Þjóðviljinn - 22.05.1985, Page 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
Miðvikudagur 22. maí 1985 114. tölublað 50. árgangur
DJÓÐVILJINN
Kartöflubirgðir
80% uppskemnnar óseld!
Kartöflubœndur
Guðni bóndi á
Við sitjum uppi með töluverðar
birgðir af kartöflum, sagði
Guðni Guðlaugsson kartöflu-
bóndi að Borg í Þykkvabænum.
Við reynum að selja eins og
hægt er og afgangnum verður síð-
íÞykkvabœnum sitja uppi með bróðurpart uppskerunnarfráþvíífyrra.
Borg: Ætlum ekki að bíða einsog ífyrra. Myndum sölusamtök í haust.
an hent. Það er búið að setja
hérna niður að mestu leyti en við
seljum aðallega á Reykjavíkur-
svæðinu og um síðustu mánaða-
mót var búið að selja um 20% af
haustuppskerunni. Sú tala á ör-
ugglega eftir að hækka eitthvað
en það er erfitt að segja fyrir um
það nákvæmlega.
Við höfum selt í verksmiðjuna
eins og hægt er það takmarkað
sem hún nýtir.
Við setjum niður jafnmikið af
kartöflum og í fyrra. Þetta er það
eina sem við höfum til að lifa af.
En hins vegar munum við ekki
sitja og bíða einsog við gerðum
síðasta haust þar eð við vildum
Sementverksmiðjan
Ný
pökkunar-
vél
Vélin pakkar 100
tonnum af
sementspokum á
klukkustund
Fyrir skömmu var tekin í notk-
un ný og afkastamikil pökkunar-
vél hjá Sementsverksmiðju ríkis-
ins á Akranesi. Vélin raðar sem-
entspokunum á bretti og pakkar
vatnsheldu plasti utan um allt
saman. Hún afkastar 100 tonnum
á klukkustund.
Ólafur Vilhjálmsson verkstjóri
hjá Sementsverksmiðjunni sagði
í samtali við fréttamann Þjóðvilj-
ans að rnikill hægðarauki væri af
þessari vél varðandi allan flutn-
ing á sementi út á land. Áður
varð að breiða mjög vel yfir bfl-
pallana svo sementspokarnir
blotnuðu ekki ef rigndi. Nú gerist
þess ekki þörf, plastumbúðimar
utanum sementspokastæðunaeru
algerlega vatnsheld ar.
Áður unnu 9 menn við að staf.a
sementspokum á bretti, en vélin
leysir þá af hólmi, því pokarnir
koma nú á færibandi frá pökkun-
arhúsinu og vélin raðar þeim á
brettið og pakkar plasti yfir allt
saman sem fyrr segir. S.dór
Gott að losna við púlið, þetta ætlaði
mann alveg að drepa í bakinu sögðu
Skagamennirnir við nýju vélina.
-Mynd - S.dór
I
Kennarar
Heimir efstur
m
I
Igær lágu fyrir niðurstöður í
stjórnarkjöri Hins ísl. kennara-
félags. Kjörsókn reyndist 52.2%,
510 atkvæði bárust, þar af 477
gild.
I framboði til formanns voru
tveir, Kristján Thorlacius og
Gísli Ólafur Pétursson. Hlaut
Kristján kosningu með 325 at-
kvæðum.
Til stjórnar voru 22 í kjöri auk
formannsefna og hlutu þessir
kosningu: Kristján Thorlacius,
Ármúlaskóla, Heimir Pálsson
MH, Ómar Árnason MS, Þóra
Kr. Jónsdóttir, Hagaskóla,
Kristín Jónsdóttir FB, Gísli Ól,
Péturss. MK og Þorsteinn Gunn-
arsson, FA.
