Þjóðviljinn - 22.05.1985, Page 14
FRÉITIR
Athugasemd
Enn um
Regnbogann
f Þjóðviljanum 4. maí s.i. var fjall-
að um flutninga skipafélagsins Rain-
bow N avigation og m. a. vitnað til Ax-
els Gíslasonar forstjóra skipadeildar
Sambandsins. Vegna þessara skrifa
hafa umboðsmenn bandaríska félags-
ins óskað að fram komi að Rainbow
Navigation hafi aldrei undirboðið
neina flutninga, hvorki til né frá ís-
landi. Benda þeir á að Axel hafi ekki
nefnt neinar tölur eða staðreyndir
máli sínu til stuðnings. l eir vilja og
vekja athygli á að Rainbow Navigati-
on sé einkafyrirtæki án tengsia við
bandaríska ríkið. Þar með sé ekki við
það að sakast heldur bandaríska lög-
gjöf, vilji menn deila á einokunarað-
stöðu þess í flutningum fyrir varnar-
liðið.
—b
Þjóðmál
Dreifbýlið,
háskóli
reifaði hvar tjaldstæðin ættu að
vera, hversu mörg, og hvers kon-
ar. Hjólhýsi hafa verið til vand-
ræða, það ætti ekki að planta
hjólhýsum inni á sjálfu svæðinu,
það hefur myndast einhvers kon-
ar sumarbústaðahverfi og þarf að
koma upp skipulagi utan skipu-
lagsins fyrir hjólhýsi. Einnig þarf
að efla gæslu á svæðinu til að
veita „svörtu sauðunum" mót-
stöðu.
Sumarbústaðir og girðing lóð-
anna í kringum þá, jafnvel alveg
niður að vatnsbakka, eru ekki
æskilegt fyrirbæri innan Þing-
vallasvæðisins, enda brýtur það í
bága við náttúruverndarlög að
girða svæði niður að vatnsbakka,
það hamlar umferð í kringum
vatnið. Við þurfum að einblína á
það að þetta svæði er eign allrar
þjóðarinnar og nýttur af almenn-
ingi, sérstaklega þegar litið er á
þá staðreynd að helmingur þjóð-
arinnar býr á þeim hluta landsins,
sem er í einungis klukkustundar
aksturs fjarlægð frá staðnum.
Síðastliðið sumar var byrjað að
bjóða upp á ferðir með leiðsögu-
mönnum um svæðið. í bígerð er
að gefa út bæklinga og síðan að
merkja svæðið vel svo að fólk geti
farið sjálft og fræðst um þennan
helgistað íslands". -SP.
og þróun
Vorfundur kjördæmisráðs Al-
þýðubandalagsins í Norðurlands-
kjördæmi eystra lýsir fullum
stuðningi við baráttu bæjar-
stjórnar Akureyrar fyrir útibúi
frá Háskóla íslands og að fyrir-
huguðu þróunarfélagi verðival-
inn staður á Akureyri. Alþýðu-
bandalagið bendir á nauðsyn þess
að tekin verði upp gjörbreytt
stefna í sambandi við dreifingu
þjónustustarfsemi um landið.
Tali er að allt að % hlutar nýrra
starfa á næstu árum verði til í ým-
iss konar þjónustu. Því er ljóst,
að, ef landsbyggðin fær ekki stór-
aukna hluteild í þessari atvinnu-
grein, mun enn síga á ógæfuhlið-
ina í byggðaþróun í landinu með
vaxandi fólksflótta af lands-
byggðinni til höfuðborgarsvæðis-
ins. Alþýðubandalagið skorar á
stjórnvöld að sýna nú viljann í
verki með því að ákveða nú þegar
að háskólakennsla verði hafin á
Akureyri haustið 1986 og að
styðja framkomna tillögu á Al-
þingi um að fyrirhuguðu þróun-
arfélagi verði valinn þar staður.
Síðastliðið sumar var byrjað að bjóða upp á ferðir með leiðsögumönnum um Þingvallasvæðið. Þorleifur Einarsson
formaður Landverndar á innfelldu myndinni.
Landvernd
Þingvellir eign
allrar þjóðarinnar
Þorleifur Einarsson jarðfrœðingur: „Ráðstefnan heppnaðist
vel. Það þarfað veita svörtu sauðunum mótstöðu.
Sumarbústaðir óœskilegir innan Þingvallasvœðisins
Um síðustu helgi gekkst Land-
vernd fyrir ráðstefnu um
Þingvelli, framtíð og friðun Þing-
vallasvæðisins. Þorleifur Einars-
son jarðfræðingur flutti setning-
arræðuna, forseti Islands frú Vig-
dís Finnbogadóttir ávarpaði ráð-
stefnugesti og síðan voru flutt sjö
framsöguerindi.
