Þjóðviljinn - 12.06.1985, Side 9

Þjóðviljinn - 12.06.1985, Side 9
MENNING Tónlist „Debút“ tónleikar Brynju Fantasía Schumanns op. 17 og „Myndir á sýningu“ eftir Múss- orgskí hafa aldrei þótt nein á- hlaupaverk fyrir píanóleikara þótt þaulreyndir séu, hvað þá heldur þegar um „debút“tónleika er að ræða. En Brynja Guttorms- dóttir var vandanum vaxin. Hún lék þessi meistaraverk af næmum skilningi og kunnáttu sem gerði henni kleift að yfirstíga ýmsa tæknilega örðugleika sem óneitanlega voru fyrir hendi, og kom hún þessum gífurlega erfiðu verkum til skila á sannfærandi hátt. Að vísu var stundum dálítið hægt leikið, eins og í marsinum (2. þáttur Fantasíunnar) og þá sérstaklega í enda þáttarins sem er mjög tæknilega erfiður. En ekkert fór forgörðum hjá henni og lék hún marsinn í heild mjög vel með fallega mótuðum línum. Samt var það fyrsti þátturinn sem ég var hrifnastur af í túlkun Brynju. Þar sýndi hún mikið hug- myndaflug ásamt tilfinningu fyrir uppbyggingu tónlistarinnar. Yf- irleitt var mjög vandvirknislega að öllu staðið og meðfædd tón- listargáfa hennar leyndi sér ekki í gegnum alla tónleikana. „Myndir á sýningu“ eftir Múss- orgskí var skemmtilega og hug- vitsamlega leikið, en það var ekki von að þessi fíngerða stúlka hefði alltaf þann kraft og úthald sem maður heyrir hjá þaulvönum konsertpíanistum. Það er ekki þar með sagt að Brynja hafi verið að reisa sér hurðarás um öxl í efn- isvali. Hún hefir þegar mjög góða tækni sem með áframhaldandi þjálfun mun fleyta henni yfir alla örðugleika. Og músikalskt var það, það eitt er víst. Áheyrendur þökkuðu lista- konunni með dynjandi lófataki og svaraði hún með tveimur Brynja Guttorms- dóttir. Ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur. aukalögum, eftir Debussy og John Speight, sem bæði voru mjög vel leikin og skemmtileg áheyrnar. Ég hefi af ásettu ráði sleppt að minnast á „Þrjár Gnoss- iennes“ eftir Erik Satie. Það er svo sem ágætt að byrja tónleika á þessum stykkjum, svona til þess að taka úr sér mestu taugaspenn- una, en mikil lifandis skelfing er þetta leiðinleg og ómerkileg mús- ík. Ekki meir um það. Að endingu vil ég óska Brynju Guttormsdóttur til hamingju með þennan áfanga á lista- brautinni, og hvet ég hana til að leggja nú ekki árar í bát, heldur láta aftur í sér heyra, því ekki vantar hana gáfurnar, eins og hún sýndi svo ótvírætt á þessum tón- leikum. R-S. Það var ekki verið að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur er Brynja Guttorms- dóttir þreytti frumraun sína sem konsertpíanisti á Kjarvalsstöðum 7. júní s.l. RÖGNVALDUR SIGURJÓNSSQ í júlí og ágúst verður haldin norræn tónlistarhátíð í Skál- holti í tilefni af því að liðin eru 300 ár frá fæðingu Jóhanns Sebastians Bachs, Georgs Friedrichs Hándels og Dom- enicos Scarlattis. Ennfremur er 10 ára afmæli Sumartón- leika í Skálholtskirkju. Bach Ihins vivi udfoste fi at th't cr Hándel I sumar er 10 ára afmæli sumartónleika í Skálholtskirkju. Sumartónleikar í Skólholtskirkju Norrœn tónlistarhátíð í tilefni af 300 ára afmceli Bachs, Hándels og Scarlattis Sumartónleikar í Skálholts- kirkju voru fyrst haldnir 1975. Frá upphafi hafa þar einkum ver- ið flutt íslensk verk og tónlist frá 17. og 18. öld. Þess má geta að þar hafa 20 íslensk verk eftir 10 tónskáld verið frumflutt. En jafn- framt hafa mörg hinna fornu verka verið flutt í fyrsta sinn á íslandi á sumartónleikunum. í sumar verður efnisskrá sumartónleika tileinkuð Bach, Hándel og Scarlatti og munu verk þeirra hljóma á öllum tónleikum, en tónleikar verða alls 15 á þessu margfalda afmælisári. Meðal verka sem flutt verða má nefna sembalsónötur Scarlattis, gömbusónötur og Goldberg- tilbrigði Bachs, sembalvísur og kammerverk Bachs og Hándels. Leikið verður á barokkfiðlu, barokkflautu, blokkflautu, sembal og viola da gamba. Listamenn frá Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð munu leika á hátíðinni ásamt ís- lendingum. í þessu sambandi má benda á að fólk og félög á hinum Norðurlöndunum hafa mjög átt þátt í endurreisn Skáiholtsstaðar. Þau nýmæli eru nú að tvennir stuttir tónleikar verða á laugar- dögum,þeirfyrrikl. 15:00 oghin- ir seinni kl. 17:00. Á sunnu- dögum verða tónleikar kl. 15:00 og messa kl: 17:00. I tengslum við hátíðina verður sýning frá Goethe-stofnuninni í Lýðháskólanum um ævi Bachs, Hándels og Schutz. Ennfremur verða seldar veitingar í Lýðhá- skólanum. Áætlunarferðir verða frá Umferðamiðstöðinni í Reykjavík alla tónleikadaga. Tónlistarhátíðin hefst laugar- daginn 6. júlí. Astfangin í tónlistinni Hljómplatqn Það vorar- A Musical Affair með Bergþóru Árnadóttur og Graham Smith er að koma út Fyrirtæplegaári, eða nán- ar tiltekið um Jónsmessu á síðasta sumri hittust þau Bergþóra Árnadóttir vísna- söngkona og fiðlusnillingur- inn Graham Smith í fyrsta sinn. Tilefnið var brúðkaup tveggja af eigendum hótelsins á Búðum á Snæfellsnesi, og voru þau Berg- þóra og Graham fengin þangað ásamt Magnúsi Þór Sigmunds- syni og Steingrími Guðmunds- syni slagverksleikara, til að leika í áðurnefndu brúðkaupi, en gamla kirkjan á Búðum er án orgels. Er þar skemmst frá að segja að þau Bergþóra og Graham urðu „tón- listarlega ástfangin“, ef svo má að orði komast og hafa unnið mikið saman síðan, leikið á krám borg- arinnar, á vísnakvöldum og ýms- um öðrum uppákomum. Af- rakstur þessarar samvinnu þeirra mun líta dagsins ljós á næstu dögum, því þá mun koma út hljómplata þeirra, „Það vorar - A Musical Affair." Þessi plata hefur að geyma 10 lög 6 eftir Bergþóru og 4 eftir Graham. Graham Smith og Bergþóra Árnadóttir: Afrakstur samvinnu þeirra mun líta dagsins Ijós á næstu dögum. Miðvikudagur 12. júní 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.