Þjóðviljinn - 11.05.1985, Blaðsíða 2
HVERNIG
ENDAST
LAUNIN?
Jóhanna Asgeirsdóttir
Kauphækkanir
strax
„Það gengur alls ekki vel. Mér
fínnst þetta alltaf vera erfiðara og
erfiðara“, sagði Jóhanna Ás-
geirsdóttir verslunarmaður.“
„Við eigum að semja strax um
einhverjar kauphækkanir. Ég
held að það sé vænlegra. Okkur
veitir alls ekki af því að fá ein-
hverjar kauphækkanir og við
verðum að fá þær strax“, sagði
Jóhanna. -Ig.
Björn Ingibjartsson.
Kauptryggingu
„Það er erfitt að lifa af kaupinu
í dag. Ég hef verið í siglingum
erlendis en mér sýnist að hér
gangi allt út á að vinna eins og
þrælar til að hafa ofan í sig. Þetta
getur ekki gengið svona, fólk
verður að hafa mannsæmandi
laun fyrir dagvinnuna“, sagði
Björn Ingibjartsson verkamaður.
„Það er alveg út í hött að hafa
kaupið óverðtryggt á meðan allt
annað í landinu er verðtryggt.
Menn verða að tryggja einhvern
varanlegan árangur í samning-
um. Þetta á að vera eins og hjá
siðuðum þjóðum þar sem menn
geta lifað af 8 stunda vinnudag.
Mér sýnist því miður að ekkert
gerist raunhæft í málum, það er
ekkert sem bendir til þess“, sagði
Björn.
-Jg-
Alþingi:
Byggðastefna
í bjórmálinu!
Hjörleifur Guttormsson lýsir stuðningi við bjórinn ef allir
landsmenn sitji við sama borð.
Það er greinilega orðið heitt
undir Engeyjarættinni.
Hvernig hafa menn hugsað
sér að fólk úti á landi, þar
sem ekki er áfengisútsala nálgist
bjórinn? Eiga menn að panta
hann eins og vínið nú og hver á að
bera kostnaðinn af dreifingunni?
Ég er hræddur um að það muni
þrengjast um á pósthúsunum þeg-
ar farið verður að dreifa bjórnum
þaðan um landsbyggðina“, sagði
Hjörleifur Guttormsson í umræð-
um um bjórinn á fimmtudags-
kvöld.“ „Þetta er spurning um
kostnað“.
Hjörleifur gerðist í umræðun-
um talsmaður „byggðastefnu í
bjórmálinu" og sagði að allsherj-
arnefnd og flutningsmenn frum-
varpsins slyppu of billega með því
að vísa á útsölu ÁTVR, þegar
spurt væri um dreifinguna. Hann
sagðist áskilja sér rétt til að end-
urskoða afstöðu sína eftir þeim
svörum sem hann fengi við þess-
um spurningum.
Hjörleifur sagðist að öðru leyti
telja rétt að samþykkja bjórfrum-
varpið nú og höggva á þann hnút,
sem bjórlíkissalan og sala áfengs
öls í Fríhöfninni hefði sett um-
ræðuna í. í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær sagðist Hjörleifur óttast
að sú tilhögun að dreifa bjórnum
aðeins um útsölur ÁTVR muni
þrýsta á opnun á slíkum útsölum
víðar eða að bjór verði seldur í
almennum verslunum. Því sagð-
ist hann andvígur eins og trúlega
flestir aðrir þingmenn. Þá sagðist
Hjörleifur að lokum ekki tala
fyrir munn annarra þingmanna
AB í þessu máli, þar hefðu menn
óbundnar hendur um afstöðu.
-AI
Bjórfrumvarp
Ekkert rætt við Albert
Sverrir Hermannsson: lög um Jarðboranir hf. fyrirþinglok. Albert: á
eftir að kynna sér málið.
Samningur um sameiningu
Jarðborana ríkisins og Gufu-
bors ríkis og borgar var undirrit-
aður í vikunni með fyrirvara um
samþykki borgarstjórnar og al-
þingis. Á blaðamannafundi í
fyrradag sagði iðnaðarráðherra
að hann hygðist leggja frumvarp
um þetta fyrir þingið og fá það
samþykkt fyrir þinglok í vor. Al-
bert Guðmundsson borgarfullt-
rúi og fjármálaráðherra sagði við
Þjóðviljann í gær að enn hafi ekki
verið rætt við sig um að ríkið yfir-
tæki 119 milljón króna skuldir
Jarðborana.
„Þessir pappírar voru lagðir
fram í gær í ríkisstjórninni og ég
er ekki farinn að lesa þá“ sagði
Albert í gær. „í borgarstjórn hef-
ur þetta ekki verið kynnt fyrir
mér. Það getur verið að borgar-
stjórnarflokkur Sjálfstæðis-
flokksins hafi fjallað um málið,
ég hef ekki mætt á alla fundi þess,
en það hefur ekki verið rætt við
mig sem borgarfulltrúa. Innan
ríkisstjórnarinnar vissi ég að
þessar umræður áttu sér stað, en
ég vissi ekki að það væri komið að
því að undirskrifa samninga."
Nú segir Sverrir að þetta muni
fara í gegnum þingið í vor? „Þá
hlýtur hann að vera búinn að
kynna sér það mál. Ég vil ekki
mótmæla því.“
Það þýðir að þitt samþykki
þarf til að koma?
Kráarlíf
Kópavogur
de Janeiro
Ríó heitir ný bjórkrá í Kópa-
vogi. Hún var opnuð með pompi,
pragt og veigum vel glýjaðra þýja
í gærkvöldi og er á Smiðjuvegi
eitt í sama húsi og Útvegsbank-
„Ég á eftir að kynna mér málið
og heyra frekari rök iðnaðarráð-
herra og borgarstjóra."
-m/ÁI
Rockall
Útlenskir eiga
líka rétt
Geir Hallgríms: reynum
samninga
„Leita ber samkomulags milli
Islands og annarra hlutaðeigandi
landa um endanlega afmörkun
landgrunnsins í samræmi við al-
mennar reglur þjóðarréttar“.
Þetta segir meðal annars í reglu-
gerð sem utanríkisráðherra Geir
Hallgrimsson gaf út í gær um af-
mörkun landgrunnsins og þar
sem lýst er yfir réttindum Islands
á Hatton-Rockall svæðinu.
íslendingar, Danir og Færey-
ingar hafa átt viðræður um sam-
eiginlega hagsmuni sína á um-
ræddu svæði en engar formlegar
viðræður hafa átt sér stað við
Breta og íra þar sem þeir vísa
kröfum íslendinga eindregið á
bug.
Nýlega lýstu Danir yfir kröfu
sinni til mikils hluta Hatton
Rockall svæðisins en af hálfu ís-
lendinga hefur það verið ítrekað
að þeir séu reiðubúnir til við-
ræðna og æski þess að ágreining-
ur verði leystur með samningum.
-aró
ínn.
-m
Hótel Borg
Samvinna í borgó?
Almennurfundurfélagshyggjufólksá
þriðjudag.
|y| álfundafélag félagshyggju-
fólks efnir til almenns fundar
á Hótel Hofí þriðjudaginn 14. maí
nk. og hefst hann kl. 20.30. Þar
verður til umræðu: Borgarstjórn-
arkosningar 1986 - Hvað gerafé-
lagshyggjuflokkarnir?
í freft frá félaginu er minnt á að
byggðakosningar verða eftir
rúmt ár og að undirbúningur
framboðslista flokkanna hefjist
senn. Á fundinum mun aðal-
frummælandi verða Magnús Ól-
afsson ritstjóri en auk hans þau
Adda Bára Sigfúsdóttir, Gerður
Steinþórsdóttir, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir og Snorri Guðmunds-
son. Fundarstjóri verður Kristín
Ástgeirsdóttir.
MALL
AF HVERJU
Þaö er ekki tilviljun aö Mallorca er einn eftirsóttasti sólarstaður í Evrópu. Á
Mallorca er allt gert til að gera fólki fríið sem skemmtilegast. Þar er allt fyrir
alla.
Umboö a Islandi fyrir
\ DINERS CLUB
*,‘r\ INTERNATIONAL
FERÐASKRIFSTOFA, IÐNAÐARHÚSINU HALLVEIGARSTÍG 1, SÍMAR 28388 - 28580
Brottfarardagar.
Mal: 27. - Júni: 17. - Júll: 8., 29. -
Agúst: 19. - Sept.: 9., 30. - Okt.: 21.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN