Þjóðviljinn - 22.05.1985, Síða 7
Vestrar undir
(smásjá)
Ha? John Wayne-myndir á kvikmyndahátíð? Einn af gestum
hátíðarinnar, Gerald Peary, kom með tvær í töskunni og sýndi í
gærkvöldi og fyrrakvöld. Þótt Jón væni leiki bæði í „The Man
who shot Liberty Valence" og „Stage Coach“ væri sönnu nær
að kalla þær John Ford-myndir eftir leikstjóranum; en Peary
þessi ræddi um kappana báða spaklega undan og eftir sýning-
unum í Menningarstofnun Bandaríkjanna á Neshaga og á vett-
vangi hátíðar í Austurbæjarbíó.
Gerald Peary er skriffinnur um kvikmyndir og prófessor í fræðunum
við Massachusetts-háskóla, aðdáandi Ford og Wayne, til vinstri í
pólitík og leggur í vestrana dýpri skilning en flestir gláparar. í spjalli
Kanans voru rakin átök siðmenningar og villimennsku í bestu vestrun-
um, félagsleg og sálræn; goðsagnirnar sem verða til og brotna niður,
samtímaathugasemdir vestrasmiðarins Ford um þjóðmál, siðferði og
menningu.
Mættir til að sjá og hlusta: ákafir vestraunnendur og rjóminn úr
kvikmyndaliðinu íslenska. Þjóðviljinn mætti í Menningarstofnun
Bandaríkjanna, smellti af nokkrum myndum, - og við gátum ekki stillt
okkur um að beita síðan skærunum. -m
Davíð Oddsson borgarstjóri afhendir Gunnari Smára Helgasyni hljóðmanni
viðurkenningu hátíðarnefndar.
Kvikmyndahátíð 1985
Gestagangur
við setningu
Kvikmyndahátíð rennur nú
sitt skeið á góðri fart og kvik-
myndafríkin sjást hvorki
heima hjá sér né í vinnunni. í
Austurbæjarbíói eru allt upp í
15 sýningar á dag í þremur
sölum og þeir albrjáluðustu
geta setið í bíó frá því um há-
degi og fram yfir miðnætti
þegarbestlætur.
Settning hátíðarinnar fór fram
í stóra salnum á laugardaginn kl.
14 að viðstöddu ýmsu stórmenni.
Hrafn Gunnlaugsson formaður
hátíðarnefndarinnar steig fyrstur
upp á svið en bauð síðan fornvini
sínum, Davíð Oddssyni að setja
hátíðina og afhenda sérstaka
viðurkenningu sem nefndin út-
hlutar nú í fyrsta sinn til einhvers
einstaklings sem þykir hafa
skarað fram úr í kvikmyndagerð
hér á landi. Fyrir valinu varð
Gunnar Smári Helgason sem á
stóran þátt í að styrkja þann
hlekk sem löngum hefur verið
hvað veikastur í íslenskum kvik-
myndum: Hljóðrásina. Auk
viðurkenningarinnar hlaut
Gunnar Smári 25 þúsund krónur.
Hann hefur hljóðsett ýmsar
myndir sem borið hefur hátt í ís-
lenska kvikmyndaævintýrinu og
nægir að nefna tvær þær nýjustu:
Gullsand og Hrafninn flýgur.
Næst kallaði Hrafn gesti hátíð-
arinnar upp á svið og fór þar
fremst í flokki Astrid Lindgren
höfundur ýmissa vinsælla barna-
bóka, þar á meðal Ronju ræn-
ingjadóttur sem var opnunar-
mynd hátíðarinnar. Leikstjóri
þeirrar myndar var einnig mættur
á svæðið: Tage Danielsson. Loks
ávarpaði þýski kvikmyndaleik-
stjórinn Hark Bohm bíógesti.
Og svo slökknuðu sljósin og
bíógestir hurfu á vit einhverrar
óskilgreindrar sænskrar fortíðar
þar sem þau Ronja og Birkir
koma skikk á óstýrláta feður
sína. -ÞH
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
I forgrunni mynd úr „Stage Coach“, sígildum John Ford frá 1939. Aftar kvikmundar að éta ost og drekka hvítvín í hlói hjá
Könunum á Neshaga: Gerald Peary, Þráinn Bertelsson, Friðrik Þór Friðriksson, Guðlaugur Bergmundsson, Gísli
Gestsson, Viðar Víkingsson. Yfir vötnunum: Hrafn Gunnlaugsson. (Mynd Valdís og félagar)
Sænsku heiðursgestirnir, Astrid
Lindgren og Tage Danielsson.
Astrid fór hlýlegum oröum um ís-
land og íslenska kvikmyndagerð
en nærvera hennar ein nægði til
að hræra hjörtun í ungum og
gömlum aðdáendum þessarar
snjöllu skáldkonu. Myndir: Valdís.
Þýski kvikmyndaleikstjórinn Hark
Bohm vitnaði í íslendinga-
sögurnarog Hrafn þýddi.