Af þeim mönnum sem ein-
vörðungu voru í framboði til
stjórnar hlaut Heimir Pálsson
langflest atkvæði. Á liðnum vetri
var hann í hópi hörðustu og ein-
örðustu manna í baráttu stéttar-
innar og ber fylgi hans vitni um að
hugur sé í kennurum og þeir stað-
ráðnir að krefjast réttar síns vafn-
ingalaust.
bsk
Sjá bls. 2
Gengið frá Pingvöllum
til Reykjavíkur
AJónsmessunni, 21. júní
næstkomandi gefst fólki kost-
ur á að taka þátt í göngu frá Þing-
völlum til Reykjavíkur, Sólstöðu-
göngunni sem svo heitir. Það er
Þór Jakobsson veðurfræðingur
sem á hugmyndina að þessari
göngu og hann á jafnframt hug-
myndina að Heimsgöngu, til
eflingar friðar í heiminum og
hugsar hann og aðrir þeir sem að
málinu vinna Sólstöðugönguna
sem upphaf heimsgöngu.
Lagt verður af stað frá Þing-
völlum snemma morguns og áætl-
að að koma til Reykjavíkur um
kvöldið. Áð verður víða á
leiðinni, þar sem boðið verður
uppá fjölbreytta dagskrá. Fólk
getur einnig komið inní gönguna
hvar sem er á leiðinni, eftir því
hvað fólk telur sig geta gengið
lengi. Framkvæmdastjóri Sól-
stöðugöngunni er Hrólfur Ölvis-
son. -S.dór
Samningar
VSÍ vill fund
Framkvæmdastjórn VSÍ ósk-
aði í gær eftir fundi með. stjórn
ASÍ og formönnum landssam-
banda innan þess til að ræða
staðu mála eftir form-
annráðstefnu ASÍ í fyrradag.
Fundartími hefur ekki verið
ákveðinn, „enda eigum við eftir
að bera okkur saman í þeim
hópi“ sagði forseti ASÍ í gær-
kvöldi. -m
ekki þáfara út ílausasölu. f haust
munum við fara af stað strax með
söluna þó ekki hver fyrir sig held-
ur er líklegast að kartöflubændur
í Þykkvabænum myndi með sér
sölusamtök. -aró
Húsnœðisvandinn
Reiðubúnir
til funda
Stjórnarandstaðan
hitti stjórnarflokks-
formennina að máli í
gœr. Hittast aftur í
dag. Ekkert útilokað
Ekki hefur ennþá komið fram
hvað þeir vilja, en þeir hafa hins
vegar lýst sig reiðubúna til við-
ræðna við okkur um einhverjar
aðgerðir, sagði Svavar Gestsson
formaður Alþýðubandalagsins í
samtali við Þjóðviljann í gær en
hann fór ásamt öðrum fulltrúum
stjórnarandstöðunnar á þingi til
fundar við Þorstein Pálsson og
Steingrím Hermannsson um
húsnæðisvandann í gærdag.
Ekkert kom nýtt fram á fund-
inum en í sjálfu sér hefur engum
tillögum okkar verið hafnað,
sagði Svavar. Aðeins gafst tóm til
stutts fundar í gær, en í dag munu
þessir fulltrúar stjómar og and-
stöðu hittast á ný til að ræða þessi
mál. —óg
Kvikmyndahátíð
Vel
af stað
Slegist um miðana á
flamenco-Carmen
Fyrstu þrjá daga kvikmynda-
hátíðarinnar hafa selst á sjötta
þúsund aðgöngumiðar. „Þetta
hefur farið ágætlega af stað þrátt
fyrir sólarblíðuna“, sagði fram-
kvæmdastjóri hátíðarinnar, Sal-
vör Nordal,- og venjulega eykst
aðsókn og áhugi eftir því sem á
líður hátíðartímann.
Carmen eftir Spánverjann
Saura er sú myndanna sem hing-
aðtil hefur vakið mestan áhuga.
Um hundrað manns urðu að
hverfa frá ellefusýningu í fyrra-
kvöld, en myndin verður sýnd
aftur í kvöld klukkan 23.20.
Carmen-sagan er hér sögð í um-
hverfi flamenco-dansara og þykir
viðburður þeim sem séð hafa.
Danska barnamyndin Ottó er
nashyrningur hefur einnig verið
vel sótt.
Myndirnar eru sýndar í Aust-
urbæjarbíói frá þrjú frammyfir
miðnætti. í dag em sýndar mynd-
irnar Harðsnúna gengið, Dan-
sinn dunar, Carmen, Engin leið
til baka, Grimmd og Ungliðarnir.
-m
Sjá myndir og texta frá hátið-
inni á síðu 7.