Þjóðviljinn - 12.06.1985, Blaðsíða 2
Kjör fiskvmnslufólks
Fanney Gunnlaugsdóttir Neskaupstað
Kaupið er allt of lágt
„Kaupið er allt of lágt, það að aðalmeinið,“ sagði Fanney
Gunnlaugsdóttir fiskverkunarkona hjá Síldarvinnslunni í Neskaup-
stað.
„Kröfurnar eru orðnar svo miklar í kringum verkunina á fiskinum
þannig að það er orðið ansi erfitt að standa í stykkinu og nánast alls
ekki hægt. Konurnar eru sammála um að þetta sé sífellt að verða
erfiðari vinna og þær eru orðnar voðalega þreyttar á þessu. f>ó þær
reyni allt sitt besta þá dugir það engan veginn til, fólk er orðið hálfút-
keyrt af vinnu, illa launaðri vinnu.
Pað verður að leggja aðaláherslu á hækkun tímakaupsins. Það er
það eina sem vit er í. Fólk vill fá hækkun á tímakaupinu. Ég get ekki
almennilega gert mér grein fyrir því hve lágmarkslaunin þyrftu að
hækka en það er alveg ljóst að eins og málin standa í dag þá er þetta allt
of alltof lítið," sagði Fanney Gurinlaugsdóttir.
-lg-
Elín Frímann Seyðisfirði
20 þús. algert lágmark
„Tímakaupið í fiskvinnslunni er allt of lágt. Það verður að hækka
þessa taxta en draga úr bónusinum. Það eru allir hér sammála um að
við þurfum mun hærri taxtakaup en minni bónus,“ sagði Elín Frímann
fískverkunarkona hjá Fiskiðjunni á Seyðisfirði.
„Það er búið að miða allt of mikið bónusinn en ekki tímakaupið og
fólk er orðið alveg útslitið af þessu kapphlaupi í bónusinum og fær
síðan inest lítið út úr þessu öllu saman.
Uppsagnarákvæðin eru alls ekki fullnægjandi en það hefur sem
betur fer lítið reynt á uppsagnir hér hjá okkur. Það sem mér finnst að
eigi að leggja aðaláherslu á í komandi samningum er að hækka kaupið
og lækka bónusinn.
Lágmarkslaunin eru algerlega óviðunandi og mér finnst krafa um 20
þúsund króna lágmarkslaun vera algert lágmark. Ég hreinlega skil
ekki hvernig ungar konur með börn á framfæri geta framfleytt sér á
þeim launum sem fiskvinnslan býður uppá. Það væri fróðlegt að sjá þá
uppskrift,“ sagði Elín Frímann.
-Jg-
Kristrún Arnarsdóttir Eskifirði
Orðin lægst launaða stéttin
„Menn eru ekkert yfír sig glaðir með launakjörin í fiskverkun. Fólk
er mjög óánægt með kaupið auk þess sem þetta er sífellt að verða
erfiðari vinna og meiri kröfur og sífellt krafist meira af verkafólkinu,“
sagði Kristrún Arnarsdóttir fiskverkunarkona í Hraðfrystihúsi Eski-
Ijarðar.
„Þetta er alveg sálardrepandi fyrir konurnar að standa allan daginn
og rýna ofan í Ijósaborðin fyrir þetta lélega kaup. Fólk þarf að fá
minnst 25 þúsund krónur á mánuði fyrir 8 tíma vinnudag, það er algjört
lágmark.
Það á að leggja aðaláhersluna á hærri laun í komandi samningum og
auðvitað kauptryggingu alveg skilyrðislaust. Uppsagnarfresturinn hef-
ur ekki brunnið eins á okkur og þeim fyrir sunnan því hér hefur verið
standandi vinna allt árið. En það er mikill urgur í fólki vegna launanna.
Fiskverkunarfólk er orðið lægst launaða stéttin í þjóðfélaginu á sama
tíma og kröfurnar eru að auka’st, en það er greinilega einskis metið í
launum,“ sagði Kristrún Arnarsdóttir.
-lg-
Svala Axelsdóttir Höfn Hornafirði
„Ekki hægt að vinna við þetta“
„Það eina sem hægt er að segja um launakjörin er að það er alls ekki
hægt að vinna við þetta eins og kjörin eru í dag. Álagið er það mikið en
launin léleg“, sagði Svala Axelsdóttir fiskverkunarkona hjá Fisk-
vinnslu Kaupfélags A-Skaftfellinga á Höfn í Hornafirði.
Það er í lagi að vinna í bónus ef menn geta unnið upp í toppinn en
það er bara alls ekki möguleiki, þannig að þetta streð gefur ekkert af
sér.
Mér finnst að það eigi að leggja aðaláhersluna á kaupið og kaup-
tryggingar í næstu samningum. Þó skömm sé frá að segja þá hef ég lítið
fylgst með því sem er að gerast en það verður að hækka kaupið. Mér
gengur engan veginn að lifa af þessum launum og ég get ekki ímyndað
mér að fjölskyldufólk geti það. Ég held að mönnum veitti ekki af
minnst 20 þúsund krónum á mánuði. Ég myndi kannski sætta mið við
það en það er ljóst að þetta er ekki neitt,“ sagði Svala Axelsdóttir.
-íg-
FRÉTTIR___________________
BÚH-salan
„Vilja ekki sjá
hvað við bjóðunT
Guðrún Lárusdóttir Stálskipum h/f: Bœjaryfirvöld hafa ekki skoðað
neitt tilboðfrá okkur ennþá. Samþykkja boðfrá öðrum án þess að við
fáum að leggja inn formlegt tilboð.
Mér finnst það merkilegt að
þeir skuli ekki vilja sjá hvað
við höfum að bjóða. Þcir hafa
ekki skoðað neitt tilboð frá okkur
ennþá né skoðað okkar veð, sagði
Guðrún Lárusdóttir framkvstj.
Stálskipa h/f í Hafnarfirði í sam-
tali við Þjóðviljann í gær, um þá
ákvörðun bæjaryfirvalda í Hafn-
arfirði að selja Hvaleyri h/f eigur
BÚH án þess að fá fyrst á borðið
tilboð frá þeim tveimur aðilum
öðrum sem hafa sýnt eigum BÚH
áhuga.
„Þeir eru greinilega búnir að
samþykkja boð frá öðrum án þess
að gefa okkur nein tækifæri til að
leggja inn formlegt tilboð. Við
fengum skuldalistann hjá bæjar-
stjóra en höfum ekki einu sinni
fengið tækifæri til að skoða eignir
fyrirtækisins. Okkar tilgangur
var alls ekki að eyðileggja neitt
fyrir öðrum en mér finnst merki-
legt að þeir skuli ekki vilja sjá
hvað við höfum að bjóða. Ég veit
ekki hvaða veð Samherji býður
uppá en við höfum m.a. veð í
skuldlausum togara Ými metinn
á 70-80 miljónir, þrjú stór iðnað-
arhús hér í bænum með hrein
veðbókarvottorð og ég veit að
Sigurður og Júlíus eiga einnig
miklar eignir," sagði Guðrún
Lárusdóttir.
-•g-
Hitaveitan
Aðalæðar
endur-
nýjaðar
Einangrun ónýt í
hitaveitulögnum
í Fossvoginum
Miklar viðgerðir eiga sér nú
stað á hitaveitulögnum í
Fossvogshverfi í Reykjavík. Að
sögn Jóhannesar Zoega hitaveitu-
stjóra er hér um að ræða endur-
nýjun á aðalæðum í hverfinu.
- Þegar við lögðum þessar
lagnir 1967 notuðum við froð-
steypu sem þá var það nýjast á
markaðnum, og þótti það fínasta
á norðurlöndum þá. Nú hefur
komið í ljós að þetta efni hentar
afar illa í vætusömum jarðvegi.
Samskonar efni var notað við hit-
aveitulagnirnar í Arbæ og þar
hefur það reynst vel, sagði Jó-
hannes.
Kostnaður við þessar fram-
kvæmdir eru áætlaðar um 20-25
miljónir króna.
-SG
Atvinnuleysi
Samkvæmt yfirliti frá fé-
lagsmálaráðuneytinu voru at-
vinnuleysisdagar í maímánuði
rösklega 16 þúsund talsins. Það
samsvarar því að um 800 manns
hafi verið skráðir atvinnulausir
allan mánuðinn sem er uþb. 0,6%
af mannafla á vinnumarkaði.
Skráðir atvinnuleysisdagar eru
uþb. 2 þúsund færri en í apríl og
þeir voru færri nú í maí en í sömu
mánuðum árin 1983 og 1984.
Eina undantekningin er höfuð-
borgin þar sem atvinnuleysis-
dögum fjölgaði um 2.400 milli
mánaða. í frétt frá ráðuneytinu
er látið að því liggja að þessi
fjölgun eigi sér þá skýringu að þar
0.6% í maí
sé um skólafólk að ræða. Síðasta
dag maímánaðar voru 224 skóla-
nemar á skrá í Reykjavík en á
sama tíma í fyrra voru þeir 432.
Þessar tölur benda til þess að
Eg hef ekki séð neina stefnu frá
Hafskip, sagði Halldór Hall-
dórsson ritstjóri HP, en í frétta-
tilkynningu frá Hafskip eftir að-
alfund félagsins um helgina kem-
ur fram að ákveðið hafi verið að
stefna ritstjóra og Ijósmyndara
HP fyrir „atvinnuróg og
meiðyrði“.
„Ég reikna með að þetta hafi
fyrst og fremst verið sett fram í
skólafólki hafi reynst auðveldara
að finna sér vinnu á þessu vori en í
fyrra og er á það bent að stúlkur
séu mun færri á skrá nú en í fyrra.
hótunarskyni, enda ber greinar-
gerð Hafskips um þetta mál það
með sér að þeir hafa ekkert að
athuga við kjarnann í grein Helg-
arpóstsins. Það sem er einkar at-
hyglisvert við þessa greinargerð
er í rauninni það sem ekki stend-
ur í henni. í þessu máli er ennþá
margt ósagt, og ekki öll kurl til
grafar komin,“ sagði ritstjóri HP.
-óg
-ÞH
Engin stefna frá Hafskip
Vortiappdrætti ABR
Vinningsnúmer birt á fostudag. Gerið skil!