Þjóðviljinn - 04.05.1985, Blaðsíða 8
Phil Collins
Jakkalaus eður ei - hefur aldrei verið betri
Phil Collins er búin aö berja
bumbur síöan hann var 5 ára.
14 árum síðar sótti hann um
trommarastöðu í gegnum
auglýsingu í Melody Makerog
var þar með ráðinn í hljóm-
sveitina Genesis. Fram að
þeim tíma var það markverð-
asta í lífi hans skemmtanavís
að 14 ára aldri lék hann Hrapp
í Ólíver Twist í uppfærslunni í
West End í London, stofnaði
sínafyrstu hljómsveit 1969,
þá 18 ára. Flaming Youth hét
hún, 5 manna hljómsveit, sem
gaf út eina breiðskífu, Ark 2.
Hún var kosin plata mánaðar-
ins í Melody Maker en sneri
þó skömmu síðar upp tánum.
Fyrsta platan sem Phil Collins
trommaði á með Genesis var
Nursery Cryme, en þegar Peter
Gabriel yfirgaf hljómsveitina
1975 bætti hann á sig söngnum og
tókst þar með að halda Genesis
lifandi, því að í ljós kom að hann
var jafnvígur á raddbönd og
trommukjuða. Meðfram því að-
vera í Genesis hefur Phil lagt
gjörva hönd á margt og er þar
síðast að taka lagið Easy Lover
sem vinsælt varð fyrir skömmu
með honum og Phil Bailey úr
Earth, Wind and Fire, en við
látum fylgja þessu skrifi afreka-
skrá Phils að öðru leyti.
Nýlega kom út 4. sólóplata
Phils Collins. No Jacket required
heitir hún, Jakka ekki krafist.
Titillinn er grínaktugur gagnvart
reglum sumra hótela að hleypa
ekki jakkalausum karlmönnum
inn á barinn - og ekki nóg með
það - heldur aðeins þeim sem eru
í hefðbundnum jakkafatajakka.
Og svo eru náttúrulega sumir
staðir sem setja hálsbindið í efsta
sæti. En hvað um það, jakkalaus
eður ei, þá kemur Phil Collins líkt
klæddur til dyranna á þessari
plötu sinni og á fyrri sóló-
plötunum, nema kannski heldur
litdaufari. Ekki þar fyrir að No
Jacket required er ljómandi vel
gerð, mér finnst bara vanta ögn á
e.k. léttleika eða leikgleði.
Kannski eru það útsetningarnar
sem bregðast og til dæmis má
taka að harla lítið verður maður
var við hörkusöngfólk sem syng-
ur bakraddir í tveim lögum (Long
long Way to go, Take me Home),
þau Sting, Helen Terry og Peter
Gabriel. Annars má ekki skilja
þetta nöldur sem svo að hér sé
lélega plötu að ræða miðað við
meðalmennskuna, hins vegar
finnst mér hún ekki standast sam-
anburð við verk Phils Collins.
Þeir sem spila með Phil Collins
á No Jacket required eru bassa-
leikarinn Leland Sklar, gítarleik-
arinn Daryl Struemer, hljóm-
borðsleikarinn David Franks
(The System), The Phenix Horns
og saxófónleikarinn Gary Barna-
de. Sjálfur leikur Phil á trommur,
hljómborð, bassa, og raftromm-
ur og syngur auðvitað. Hann seg-
ist þó líta á sig sem trommara
fyrst og fremst, hins vegar sé
miklu auðveldara að vera
trommuleikari en söngvari, hið
síðarnefnda krefjist miklu meiri
aga. Þá vitum við það.
Loks má geta þess að eitt laga
umræddrar plötu er í 16. sæti á
Rás 2 (komst hæst í það 6.), One
more Night.
