Þjóðviljinn - 04.05.1985, Side 16
MENNING
Fugl sem flaug á snúru
NemendaleikhúsiðfrumsýnirnýttleikriteftirNínu Björk Árnadóttur
Alltfrástofnun Nemenda-
leikhúss Leiklistarskóla ís-
lands hefur sá siður haldist að
fenginn sé leikritahöfundurtil
að skrifa leikrit fyrir þá sem
eru að útskrifast hverju sinni
úrskólanum. Svpereinnig íár
og á þriðjudaginn frumsýnir
Nemendaleikhúsið nýtt leikrit
eftir Nínu BjörkÁrnadóttur
sem nefnist Fugl sem flaug á
snúru.
Að sögn höfundar fjallar þetta
leikrit um ástina, þörfina fyrir
hana og óttann við að rækta hana
auk þess sem ýmsar samlífsflækj-
ur koma við sögu. Þetta er í fyrsta
sinn sem Nína Björk skrifar fyrir
Nemendaleikhúsið en verk eftir
hana hafa verið sýnd hjá Þjóð-
leikhúsinu, Alþýðuleikhúsinu og
Leikfélagi Akureyrar.
Helga Hjörvar skólastjóri LÍ
sagði að þessi siður að panta ís-
lensk leikrit helgaðist af tvennu.
Annars vegar vildi skóiinn nýta
sér þá grósku sem er í íslenskri
leikritun þessi árin, hins vegar
væri erfitt að finna verk sem hæfir
útskriftarhópnum hverju sinni.
Það þyrfti að vera þess eðlis að
allir fengju nokkuð svipuð tæki-
færi, þe. hlutverkin þyrftu að
vera nokkuð jöfn.
Átta verðandi leikarar eru í
Nemendaleikhúsinu í ár og er
þetta þriðja verkefni þeirra í vet-
ur. Fyrst sýndu þau Græn-
fjöðrung í haust en undanfarið
hafa þau leikið í sýningu Leikfé-
lags Reykjavíkur á Draumi á
Jónsmessunótt eftir Shakespe-
are. í hópnum eru Alda Arnar-
dóttir, Barði Guðmundsson,
Einar Jón Briem, Jakob Þór Ein-
arsson, Kolbrún Erna Péturs-
dóttir, Rósa Þórsdóttir, Þór H.
Tulinius og Þröstur Leó Gunn-
arsson.
Leikstjóri í þessari sýningu er
Hallmar Sigurðsson, leikmynd er
eftir Grétar Reynisson og Ólafur
Örn Thoroddsen sér um lýsingu. sem flaug á snúru frumsýnt á fram í Lindarbæ sem hefur verið
Eins og áður segir verður Fugl þriðjudaginn og fara sýningar hellulagður af þessu tilefni.-ÞH.
Rjómatertur
Marsipantertur
Marsipantertur
Valhnetutertur
„Bolero'
Kiwitertur
Bananatertur
Brauðtertur
Snittur
Kransakökur
Kransakörfur
Pantið tímanlega
ísíma 77060