Þjóðviljinn - 25.06.1985, Page 1
141. tölublað 50. órgangur
MANNLÍF
ATVINNUUF
ÍÞRÓTTIR
Afbrot
Lögfræðingur stal miskabótum
Lögfrœðingurinn sem nú situr inni vegna skuldabréfafals hefur marg oft brotið afsér.
Sveik 1,2 miljónir miskabœtur af skjólstœðingi. Málið til kasta Ábyrgðasjóðs lögfrœðinga.
að hefur ýmislegt nýtt komið
upp á yfirborðið eftir að við
hófum rannsókn þessa máls, -
hún beinist nú að fleiri fölsunum
og frjárdrætti, sagði Erla Jóns-
dóttir deildarstjóri hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins,
þegar Þjóðviljinn bar undir hana
frétt sem blaðið hefur eftir á-
reiðanlegum heimildum að lög-
maðurinn sem nú situr í gæslu-
varðahaldi fyrir skjalafals hafi
svikið nærri tólf hundruð þúsund
kr. út úr einum af fyrrverandi
skjólstæðingum sínum.
Mál þetta snýst um mann sem
átti kröfur um miskabætur vegna
slyss. Lögmaðurinn sem nú situr í
gæsluvarðhaldi tók að sér málið.
Eftir að það hafði farið fyrir
undirrétt og manninum verði
dæindar miskabætur var því áfrý-
jað til Hæstaréttar. Áður en til
kasta Hæstaréttar kom var gert
samkomulag um greiðslu miska-
bóta milli mannsins og þeirra sem
ábyrgir voru fyrir slysinu.
Samkomulagið fól í sér að mann-
inum skyldi greitt með skulda-
bréfi.Lögmaðurinntók bréfið og
seldi en gerði ekki upp við skjól-
stæðing sinn.
Þegar það var ljóst fékk'hann
sér nýjan lögfræðing til að inn-
heimta peningana. Eftir mikla
eftirgangs-muni lagði lögmaður-
inn, sem nú situr í gæsluvarð-
haldi, fram víxla sem greiðslu á
skuldabréfinu sem hann hafi selt
og stungið undan. Nú hefur hins-
vegar komið í ljós að ábyrgðirnar
á bak við þessa víxla voru falsað-
ar.
- Ábyrgðasjóður lögmanna er
stofnaður til að mæta svona áföll-
um sem skjólstæðingar lögmanna
verða fyrir af hálfu lögmanna. í
sjóðnum eru nú 3,5 miljónirog er
hann fjármagnaður með að tek-
inn er hluti af málflutnings gjaldi í
hann, sagði Hafþór Ingi Jónsson
framkvæmdastjóri Lögmannafé-
lags íslands, þegar Þjóðviljinn
leitaði álits hans á þessu máli.
Hafþór sagði að ekki hefði enn
borist umsókn til sjóðsins vegna
máls þessa, en ef svo verður, eins
líklegt er talið, verður það í fyrsta
sinn sem kemur til kasta sjóðsins.
Lögmannafélagið hefur farið
þess á leit við dómsmálaráðherra
að lögmaðurinn sem nú situr í
gæsluvarðhaldi verði sviptur leyfi
sem málflutningsmaður. Mun
það vera í fyrsta sinn sem til slíks
kemur af hálfu Lögmannafélags-
ins.
-SG
Undirskriftasöfnun
Gegn
trukkavegi
„Við undirrituð förum fram á
það við borgarstjórn Reykjavík-
ur að frestað verði öllum ákvörð-
unum um mannvirkjagerð, þar
með talin gatnagerð í Laugarnesi
og á Laugarnestanga, uns gerð
hefur verið úttekt á fornminjum,
náttúrufari og útivistargildi þessa
einstaka svæðis.“ Á Jónsmessu-
vöku á Laugarnestanga í fyrra-
kvöld, sem milli 200 og 300 manns
tóku þátt í, hófst undirskrifta-
söfnun með þessum texta en ætl-
unin er að setja mikinn kraft í
þessa söfnun næstu daga og vik-
ur. Margt bcndir til að tekin verði
afstaða til vegargerðar þvert yfir
Laugarnestanga á borgar-
stjórnarfundi 4. júlí næstkom-
andi.
Jónsmessuvakan var haldin í
tengslum við Sigurjónsvöku og
var m.a. gengið um svæðið í fylgd
með Þór Magnússyni þjóðminja-
verði, Sigurði A. Magnússyni rit-
höfundi, Þorleifi Einarssyni
jarðfræðingi og Hrefnu Sigur-
jónsdóttur líffræðingi. Lýstu þau
fjölbreytileik náttúru og sögu-
minjaásvæðinu. -G.Fr
Bálkösturlnn var í friðsælli og fagurri Norðurkotsvörinni en trukkavegurinn kemur til með að liggja meðfram henni -
samþykktur verður. Ljósm.: Valdís
ef
Ný sókn
íslenskt hugvit í sókn
Þingmenn Alþýðubandalagsins íheimsókn í Verkfrœði- og Raunvísindadeild Háskólans.
Svavar Gestsson: Ótrúlega mikið að gerast hjá vísindamönnum Háskólans.
Lyftistöng fyrir íslenskt atvinnulíf
Okkur var tekið einstaklega vel
af starfsfólki Háskólans, ekki
síst af tiivonandi rektor, Sig-
mundi Guðbjarnasyni. Það er
óhætt að segja að við heýjuðum
okkur forða mjög góðra hug-
mynda, og hygg að við skiljum nú
miklu betur þá starfsemi sem
hérna fer fram.
Þetta sagði Svavar Gestsson,
formaður Alþýðubandalagsins,
en hann fór í gærmorgun ásamt
tveimur öðrum þingmönnum
flokksins, þeim Skúla Alexand-
erssyni og Steingrími J. Sigfúss-
yni, í heimsókn í Verkfræði- og
Raunvísindadeild Háskólans, og
Reiknistofnunina. Þessi heim-
sókn var sú fyrsta af mörgum sem
forsvarsmenn flokksins hyggjast
fara á ýmsar rannsóknarstofnan-
ir, til að kynnast starfsemi þeirra
betur, og afla sér gleggri hug-
mynda um hvernig starfsemi
þeirra megi nýtast atvinnulífinu á
ýmsan hátt betur. En í Alþýðu-
bandalaginu er nú unnið að
gagngerri stefnumótun í atvinnu-
málum.
„Mér þótti afar fróðlegt að
heyra og sjá hversu mikið af nýj-
um gagnhugmyndum eru í fæð-
ingu hjá þeim í Háskólanum,"
svaraði Svavar. „En hitt var ekki
síður fróðlegt að sjá og finna,
hversu fjársvelti hamlar mjög
ýmsum þjóðþrifarannsóknum.
Mér var til að mynda greint frá
merku verkefni sem gæti sparað
þjóðarbúinu miljónir eða jafnvel
miljónatugi, en það vantar fé til
að ljúka því endanlega. Þetta er
afskaplega sárt að heyra“.
„Okkur voru til dæmis kynntar
hugmyndir um nýtingu mós til
brennslu, og Þorkell Helgason
greindi frá nýrri reiknitækni sem
felur í sér stórkostlega hagræð-
ingu við glerskurð og gæti sparað
háar upphæðir. Þessi tækni, eða
svipuð, gæti nýst mjög vel á fleiri
sviðum“.
„Ég legg áherslu á, að þetta er
einungis fyrsta heimsóknin af
mörgum, og er liður í þeirri við-
leitni okkar að kynnast frá fyrstu
hendi því hugviti sem til er í
landinu og er raunar í sífelldri
þróun í stofnunum einsog þess-
um,“sagði Svavar aftur og ítrek-
aði ánægju sína með þær jákvæðu
móttökur sem þeir Alþýðu-
bandalagsmenn fengu, og sagðist
sannfærður að íslenskt hugvit
væri í sókn.
aró/ÖS
Sjá bls. 4 og 17.