Þjóðviljinn - 22.05.1985, Side 9
MENNING
Kvennasagan
Vinna kvenna
íllOOár
Anna Sigurðardóttir höfundur bókarinnar
„Hrafninn skilar skó þvottakonunnar" heitir þessi fallega tréskuröarmynd
Barböru Árnason sem prýðir bók Kvennasögusafnsins. í sögu um jarteiknir
Jóns biskups helga segir frá því er þvottakonan Þórkatla tekur af sér skóna í
grimmdarfrosti við laugar. Hrafn flýgur burt með annan skóinn og Þórkatla heitir
á Jón biskup að hann leggi sér eitthvað til bjargar. Hann varð við áheitinu og
skilaði krummi skónum.
Filharmónía
er 25 óra
Flyfur Júdas Maccabeus Hdndels
Söngsveitin Fílharmónía á æfingu. Stjórnandi Guðmundur Einarsson.
Kvennasögusafn íslands,
sem er jafngamalt
kvennaáratugnum og því 10
ára gamalt, hefur gefið út
bókina „Vinna kvenna á
Islandi í 1100 ár“. Höfundur
bókarinnarerAnna
Sigurðardóttir,
forstöðumaður safnsins.
Bókin er tæplega 500 blaðsíður
að stærð með óvenjuítarlegri
heimilda- og nafnaskrá. Hún er
prentuð í Odda og seld í
Kvennasögusafninu, Hjarðar-
haga 26, Reykjavík. Bókina má
panta í síma 12204 og verður hún
send gegn póstkröfu fyrir 990
krónur.
í formála segir Anna m.a.:
„Saga kvenna birtist yfirleitt
aðeins sem leifturmynd eða
brotabrot innan um karlasöguna,
oft eins og í framhjáhlaupi eða
bara af því að sagan þarfnast
þess, svo sem títt er í
Islendingasögunum"....
Það er von mín, að bókin megi
stuðla að því að hlutur kvenna í
þjóðlífinu og þjóðarbúskapnum
gleymist ekki þegar næstu
kennslubækur í lslandssögu
verða samdar.
Efni bókarinnar er skipt í 23
kafla og fjallar sá fyrsti um
að mjög undanfarið og má nú sjá í
myndum hans sannferðugt lita-
spil ef hann vil það við hafa. En
það er mikil togstreita milli Iitar
og forma og er Einar oft á báðum
áttum í þeim efnum: Stundum er
eins og hann vilji brjótast út úr
þessu ákveðna formspili með
hjálp litarins, en þegar á reynir er
það formið sem ræður ferðinni og
lokar litinn inni eins og fanga í
búri.
Þetta er vandamál sem Einar
verður að glíma við og snýst um
það hvernig hann eigi að frelsa
formið eins og hann hefur frelsað
litinn. Enn sem komið er gefa á-
kveðnir drættir mynda hans enga
vísbendingu um það hvort hann
getur snúið sig úr viðjum þessarar
stöðlunar, né heldur hvort hann
muni hafa hug á því.
En e.t.v. er Einar ánægður
með verk sín eins og þau koma
almenningi fyrir sjónir í Gallerí
Borg. Það væri synd því enn sem
stéttaskiptingu og viðhorfin til
vinnuframlags kvenna. Síðan er í
hverjum kafla fjallað ítarlega um
einstök verksvið, húsmóðurinn-
ar, þjónustunnar, eldabuskunn-
ar, matseljunnar, o.s.frv. Einnig
um sjósókn kvenna, þvott,
saumaskap og skógerð, fatagerð
og matjurtarækt. Isíðari köflum
bókarinnar er fjallað um laun og
kjör kvenna fyrir og eftir siða-
skipti, fátæklinga íslands, kjör
verkafólks á 19. öld og á fyrri
hluta 20. aldar. Bókinni lýkur á
kafla um tímabilið eftir 1944
þegar vinnukonurnar hverfa af
sjónarsviðinu og nýjar stéttir
koma með nýjum störfum.
Bókin er prýdd miklum fjölda
ljósmynda og teikninga og eru
flestar þeirra, eða rúmur
fjórðungur, málverk Sigurlaugar
Jónasdóttur frá Öxney.
í formálanum hvetur Anna
lesendur til að senda
Kvennasögusafninu nýjar
upplýsingar og frásagnir af
vinnubrögðum ef þeim finnast
þær vanta eða vera aðrar en í
bókinni, svo og ef lesendur hafa
vitneskju um fleiri konur sem
höfðu sjálfstæða atvinnu af því að
selja kostgöngurum fæði eða
veita ferðamönnum næturgreiða.
Allar slíkar upplýsingar þiggur
safnið með þökkum.
komið er, eru málverk hans ekki
nægilega persónuleg. Þau eru of í
ætt við ný-klassík og síð-kúbisma
millistríðsáranna. Með stöðlun
formteikningarinnar eru þau eins
og holur hljómur þess franskætt-
aða þjóðlegheitastfls sem skaut
rótum í íslenskri list á kreppuár-
unum og staðfestist eftir stríð í
verkum September-manna.
Þessi stfll er orðinn of þekktur
og afdankaður Þótt hann hafi
verið kraftmikill í meðförum Þor-
valds Skúlasonar á stríðsárunum
og strax þareftir. Slíkt picassískt
20. aldar afbrigði af grísk-
rómverskum Miðjarðarhafsstfl
hefur einfaldlega runnið sitt
skeið. Hitt er þó Einari til bjargar
að oft bregður hann út af ritning-
unni og þá lifna málverk hans til
muna. Það er ljós sem þá kviknar
ætti auðveldlega að geta vísað
honum veginn til nýrra sigra.
