Þjóðviljinn - 22.05.1985, Side 6
Knattspyrnufelag
Bríetar Bjarnhéðinsdóttur
æfingar
Eftir rækilegar samningaviðræður hefur hin trausta
stjórn Knattspyrnufélags Bríetar Bjarnhéðinsdóttur
með þrautseigju og festu náð samkomulagi við for-
svarsmenn Knattspyrnufélags víðsýnna gáfumanna
um sameiginlega æfingatíma á Klambratúnsvelli (við
Lönguhlíð) á þriðjudögum kl. 17.30, fimmtudögum kl.
17.30 og laugardögum kl. 10.30.
Þjálfari félagsins Eiríkur Brynjólfsson stjórnar nú
Snæfellsnesúrvalinu en hefur yfirsýn með meistara-
flokksæfingum Bríetar gegnum síma og verður í fylk-
ingarbrjósti á lyftingaæfingum í helgarheimsóknum.
Bríet væntir þess að hver maður geri skyldusína!
Bakverðir allra landa, sameinist!
Islandi allt!
Stjórnin
Kennari
óskar eftir vellaunuðu starfi utan Reykjavíkur. Margt
kemur til greina.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Þjv.
Vorhappdrætti ABR
: 1985
vmmnfflr;
lirvdA
. mai
10,
1. I-ck'* li! \wn in-J«*liv>!>r.n»r
r.c' S.lii!v>iii:u(«-«V.:m - I .ikU.:: ,
lSMnl
2. (tli' lií K:m.li: .1 |k*:i>
: (»».4 í v^IuIhiv •’ KrnilH'rMi'mcr •'
| Hclíjr.it- * >,r.u;:i
Simvinnwcr/ij 1 .ikKVn 15.000
Ver
5. Dvil i wim:nt<u>i i KwíMuikIc
OiOckjt i OjniWNk.- -i v.om:
S.«minnuf>‘i.S.i l.ir.l.ui 15400
6. IhOI i «j«w:liiivi i K.irMuntic fft;.
OíAcívk i Oaiun.nku :i vepuir.
Siimiiimibiði I Ait-hýn 15.00
Fjökli
1AIþýfnjbii ndnl i Reykjávík;
Vinsamlegast gerið skil á heimsendum
happdrættismiðum í vorhappdrætti ABR hið
fyrsta, svo unnt verði að birta vinningsnúmer.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Blaðberar! Blaðberar!
Óskast sem fyrst á Seltjarnarnesi og í Skerja-
firði.
Takið daginn snemma og berið út í góða
veðrinu!
niðBHUINN
Síðumúla 6, Reykjavík.
Sími: 81333.
Útboð
Sveitarstjórn Eyrarhrepps óskar eftir tilboðum í að
Ijúka uppsteypu veggja og setja þak á íþróttahús
Grundarfjarðar.
Verkinu skal lokið 15. sept. 1985.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu sveitarstjóra í
Grundarfirði og hjá undirrituðum og verða opnuð hjá
sömu aðilum föstudaginn 31. maí 1985 kl. 11.00.
Arkitektastofan s.f.
Ormar Þór Guðmundsson og Örnólfur Hall
Borgartún 17, Reykjavík. Sími 26833.
ÞJÓDMÁL
Ákveðinn verði stuðningur ríkisins við listasafn Sigurjóns Ólafssonar, segir m.a. í tillögu Alþýðubandalagsins. Þessa
mynd tók Ijósmyndari Þjóðviljans, gel í júní 1980 af Sigurjóni heitnum við heimili sitt í Laugarnesi. Fremsta myndin heitir
Víkingurinn.
Þingmál
Úrbætur í
hagsmunamálum
myndlistarmanna
Fjórir þingmenn Alþýðu-
bandalagsins Svavar Gestsson,
Guðrún Helgadóttir, Hjörleifur
Guttormsson og Ragnar Arnalds
hafa lagt fram á Alþingi tillögu til
þingsályktunar um málefni
myndlistarmanna.
Segja þau í stuttri greinargerð
sem tillögunni fylgir að Myndlist-
arþing 1985 hafi komið fram með
margar ábendingar og tillögur í
málefnum myndlistarmanna,
sem nauðsynlegt sé að Alþingi
gefi gaum að.
Tillagan er þannig:
Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að skipa í samvinnu við
Samband íslenskra myndlistar-
manna nefnd er vinni tillögum
um úrbætur í hagsmunamálum
myndlistarmanna.
Bendir Alþingi á eftirfarandi
atriði sem rétt er að nefndin hafi
til hliðsjónar:
1. Að undirbúin verði stofnun
Launasjóðs myndlistarmanna
með tekjum eins og bent var á í
ályktun Myndlistarþings 1985.
2. Að fullgild aðild íslands að
Flórenssáttmála varðandi
flutning listaverka milli landa
verði tekin til athugunar og
ákveðin á næsta þingi.
3. Að samin verði drög að laga-
frumvarpi sem tryggi betur en
nú er gert að myndlistarmenn
fái notið réttar síns samkæmt
höfundalögum.