A
Afrekaskrá Phils Collins
Sólóplötur
Face Value (1981)
Hello. I Must Be Gomg! (1982)
Agamst All Odds (smgle) (1984)
No Jacket Required (1985)
Genesis
Nursery Cryme (1971)
Foxtrot (1972)
Genesis Live (1973)
Sellmg England by the Pound (1973)
The Lamb Lies Down On Broadway (1974)
Trick of the Tail (1976)
Wmd <& Wuthermg (1977)
Seconds Out (1977)
And Then There Were Three (1978)
Duke (1980)
Abacab (1981)
Three Sides Live (1982)
Genesis (1983)
Brand X (djass-fjúsjonsveit
sem Phil hefur starfað með í
meðfram Genesis)
Unorthodox Behavior (1975)
Moroccan Roll (1977)
Livestock (1977)
Masques (1978)
Product (1979)
Do They Hurt? (1980)
ls There Anything About (1982)
Flaming Youth
Ark2 (1969)
Annað
The Secret Policeman's Other Ball (1983)
Do They Know It's Christmas (single) (1984)
Upptökustjóri
John Martyn: Glorious Fool (1982)
Frida: Somethmg s Gomg On (1982)
Adam Ant Strip (1984)
Philip Bailey: Chinese Wall (1984)
Enc Clapton: Behind The Sun (1985)
Sem aukamaður
Brian Eno: Another Green World (1976)
Thm Lizzy: Johnny the Fox (1976)
Cafe Jacques Round the Back (1977)
John Cale: Guts (1977)
Elliott Murphy: Just A Story From America (1977)
Brian Eno: Before and After Science (1978)
Bnan Eno: Music For Films (1978)
Rod Argent: Movmg Home (1978)
Robert Fnpp. Exposure (1979)
Peter Gabriel (1980)
Robert Plant: Pictures at Eleven (1982)
Robert Plant: The Principle of
Moments (1983)
Jónatan Garðarsson-.
Kœmumst á
landakortið
, Ja, þessi keppni er svolítið tví-
eggjuð, hún hefur bæði kosti og
galla," sagði Jónatan Garðarsson
er við spurðum hann um gildi
Söngvakeppninnar. „Kostirnir
eru held ég mun fleiri og felast
einkum í þeirri landkynningu sem
hvert það land sem sendir þátt-
takendur fær úti í heimi. íslensku
listamennirnir sem koma fram í
keppninni kæmu í hverju einasta
landi inná ansi mörg heimili og
það yrði til þess að ísland sem
land festist kannski í hugum
fólks.
Ég hef í mínum ferðum orðið
var við hve lítið fólk veit um ís-
iand, um sjálfstæða menningu
okkarogþjóð almennt. Það held-
ur að hér búi eskimóar í frum-
stæðu samfélagi og veiði hvíta
birni. Og að þessu leyti er það
kostur að taka þátt í Söngva-
keppninni, til þess að festa land
íslands inná landakort þessa
fólks.
Það þarf einnig að sýna að hér
er leikin tónlist sem er ekki síðri
en úti. Það er ekki aðalatriðið að
sigra, bara að vera með. Það
muna allir eftir Noregi í keppn-
inni, ekki fyrir hvað hann hefur
sigrað oft, heidur öfugt; hann
hefur tvisvar eða þrisvar fengið
núll og það vekur verðskuldaða
athygli. Og Norðmenn vilja vita-
skuld meina að þetta sé vottur um
þann háa standard sem ríkir í tón-
hst þeirra.“
— Hvað með dekkri hliðarnar?
„Þessi keppni er að mörgu Ieyti
ómerkileg. I gegnum tíðina hefur
það tíðkast að viss tegund af
miðjutónlist ráði ferðinni og það
er einsog þátttakendur hreinlega
geri í því að syngja einhverskonar
„middle of the road“ músík. Að
því leyti er þessi keppni ekki sér-
Íega skapandi og afar sjaldgæft að
eitthvað frumlegt komi fram á
sjónarsviðið, þó það hafi gerst
stöku sinnum t.d. þegar ABBA
sigraði. En maður er oft hissa á
því hvað slær í gegn, það er oftast
eitthvert Iag úr blámiðjunni og
áður en árið er liðið man maður
ekki eftir laginu sem vann.
En íslenskt tólistarfólk er full-
komlega frambærilegt úti í hinum
stóra heimi og á keppni sem
þessa.“
- Ef íslendingar tœkju þátt í
þessari söngvakeppni, hvernig
ætti að haga valinu á listamönn-
unum?
