Þjóðviljinn - 22.05.1985, Síða 1
ÞJÓPMÁL
MENNING
Ráðgjafarnir
Kolvitlausar spár!
r
Iumræðum á alþingi i fyrra-
kvöld vakti Svavar Gestsson at-
hygli á þeim dómi sem Vinnuveit-
endasamband íslands hefur fellt
yfir Þjóðhagsstofnun og spám
hennar um þróun og framvindu í
íslenskum efnahagsmálum. Þetta
er, sagði Svavar, ein fróðlegasta
samantekt á vinnubrögðum Þjóð-
hagsstofnunar sem ég hef séð og
sýnir að þær upplýsingar sem
stjórnvöld byggja ákvarðanir
sínar á eru mjög veikar og ekki
traustvekjandi. Stofnanir sem
þessar hafa alltaf tilhncigingu til
að vera svartsýnar í spám sínum
og þegar við völd er ríkisstjórn
eins og sú, sem nú situr, tekur hún
slíkar spár sem heilagan sann-
leika og notar til að keyra niður
kaupið.
Svavar rakti nokkrar tölur úr
ársskýrslu VSÍ úr töflu yfir þjóð-
arbúskapinn 1984, annars vegar
þjóðhagsáætlun og hins vegar
það sem í rauninni varð.
Árið 1984 spáði Þjóðhags-
stofnun 4% samdrætti í einka-
neyslu. Raunin varð aukning um
3%. Munurinn er 7%. Þjóð-
hagsstofnun spáði samdrætti
Svavar Gestsson: Spárnarfrá Þjóðhagsstofnun sem
notaðar eru til að keyra kaupið niður hafa engan
veginn staðist
fjármunamyndunar um 5,5%,
niðurstaðan varð aukning um
6,9%. Munurinn er 12-13%.
Þjóðhagsstofnun spáði því að
þjóðarútgjöld myndu dragast
saman um 4,3% á árinu 1984 en í
reynd jukust þau um 6,3%. Mun-
urinn er 10,5%. Þjóðhagsstofnun
spáði því að verg þjóðarfram-
leiðsla mundi minnka um 2,4% á
árinu 1984 en hún jókst um 2,7%.
Munurinn er 5,1%. Þjóðhags-
stofnun spáði því að viðskipta-
jöfnuðurinn yrði óhagstæður um
0,2% af þjóðarframleiðslu.
Niðrustaðan varð 6%. Þetta
sýnir, sagði Svavar, að þau
stjórntæki sem stjórnvöld hafa
við að styðjast í efnahagsmálum
eru veik og ekki traustvekjandi.
-ÁI
Forsendur þess sem gerist t.d. í
samningum er að meira og minna
leyti byggt á áætlunum Þjóðhags-
stofnunar. Þessi mynd af áætlun
Þjóðhagsstofnunar annars vegar og
raunverulegri útkomu hins vegar
sýnir glöggt hversu langt frá sanni
þessarforsendur eru. (Myndin birtist í
Ársskýrslu Vinnuveitendasambands
íslands).
Þjóðarbúskapurinn 1984
Þjóöhagsáætlun f. 1984
Útkoma (bráöab. tölur)
Magnbreytingar frá fyrra ári í %
Einkaneysla
Samneysla
Fjármunamyndun
Birgðabreytingar
Þjóðarútgjöld
Útfl. vöru og þjónustu
Innfl. vöru og þjónustu
Verg þjóðarframleiðsla
Viðskiptajöfn. í hlutf. af VÞF 0,2]
Heimildir: Þjóðhagsáætlun f. 1984, Þjóðhagsstofnun <
BHM
Oddamann vantar
Þrír menn hafa neitað að vera oddamenn
í úrskurðarnefnd um deilu BHM og ríkis
Ekki hefur enn tekist að full-
skipa nefndina, sem úrskurða
á í deilumálum ríkissjóðs og
BHM. Aðilar hafa hvor um sig
tilnefnt einn mann, en þrír menn
hafa neitað að vera oddamenn.
Er nú verið að bera víurnar í
þann fjórða. Nefndin tekur til
starfa strax og tekist hefur að fá
oddamann.
Þetta kom fram á alþingi í gær,
þegar forsætisráðherra svaraði
fyrirspurn Guðrúnar Helgadótt-
ur um flótta háskólamenntaðra
manna úr þjónustu ríkisins.