4. Að ákveðið verði hvernig ríkið
framvegis styður Listasafn Sig-
urjóns Ólafssonar.
5. Að sveitarfélög taki fullan þátt
í átaki til að efla myndlistar-
starfsemi.
6. Að Listaskreytingasjóður fái
það fjármagn sem honum er
ætlað samkvæmt lögum.
7. Að farið verði yfir tillögugerð
myndlistarmanna frá síðustu
árum og þær tillögur hagnýttar
sem nefndin kemur sér saman
um. Nefndin ljúki störfum svo
fljótt að unnt verði að taka álit
hennar til meðferðar á næsta
löggjafarþingi.
Kirkjulög
Messutíðni bundin í lögum
Stjórnarandstœðingar telja slíkt ekki eiga heima í lögum
Samkvæmt nýjum lögum um
kirkjusóknir sem samþykkt voru
á alþingi sl mánudag, er skylt að
messa á hverjum helgum degi þar
sem sóknarbörn eru fleirl en 600,
en á 8. hverjum helgum degi þar
sem þau eru færri en 600.
Breytingatillaga frá Ragnari Arn-
alds um að prófastar og prestar
hefðu meira frjálsræði í þessum
efnum var felld að viðhöfðu nafn-
akalli í efri deild. Með tillögunni
voru allir stjórnarandstæðingar í
deildinni auk Eyjólfs Konráðs
Jónssonar, en aðrir stjórnarliðar
voru á móti.
Þeir Helgi Seljan og Ragnar
Arnalds sögðu ákaflega óeðlilegt
að binda með svo smásmugu-
legum hætti í lög verkefni sókn-
arnefnda og messutíðni. Þeir
töldu eðlilegast að setja rúman
lagaramma um þessa hluti þannig
að kirkjan hefði á hverjum tíma
og hverjum stað vald í sínum mál-
um innan hans og bentu á að setja
mætti reglugerðir um einstaka út-
færsluatriði ef nauðsyn krefði.
Þessi sjónarmið urðu sem fyrr
segir undir í atkvæðagreiðslunni,
en frumvarpið var flutt sem
stjórnarfrumvarp að beiðni kirk-
uþings.
Annað frumvarp sem rekja má
til sömu rótar er stjómarfrum-
varp um sóknargjöld, sem nú er
komið til neðri deildar. Þar er
gert ráð fyrir að sóknargjöld geti
verið á bilinu 0,2-0,8% af út-
svarsstofni. Töldu stjórnarands- yrði úr til sókna þegar þörf væri á
tæðingar í efri deild að 400% miklum fjárveitingum vegna
munur á há- og lágmarki sóknar- sérstakra verkefna. Sú tillaga
gjalda væri of mikill og lagði Al- náði ekki fram að ganga í efri
þýðubandalagið til að stofnaður deild.
yrði jöfnunarsjóður sem veitt -Ál
Bjórinn
Jáin og
Þegar skýrt var frá því hér í
Þjóðviljanum hvernig atkvæða-
greiðsla í neðri deild um bjór-
frumvarpið fór, voru eingöngu
nefnd nöfn þeirra sem sögðu nei í
nafnakalli um 1. grein frum-
varpsins. Hér verður nú úr þessu
bætt og skráð nöfn allra þeirra
sem þátt tóku í atkvæðag-
reiðslunni.
Já sögðu 25 þingmenn. Þeir
voru: Ingvar Gíslason, Eggert
Haukdal, Ellert B. Schram, Frið-
rik Sóphusson, Guðmundur
Bjarnason, Guðmundur Einars-
son, Guðrún Helgadóttir, Gunn-
ar G. Schram, Halldór Ásgríms-
son, Halldór Blöndal, Hjörleifur
Guttormsson, Jóhanna Sigurðar-
dóttir, Jón Baldvin Hannibals-
son, Karvel Pálmason, Kristín
Tryggvadóttir, Kristín Halldórs-
dóttir, Kristín S. Kvaran, Einar
Guðfinnsson, Bragi Mikaelsson,
Neiin
Ólafur G. Einarsson, Pálmi Jóns-
son, Geir Hallgrímsson, Stefán
Guðmundsson, Steingrímur Her-
mannsson og Þorsteinn Pálsson.
Nei sögðu 14 þingmenn. Þeir
voru: Alexander Stefánsson,
Guðmundur H. Garðarsson,
Friðjón Þórðarson, Garðar Sig-
urðsson, Geir Gunnarsson, Guð-
mundur J. Guðmundsson, Guð-
rún Agnarsdóttir, Ólafur Þórð-
arsson, Páll Pétursson, Stefán
Valgeirsson, Steingrímur J. Sig-
fússon, Svavar Gestsson, Sverrir
Hermannsson og Þórarinn Sigur-
jónsson.
Einn þingdeildarmaður, Ragn-
hildur Helgadóttir tók ekki þátt í
atkvæðagreiðslu þessari, þar sem
hún var í ræðustól í efri deild.
Búist er við að þriðju umræðu
um bjórfrumvarpið í neðri deild
lj úki í vikunni og þá fer það til efri
deildar.
-Á1
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN