Þjóðviljinn - 12.06.1985, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 12.06.1985, Blaðsíða 6
Auglýsing um aðalskoðun bifreiða, bifhjóla og léttra bifhjóla í Seltjarnarneskaupstað og Kjósar-, Kjalarnes- og Mosfellshreppum 1985. Skoðun fer fram sem hér segir: Seltjarnarnes: Þriðjudagur 18. júní Miðvikudagur 19. júní Fimmtudagur 20. júní. Skoðun fer fram við félagsheimilið á Seltjarnarnesi. Kjósar-, Kjalarnes- og Mosfellshreppur: Mánudagur 24. júní Þriðjudagur 25. júní Miðvikudagur 26. júní Fimmtudagur 27. júní. Skoðun fer fram við Hlégarð í Mosfellshreppi. Skoðað verður frá kl. 8.00-12.00 og 13.00-16.00, alla framantalda daga á báðum skoðunarstöðunum. Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu fylgja bifreiðum til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn leggja fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber skilríki fyrir því að bifreiðagjöld séu greidd, að vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi og að bifreiðin hafi verið Ijósa- stillt eftir 1. ágúst s.l. Athygli skal vakin á því að skrán- ingarnúmer skulu vera læsileg. Vanræki einhver að koma ökutæki sínu til skoðun- ar á auglýstum tíma, verður hann látinn sæta sekt- um samkvæmt umferðarlögum og ökutækið tekið úr umferð hvar sem til þess næst. Þetta tilkynnist öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi, Sýslumaðurinn í Kjós- arsýslu. 10. júní 1985. Einar Ingimundarson. Samkeppni um stúdentagarða Félagsstofnun stúdenta auglýsir hér með samkeppni um stúdentagarða. Keppnin fer fram eftir samkeppn- isreglum Arkitektafélags íslands. Þátttökurétt hafa all- ir arkitektar, og þeir sem hafa leyfi til að leggja aðal- teikningar fyrir bygginganefnd Reykjavíkur og háskólastúdentar í félagi við þá. Heildarverðlaunafé er kr. 900.000.-, og innkaup fyrir allt að kr. 200.000,- Keppnisgögn eru afhent hjá trúnaðarmanni dóm- nefndar, Þórhalli Þórhallssyni, Freyjugötu 41, 101, Rvk., sími 11465 og heimasími 16788. Frestur til að skila tillögum rennur út 4. september 1985. Rannsóknarstyrkir EMBO í sameindalíffræði Sameindalíffræðisamtök Evrópu (European Molecul- arBiologyOrganization, EMBO), styrkjavísindamenn sem starfa í Evrópu og ísrael til skemmri eða lengri dvalar við erlendar rannsóknastofnanir á sviði sam- eindalíffræði. Nánari upplýsingar fást um styrkina í menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykja- vík. Umsóknareyðublöð fást hjá Dr. J. Tooze, Executive Secretary, European Molecular BiologyOrganization, Postfach 1022.40, D-6900 Heidelberg 1, Sambands- lýðveldinu Þýskalandi. Umsóknarfrestur um styrki til 3ja mánaða eða lengur er til 15. ágúst en um styrki til skemmri tíma má senda umsókn hvenær sem er. Menntamálaráðuneytið 4. júní 1985. Vist á Stúdenta- görðunum næsta vetur Félagsstofnun stúdenta auglýsir hér með eftir um- sóknum um vist á Stúdentagörðunum fyrir næsta skólaár. Á Gamla og Nýja Garði eru samtals 92 ein- staklingsherberai og 4 parherbergi leigð út tímabilið 1. sept.-31. maí. A Hjónagörðum eru 4 þriggja herb. íbúðir og 51 tveggja herb. íbúðir, þar af 1 sérstaklega ætluð fötluðum, leigðar út tímabilið 1. sept.-1. sept. Umsaekjendur skulu stunda reglulegt nám við Há- skóla íslands. Umsóknir berist skrifstofu Félagsstofnunar stúdenta fyrir 25. júní nk. á umsóknareyðublöðum, sem þar fást. Félagsstofnun Stúdenta v/Hringbraut, box 21, Rvk. s.16482 ÞJÓÐMÁL „Það þarf ekki að orðlengja það að Siglfirðingar eru orðnir langeygðir eftir því að sjá þennan skóla komast af stað,“ sagði Ragnar Arnalds m.a. þegar hann spurði mennta- málaráðherra á þriðjudag hvað liði undirbúningi að stofnun Fiskiðnskóla í Siglu- firði. Ragnhildur Helgadóttir sagði að athugun þessa máls stæði enn yfir og nauðsynlegt væri að standa vel að undirbúningi nýs skóla. Frumathugun á aðstæðum í Siglufirði hefði farið fram og væri ljóst að fyrir Siglufjörð væri verulegur ávinningur í skóla- húsnæði og heimavist fyrir 30-40 nemendur, en það væri þó háð því að eigendur hússins væru því samþykkir. Húsnæði fyrir verk- námskennslu yrði að leigja eða byggja þar sem fyrirtæki í