„Ég held að það gildi sama lög-
málið í þessari keppni og öðrum
samanber fegurðarkeppni og
þess háttar. Það fer fram eins-
konar forval og ég held að við
breytum því ekkert hvernig þetta
fer fram. En það er ekki alltaf víst
að besta lagið verði valið til að
taka þátt í keppninni sjálfri.“
- Hvað með þann gífurlega
kostnað sem er óyggjandi samfara
svona uppákomum, segjum t.d.
ef íslendingar slysuðust nú til að
vinna og yrðu að halda keppnina
að ári liðnu?
„Ég hugsa að kostnaður sé
miðaður við stærð lands og þjóð-
ar, en talandi um kostnað þá er ég
viss um að peningum sé eytt í
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 4. maí 1985
„Þó fólki finnist söngvakeppnin frem-
ur leiðinleg og ómerkileg, þá horfir
það samt á hana til að geta verið með
í umræðunni eftir á.“
ýmsa aðra hlutí sem vega miklu
minna. Það eru líka dæmi þess að
nokkrar þær þjóðir sem borið
hafa sigur úr býtum hafa færst
undan því að halda keppnina,
t.d. ísrael, og Lúxemborg.
En ég er á því að við myndum
græða miklu meira en tapa á þátt-
töku í Söngvakeppninni. Fóiki
verður ljóst að hér er eitthvað að
gerast í tónlist og menn fara að
leita að öðrum íslenskum lista-
mönnum. Ég er klár á því að þátt-
taka Björgvins Halldórssonar og
Jóhanns Helgasonar í söngva-
keppninni á írlandi, (þeir tóku
reyndar þátt í annarri keppni í
Tékkóslóvakíu og lentu einnig í
2. sæti), þar sem þeir lentu í öðru
sæti, hefur haft þau áhrif að fólk
hugsar: Það er greinilega
eitthvað að gerast þarna á íslandi
í poppmúsík.
Og ég held að það sjónarmið
að menn séu hræddir við að vinna
keppnina sé út í hött, vegna þess
að líkurnar á því að við vinnum
eru hverfandi litlar. Það má líkja
þessu við að senda ekki íþróttalið
út til keppni vegna ótta við að það
ynni sigur á mótinu.
Ég held að við ættum að hætta
að slá höfðinu við stein.“
- Hefur þú einhvern sérstakan
íslenskan listamann í huga sem
senda mœtti í Eurovisionkeppn-
ina?
„Nei, ég held að við eigum
töluvert af hæfu listafólki til að
koma þarna fram, það mætti
nefna Ragnhildi Gísladóttur eða
Björgvin Halldórsson, en ég hef
engar áhyggjur af því að fólk
muni ekki spjara sig, ég treysti
okkar listamönnum algerlega til
að gera vel.“
- L. mar.
Ragnhildur
Vildi
taka
Við spurðum Ragnhildi Gísla-
dóttur hvað henni fyndist um
Eurovision Söngvakeppnina, og
ekki átti hún bágt með að láta
álist sitt í ljós:
„Ég myndi ekki vilja taka þátt í
þessari keppni vegna þess að mér
finnst dómnefndirnar ekki hafa
fylgst með því sem er að gerast í
poppinu. Þetta er allt sami stíll-
inn, sama lagið. Það er ekkert
prógressíft að ske þarna, allavega
ekki ennþá.
Fólk sendir frá sínu landi lag
sem það heldur að falli í sama
farið, það er búið að plasta þessu
öllu í eitt form. Við myndum t.d.
aldrei senda Kuklið eða eitthvað
frumlegt í svona keppni. Og það
er alveg sama hvar þessi keppni
er haldin, hún er alltaf eins.“
Gísladóttln
ekki
þátt
- En hvað segir þú um þá
kynningu sem landið fengi og
flestir vilja meina að sé af hinu
góða, ef við tœkjum þátt?
„Persónulega myndi ég ekki
vilja presentera landið í þessari
keppni (og hvað ef lagið væri
hundleiðinlegt..?) en það er ekki
hægt að horfa fram hjá landkynn-
ingu. Það kæmu fleiri syngjandi
túristar til landsins...
Ég er ekki fylgjandi þessum
hugsunarhætti sem er ríkjandi í
þessu í dag. Gott listafólk forðast
þetta, það eru bara send einhver
millistigs popplög, ófrumleg.
Þetta gæti verið skemmtilegt ef
sköpunargleðin væri meiri, og ef
að hugsunarhátturinn breyttist til
hins betra.“
- L. mar.