Sagðist forsætisráðherra sjálfur
hafa lagt að mönnum að taka
þetta verkefni að sér en án árang-
urs enn sem komið er.
Samkvæmt upplýsingum Al-
berts Guðmundssonar fjármála-
ráðherra hafa þessir menn neitað
að vera oddamenn í nefndinni:
Klemens Tryggvason, fyrrum
Hagstofustjóri, Jón Sigurðsson,
forstjóri á Grundartanga, og
Brynjólfur Sigurðsson, fyrrum
Hagsýslustjóri.
BHM hefur tilnefnt Stefán Ól-
afsson formann launamálaráðs í
nefndina og fjármáiaráðherra
hefur tilnefnt Indriða Þorláksson
sem sinn fulltrúa.
-ÁI
sís
Erlendur beygði Val!
Ekkibreið samstaðaumValsemforstjóra. GuðjóniB. boðinstaðaneftir maraþonfund.
Þetta er besta veður sem hægt
er aö fá á vorin. Það var hæð
yfir landinu eða rétt við það og
henni fylgdi þetta blíðskapar-
veður, upplýstu yeðurfræðing-
ar á Veðurstofu íslands. Spáin
fyrir næstu daga er sú, að veðr-
ið er að breytast, hægviðrið að
fara yfir í norðanátt og það kóln-
ar í veðri. Á Suður- og Austur-
landi verður leftskýjað áfram og
þar verða menn lítið varir við
norðanáttina á daginn þegar
skólin skín en næturnar verða
kaldar. Fyrir norðan og vestan
verður afturámóti kalt og
skýjað. Ljósmyndina tók Einar
Ólason í þakklætisskyni fyrir
góða veðriö í gær.
Eftir fjórtán klukkustunda mara-
þonfund í stjórn SÍS í gær urðu
lyktir þær að ekki náðist breið sam-
staða um Val Amþórsson í embætti
forstjóra SÍS. Samkvæmt heimildum
Þjóðviljans neituðu þrír stjórnar-
menn af níu staðfastlega að samþyk-
kja Val, sem ákvað þá að draga sig í
hlé. Ákveðið var að bjóða Guðjóni B.
Ólafssyni stöðuna. Jafnframt gerð-
ustu þau merku tíðindi að stjórnin
samþykkti að forstjórinn skyldi eftir-
leiðis aðeins ráðinn til fimm ára, og
sömuleiðis að ráðning nýs forstjóra
svo og starfssamningur hans skuli
héreftir staðfest á aðalfundi.
Harðar deilur hafa verið innan
stjórnar Sambandsins um hver næsti
forstjóri eigi að vera. Erlendur Ein-
arsson hefur haldið fram Guðjóni B.
Ólafssyni, og hefur undanfarið beitt
ýmsa stjórnarmenn í SÍS miklum
þrýstingi til að samþykkja ekki Val.
Samkvæmt heimildum Þjóðviljans
hafði Erlendur vitneskju af því, að
Val myndi ekki fýsa til starfans nema
breið samstaða næðist um hann. Á
maraþonfundinum náðist ekki sam-
staða um Val, sem fyrr segir. Þrír af
níu stjórnarmönnum neituðu stöðugt
að samþykkja ráðningu hans. Sam-
kvæmt traustum heimildum Þjóðvilj-
ans voru þetta þeir Finnur Kristjáns-
son frá Húsavík, Ingólfur Ólafsson
frá Kron í Reykjavík og Þórarinn Sig-
urjtfnsson, alþingismaður Frantsókn-
arflokksins.
Þegar ljóst varð að þremenning-
arnir myndu ekki ljá Val atkvæði sín
dró Valur framboð sitt til baka undir
lok fundarins. Þrátt fyrir að ekki sé í
rauninni meirihluti fyrir Guðjóni B.
Ólafssyni í stöðuna var samþykkt að
bjóða honum hana eigi að síður að
Vali brottgengnum.
Þau merku tíðindi gerðust sömu-
leiðis, að stjórnin samþykkti tillögur
frá fulltrúaráðsfundi Kron, sem sam-
þykktar voru þar í framhaldi af til-
lögum Ólafs Ragnars Grímssonar á
aðalfundi Kron.
-ÖS