Þjóðviljinn - 11.05.1985, Qupperneq 10
DÆGURMÁL
Agnetha
alveg sœmó
Agnetha Fáltskog, Ijóshæröa
ABBAdísin, hefur á sinn hátt
unniö eilítinn sigur meö sóló-
plötunni Eyes of a Woman.
Ekki þaö beint að platan geisli
af frumleik og sköpunarmætti,
langt frá því, en hún er smekk-
leg. Agnetha virðist hafa ratað
á rétt form hvaö snertir tónlist,
hún kann sín takmörk og þaö
berað virða.
Mér þótti svolítið tragískt
hvernig fór fyrir hinni dísinni,
henni Fridu. Hún var alltaf í pínu
meira uppáhaldi hérnamegin, en
fór, eftir ABBAævintýrið mikla,
dálítið villt vegar í leitinni að
heppilegu „tónlistarformi“, og
týndist svo að segja alveg eftir
síðustu plötu sína. Var ekki sam-
kvæm sjálfri sér og tapaði. Leitt.
Hvað um það, Agnetha viður-
kennir að hún er „streit“ dægur-
lagasöngkona, vill hvergi annað
vera, og finnst sumum það eflaust
ágætt.
f öllu falli hefur þeim Agnethu
og Eric Stewart, fyrrum gítar-
leikara lOcc, en hann sá um upp-
töku, tekist bara upp fínt.
Eins og ég sagði áðan er Agga
ekki á leiðinni að deyja úr sköp-
unarþrá eins og allar ekta söng-
kvinnur gera oft í orðsins fyllstu,
það vantar þunglyndið, lífs-
leiðann og sorgina i brjósthol
hennar til að slíkt geti gerst. Þess
vegna eru bestu lögin á plötunni
þau sem einhver galsi og ponsu
fjör er í: Just One Heart, Click
Track, Save me (why don’t ya)
og, One Way Love gengur upp.
Ég segi það, að allir ABBA að-
dáendur ættu ekki að vera neitt
súrir út í hana þessa (að ógleymd-
um þeim sem vilja rifja upp kynn-
in af konunni „með fallegasta sitj-
andann í Evrópu"). Og ekki orð
um það meir.
-9'
Létfur hrollur en lítið ódó
Það er langt um liðið síðan Hitt
leikhúsið ákvaö aö slá í gegn
og setja á sviö þoppsöng-
leikinn Litlu Hryllingsbúð-
ina. Platan kom útskömmu
síðar og seldist það vel að hún
finnst örugglega á öðru eða
þriðja hverju heimili á landinu í
dag. Þess vegna ætti ég
kannski að sleppa því að
skrifa umsögn um hana, fólki
þykir hún skemmtileg hvorteð
er, án þess að hafa tekið mark
ámérfyrst...
Það skal tekið fram að einn
maður á meiri heiður skilinn um-
fram aðra sem koma nálægt þessu
sjói. En það er mærðardrengur-
inn Megas sem á sérstakan hátt
hefur tekist að snúa söngtextum
yfir í fyrna kjarngott bundið mál.
Þetta hefur mikið að segja, sér-
lega ef það er haft í huga að það
eru unglingarnir og börnin sem fá
hvað mest út úr þessum söngleik,
og læra margir utanað.
Tónlistin er dæmigert söng-
leikjapopp, létt og grípandi, og
ekki laust við að maður kannist
við sum stefin eftir að hafa séð og
heyrt söngleikinn Rocky Horror
Picture Show. Meira að segja eru
nótur fengnar að láni frá Jesú
Kristi súperstjörnu, en það er
bara vel.
Söngurinn er misjafn eins og
gefur að skilja. Björgvin Hall-
dórsson er áberandi bestur
söngvari í þessu sjói, hann gerir
plöntunni Auði II hörkufín skil
og virðist Bjöggi sífellt vera að
vaxa í söngnum, getur nú leyft sér
allan fjandann með böndin í sér.
Gamli gæinn seigur, (ætli hann sé
í Hrútsmerkinu?)...
Laddi töltir spottakorn á eftir
Bjögga, góður eigi að síður í
heilum hellingi hlutverka; það
viðamesta ódóið Ómar tannsi.
Rödd Eddu Bachman fellur
sem flís við rass í söng hjartahlýju
ljóskunnar heimsku, hún getur
sungið. Leifur Hauksson er í
einni stærstu rullunni, hann hefur
ekki sterka rödd, en samsamar
sig þægilega og býr yfir nokkrum
sjarma. Nirfilinn Músnikk syngur
Gísli Rúnar, og heldur lagi í hæs-
inu, sem þær þrjár í bakradda-
bandinu gera líka.
Sem sagt allir sleppa vel frá
sínu í söng. Spilerí er eins og það
á að vera, í höndum vanra
manna. Gítarinn nýtur sín vel í
söngleik sem þessum, tilviljun að
Björgvin Gíslason slær þar
strengi? Ásgeir Óskarsson alltaf
góður á trommur, Pétur Hjalte-
sted og Bjöggi fullkomna bandið,
allt í góðu gengi.
Þetta er kannski ein af
skemmtilegri „barna- og
unglingaplötum" sem hér hefur
verið gefin út, fyrir það fær hún
þrjú prik og eflaust nokkurt lang-
lífi.
-?
Phil Collins
Hefur
verið betri
í menningunni sl. laugardag
var umsögn um nýjustu sólóplötu
breska trommaransog söngvar-
ans Phils Collins. Inn í fyrirsögn-
ina slæddist orðið aldrei sem varð
til þess að fyrirsögnin var í al-
gjörri mótsögn við innihaldið.
Því miður fyrir Phil Collins átti
fyrirsögnin að hljóða svo: Jakka-
laus eður ei - hefur verið betri.
A
Þetta bjargar öllu
Brynhildur Þorgeirsdóttir: „Áætlunin hljóðar upp á að vinna í
Mynd: Valdís.
Sarnafil
„Þessi úthlutun þýðir að ég get
gert það sem ég hef ætlað mér að
gera og auðvitað er ég ánægð
með það.“
- Og hvað er það?
„Ég ætla að vera áfram í New
York þar sem ég var í fjóra mán-
uði í vetur. Þá vann ég á glerlist-
armiðstöð sem heitir New York
Experimental Glass Workshop.
Þar er vinnuaðstaða, gallerí og
kennsla undir einu þaki og allt
rekið á þeim grundvelli sem am-
eríkanar nefna „non-profit“. Það
virkar þannig að listamenn leggja
fram vinnu við miðstöðina og fá í
staðinn tíma á verkstæðinu til að
vinna að eigin list.
Til þess að þetta nýtist manni
þarf maður að leigja vinnustofu
------------------------------------------ þar sem hægt er að fullvinna
verkin og á því hafði ég ekki efni í
VIÐHALDSFRITT ÞAKEFNI Jf-"rS
haust, þ.e. ég fæ að vinna þar frítt
og þúsund dollara til efniskaupa.
Brynhildur Porgeirsdóttir fœst við gler og
stein, fékk 7 2 mánaða storfslaun
og œtlar að eyða þeim íNew York
Einn þeirra listamanna sem hlutu tólf mánaða starfslaun við
úthlutun í vikunni heitir Brynhildur Þorgeirsdóttir. Hún tilheyrir
yngri kynslóð íslenskra listamanna og fæst við gler og skúl-
ptúra. Hún var að vonum harla ánægð með lífið þegar Þjóðvilj-
inn náði tali af henni að Kjarvalsstöðum þar sem hún varað
hengja upp verk sín á samsýningu íslenskra glerlistarmanna
sem verður opnuð í dag.
New York næsta vetur og halda þar sýningu næsta vor.“
Á ÞÖK - Á ÞAKSVALIR
Starfslaunin gera mér kleift að
leigja mér vinnustofu og nýta það
sem ég geri á þessum sex vikum.
Áætlunin hljóðar upp á að vinna í
New York næsta vetur og halda
þar sýningu næsta vor.“
- Hvað ertu að gera þessa
stundina?
„Ég hef verið á Korpúlfsstöð-
um undanfarnar vikur að vinna
úr því sem ég gerði í vetur vestra
og verð þar áfram í mánuð eða
svo en þá fer ég aftur út.“
Brynhildur hefur haldið sýn-
ingar hér á landi og erlendis en
hún stundaði framhaldsnám í San
Francisco og Hollandi. Verk
hennar hafa vakið töluverða at-
hygli og hrifningu enda nýstárleg.
„Dýrin hennar Brynhildar"
nefndi einn kollega hennar á
Kjarvalsstöðum verkin og Bryn-
hildur segir að þau séu bara einn
af þjóðflokkunum sem þrífst á
þessari jörð.
-ÞH
FAGTÚN HF. LÁGMÚLA 7, 105 REYKJAVÍK, SÍMI 28230 22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 11. maí 1985