Björgvin Halldórsson:
Á alltaf rétt á sér
„Söngvakeppni á alltaf rétt á
sér,“ sagði Björgvin Halldórsson
aðspurður um gildi Söngva-
keppni evrópsku sjónvarpsstöðv-
anna. „Það fara margar sögur af
þessari keppni, það er til dæmis
talað um klíkuskap og annað
slíkt, en því er sjálfsagt þannig
farið í allri keppni. Það væri mjög
gaman fyrir íslendinga að taka
þátt í söngvakeppninni, við eigum
nógu mikið af góðum lagasmið-
um sem ég er viss um að gætu
auðveldlega staðið í þeim bestu
erlendis, og mér þætti ekki ólík-
legt að ef við tækjum þátt mynd-
um við verða í einu af flmm efstu
sætunum. En það eru viss skilyrði
sem hvert land verður að uppfylla
til þess að fá leyfí til þátttöku, t.d.
verður forkeppni hér heima að
hafa átt sér stað og cinnig þurfum
við að hafa sérstök fjarskiptaskil-
yrði til útsendinga osfrv.
Ef að viðkomandi land vinnur
keppnina má það afsala sér rétt-
inum til að halda keppnina að ári
liðnu í heimalandi sínu, það eru
dæmi um það, t.a.m. ísrael og
Lúxemborg.
En flytjendur yrðu að vera
vanir að koma fram og vanda yrði
val á lagi, það þýðir ekkert annað
en að tefla fram okkar besta fólki
til svona keppni. Þetta myndi
þýða mikla landkynningu fyrir
okkur, og fóiki má verða það
ljóst að við stöndum framar í
þessum málum en það heldur.“
- En hvað finnst þér sjálfum
um þau lög sem þarna eru sungin,
þau hafa löngum verið talin held-
ur dauf og ómerkileg?
„Persónulega hef ég ekki gam-
an af Iögunum í keppninni, þetta
er allt uppá sömu bókina lært.
Þetta eru týpisk miðevrópsk
popplög, en það hafa þó komið
góð lög í gegnum tíðina. Hins-
vegar finnst mér þessari keppni
hafa farið hrakandi með árun-
um.“
- Pað er mikið talað um kostn-
aðinn?
„Já, það er náttúrlega gífurleg-
ur kostnaður sem fylgir því að
halda svona keppni, en menn
greinir á um hvemig eigi að
standa að þessu hér í svona litlu
og fámennu landi. En í sambandi
við forvalið þá þýddi ekki mikið
ef t.d. þjóðinni litist á eitthvert
lag sem dómnefndinni litist svo
ekkert á og lagið væri kannski
glatað fyrir þær milljónir sem
fylgjast með keppninni. Það
verður að vanda valið.
Ég hef heyrt að það sé pólitík
með í spilinu varðandi fram-
kvæmd á svona söngvakeppni, en
ég ætla að fara varlega út í þá
sálma.
Þá finnst mér ekki sniðugt ef
hver þjóð er skyld til að syngja á
sínu eigin tungumáli. Við hlæjum
að finnum þegar þegar þeir
syngja á sinni tungu alveg eins og
þeir myndu hlæja að okkur ef við
syngjum á íslensku. Það eru meiri
möguleikar að fá stig frá öðrum
löndum ef við syngjum til dæmis
á ensku.
En hvað sem öðru líður þá er
alltaf talað mikið um viðkomandi
land og þjóð, þarna eru þjóðir
saman komnar og sameinast í
tónum. Ég er ekki frá því að við
verðum með í næstu keppni og ég
vona að það komi skriður á þetta
sem fyrst,“ sagði Björgvin að lok-
um.
- L. mar.
„Persónulega mundi ég ekki vilja presentera landið í þessari
keppni."
„Égerekkifráþví
að við verðum
meðínaestukeppni
ogégvonaað
það komi skriður á
þetta sem fyrst."
í TILEFNI AF FORMLEGRI OPNUN HEWLETT PACKARD Á ÍSLANDI:
KYNNUM VIÐ
SKRIFSTOFUTÆKNI FRAMTÍÐARINNAR -
TÖLVUSTÝRÐ TEIKNIKERFI - STÝRIKERFIÐ UNIX -
MÆLITÆKI OG EINKATÖLVULAUSNIR -
FRÁ HEWLETT PACKARD
KYNNINGIN FER FRAM í NÝJUM OG GLÆSILEGUM HÚSAKYNNUM HEWLETT PACKARD Á ÍSLANDI AÐ HÖFÐABAKKA 9
SKRIFSTOFUTÆKNI
FRAMTÍÐARINNAR:
Fyrirlesari: Nigel Lanch
frá Hewletl Packard, Englandi.
Þar verður kynnt hvaða lausn-
ir Hewlett Packard býður í dag
og álit HP hvernig franrtíðar-
skrifstofan verður.
Tímalengd: 2 klst.
TÖLVUSTÝRÐ
TEIKNIKERFI:
Fyrirlesari. Ove Holriiz
frá Hewlell Packard, Danmörku.
Sagt verður frá lausnum sem
Hewlett Packard býður verk-
fræðingum og arkitektum.
Sýndur verður hugbúnaðurinn
HP DRAFT og HP EGS.
Tímalengd 2 klst.
STÝRIKERFIÐ UNIX:
Fyrirlesari: Sigurjón Sindrason
frá Hewlelt Packard á fslandi.
Kynnt verður saga UNIX og
sagt frá hver staða þess er í
dag. Hewlett Packard notar
UNIX á HP 9000 tölvurnar.
Margir telja UNIX vera stýri-
kerfi morgundagsins.
Tímalengd 2 klst.
r Tími Miðvikudagur 8. Fimmtudagur 9. Föstudagur 10.
I 9.30-11:30 [3 #. SALUR 1 Skrifstofutækni framtiöarinnar i SALUR 1 Einkatölvulausnir !
mHxíI SALUR2 (CAD/CAM) Tölvustýrð teiknikerfi SALUR2 Mælitæki og tölvunet
SALUR 1 SALUP 1
! 13:30-15:30 Skrifstofutækni framtiðarinnar Einkatölvulausnir !
fiui SALUR2 UNIX SALUR2 (CAD/CAM) Tölvustýrð teiknikerfii
' 16:00-18.00 SALUR 1 Mælitæki og merkja- meðhöndlun SALUR 1 Skrifstofutækni framtíðarinnar ♦ |
SALUR2 (CAD/CAM) Tölvustýrð teiknikerfi SALUR2 UNIX imnll!
L _
Ofangreindar kynningar fara flestar fram á ensku og
þeir sem hafa áhuga á að sækja þær, vinsamlegast
tilkynnið þátttöku fyrir kl. 12:00 n.k. þriðjudag í
síma 671000.
MÆLITÆKI FRÁ
HEWLETT PACKARD. -
BILUNARLEIT í
TÖLVUNETUM:
Fyrirlesari: Jens Bölling
frá Hewlett Packard, Danmörku.
Meðal þess sem fjallað verður
um: Hvar er bilunin?: Útstöð
modem-tölva - hugbúnaður.
Hvað er „protocol" bsc hdle
- sdlc? Sýnd verður notkun
mælilækja frá Hewlett Packard
við bilunarleit.
Tímalengd: 2 klst.
MÆLITÆKI FRÁ
HEWLETT PACKARD -
MERKJAMEÐHÖNDLUN:
Fyrirlesari: Jens Bölling
frá Hewlett Packard, Danmörku.
Tölvustýringar, val á A/D
breytum, hvernig má koma í
veg fyrir truflanir, mælingar á
hita og margt fleira. Sýnd
verða ýmis sérhæfð mælitæki.
Tímalengd: 2 klst.
EINKATÖLVULAUSNIR
FRÁ
HEWLETT PACKARD:
Fyrirlesari: Walther Thygesen,
frá Hewlett Packard, Danmörku.
Efni kynningar er meðal annars:
Einkatölvumarkaðurinn í heim-
inum i dag og framtíðarþróun.
Kynnt ýmis tæki frá HP svo
sem ferðatöivur, UNIX einka-
Ntölvur og ýmis jaðartæki,
prentarar og teiknarar.
Tímalengd: 2 klst.
FI3F HEWLETT
PACKARD
Á ÍSLANDI - HÖFÐABAKKA 9 - SÍMI 671000