fiskiðn- aði gætu ekki leyst þá þörf, þó þau yrðu nýtt fyrir þjálfun nem- enda. Ragnhildur sagði að frekari at- hugun málsins þyrfti m.a. að taka til þess hvort þörf væri fyrir nýjan skóla á þessu sviði og hefðu nið- urstöður úr þessari frumathugun m.a. verið sendar sérstakri nefnd, sem nú fjallar um menntun í sjávarútvegsfræðum. Æskilegt væri að fá álit nefndar- innar í þessu máli, sem tengdist heildaruppbyggingu fiskiðn- menntunar í landinu. Björn Dagbjartsson lagði áherslu á að fleiri staðir kæmu til greina en Siglufjörður, m.a. ís- afjörður og Akureyri, sem nefnd- Fiskiðnskóli Sérskóli eða fjölbraut? Unnið er að athugun á stofnunfiskiðnskóla í Siglufirði ir hefðu verið strax í upphafi. Fiskvinnskuskóla væri hægt að staðsetja nánast hvar sem nægi- legt hráefni væri til staðar. Hins vegar skortir verulega kennara í Siglufirði og nær væri að hlúa að þeim skóla sem fyrir væri en stofna til nýs skóla á þessu sviði. Skúli Alexandersson sagði eðli- legt að menn hugleiddu hvar staðsetja ætti nýja stofnun á þessu sviði, en þó hálfur annar áratugur væri liðinn frá því Fisk- vinnsluskólinn í Hafnarfirði tók til starfa, þá væri hann enn hús- næðislaus og vanbúinn að sinna því starfi sem honum hafi verið ætlað. Skúli sagði það sína skoðun að það væri ekki æskileg- asta leiðin til að efla kennslu í fiskiðnaði og sjávarútvegsf- ræðum að stofna til nýrra sér- skóla, heldur efla til mun fjölb- rautaskólana, og byggja þar upp brautir til að fara inn á þennan vettvang. Óskaði hann eftir því að nefndin, sem menntamálaráðherra nefndi, tæki þetta til athugunar og einnig hvort ekki væri rétt að hefja kennslu í þessum fræðum strax í 9. bekk grunnskóla. -ÁI Störf alþingis Eni byggðarmál ómerkari en bjór Hjörleifur Guttormsson gagnrýnir ríkisfjölmiðlanafyrir að gefa bjórnum ofmikið rúm ífréttum miðað við önnurmál. Athugun á fréttum frá alþingi í bígerð hjá útvarpsstjóra. Útvarpsstjóri hefur óskað eftir samvinnu við forseta alþingis um athugun á fréttaflutningi og kynningu á alþingi í ríkisfjölmiðl- unum. Munu viðræður fara fram í sumar og er þess vænst að úr megi bæta fyrir næsta haust. Þessar upplýsingar komu fram hjá Þorvaldi Garðari Krist- jánssyni forseta sameinaðs þings í gær í framhaldi af gagnrýni sem Hjörleifur Guttormsson setti fram á fréttaflutning ríkisfjöl- miðlanna af störfum þingsins. Það vakti athygli að ríkisfjölmiðl- arnir sáu ekki ástæðu til að geta þessarar gagnrýni í kvöldfrétta- tímum sínum í gær. Hjörleifur kvaddi sér hljóðs utan dagskrár og taldi fjölmiðl- ana og ekki síst útvarp og sjón- varp gefa ranga mynd af störfum alþingis. Um þverbak hefði keyrt undanfarna daga hvernig bjórumræðan hefði verið tíunduð og sjónvarpið, sem hann teldi of sjaldséðan gest í þinghúsinu hefði t.d. vakað yfir störfum efri deildar klukkutímum saman af því tilefni í fyrrakvöld. Hjörleifur sagðist ekki kvarta undan of miklum fréttum af þessu máli, heldur hinu að öðrum málum væri ekki sinnt og heildarmyndin væri röng. Á sama tíma og bjór- inn hefði verið til umræðu í efri' deild, hefðu þingmenn neðri deildar t.d. verið að ræða byggð- amálin, sem væru stærsta málið í dag. Þeir hefðu síðan vaknað við að í þá hefði verið hreytt ónotum í fréttatíma útvarps og sagt að þeir hefðu farið út um víðan völl og verið að hita sig upp fyrir eld- húsdagsumræðuna. Hjörleifur óskaði eftir því að forseti hlutaðist til um að hlutlægt væri skýrt frá störfum þingsins, ekki með fyrirmælum eða rit- skoðun, heldur þannig að þjóðin frétti eðlilega af málum þingsins og störfum. -ÁI Spurtum... ...landvistarleyfi útlendinga Kolbrún Jónsdóttir hefur lagt fram fyrirspurn til dómsmálaráð- herra um landvistarleyfi erlendra ríkisborgara á íslandi. Kolbrún spyr hvaða reglur gildi þar um og í hve mörgum tilfellum á s.l. árum umsækjendur hafi fengið synjun um landvistarleyfi. Hún spyr einnig hvaða ástæður hafi legið að baki hverrar synjunar og hvort tekið sé tillit til þess ef um- sækjandi á ættingja hér á landi. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 12. júní 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.