HBR
Um þessar mundir eru liðin
25 ár frá fyrstu tónleikum
Söngsveitarinnar Fílharmón-
íu. Afmælisins verður minnst
meðýmsum hætti og fyrstog
fremst með tónleikum þann
30. maí n.k. í Háskólabíói. Á
tónleikunum flytur Söngsveit-
in oratóríuna Judas Macca-
bæuseftirG.F. Hándel með
Sinfóníuhljómsveit íslands.
Einsöngvarar eru Sigrún
Hjálmtýsdóttir, Sigríður Ella
Magnúsdóttir, Jón Þorsteinsson
og Robert Becker. Stjórnandi er
Guðmundur Emilsson.
Þessir tónleikar eru jafnframt
framlag Söngsveitarinnar Ffl-
harmóníu og Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar til 300 ára afmælis
G.F. Hándels, sem minnst er á
þessu ári.
Gefinn hefur verið út vandað-
ur afmælisbæklingur í tilefni af-
mælis Söngsveitarinnar. Þar er
m.a. getið allra verka sem Söng-
sveitin hefur flutt á starfsferli sín-
um og ýmissa atriða í starfi og
sögu hennar getið á máli og
myndum. Gamlir félagar og vel-
unnarar kórsins sem hafa áhuga á
að eignast afmælisbæklinginn
hafi samband við Önnu Maríu (S:
74135), Elínu (S: 31628) eða
Margrét (S: 42724).
Loks er að geta þess, að starfi
vetrarins lýkur með veglegu af-
mælishófi, sem haldið verður að
HótelEsjuþ. 31. maín.k. Gamlir
félagar eru minntir á tónleikana
og einnig hvattir til að taka þátt í
afmælishófinu og eru þá beðnir
að hafa samband við Dórótheu
(S: 16034), Rögnu (S: 44611) eða
Emmu (S: 75170).
Kaffií
Norrœna
Kaffistofa Norræna hússins
er vinsæll áningarstaður,
hvort sem menn eru á menn-
ingarreisum eða bara að rölta
í góð veðrinu. Nú í byrjun maí
var hún lokuð um skeið vegna
lagfæringa en nú hefur hún
verið opnuð á nýjan leik, mál-
uðíhólfoggólf.
Ýmsar nýjungar eru á döfinni í
rekstri kaffistofunnar og er m.a.
ætlunin að kynna matarmenn-
ingu Norðurlanda með því að
bjóða upp á smárétti frá hverju
landi. í sumar verða svo á boð-
stólum íslenskir réttir fyrir ferða-
menn og aðra. Sérréttur hússins
verða svonefndar Drammen-
pönnukökur með matarmikilli
fyllingu, kjöti, rækjum, sveppum
ofl, ásamt hrásalati. Áfram verð-
ur boðið upp á súpu, salat og
smurt brauð í hádeginu.
Undanfarin ár hefur rekstri
kaffistofunnar verið leigður út en
nú tekur húsið sjálft við rekstrin-
um undir stjórn Kristínar Egg-
ertsdóttir sem annaðist kaffistof-
una fyrstu tólf árin. -ÞH
Norrcena húsið
Duo Con-
certante
Samleikuráfiðlu,
gítarog lútuíkvöld
í kvöld, miðvikudag, kl.
20.30 gefsttónlistarunnend-
um kostur á að hlýða á sam-
leik tveggja danskra lista-
manna sem leika á hljóðfæri
sem ekki rugla reytum sínum
oftsaman. Þeireru KimSjö-
gren sem leikur á fiðlu og Lars
Hannibal sem leikur á gítar og
lútu. Saman heita þeir Duo
Concertante, og tónleikar
þeirra verða í Norræna hús-
inu.
Á efnisskránni eru bæði gömul
verk í upprunalegum búningi,
t.d. fiðlusónötur þar sem „basso
continuo“ er leikið á gítar eða
lútu og nýrri verk sem þeir hafa
umskrifað fyrir hljófæri sín. Duo
Concertante var stofnað árið
1980 og hefur síðan komið víða
fram á tónleikum og í sjónvarpi
auk þess sem þeir félagar hafa
leikið inn á tvær hljómplötur.
Þeir hafa hlotið ágæta dóma,
þykja hafa fjölbreytta tækni á
valdi sínu og vera ljóðrænir og
skemmtilegir. -ÞH
Lyfjabókin
ísafoldgefurút
danska
lyfjahandbdkfyrir
almenning
ísafoldarprentsmiðja h.f. hef-
ur gefið út bókina Lyfjabókin
eftir danska lækninn og lyfjafr-
æðinginn Niels Björndal. Bókin
hefur að geyma upplýsingar um
algengustu lyf og lyfjasamsetn-
ingar á íslandi. Bókin er þannig
uppbyggð að í upphafi eru al-
mennar upplýsingar um lyf, notk-
un þeirra og geymslu, svo og regl-
ur um afgreiðslu lyfja. Síðan er
öllum lyfjum gerð skil, hvað þau
eru, til hvers þau eru notað og
hverjar hugsanlegar aukaverka-
nir eru. Þá er þess getið ef sömu
lyf eru seld undir mismunandi
heiti.
Finnbogi Rútur Hálfdánarson
og Guðrún Edda Guðmunds-
dóttir lyfjafræðingar þýddu bók-
ina úr dönsku.
Mi&vikudagur 22. mai 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9