Þjóðviljinn - 12.06.1985, Síða 15
ÍÞRÓTTIR
Spánarleikurinn
„Stórkostlegur liðsandi“
HM-leikurinn íkvöld. Magnús veikur. Janus eða Gunnar í vörnina? Áhorfendur mikilvœgir,
segir Teitur. Spánverjar hrœddir, segir Guðmundur. Eins ogaðfá vítamín, segirAtli
„Ég held að það mætti leita
víða og lengi til að finna betri liðs-
anda en er í þessum hópi. Andinn
er stórkostlegur, og hann er
mikilvægur fyrir leik liðsins - það
sást best í leiknum við Skota á
dögunum," sagði Tony Knapp
landsliðsþjálfari íslands í knatt-
spyrnu í samtali við Þjóðviljann í
gær.
Knapp stendur frammi fyrir
einu vandamáli. Magnús Bergs er
búinn að liggja veikur í tvo daga
og það skýrist fyrst í dag hvort
hann geti leikið í kvöld. „Ég hef
misst mikinn kraft og þó ég
treysti mér kannski til að leika
þýðir það lítið nema ég komi að
gagni. En leikinn vil ég endilega
spila, þetta átti að vera kveðjul-
eikurinn minn og það yrði leiðin-
legt að missa af honum,“ sagði
Magnús í gær.
Hvað gerir Tony þá? „Ég hef
tvo möguleika," sagði hann..
„Draga Janus aftur í miðvarðar-
stöðuna, eða færa Þorgrím þang-
að og setja Gunnar Gíslason sem
hægri bakvörð. Það er mjög
mikilvægt að Magnús geti leikið.
Möguleikar á að komast til Mex-
íkó? Ekki miklir, við höfum verið
óheppnir. Ef heppnin hefði verið
á okkar bandi værum við nú með
5 stig í stað tveggja. Gegn Spáni
verður fyrst og fremst leikið fyrir
stolt íslenskrar knattspyrnu. Ég
er bjartsýnn, það er ekki annað
hægt með þennan hóp og þennan
liðsanda."
Teitur Þórðarsson fyrirliði á
von á allt öðruvísi leik en gegn
Skotunum á dögunum. „Én ég tel
að við verðum að leika okkar
knattspyrnu,“ sagði hann. „Við
verðum að ná tökum á miðjunnu
og ná upp spili. Það er engin upp-
gjöf í hópnum þrátt fyrir svekkj-
andi tap gegn Skotum, ég er
bjartsýnn og við gerum okkar
besta. Möguleikar okkar í riðlin-
um hafa minnkað ákaflega, en
við gefumst ekki upp. Það getur
enn allt gerst og við förum í þenn-
an Ieik til þess að sigra. Fyrsti
hálftíminn verður afgerandi fyrir
leikinn í heild, þeir reyna örugg-
lega að ná marki snemma, en ef
við stöndumst þá pressu getur allt
gerst. Ég vil hvetja sem flesta
áhorfendur til að mæta, við fund-
um vel gegn Skotum hve mikið
þeir hafa að segja,“ sagði fyrirlið-
inn.
„Liðið hjá okkur er orðið mjög
reynt og „rútinerað“,“ sagði
Guðmundur Þorbjörnsson. „Það
er Iiðin tíð að við berum virðingu
fyrir andstæðingunum og við
erum komnir í svipaðan gæða-
flokk og þjóðirnar sem eru með
okkur í riðli. Spánverjar eru
hræddir, það sést best á því að
þeir hafa verið níu daga í einang-
run, sem er örugglega einsdæmi
hjá nokkru landsliði fyrir leik
gegn íslandi."
„Þetta verður erfiðara en gegn
Skotum," sagði Þorgrímur Þrá-
insson. „Spánverjarnir eru fljóta-
ri og flinkari með boltann og við
megum því ekki gefa þeim neinn
tíma til að athafna sig og ná upp
sínu hættulega þríhyrningaspili.
Þetta er í fyrsta sinn sem ég leik
gegn spænsku liði, en það á ekki
að skipta máli. Andinn í hópnum
er frábær, ég hafði áhyggjur af
því fyrir Skotaleikinn að menn
væru kannski einum og léttir, en
það skilaði sér í enn meiri
leikgleði og samheldni."
