
sína í félagsliðunum. Mikið starf
hefur verið unnið og enginn vafi á
að það á eftir að koma íslenskri
knattspyrnu til góða í framtíð-
inni. Hér eru á ferðinni þeir sem
landið erfa - hér eru á ferðinni 1.
deildarleikmenn, landsliðsmenn
og jafnvel atvinnumenn framtíð-
arinnar - hér er verið að leggja
grunninn að framgangi íslenskrar
knattspyrnu á komandi árum.
Þjóðviljinn hefur fylgst náið
með undirbúningi liðsins undan-
farið og ræddi fyrir stuttu við Þor-
stein Guðjónsson fyrirliða og
Lá?us Loftsson þjálfara um und-
irbúninginn, liðið, Evrópu-
keppnina og framtíðina, enn-
fremur var rætt og við Pétur
Ormslev sem lék með unglinga-
landsliðinu í Ungverjalandi fyrir
níu árum.
-VS
skilar sér“
Skemmtilegasta lið sem ég hef haft
undir minni stjórn
„Geta komið á óvart“
Sniðugri og skipulagðari en við vorum 1976
„Úrslitakeppnin i Ungverja-
landi leggst vel í mig, ég get ekki
annað sagt. Þetta er eitt efnileg-
asta unglingalið sem við höfum
teflt fram í svona keppni,“ sagði
Lárus Loftsson þjálfari drengja-
landsliðsins í samtali við Þjóðvilj-
ann.
„Stærsta málið fyrir okkur var
að komast í úrslitakeppnina sem
slíka. Síðan verður að ráðast hver
útkoman verður þar. Ef við hefð-
um ekki sigrað Danina sl. haust
og komist í úrslitin þá hefði allt
unglingastarfið legið niðri í vétur.
í staðinn er þetta orðið heils árs
starf og öll sú vinna sem lögð hef-
ur verið í þetta drengjalandslið á
eftir að skila sér. Ef ekki í Ung-
verjalandi, þá í framtíðinni.
Drengirnir fá geysilega reynslu
með þátttökunni og einmitt í
svona keppni hafa flestir okkar
landsliðs- og atvinnumenn fengið
dýrmæta reynslu. Þjálfarar og
nefndarmenn læra líka mikið af
þessu - ég er t.d. reynslunni rík-
ari eftir að hafa stjórnað ungl-
ingalandsliði þrívegis í svona
keppni og veit nú betur hvernig
ég á að bregðast við því sem uppá
kemur.“
- Hversu sterkt er drengjalandslið-
ið?
„Þetta er skemmtilegasta lið sem
ég hef haft undir minni stjórn, betur
leikandi og „tekniskara" en þau fyrri.
Áhuginn er ofsalegur og það er gam-
an að vinna með strákunum. Þeir eru
samviskusamir og vilja standa sig vel.
Þá höfum við það framyfir andstæð-
inga okkar að við höfum getað undir-
búið okkur af kostgæfni síðan við
unnum Danina í nóvember, allir leik-
menn eru af Stór-Reykjavíkursvæð-
inu, Akranesi og Selfossi þannig að
auðvelt er að ná þeim saman. Að
þessu leyti höfum við forskot, við ætt-
um að vera betur samstilltir en hinir.“
- Nú eru fjórar þjóðir í riðlinum en
aðeins ein kemst áfram í undanúrslit.
Kallar það ekki á djarfar leikaðferð-
ir?
„Það má kannski segja það og allt
kemur til með að velta á fyrsta
Ieiknum, gegn Skotum. Reynsla okk-
ar er sú að okkur hefur gengið vel í
fyrsta leik í svona keppni en síðan
hefur vandamálið verið að halda sér
gangandi, oft við mikinn hita, þegar
leikið er þétt.“
- Eitthvað að lokum?
„Já, ég vil koma á framfæri hversu
vel unglinganefndin hefur starfað í
kringum þetta lið. Þeir Helgi Þor-
valdsson, Sveinn Sveinsson og Steinn
Halldórsson hafa skilað miklu og
góðu starfi sem er ákaflega þýðingar-
mikill hlekkur í öllum okkar undir-
búningi," sagði Lárus Loftsson.
- VS.
„Það er kannski erfitt að bera
drengjalandsliðið nú saman við
okkar lið sem fór til Ungverja-
lands 1976 því við vorum 1-2
árum eldri en þeir eru nú og vor-
um flestir orðnir 1. deildarleik-
menn. En mér sýnist á þessum
leik sem við frá ’76 lékum gegn
þessum piltum að þeir séu með
fleiri sniðuga leikmenn en við
höfðum og séu mun skipulagð-
ari,“ sagði Pétur Ormslev, lands-
liðsmaður úr Fram og Ungverja-
landsfari með unglingalandslið-
inu fyrir níu árum, þegar Þjóð-
viljinn ræddi við hann um mögu-
leika drengjalandsliðsins.
„Við vorum frekar óheppnir
með velli í tveimur leikjanna í
Ungverjalandi, og okkur gekk
ekki að skora mörk. Fyrst gerð-
um við markalaust jafntefli við
Sviss í leik sem við áttum að vinna
og sömu úrslit urðu gegn Tyrkj-
um, í hreinum slagsmálaleik.
Gegn Spánverjum í lokaleiknum
var allt lagt í sölurnar, við hefð-
um komist í úrslit með sigri, en
það gekk ekki upp og við töpuð-
um 3-0.“
- Hvernig var að vera í Ung-
verjalandi?
„ Við vorum í 20 þúsund manna
bæ og mér fannst við vera þarna
einum of lengi þar sem ekkert var
við að vera, ekkert hægt að fara í
bíó eða annað. En það eru níu ár
síðan og margt getur hafa
breyst.“
- Hvað viltu ráðleggja Ung-
verjalandsförum 1985?
„Fyrst og fremst að bera enga
virðingu fyrir mótherjum sínum,
á þessum aldri er minni munur á
leikmönnum okkar og annarra
þjóða en þegar framí sækir. Þá er
mikilvægt að halda góðum „mór-
al“, ferðin hjá okkur var mjög
skemmtileg og aðalmálið er að
hafa gaman af því sem verið er að
gera. Ef piltarnir halda liðs-
heildinni og leika sína eigin
knattspyrnu þá geta þeir svo
sannarlega komið á óvart,“ sagði
Pétur Ormslev.
- VS.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN