Þjóðviljinn - 04.05.1985, Page 14
MENNING
Verðkönnun
á einkatölvum
Tölvuþjónusta sveitarfélaga óskar eftir upplýsingum
um einkatölvur og annan búnaö fyrir sveitarfélög,
stofnanir og fyrirtæki þeirra. Þetta er gert meö þaö fyrir
augum aö ná samkomulagi viö einhvern söluaðila til
aö lækka kostnað fyrir einstök sveitarfélög og fá fram
samræmingu í tölvubúnaði.
Miðað er viö, að vélbúnaður geti nýtt þann hugbúnað,
sem nú er verið að semja fyrir Tölvuþjónustu
sveitarfélaga auk ritvinnslu, töflureiknis og verkfræði-
legra útreikninga. Reiknað skal með, að afhending 50
véla með mismunandi fylgibúnaði fari fram á 2 árum.
Gögn verða afhent frá og með mánudegi 6. maí á
skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga að Háa-
leitisbraut 11,3. hæð.
Skýringarfundur verður haldinn 7. maí 1985 kl. 15 í
húsakynnum Sambands íslenskra sveitarfélaga,
Háaleitisbraut 11, Reykjavík, 4. hæð.
F.h. TÖLVUÞJÓNUSTU SVEITARFÉLAGA,
Logi Kristjánsson.
Dvöl í orlofshúsum Iðju
Iðjufélagar sem óska eftir að dvelja í orlofshúsum
félagsins í Svignaskarði, sumarið 1985, verða að hafa
sótt um hús eigi síðar en föstudaginn 17. maí.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu félags-
ins Skólavörðustíg 16.
Dregið verður úr umsóknum á skrifstofu félagsins 20.
maí kl. 16.00 og hafa umsækjendur rétt til að vera
viðstaddir.
Þeir félagar, sem dvalið hafa í húsunum á 3
undanförnum árum, koma aðeins til greina ef ekki er
full bókað.
Leigugjald verður kr. 2.500,00 á viku.
Sjúkrasjóður Iðju hefur eitt hús til ráðstöfunar handa
Iðjufélögum, sem eru frá vinnu vegna veikinda eða
fötlunar, og verður það endurgjaldslaust gegn fram-
vísun læknisvottorðs. Stjórn Iðju
Ástgeir Ólafsson (Ási í Bæ)
sem lést að heimili sínu aðfararnótt 1. maí sl. verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 7. maí kl. 15.00.
Friðmey Eyjólfsdóttir
Gunnlaugur Astgeirsson Ósk Magnúsdóttir
Kristín Ástgeirsdóttir Kári Gunntaugsson
Ólafur Ástgeirsson Freyja Gunnlaugsdóttir
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
Þorgríms G. Guðjónssonar
Rofabæ 29.
Lilja Björnsdóttir
Ragnheiður Þ. Anderson Mats Anderson
Hrafnhildur Þorgrímsdóttir Rafn Kristjánsson
Björn Ingi Þorgrímsson Jóhanna Jósefsdóttir
og barnabörn
Syngja í
Austurbœjar-
bíói
Skagfirskasöngsveitin, sem
nú hefur starfað í 15 ár, heldur
afmælistónleika í Austurbæj-
arbíói á morgun, sunnudag,
og hefjast þeir kl. 14.30.
Snæbjörg Snæbjarnardóttir
var fyrsti söngstjóri kórsins og
stjórnaði honum í 13 ár. Núver-
andi söngstjóri er Selfyssingurinn
Björgvin Valdimarsson. Olafur
Vignir Albertsson hefur frá upp-
hafi leikið undir söng kórsins og
verið honum hin styrkasta stoð.
Einsöngvarar með kórnum eru
þau Guðbjörn Guðbjörnsson og
Halla Jónasdóttir. Sigurður
Dementz hefur annast raddþjálf-
un.
Á söngskrá kórsins eru bæði
lög eftir innlend og erlend tón-
skáld. Meðal þeirra er lag, sem
Skagfirska söngsveitin á æfingu í vikunni. Mynd: E.ÓI.
Gunnar Reynir Sveinsson samdi í
tilefni af 15 ára afmæli Skagfirsku
söngsveitarinnar, við kostug-
legan texta eftir Halldór Laxness,
„Kærir bræður”, og annað eftir
söngstjórann, Björgvin Valdi-
mársson, við þjóðhátíðarljóð
Tómasar Guðmundssonar,
„Heim til þín ísland”. Kórinn er
nú skipaður 72 söngmönnum og
hafa allmargir þeirra sungið með
frá upphafi.
í sigti er að syngja á Selfossi á
Uppstigningardag og hinn 28.
maí er fyrirhuguð söngför til ítal-
íu. -mhg.
Síðari
tónleikar
Sinnhofer-
kvartettsins
Á sunnudaginn kl. 20.30
verða aðrir tónleikar Sinnhof-
er strengjakvartettsins f rá
Munchen í þessari heimsókn
og verða þeir í Bústaðakirkju.
Á efnisskrá tónleikanna verða
Strengjakvartett nr. 3 í Es-dúr
eftir katalónska tónskáldið Juan
Chrisóstomo de Arriga y Balz-
ola, Strengjakvartett í F-dúr ópus
96 eftir Ántonin Dvorak og
Strengjakvartett í F-dúr ópus 59,
1 eftir Ludwig van Beethoven.
Noregur
Musica Nova
Þrjú íslensk
verk frumflutt
Vls-a-vls
í Osló er nú starfandi norsk-
íslenskur vísnasönghópur sem
kallar sig Vis-a-vis. I honum eru
þrír íslendingar, þau Aðalsteinn
Ásberg Sigurðsson, Anna Pálína
Árnadóttir og Guðrún Ólöf
Gunnarsdóttir ásamt norðmann-
inum Geir-Atle Johnsen. Hefur
hópurinn starfað í tæpt ár og ma.
flutt dagskrá sem nefnist Island
gjennom viser.
Nú hefur hópnum boðist að
koma fram fyrir íslands hönd á
tveimur menningarhátíðum. Sú
fyrri er í Stafangri í Noregi dag-
ana 6.-12. maí og sú seinni í
HangÖ í Finnlandi um miðjan
júní. Að þessu loknu er Vis-a-vis
væntanlegur hingað til lands.
Kemur hópurinn fram á norrænu
vísnamóti sem haldið verður hér
á landi í lok júní en það hefur
hlotið heitið Visland ’85.
-ÞH.
Bjarni H. Þórarinsson myndlistarmaður hefur opnað sýningu á 18
olíumálverkum í Gallerí Borg við Austurvöll. Þetta er þriðja einkasýn-
ing Bjarna sem er reykvíkingur, fæddur 1947. Hann útskrifaðist úr
Myndlista- og handíðaskóla Islands árið 1977 og starfaði fyrstu árin
eftir það við Gallerí Suðurgata 7 sem nú hefur mátt víkja fyrir mannin-
um með kúluna. Sýning Bjarna stendur til 13. maí og er opin virka daga
kl. 12-18, en kl. 14-18 um helgar.
íslenska óperan
Hrönn syngur ó þriðjudaginn
í hádeginu á þriðjudaginn eftir Brahms og Wagner auk þess
verða tónleikar í íslensku óper- sem Hrönn syngur nokkrar óper-
unni. Þar flytja Hrönn Hafliða- uaríur. Tónleikarnir hefjast kl.
dóttir altsöngkona og Þóra Fríða 12.15 og standa í hálftíma.
Sæmundsdóttir píanóleikari ljóð
Á sunnudaginn kl. 17 verða
fimmtu og síðustu tónleikar
Musica Nova á þessu starfs-
ári. Þarbertiltíðindaaðfrum-
fiutt verða verk eftir þrjú ís-
lensktónskáld, þau Misti Þor-
kelsdóttur, Áskel Másson og
Jón Nordal.
Það er á stefnuskrá Musica
Nova að efla íslenska tónlistar-
sköpun og í því skyni hefur fé-
lagið pantað tónverk frá íslensk-
um tónskáldum. Þannig eru þessi
þrjú verk tilkomin. Á tónleikun-
um verða einnig flutt sönglög
eftir Árna Harðarson sem ekki
hafa áður verið flutt hér á landi.
Loks verða flutt þrjú sönglög
eftir Alban Berg.
Flytjendur á tónleikum Musica
Nova á morgun verða þau Páll
Eyjólfsson, Roger Carlsson,
* Anna Guðný Guðmundsdóttir,
Sigurður I. Snorrason, Sigrún
Valgerður Gestsdóttir, Hrefna
Eggertsdóttir og Joseph Fung.
-ÞH
BORGARNESDACAR
j LAUGARDALSHÖU 2.-5. MAÍ
Það verður mikið um að vera í Höllinni nú um helgina. Bæði laugardag og sunnudag verða
fjölbreytt skemmtiatriði. Þingmenn Vesturlands syngja á laugardagskvöld, tískusýningar
verða bæði laugardag og sunnudag og tónleikar á sunnudagskvöld.
Tívolí, golf, tölvufótbolti, vörukynning, bragðprufur, matur á einstöku kynningarverði og
margir lukkugestir valdir. Það er sannkölluð fjölskylduhátíð í Höllinni.
Opið kl. 13 - 22 laugardag og sunnudag.