,JVið gefum ekki bæði stigin,
svo mikið er víst,“ sagði Sigurður
Grétarsson. „Ég á von á öðruvísi
leik en gegn Skotum, meiri bar-
áttu, og við komum betur undir-
búnir til leiks.“
„Það er eins og að fá vítamín að
koma í þennan hóp,“ sagði Atli
Eðvaldsson, sem ekki síst er mað-
urinn á bak við léttleikann og
stemmninguna. „Spánverjar hafa
tapað í Skotlandi og Wales og því
skyldum við ekki geta sigrað þá?
Öll pressan er á þeim, það segir
enginn neitt ef við töpum, en tap
er sama og stórslys fyrir þá. Ég
vona að áhorfendur verði
jafnvirkir og gegn Skotum,
stemmningin þá var slík að mað-
ur var með gæsahúð allan
leikinn," sagði Atli.
„Við getum vel velgt þeim
undir uggurn," sagði Bjarni Sig-
urðsson markvörður. „Sjálfs-
traustið er í góðu lagi og leikurinn
leggst vel í mig.“
„Spánverjarnir vilja fá tíma til
að athafna sig úti á vellinum og
reyna síðan að prjóna sig í gegn.
Það er því mikilvægt að pressa þá
og gefa þeim engan tíma,“ sagði
Ómar Torfason. „Við förum ekki
útá völlinn með neina minnimátt-
arkennd, Tony Knapp kyndir
okkur vel upp með góðri ræðu
fyrir leikinn og ég vona bara að
þessi leikur verði framhald af
Skotaleiknum."
Tony Knapp tilkynnir ekki
byrjunarliðið fyrr en í dag, en
verði Magnús leikfær verður það
líklega óbreytt frá Skotaleiknum,
nema hvað Sigurður Grétarsson
eða Ragnar Margeirsson fer í
framlínuna í stað Péturs Péturs-
sonar. Þá er spurning um mark-
vörsluna en ekki er ólíklegt að
Bjarni komi í markið á ný í stað
Eggerts.
Eitt er á hreinu, strákarnir
munu leggja sig alla fram í kvöld
um að ná sem bestum leik og sem
hagstæðustu úrslitum. Það stefnir
ekki í neina lognmollu um hvaða
þjóðir komast í lokakeppnina í
Mexíkó næsta sumar. Það er
Laugardalsvöllurinn kl. 20 í
kvöld - síðasti stóri heimaleikur
íslenska landsliðsins á árinu 1985.
-VS
Handbolti
Þrír nýir
Bogdan Kowalczyck landsliðs-
þjálfari hefur bætt Guðmundi
Hrafnkelssyni markvcrði úr
Breiðabliki í íancisliöshóp sinn
sem æfir stíft um þessar mundir.
Þá er talið líklegt að hann muni
einnig bæta við þeim Sigurjóni
Guðmundssyni og Hermundi Sig-
mundssyni úr Stjörnunni. Allt
eru þetta ungir og upprennandi
leikmenn. -VS
Handbolti
Tobbi
ráðinn?
Miklar líkur eru á að Þorbjörn
Jensson landsliðsfyrirliði í hand-
knattleik taki við stjórn 1.
deildarliðs Vals fyrir næsta vetur.
Hann mun þá leika með liðinu,
jafnframt því að þjálfa það.
-VS
Pineda, nr. 9, hefur náð að spyrna knettinum yfir markalínu og tryggja þar með Spánverjum sigur, 0-1, í leik íslands og
Spánar í gærkvöldi.
ísland - Spánn U-21
Barattulaust tap
Kvennaknattspyrna
Bikarinn
Síðustu leikirnir í 1. umferð
bikarkeppni kvenna í knatt-
spyrnu fóru fram í fyrrakvöld.
Valur sigraði Stjörnuna 8-0, Sel-
foss tapaði 0-3 fyrir Fram og ÍR
tapaði 1-4 fyrir FH.
í 8-liða úrslitum mætast þá
eftirtalin félög:
ÍA-Haukar
ÍBK-FH
Valur-Breiðablik
KR-Fram
Bikarmeistarar Vals fá sem
sagt hið sterka lið Breiðabliks,
sem vann þá 7-1 í 1. deildinni á
dögunum, í heimsókn. Leikirnir
fara fram 1.-9. júlí.
-VS
Það var fátt um fina drætti á
Kópavogsvelli í gærkvöldi þegar
tið Islands og Spánar, skipuð leik-
mönnum undir 21 árs, áttust við.
íslenska liðið náði ekki upp bar-
áttu í leiknum gegn hörðum
Spánverjum. Spánverjar sigruðu
1-0, skoruðu úr sínu eina færi í
leik sem hefði átt að enda 0-0.
