Þjóðviljinn - 11.05.1985, Qupperneq 8
100 ára minning
Pétur J. Hraunfjörð
Fœddur 12.5. 1885 - Dáinn 5.3. 1957
Heil öld - hvað er það, í huga
manns, gæti sköpun heimsins
hafa átt sér stað fyrir hundrað
árum. Svo ör hefur þróunin ver-
ið. Faðir minn var fæddur á Vala-
björgum í Helgafellssveit,
heiðarbýli langt frá byggðu bóli
og ekkert til að vefja hvítvoðung-
inn í annað en línskyrta af móður-
inni, sem var svo lasburða af
langvarandi næringarskorti að
hún mjólkaði drengnum ekki og
kýrin geld. Það var því horfið að
því ráði að næra hann á kapla-
mjólk.
Foreldrar Péturs voru Jón Jó-
hannesson, f. 1844 á Berserkseyri
í Eyrarsveit og Guðlaug Bjarna-
dóttir, f. 1853 í Hraunholtum í
Kolbeinsstaðahr. Árið eftir eru
þau komin að Horni ísömu sveit.
En flytja fljótlega þaðan og eru
komin í Hraunsfjörð árið 1888.
Þar bjuggu þau næstu 20 árin eða
til ársins 1908, að þau flytja að
Hallbjarnareyri í Eyrarsveit.
Snemma var Pétur Iánaður í
smalamennsku og hjásetu, sem
matvinningur. Honum féll ekki
vistin og þótti betra að vera
svangur heima í Hraunsfirði en á
öðrum bæjum. Á ellefta ári var
hann settur til sjós á opnum segl-
bát, var það harður skóli. Til að
byrja með skyldi hann vera kokk-
ur. Eldamennskan var fábrotin,
en þó of flókin fyrir 10 ára dreng,
því hver vildi fá þann fisk upp úr
pottinum, sem hann hafði lagt
sér.
Þetta var upphafið á sjó-
mennsku Péturs J. Hraunfjörðs,
sem átti eftir að vera næstu 30
árin og verða harðsótt með
köflum, því hann var þrekmaður
mikill og kappsamur, að hverju
. sem hann gekk.
Hann var bráðvel gefinn og
lauk „meira fiskimannaprófi”, og
var skipstjóri eftir það á þil-
skipum við Breiðafjörð og víðar,
eftir því sem ástæður leyfðu.
Kona hans var Ásta Kristjáns-
dóttir f. 6/6 1891, d. 27/7 1980 (f. í
Stekkjartröð í Eyrarsveit), hún
var vel gefin, dugnaðarkona og
manni sínum góður lífsförunaut-
ur. Af níu börnum þeirra hjóna,
komust 7 til fullorðins ára, 6 eru á
lífi.
Þau bjuggu víða og alltaf í þurra-
búð. Þegar Pétur var um fertugt
urðu miklar breytingar á högum
hans. Heilsan bilaði og nýr þáttur
hófst í lífi hans. Hann flytur til
Reykjavíkur, en verkamanna-
vinna var lítil og stopul. Hann
hafði verið í Sjómannafélaginu,
en gerist nú félagi í Verka-
mannafélaginu Dagsbrún, og var
brátt í hópi þeirra er harðast
börðust og beittu sér fyrir því að
fá kjör verkamanna bætt á sem
flestum sviðum.
Pétur taldi Dagsbrún sérstakt
kjörbarn sem á allan hátt væri
skylt að standa saman um. Fljót-
lega komst hann því í trúnaðar-
ráð félagsins. Hann var í senn al-
varlegur, fastur fyrir og sérstæð-
ur, sem og léttur í lund, kíminn
og félagslyndur, því sjaldan var
svo þröngt í búi, um hag hans og
heilbrigði að hann væri ekki log-
andi af ýmis konar áhuga fyrir
hinum margbreytilegu velferð-
armálum sínum og samfélagsins.
f stjórnmálabaráttunni stóð
hann ævinlega yst til vinstri og
átti létt með að tala á fundum og
flytja mál sitt. Áhugamál sín
ræddi hann í ljósi sterkrar trúar á
hið góða í manninum, þrátt fyrir
það, að honum dyldist ekki sú
varmennska sem og víða kemur
fram í sambýli mannanna. Rétt-
lætiskennd hans og jafnréttishug-
sjón var afar rík, var því mjög
auðskilið að hann var vinur og
baráttumaður smælingjanna,
skilyrðislaust, hvernig sem á
stóð. í eðli sínu var Pétur trú-
hneigður og elskur að ljóðum,
orti fjölda ljóða og vísna, sem
mörg bera vitni um trúhneigð og
mannvináttu.
Hulda Pétursdóttir.
(P.s. Opið hús verður í Útkoti á
Kjalarnesi sunnud. 12/5 milli kl.
15.00-17.00, ættarmót og þá fyrir
sem vilja heiðra minningu hins
látna.)
