Þjóðviljinn - 12.06.1985, Side 7
Tónlist
Sveiflan rœður ríkjum
LéttsvoitRíkisútvarpsins kemurfyrstfram ó þjóðhátíöardaginn.
Mýmörg verkefni
Stund milli sveiflna, Léttsveit Ríkisútvarpsins fékk leyfi í smástund hjá umsjón-
armanninum honum Óla í Ríó til að stilla sér upp fyrir Ijósmyndara. Sveitina
skipa: Björn Thoroddsen gítar, Viðar Alfreðsson franskt horn, Gunnar Hrafns-
son bassi, Steingrímur Óli Sigurðsson trommur, Stefán S. Stefánsson saxó-
fónn, Þorleifur Gíslason saxófónn, Þórir Baldursson hljómborð, Oddur Björns-
son básúna, Sveinn Birgisson trompet, Asgeir Steingrímsson trompet, Rúnar
Georgsson saxófónn, Pétur Grétarsson slagverk og Vilhjálmur Guðjónsson
saxófónn. Á myndina vantar Jón Kjell Seljeseth hljómborðsleikara. Ljósm.
E.ÓI.
Strákar, pásan er búin, tökum
„Hönnuna" einu sinni enn,
áður en við vindum okkur í
„Fatlaðafólið". Þannig rak
Ftíó-Óli strákana í Léttsveit
Ríkisútvarpsins áfram á
æfingu. Ensveitinvaraðæfa
sig fyrir frumraun sína sem
verður á Lækjartorgi á sjálfan
þjóðhátíðardaginn, 17. júní.
- Við munum eingöngu leika
lög eftir íslensk tónskáld og vona
ég að það hamli á móti allri þeirri
erlendu tónlist sem nú ríður hús-
um á íslandi, sagði Ólafur Þórð-
arson sem stundum er kenndur
við Ríó tríóið. Hann sagði að á
æfingardagskránni væru tólf lög
að þessu sinni, þar af væru fjögur
eftir útsetjarana fjóra, þá Gunn-
ar Þórðarson, Þórir Baldursson,
Stefán S. Stefánsson og Vilhjálm
Guðjónsson. Meðal annarra höf-
unda væru Jón Múli, Megas, Sig-
fús Einarsson og Magnús Eiríks-
son og fl.
- Verkefnin eru mýmörg.
Sveitin getur starfað í ýmsum
myndum, haldið tónleika og
leikið í skemmtiþáttum, en einn
stærsti kosturinn er að útvarpið
getur flutt upptökur með
sveitinni án aukakostnaðar hve-
nær sem okkur langar, sagði
Ólafur.
„Einn-tveir, einn-tveir-þrí-
fjór.“ Vilhjálmur Guðjónsson
gaf skipun og sveiflan í laginu
„Harðsnúna Hanna" eftir Gunn-
ar Þórðarson varð allsráðandi og
blaðamaðurinn óskaði sér þess
samstundis að hann væri ekki
samferða ljósmyndaranum sem
var að flýta sér á fótboltaæfingu.
- SG
Verður sýnd d vegum Hins leikhússins í Gamla bíói í sumar
í næstu viku hefjast sýningar
á Piaf eftir ensku skáldkon-
una Pam Gems í Gamla bíói.
Það er Hitt leikhúsið sem
stendurfyrir heimsókn
Leikfélags Akureyrar suður
með þessa vinsælu sýningu,
en sýningum lýkur nyrðra um
komandi helgi.
Edda Þórarinsdóttir I hlutverki Piaf og Guðlaug María Bjarnadóttir í hlutverki Marlene Dietrich.
Piaf er leikrit með söngvum, og
rekur sögu söngkonunnar frægu
frá vöggu til grafar. Stuttum at-
riðum er brugðið upp til að varpa
ljósi á lífshlaup Piaf og milli
þeirra er stungið nokkrum þekkt-
ustu og ástsælustu söngvum
hennar.
Leikurinn var frumsýndur á
Akureyri þann 8. mars og hefur
gengið þar fyrir fullu húsi síðan.
Leikstjóri er Sigurður Pálsson,
en Þórarinn Eldjárn þýddi
leikinn og vöktu þýðingar hans á
söngtextunum sérstaka athygli.
Leikmynd og búninga vann
Guðný B. Richards. Lýsingu ann-
aðist Viðar Garðarsson og verður
hún endurskoðuð fyrir sýninguna
í Gamla bíói vegna betri tækja-
kosts og stærra sviðsrýmis. Átta
manna hljómsveit skipuð hljóð-
færaleikurum úr Reykjavík og frá
Akureyri leikur undir stjórn Ró-
ars Kvam. Þá koma fram í sýn-
ingunni tveir dansarar og hefur
Ástrós Gunnarsdóttir. samið nýja
dansa fyrir flutning sýningarinnar
suður.
í titilhlutverkinu Edith Piaf, er
Edda Þórarinsdóttir en túlkun
hennar á þessari marbrotnu og
sérstæðu konu hefur vakið
óskipta aðdáun og mikla athygli.
Leikfélag Akureyrar
Piaf suður
Sunna Borg leikur vinkonu henn-
ar í strætinu. Guðlaug María
Bjarnadóttir leikur og syngur
Marlene Dietrich, og Emeiia
Baldursdóttir leikur ráðskonu
Piaf, Madelaine. Karlmennirnir í
leikhópnum þurfa að bregða sér í
fjölda hlutverka, en þeir eru
Gestur E. Jónasson, Marinó Þor-
steinsson, Pétur Eggerz, Teódór
Júlíusson og Þráinn Karlsson.
Miðasala hefzt í Gamla bíó 18.
júní og er opin daglega frá kl. 16 -
20.30. Síminn er 11470. Hand-
hafar Visakorta geta tryggt sér
miða símleiðis og pantanir eru
teknar fram í tímann á auglýstar
sýningar.
Frumsýning er þann 21. júní,
en næstu sýningar eru fyrirhugað-
ar 22., 23., 25., 26., þriðjudag og
miðvikudag, og svo 28., 29. og
30. sem er helgi. Ætlunin er að
sýna fram í júlí en aðsókn ræður
hversu lengi.
Með þessari heimsókn vill Hitt
leikhúsið gefa Reykvíkingum og
nágrönnum kost á ágætri og
skemmtilegri sýningu Leikfélags
Akureyrar og lengja nokkuð
leikárið sem er brátt á enda í
leikhúsum borgarinnar.
Miðvikudagur 12. júní 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7