Okkar strákar fengu sitt besta
færi í byrjun leiksins. Á 5. mín.
náðu þeir að trufla markmanninn
eftir markspyrnu og barst boltinn
til Kristins Jónssonar sem var um
5 m fyrir utan vítateig. Mark-
vörður Spánverja var út við víta-
teig og markið tómt. Kristinn
náði ekki að skjóta nógu hnitmið-
að og tækifærið rann út í sandinn.
Stuttu síðar var Halldór Áskels-
son nálægt því að komast inn í
sendingu til markvarðar, en það
var aðeins byrjun á því sem entist
út leikinn. Þ.e. strákarnir voru
oft nálægt því að komast í færi,
ern herslumuninn vantaði til þess
að færin yrðu raunveruleg. Vörn
Spánverjanna var sterk og fljót
að byggja upp sókn eftir að okkar
menn höfðu misst knöttinn. Það
gekk þó ekki betur hjá þeim að
skapa sér færi.
A 36. mín. tók Kristján Jóns-
son mikinn sprett upp allan völl-
inn. Lék hann á fjölda Spánverja
og skaut rétt utan vítateigs, en
framhjá. Spánverjar ná síðan for-
ystu á 40. mín.. Vörnin missti af
Quique sem var aleinn inn í víta-
teig er hann fékk góða sendingu.
Hann náði að koma boltanum
framhjá Friðrik í markinu, í stöng
og þaðan fyrir markið. Mikil
þvaga myndaðist og höfðu strák-
arnir tvisvar möguleika á að
hreinsa, en það mistókst og Pine-
da komst að og sendi knöttinn af
öryggi í netið. Þetta var frekar
klaufalegt og ekki í samræmi við
gang leiksins.
fslensku strákarnir náðu sér
aðeins betur á strik í síðari hálf-
leik en, eins og í þeim fyrri, náðu
ekki að skapa sér hættuleg mark-
tækifæri. Spánverjar sýndu lítið
meira og var helst að hætta væri
þegar upp kom misskilningur á
milli íslensku varnarmannanna.
í heild var leikurinn ekki góður.
Ekki náðist upp sú barátta sem flestir
áttu von á og við vitum að liðið getur
sýnt. Það var helst Pétur Arnþórsson
sem barðist og Guðni Bergsson var
traustur í vörninni. Spánverjarnir
voru fljótir á boltann og gáfu engan
frið. En þeir voru grófir og hefði að
ósekju mátt gefa þeim fleiri en þau 2
gulu spjöld sem þeir fengu. Jafnvel
hefði mátt vísa einum þeirra útaf. Þá
var furðulegt að þeir skyldu ekki einu
sinni fá tiltal frá dómaranum fyrir
gegndarlausar tafir allan síðari hálf-
leikinn. í heildina dæmdi hann þó vel
og ekki við hann að sakast.
Spánverjar eru þar með búnir að
tryggja sér sigur í þessum riðli. „Við
náðum ekki nógu góðri stemmn-
ingu,“ sagði Guðni Kjartansson þjálf-
ari íslenska liðsins. „Menn voru ragir,
sérstaklega í fyrri hálfleik og náðu
ekki upp baráttu. Þeir sýndu það í
síðasta leik að þeir geta gert betur og
munum við reyna að vinna þá á
Spáni.“ „Við vonum bara að þetta
snúist við á morgun,“ sagði Guðni að
lokum.
-gsm
Kvennaleikir
ÍA vann
Skagastúlkurnar unnu sinn
annan sigur í 1. deildinni í gær-
kvöldi. Þeir unnu KR upp á Akra-
nesi 3-0.
Fyrri hálfleikurinn var frekar
daufur, en heimaliðið þó aðeins
sterkara. í seinni hálfleik var
nánast um einstefnu að ræða á
KR-markið. Á 50. mín. náði ÍA
forystu þegar Halldóra Gylfa-
dóttir skoraði eftir hornspyrnu.
Halldóra endurtók þetta um
miðjan hálfleikinn. Ásta Bene-
diktsdóttir gulltryggði svo sigur-
inn þegar hún skoraði með fal-
legu skoti frá vítateigshorninu.
Það var fyrsta snerting hennar á
knettinum, en var nýkomin inná
sem varamaður. Eftir þetta var
það markvörður KR sem kom í
veg fyrir fleiri mörk. -sh
Mi&vlkudagur 12. júní 1985 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 15