„Ráðstefnan heppnaðist vel og
ég tel að hún hafi orðið að gagni
um framtíð og friðun Þingvalla-
svæðisins, og einnig um áætlun á
framtíðaskipulagi svæðisins“,
sagði Þorleifur Einarsson jarð-
fræðingur þegar Þjóðviljinn hafði
samband við hann.
„Guðmundur Ólafsson forn-
leifafræðingur hafði framsöguer-
indi m.a. um að lítið hafi verið
unnið að fornleifauppgreftri á
svæðinu, það þarf að gera forn-
minjakönnun og skrá yfir forn-
minjarnar til að gera áætlun um
Lórantæki á Egilsstaði
inn 9. maí afhentu forráða-
menn Radíómiðunar h.f. á
Grandagarði í Reykjavík forystu-
mönnum björgunarsveitar SVFÍ,
Gró á Egilsstöðum, að gjöf lóran-
tæki til notkunar í snjóbíl björg-
unarsveitarinnar.
Eins og kunnugt er kom í ljós í
björgunarleiðangri Gróar á
Vatnajökli í mars s.l. hversu
nauðsynleg slík tæki eru við leit á
jökli.
SVFl og björgunarsveitin Gró
þakka gefendum höfðinglega
gjöf-
frekari uppgröft. T.d. væri fróð-
legt að vita hvernig búðir hafa
litið út, í gegnum tíðina, það hef-
ur aldrei verið kannað, og um
Lögberg vitum við ekki neitt.
Pétur M. Jónasson vatnalíffræð-
ingur gerði góða grein fyrir um-
hverfisþáttunum, m.a. þegar
vatnið hækkar og lækkar fyrir
áhrif Sogs-virkjar.a, sem hefur
miður góð áhrif á lífríki Þing-
vallavatns. Eyþór Einarsson for-
maður Náttúruverndarráðs kom
með þá tillögu að friðunarsvæðið
yrði stækkað, umhverfið er illa
farið af uppblæstri vegna of mik-
ils álags á beitiland. Hugmynd er
uppi um að stækka fólksvanginn
verulega svo hann gæti tengst
Bláfjallasvæðinu. Finnur Torfi
Hjörleifsson lögfræðingur kom
fram í hlutverki leikmannsins og
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
óskar að ráða hjúkrunarframkvæmdastjóra frá 1.
september n.k.
Umsóknarfrestur er til 14. júní 1985.
Umsóknir sendist til hjúkrunarforstjóra, sem veitir
upplýsingar í síma 96-22100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri..
Aðalfundur S.Í.F.
Aðalfundur Sölusambands íslenskra fiskfram-
leiðenda fyrir árið 1984 verður haldinn að Hótel Sögu
dagana 5. og 6. júní nk. og hefst kl. 14.00 e.h.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda.
MINNING
Bjöm Ingvar Helgason
Hrappsstöðum Vopnafirði
F. 30. mars 1929 — D. 5. maí 1985
Ég vil minnast þessa manns
sem oftast var kallaður Ingi, þeg-
ar ég heyrði lát hans hljóma í
eyrum mínum fannst mér ský
draga fyrir sólu.
Nú hefur góður nágranni minn
kvatt þetta líf og tæplega getað
heilsað sumri og sól. Frá vöggu til
grafar verður þetta sem stuttur
dvalarstaður hér á jörð. Ég vil
þakka honum góð kynni bæði
fyrr og síðar. Er komið var á
Hrappstaði var hann ávallt ljúfur
í lund og tók á móti sveitungum
sínum og nágrönnúm með glöðu
geði sem ekki var hægt að
gleyma, fór hann ljúfum orðum
við þá sem hann sóttu heim. Þeg-
ar þessi stund kemur þá er tæp-
lega hægt að kveðja vini og kunn-
ingja sem hefðu viljað fá hlý orð
og handtak. Ég á ekki mynd af
honum en hann er greyptur í
huga mér eins og ég man eftir
honum. Enn lifa eftir minningar í
hjörtum þeirra sem þekktu hann
að góðum dreng. Vil ég þakka öll
liðin ár er hann dvaldi með okkur
hér heima. í vinahópi var hann
glettinn og allir sem þekktu hann
urðu kunningar hans og þegar við
kvöddum hann var handtak hans
fast og traustlegt. Far heill, þér
fylgi kraftur hins besta sem er til.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
Þýtt S.E.
Kristján Jósefsson
frá Sirakstöðum
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 22. maí 1985