Þjóðviljinn - 04.05.1985, Qupperneq 13
Leiklistarnemar stilla sér upp fyrir Valdísi Ijósmyndara en þeir voru að æfa Ijóðadagskrána Heill sé þér þorskur
Listnemar
Salí-dagar hefjast
í dag
NemendurfimmlistaskólaíReykjavíksameinastíiistahátíð
SALÍ-dagar nefnist hátíð sem
nemendurfimm listaskóla í
Reykjavík gangast fyrirfráog
með deginum í dag fram á
næstaföstudagskvöld. Þar
gefst almenningi kostur á að
sjá og heyra við hvað
listnemar eru að fást þessi
misserin.
Aðdragandi þessarar hátíðar
hófst í Bandalagi íslenskra sér-
skólanema (BÍSN) en þar fæddist
hugmyndin um að fara í kynning-
arherferð og gera almenningi
grein fyrir starfi þeirra skóla sem
aðild eiga að bandalaginu. Innan
þess eru 15 skólar sem skiptast í
þrjú svið: listaskólar, uppeldis-
skólar og skólar sem kenna sjó-
mennsku og aðrar greinar sem
snúa að atvinnulífinu.
Ekki hefur farið mikið fyrir
þessari herferð fyrr en nú að
nemendur Myndlista- og
handíðaskóla íslands, Tónlistar-
skólans í Reykjavík, Leiklistar-
skóla íslands og Söngskólans í
Reykjavík tóku sig saman og
fengu til liðs við sig nemendur úr
Listdansskóla Þjóöleikhússins
sem ekki er aðili að BÍSN. Út-
komuna fá menn að sjá næstu
daga á ýmsum stöðum í borginni.
Að sögn Gylfa Garðarssonar
úr undirbúningsnefnd Salí-
daganna er tilgangurinn með
þessu samstarfi listnema tvíþætt-
ur. Annars vegar er ætlunin að
kynna skólana, aðstöðu þeirra og
aðbúnað og reka á eftir því að
hann sé bættur. Hins vegar að
gefa nemendum skólanna fimm
tækifæri til að vinna saman yfir þá
múra sem oft vilja aðskilja list-
greinarnar. Sagði hann að mikill
áhugi ríkti á slíkri samvinnu og
hefði hún raunar átt sér stað í
svolitlum mæli. Þannig hafa
myndlistarnemar tekið að sér að
mála leiktjöld fyrir leiklistar-
nema, tónlistarnemar samið lög
og flutt í leiksýningum osfrv. Alls
munu nemendur í þessum fimm
skólum vera á bilinu 6-700 talsins
en þar af eru uþb. 100 beinir þátt-
takendur í Salí-dögunum. Það
eru fyrst og fremst þeir sem
komnir eru vel áleiðis í námi en
ekki þeir sem eru að ljúka námi,
þeir eru allir á kafi í lokaverkefn-
um.
Salí-dagarnir hefjast í dag með
tvennum tónleikum. Kl. 16 halda
nemendur í Söngskólanum tón-
leika í Gamla bíói þar sem þeir
syngja íslensk sönglög og kl. 17
verður boðið upp á raftónlist eftir
nemendur Tóniistarskólans og
nýtt dansverk eftir nemendur
Listdansskóla Þjóðleikhússins í
Norræna húsinu. í kvöld verður
svo Salí-ball í Félagsstofnun stúd-
enta við Hringbraut þar sem
Oxmá, Abdou og kompaní
hleypa lífi í ganglimina.
A morgun, sunnudag kl. 17
halda nemendur í Tónlistarskól-
anum tónleika í Gamla bíói þar
sem blandað efni verður á boð-
stólum og á mánudaginn kl. 19
verða vortónleikar sama skóla í
Austurbæj arbíói.
Á þriðjudaginn kl. 16 flytja
nemendur í Leiklistarskólanum
ljóðadagskrá um sjóinn og hafið
undir stjórn Guðrúnar Ásmunds-
dóttur. Þar verður boðið upp á
ljóðaflutning, söng og leik sem
byggður er upp í kringum smá-
sögu eftir Jónas Árnason. Heill
sé þér þorskur er yfirskrift dag-
skrárinnar. Þessi dagskrá verður
flutt þrisvar, á þriðjudag kl. 16 og
miðvikudag og fimmtudag kl. 21 í
Norræna húsinu.
Á þriðjudagskvöldið verður
svo boðið upp á Salí-kokkteil í
Norræna húsinu og stendur hana-
stélið yfir frá 20.30-23. Ekki er
hægt að segja til um innihald
drukksins því þarna munu nem-
endur úr skólunum fimm verða
með óvænta uppákomu.
Um næstu helgi, nánar tiltekið
á sunnudag, verður svo opnuð
sýning á verkum nemenda úr
Myndlista- og handíðaskólanum í
Gerðubergi og verður hún opin
allt fram á þjóðhátíð, 17. júní.
-ÞH.
1É7V7V OG
ÝEGLEGUR
Ergo-data stóllinn frá Drabert er stíl-
hreinn og sterkur. Hann verndar heilsu
þína. Hann er veglegur og óskaplega
vœnn vinnufélagi.
Þú situr rétt í Ergo-data stól. Hann
passar höfuð, herðar, hné og tœr og
allt þar á milli.
ISKRIFSJOFU HUSGOGN j:I
HALLARMÚLA 2. SÍMI 83509