Sjúkraliðafélag
íslands
heldur ráðstefnu
laugardaginn 18. maí n.k. kl. 9.30 að Borgartúni 6,
Reykjavík. Ráðstefnan ber yfirskriftina:
Menntun sjúkraliða, starfssvið og staða þeirra í
heilbrigðiskerfinu.
Dagskrá:
kl. 9.30 setning - ávarp, Margrét Einarsdóttir for-
maður S.L.F.Í.
kl. 9.45 ávarp, Páll Sigurðsson, ráðuneytisstjóri.
kl. 10.00 Ragnheiður Guðmundsdóttir, augnlæknir.
kl. 10.20 Kristbjörg Þórðardóttir, skólastjóri Sjúkra-
liðaskóla íslands.
kl. 10.40 Gauti Arnþórsson, yfirlæknir fjórðungs-
sjúkrahúss Akureyrar.
kl. 11.05 Elsa Dýrfjörð, sjúkraliði.
kl. 11.20 Þór Halldórsson, yfirlæknir öldrunarlækn-
ingardeildar Landspítalans.
Matarhlé
kl. 13.20 Katrín Pálsdóttir, hjúkrunarkennari.
kl. 13.40 Lúðvík Ólafsson, heilsugæslulæknir.
kl. 14.00 Guðfinna Thorlacíus, hjúkrunarkennari.
kl. 14.20 Jóhannes Pálmason, framkvæmdastjóri.
kl. 14.40 Þorbjörg Ingvadóttir, sjúkraliði.
kl. 15.00 Kaffihlé.
kl. 15.30 Panelumræður.
kl. 17.30 Ráðstefnuslit.
Ráðstefnugjald kr. 650, innifalið: hádegisverður og
kaffi. Þátttaka tilkynnist fyrir 15. maí n.k. í síma 19570,
milli kl. 10 og 12.
Stjórnin.
Menntamálaráðuneytið auglýsir lausa til umsóknar
stöðu fulltrúa í skólaþróunardeild.
Vélritunarkunnátta eða reynsla af ritvinnslu áskilin.
Reynsla af bókhaldi, afgreiðslu reikninga og almennri
skrifstofuvinnu æskileg.
Umsóknarfrestur er til 27. maí 1985.
Umsóknum sé skilað til menntamálaráðuneytisins,
Hverfisgötu 4, 101 Reykjavík. Nánari upplýsingar eru
veittar í síma 26866 eða 25000.
Menntamálaráðuneytið auglýsir hér með lausar til
umsóknar námsstjórastöður á grunnskólastigi í:
Stærðfræði, heil staða, laus strax,
íslensku, heil staða, laus 1 sept.
samfélagsgreinum, heil staða, laus 1. sept.
Áskilin eru kennsluréttindi og kennslureynsla svo og
fagleg og kennslufræðileg þekking á viðkomandi
sviði.
Umsóknarfrestur er til 27. maí 1985. Umsóknum sé
skilað til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 4,
101 Reykjavík. Nánari upplýsingar eru veittar í síma
26866 og 25000.
Áttrœður
Alexander Guðjónsson
' ■ JL" ' *
velstjori
Alexander Guðjónsson er
fæddur að Geitagili í Rauða-
sandshreppi 12. maí 1905 sonur
hjónanna er þar bjuggu, Guðjóns
Bjarnasonar og Guðbjargar
Brynjólfsdóttur, bæði ættuð úr
Árnessýsiu og fluttu um alda-
mótin til Patreksfjarðar og þaðan
að Geitagili í Örlygshöfn.
Tvítugur að aldri kemur Alex-
ander til Hafnarfjarðar og fer í
iðnnám. Fimm árum síðar hefur
hann lokið bæði járnsmíðanámi
og prófi frá Vélstjórskóla ís-
lands. Á því ári 1930 giftist hann
heitmey sinni Sigrúnu Júlíu Sig-
urjónsdóttur, sem fædd er og
uppalinn í Hafnarfirði. Eignuð-
ust þau þrjár myndarlegar dætur
allar löngu giftar og eiga þær bæði
börn og barnabörn. Einn son
eignuðust þau en hann dó ný-
fæddur.
Eftir að hafa lokið vélstjóra-
námi var Alexander tvö ár vél-
stjóri á togara og hófst svo handa
ásamt fleiri hafnfirskum sjó-
mönnum um kaup á togaranum
Haukanesi og var hann jafnfrmt
vélstjóri á skipinu. Togarinn var
gerður út hér í Hafnarfirði með
samvinnusniði og var útgerðin
stofnuð til styrktar Bæjarútgerð
Hafnarfjarðar. Átti Alexander
sæti í stjórn fyrirtækisins allt til
ársins 1937, er hann gerðist þá
einn af stofnendum Raftækja-
verksmiðju Hafnarfjarðar. Var
það raunar í framhaídi af því að
Sogsvirkjun tók til starfa.
Arið 1941 stofnaði Alexander
ásamt tveimur öðrum mönnum
Blikksmíðaverkstæðið Dverga-
stein og veitti því forstöðu í mörg
ár. Einnig tókst hann á við fleiri
verkefni svo sem bílaviðgerðir.
Sem bóndasonur, nemi og tog-
arasjómaður kynntist Alexander
kjörum alþýðunnar. Réttlætis-
kennd hans og samúð með þeim
sem heyja erfiða lífsbaráttu
skipaði honum snemma í vinstri
arm stjórnmálanna.
Hann gerðist einn af stofnend-
um Sameiningarflokks alþýðu-
Sósíalistaflokksins og var einn af
forystumönnum Sósíalistafélags
Hafnarfjarðar. Gegndi hann
margvíslegum trúnaðarstörfum
fyrir félagið m.a. á þeim árum er
Sósíalistaflokkurinn var í meiri-
hlutastjórn Hafnarfjarðarbæjar
ásamt Alþýðuflokknum.
Alexander nýtur trausts og
virðingar þeirra er kynnast hon-
um enda hafa honum verið falin
ýmis trúnaðarstörf, svo sem
stjórnarforysta í Barðstrend-
ingafélaginu, Stangaveiðifélagi
Hafnarfjarðar og margt fleira.
Nú á áttatíu ára afmælinu vil ég
færa Alexander kærar þakkir
fyrir störf hans og ágætt samstarf
öll þau 19 ár sem hann vann hjá
mér á skrifstofunni í Bátalóni h/f.
Hans hógværa framkoma og
góða samvinna við alla, bæði
starfsmenn og viðskiptavini var
taustvekjandi og hafði mjög góð
áhrif bæði innanvið og útávið hjá
fyrirtækinu.
Þetta má eflaust meðal annars
þakka þeirri miklu reynslu af fé-
lagsstörfum, sem hann var mikið
búinn að vinna við áður en hann
fór að starfa í Bátalóni h/f og þá
orðinn nokkuð fullorðinn. Þessi
starfsreynsla hans á sviði félags-
mála var mér mikils virði, því ég
hafði lítið sem ekkert af félags-
starfi að segja, þegar ég stofnaði
fyrirtæki mitt með Jóhanni L.
Gíslasyni 1947 og hóf rekstur
Bátasmíðastöðvar Breiðfirðinga
er síðar varð Bátalón h/f.
Ég minnist þess að ég kynntist
fyrst Alexander Guðjónssyni all-
mörgum árum áður en hann fór
að vinna með mér á skrifstofunni.
Það var í fyrsta félagsstarfinu sem
ég tók þátt í og eitthvað reyndi á
og varð mér síðan ómetanlegur
skóli þegar ég fór sjálfur að reka
fyrirtæki. Þessi félagsmála-
reynsla mín sem mér er minnis-
stæð skapaðist þegar ég reynslu-
laus var kosinn í stjórn og stuttu
síðar formaður í stjórn Sósíalista-
félags Hafnarfjarðar. Þá voru
m.a. til umfjöllunar verkalýðs-
mál, stjórn bæjarins með A1 -
þýðuflokknum og stjórn Bæjar-
útgerðar Hafnarfjarðar þar sem
Kristján heitinn Andrésson,
skarpgreindur maður, var annar
forstjórinn.
Þarna í forystu félagsins taldi
ég vera ákaflega vel gefið fólk og
sumir háskólalærðir og litu á
mannlífið með ótrúlegu raunsæi.
í þessum félagsskap fékk ég
ómetanlega reynslu, líka vegna
þess hvað mér var þrýst fram í
félaginu, meir en líklega hefði
orðið í nokkru öðru félagi sem ég
hafði tekið þátt í hér í Hafnarfirði
og þessi reynsla var allt öðruvísi
en draga má ályktun af á síðum
Morgunblaðsins.
Þegar mesti framleiðslu- og
annatími Bátalóns h/f gekk yfir
og hafin var smíði á skipum fyrir
erlendan markað, var Alexander
starfandi þar á skrifstofunni. Þá
störfuðu hjá fyrirtækinu um 70
manns þegar flest var, en það var
á árunum upp úr 1970. Segja má
að ekki sæist þá fram úr verkefn-
um og pantanir voru minnst hálft
annað ár fram í tímann.
Þrátt fyrir mikið álag á skrif-
stofunni veit ég að Alexander
hefur líkað vel að starfa við þá
eflingu skipaiðnaðarins sem þá
fór fram. Ég veit að Alexander
minnist þessa tímabils er fram-
leiðslan og uppbygging Báta-
lóns h/f var óhindruð, áður en er-
lenda togarabylgjan skall yfir,
með mikilli ánægju, þótt heilsan
bagaði hann nokkuð, því að reisn
sinni í starfi hélt hann öll árin sem
hann starfaði með mér.
Fyrir starf hans, frábæra
samviskusemi og ágætt samstarf
færi ég honum kærar þakkirá
áttatíuára afmælinu. Konuhans,
dætrum, barnabörnum og öllum
hans nánustu óska ég til ham-
ingju með afmælisbarnið.
Þorbergur Ólafsson
Alexander verður að heiman á
afmælisdaginn.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 11. maí 1985