Þjóðviljinn - 04.05.1985, Blaðsíða 7
UMSJÓN: ÞftÖSTUR HARALDSSON
Laugardagur 4. maí 1985 ÞJÓÐVILJlfiN - SfÐA 7
Eigum
við að
vera
með?
ofan í þrjá þekkta menn úr ís-
lensku tónlistarlífi og spyrja
hvort þeim finnist rétt að við
tökum þátt. Einnig slógum við á
Útvarpsráð hefur til athugunar hvort
fslendingar eigi að taka þátt í söng-
vakeppninni sem tugmiljónir evrópu-
búa fýlgjast með á hverju ári. Deildar
meiningar meðai tónlistarfólks um
gildi keppninnar
í kvöld klukkan 19 geta ís-
lensklr sjónvarpsáhorfendur
kveikt á tœkinu og slegist f hóp
tugmiljóna evrópubúa sem
fylgjast með Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva í
belnni útsendingu frá Skandin-
avium íþróttahöllinni í Gauta-
borg í Svíþjóð. Þar stíga á pall
tónlistarmenn frá 19 evrópu-
löndum og keppa um hylli
dómnefnda f jafnmörgum evr-
ópskum höfuðborgum. Það
land sem fer með sigur af hólmi
getur svo farið að búa sig undir
nœstu keppni þvf hún er haldin
f landi sigurvegaranna.
Þetta verður í þrítugasta skipti
sem keppnin er haldin. Undan-
farin ár hefur oft komið til tals
hvort íslendingar eigi að skrá sig
til þátttöku en ekki hefur enn
orðið af því. Nú hefur verið stigið
skrefi lengra en áður því Hinrik
Bjamason forstöðumaður LSD
er í Gautaborg á vegum útvarps-
ráðs til að fylgjast með undirbún-
ingi og framkvæmd söngva-
keppninnar. Hann mun svo skila
skýrslu um það sem fyrir augu ber
og eftir það verður rætt í alvöru
um hvort við eigum að vera með.
Löngum hafa verið deildar
meiningar um þessa söngva-
keppni. Ekki þarf að draga í efa
að margir hafa töluverða
skemmtun af henni en þeir eru
hka margir sem fussa og sveia.
Þeir síðamefndu halda því fram
að keppnin sé vettvangur hinnar
fullkomnu lágkúru í tónlist, að
þar sé öllu úthýst sem heiti fmm-
leg sköpun og þjóðleg einkenni.
Núverandi gestgjafar, svíar,
sigruðu einnig árið 1974 þegar
hljómsveitin ABBA sló í gegn.
Upp úr því risu miklar deilur.
Fylgjendur keppninnar bentu á
frama fjórmenninganna í ABBA
á alþjóðavettvangi og sögðu að
þarna sæist hver áhrif keppnin
gæti haft á möguleika tóniistar-
fólks til að komast á hinn alþjóð-
lega topp.
Andstæðingamir tóku sig hins
vegar til og héldu svonefndar
„alternativ festival“, þe. öðruvísi
hátíð þar sem alþýðutónlist af
ýmsu tagi reið húsum. Þangað
fóru frá Islandi Þrjú palli, Þokka-
bót, Megas, Örn Bjarnason og
stórsveit undir forystu Gunnars
Þórðarsonar. Var hátíðin haldin
á sama tíma og söngvakeppnin og
í sömu borg, þe. Stokkhólmi.
Þótt gagnrýnisraddir um
söngvakeppnina hafi verið held-
Framlag norðmanna hefur löngum vakið athygli og ekki alltaf fyrir að hala inn mörg stig. Að þessu sinni gera þeir sór
góðar vonir með þessar tvær sem nefna sig Bobbysocks. Þess er getið í norsku pressunni að óvenju margar konur séu
meðal keppenda í ár og að vanda er kynnirinn af kvenkyni, sænska söng- og leikkonan Lill Lindfors.
ur hljóðari hin síðari ár er þó
langt í frá að allir séu búnir að
taka hana í sátt. Okkur fannst því
tilvalið í tilefni dagsins að hlera
þráðinn til Hinriks Bjarnasonar i
Gautaborg og spurðum hvernig
undirbúningi liði.
- ÞH/- L. mar.
Hinrik Bjarnason:
Vœri óneitanlega gaman
Á fimmtudagskvöldið slógum
við á þráðinn til Hinriks Bjarna-
sonar forstöðumanns Lista- og
skemmtideildar sjónvarps þar
sem hann var í Gautaborg að
fylgjast með undirbúningi
söngvakeppninnar. Við báðum
hann fyrst að segja hvernig þeim
undirbúningi miðaði.
„Þetta er að verða nokkuð gott
allt saman og svíarnir standa vel
að verki. Það er mikið umstang í
kringum svona útsendingu en
mér sýnist allt stefna í prógramm
sem rennur liðugt enda er ekkert
til sparað. Keppnin verður haldin
í Skandinavium höllinni sem
margir íslendingar kannast við
vegna íþróttamóta sem þar hafa
verið haldin. Það er gert ráð fyrir
um 10 þúsund áhorfendum.
Hvað tónlistina áhrærir þá var
ég að fylgjast með æfingum í dag
og mér sýnist þetta ætla að verða
jöfn og hörð keppni. Þama verða
þátttakendur frá 19 löndum en
mér finnst norðurlandaþjóðirnar
standa vel að vígi.“
- Þú varst sendur til Gauta-
borgar til að fylgjast með keppn-
inni, ekki satt?
„Jú, það var ákveðið í fram-
haldi af umræðum í útvarpsráði
um hugsanlega þátttöku okkar í
keppninni að ég færi út, fylgdist
með keppninni og skilaði skýrslu
til ráðsins um framkvæmd henn-
ar. Það var svo ákveðið að nota
tækifærið og láta mig lýsa því sem
gerist eftir því sem tilefni er til.“
- Og hvernig líst þér svo á?
Eigum við að vera með?
„Um það get ég ekkert sagt að
svo stöddu eins og gefur að skilja.
En það er ljóst að það er ekki
hrist fram úr erminni að halda
svona keppni. Það er harla
óvenjuleg staða að þora ekki að
taka þátt í keppninni af ótta við
að sigra. En þótt óneitanlega væri
gaman að sjá íslenska þátttak-
endur í keppninni verðum við að
gera okkur grein fyrir þeim
skuldbindingum sem fylgja þátt-
töku. Það eru nokkrir augljósir
erfiðleikar sem við yrðum að yfir-
stíga.
Við verðum fyrst að gera okk-
ur grein fyrir kostnaðinum við
svona keppni og hvort við ráðum
við slíkt. í öðru lagi er þetta
spuming um nægilega stórt hús
og hvort við eigum þau tæki og
þann búnað sem þarf. Loks eru
það spumingar eins og hvort við
getum tekið við 7-900 gestum.
Sænska sjónvarpið þurfti að út-
vega hótelpláss fyrir 900 gesti
vegna þessarar keppni hér í
Gautaborg.
Á móti kemur svo að þátttöku
fylgja ýmsir kostir. Þar má nefna
auglýsingu á landi og þjóð og
þessum ákveðna menningar-
þætti. Einnig má benda á að allt
„Það er harla óvenjuleg staða að
þora ekki að taka þátt í keppninni af
ótta við að sigra."
það umstang sem keppninni fylg-
ir gefur talsverðar óbeinar tekj-
ur.“
- Hver ber kostnaðinn af
keppninni?
„Hver þátttökuþjóð greiðir
ferðakostnað og uppihald síns
hóps en gestgjafinn ber kostnað
af sjálfu keppnishaldinu. Þó
koma vissar tekjur frá hinum
löndunum í formi greiðslna fyrir
sýningarrétt,“ sagði Hinrik
Bjamason í Gautaborg.
- ÞH
Meira um söngvakeppnina - sjá næstu síðu